Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 60

Morgunblaðið - 04.02.2005, Síða 60
60 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 10.30.  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið OCEAN´S TWELVE Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE Sýnd kl. 5.30 og 10.05 Sýnd kl. 6 og 9.10. tilnefningar til óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar- Cate Blanchett og Alan Alda. 11 VINSÆLUSTU MYNDIRNAR Á FRÖNSKU KVIKMYNDAHÁTIÐINNI SÝNDAR ÁFRAM V.G. DV. Langa trúlofunin - Un Long dimanche. Sýnd kl. 5.30 og 8. Grjóthaltu kjafti - Tais toi. Sýnd kl. 8.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.30. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. Sýnd laugardag og sunnudag KRINGLAN Sýnd kl. 9 og 11. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun KRINGLAN Sýnd kl. 4.30, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14  Ó.H.T. Rás 2. .T. ás 2  H.L. Mbl. Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA LEONARDO DiCAPRIO H.L. Mbl. Kvikmyndir.is MARTHA Stewart hefur tekið að sér sama hlutverk og Donald Trump í nýrri útgáfu Lærlingsins (The Apprentice) á sjónvarpsstöð- inni NBC. Stewart tekur ekki við af Trump, heldur munu þáttaraðirnar verða tvær. Þættir Mörthu munu heita The Apprentice: Martha Stewart, en orðrómur um þessa nýju þætti hefur verið í gangi mán- uðum saman. Mark Burnett og Donald Trump verða aðalframleiðendur þáttanna, líkt og þeirra upprunalegu, en fyrsta röðin fer í loftið í haust. Stewart losnar úr fangelsi í næsta mánuði og hefur þá fimm mánaða afplánun í stofufangelsi. Framleið- endur segja að tökur hefjist þegar þeirri afplánun lýkur. Þættir Stewart munu verða með svipuðu sniði og Trumps, nema hvað áherslan verður á sérfög hennar; heimaiðnað og hönnun. Martha Stewart með nýjan Lærling Martha Stewart hefur ástæðu til að brosa enda nýir sjónvarpsþættir í burðarliðnum. Austurríski tónlistarmaðurinn Fennesz(fullt nafn Christian Fennesz) hefurundanfarin ár verið undir smásjá tón- listaráhugamanna og þykir raftónlist hans með því allra áhugaverðasta sem fram hefur komið lengi í þeim geiranum. Fennesz mun halda tón- leika hérlendis í dag og um helgina ásamt Jó- hanni Jóhannssyni og DJ Musician.    Styrkur Fennesz liggur m.a. í því að hannnýtur virðingar bæði hjá þeim sem vilja það „þungt og spekingslegt“ og þeim sem eru „poppaðri“ í hugsun ef svo má að orði komast. Segja má að Fennesz hafi „slegið í gegn“ með plötu sinni Endless Summer árið 2001 þar sem honum tókst á einhvern ótrúlegan hátt að búa til aðgengilega og gríp- andi óhljóðatónlist án nokk- urrar listrænnar málamiðlunar. Þetta er eins og komast upp með að gera satanískt jólalag og koma því á vinsældalista að auki. Á síðasta ári kom svo út platan Venice og festi hún Fennesz enn frekar í sessi, dómar um plötuna hafa verið lofsamlegir og er Fennesz á fljúgandi fart nú um stundir. Blaðamaður ræddi stuttlega við Christian vegna heimsóknarinnar. Hann lýsir því að til- drög hennar hafi verið nokkuð einkennileg. „Málið er það að kærastan mín er á Íslandi nú um stundir. Hún er dansari og er að vinna með Ernu Ómarsdóttur. Mig langaði til að heimsækja hana og ég setti mig í samband við Jóhann en við þekkjumst ágætlega, höfum ver- ið að spila saman á hátíðum og svoleiðis og er- um auk þess á mála hjá sama útgáfufyrirtæk- inu (Touch). Hann stakk upp á því að ég myndi halda tónleika í leiðinni og mér leist prýðilega á það. Og þannig er þetta tilkomið.“    Fennesz segir uppbyggingu tónleika sinnafrekar einfalda; hann notist við gítar, tölvu og einnig varpi hann myndum upp á vegg. „Ég spinn á tónleikunum en notast við lög og grunna sem ég hef þegar samið. Ég legg líka áherslu á hljóminn og vil hafa hann nokkuð há- væran. Í upphafi notaði ég bara kjöltutölvu á tónleikum en svo fannst mér það vera orðið of lokað og leitaði því í ræturnar og tók upp gamla gítarinn. Ég er gítarleikari að upplagi og flestöll hljóðin sem ég nota eru unnin gít- arhljóð. Þetta á sérstaklega við um fyrstu plöt- urnar mínar. Það er frábært að nota gítarinn á tónleikum – dálítið rokkstjörnulegt (hlær).“ Fennesz lýsir því svo að hann sé nánast kom- in í heilhring en hann byrjaði nefnilega ferilinn í tilraunarokksveitinni Maische. Heilhringurinn er í formi þess að Ryuichi Sakamoto er búinn að biðja hann um að spila með sér á tónleika- ferðalagi í Japan – og þá eingöngu sem gít- arleikari í hljómsveitinni sinni! Þannig er mál með vexti að Fennesz og Sakamoto eru nýbúnir að vinna plötu saman en þeir kynntust í gegn- um langtíma samstarfsmann Sakamoto, David Sylvian, sem syngur eitt lag á Venice. „Ég sendi Sylvian tölvupóst og spurði hann hvort hann vildi syngja lag á Venice. Hann svaraði um hæl og sagðist vel vera til í það – ef ég myndi vilja semja lag fyrir hann í staðinn (hlær). Sylvian er mjög hæfileikaríkur maður og við erum orðnir ágætir vinir í gegnum þetta ferli.“    Fennesz lýsir Venice sem frekar niðurdrep-andi verki. „Ég þjáist illa af vetrarþunglyndi verð ég að játa og það verður verra með árunum. Þegar ég var að taka plötuna upp var ég í tvo mánuði í hljóðverinu og hitti engan allan þann tíma. Tónlistin varð því nokkuð sorgleg en þó heyri ég vonarglætu í flestum laganna.“ Fennesz hefur einni unnið náið með manni sem er andlega skyldur honum, Bandaríkja- manninum Jim O’Rourke (Sonic Youth, Gastr Del Sol) og hafa þeir gefið út tvær plötur undir nafninu Fenn O’Berg (ásamt líka Peter Reh- berg eða Pita). O’Rourke er einn virtasti til- raunatónlistarmaður samtímans og á það sam- eiginlegt með Fennesz að dufla eina stundin við laufléttar melódíur en aðra við argasta utan- garðshávaða. „Ég og Jim erum búnir að vinna saman í meira en tíu ár. Þetta er eins konar tónlist- arlegt ástarsamband. Ég samþykki það fúslega að við erum andlega skyldir menn.“ Fennesz býr í Vín og París en Vín hefur ver- ið þekkt undanfarin ár sem mikil raftónlist- arborg. „Já, hún er nokkuð sterk senan þar,“ segir hann. „Það er mikil sköpun í gangi, mikið um áhugaverða tilraunastarfsemi þar sem spuna- tónlistarmenn úr djasstónlistinni t.d. vinna með raftónlistarmönnum o.s.frv.“ Fennesz segist að lokum ánægður með að tónlist sín sé að brúa bil á milli ólíkra hlust- endahópa. „Ég vil að þetta sé rokkað og poppað. Mér hrýs hugur við að einu hlustendurnir séu þess- ar einstrengingslegu raftónlistartýpur.“    Fennesz mun troða upp í 12 Tónum, Skóla-vörðustíg í dag klukkan 17.00 ásamt DJ Musician. Þar verður hægt að nálgast forsmekk að tónleikunum á morgun sem verða hins vegar haldnir í Klink og Bank og hefjast þeir klukkan 21.00. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Einnig leika Jóhann Jóhannsson og DJ Musicican. Jóhann mun leika ásamt slagverks- leikara og strengjasveit. Aðgengileg óhljóð ’Ég vil að þetta sé rokkað ogpoppað. Mér hrýs hugur við að einu hlustendurnir séu þessar einstrengingslegu raftónlist- artýpur.‘ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Líkt og Jóhann Jóhannsson styðst Fennesz við tölvu í tónlistarsköpun sinni og eiga þeir það einnig sameiginlegt að samþætta þar vélræn hljóð og lífræn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.