Morgunblaðið - 02.04.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 87. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Fljúgandi
furðuhlutur
Sveppi leikur Kalla
á þakinu | Menning
Lesbók, börn og Íþróttir
Lesbók | H.C. Andersen 200 ára Er ný tónlist leiðinleg? Börn |
Fiðrildi á ferð Ævintýri á Egilsstöðum Íþróttir | Keflavík vann
fyrsta leikinn Byrjaði að halda með Chelsea í bíói
FORMENN stjórnarflokkanna,
Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms-
son, hafa handsalað samkomulag
sín í milli, um það með hvaða hætti
verður staðið að sölu Símans.
Samkomulag þeirra felur það í
sér, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, að Síminn verður seldur
í einu lagi, en jafnframt að hver
hópur tilboðsgjafa verði að vera
settur saman af þremur viðskipta-
hópum eða einstaklingum og má
enginn einn fjárfestir eiga meira en
40% til 45% hlut.
Einkavæðingarnefnd hefur ekki
enn skilað niður-
stöðum sínum til
ríkisstjórnarinn-
ar, en fastlega er
búist við því að
það verði gert
um helgina og
eigi síðar en á
mánudag.
Samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins eru
margir sjálfstæðismenn ekki sáttir
við það samkomulag sem flokks-
formennirnir
hafa gert með
sér, því þeir vildu
eindregið selja
hæstbjóðanda
Símann og höfðu
gert sér í hugar-
lund að hægt
yrði að laða er-
lenda fjárfesta
hingað til lands.
Framsóknar-
menn munu á hinn bóginn hafa gert
þá niðurstöðu sem varð að ófrávíkj-
anlegri kröfu sinni og munu því
vera sáttir við þá málamiðlun sem
þeir Davíð og Halldór gerðu með
sér.
Þetta fyrirkomulag segja sjálf-
stæðismenn sem rætt var við vera
„ótrúlegt klúður“ og spyrja m.a.
hvernig eigi að líta á það ef eitt fé-
lag, með hundruð eða þúsundir
hluthafa, sé meðal hæstbjóðenda.
Búist er við því að flokksfor-
mennirnir kynni samkomulag sitt á
ríkisstjórnarfundi strax eftir helgi
og í kjölfarið verði það kynnt á
þingflokksfundum stjórnarflokk-
anna.
Halldór og Davíð hafa náð
samkomulagi um sölu Símans
Síminn seldur í einu lagi en að
lágmarki til þriggja hópa fjárfesta
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Davíð
Oddsson
Halldór
Ásgrímsson
Sjóður til að efla/4
EIMSKIP bætti við aukaferð til
Bandaríkjanna vegna stóraukins
innflutnings þaðan á undanförnum
vikum og mán-
uðum vegna
hagstæðs gengis
Bandaríkjadals.
Leiguskip
hefur verið
fengið til flutn-
inganna og lest-
aði það í Nor-
folk í byrjun
vikunnar og er
væntanlegt til
Íslands um
miðja næstu
viku meðal ann-
ars með 200 bíla
innanborðs.
Höskuldur H.
Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá
Eimskip, sagði að þeir væru með
reglubundnar beinar ferðir milli
Bandaríkjanna og Íslands á hálfs
mánaðar fresti, auk flutnings um
Evrópu.
Þeir hefðu hins vegar talið
nauðsynlegt að bæta við þessari
aukaferð vegna mikillar aukningar
á innflutningi frá Bandaríkjunum
að undanförnu vegna hagstæðs
gengis Bandaríkjadals.
Aukaferð
vegna
mikilla
flutninga
Bandaríkin
Harare. AP | Flokkur Roberts
Mugabe, forseta Zimbabwe,
fékk mikinn meirihluta á þingi
landsins í kosningum í fyrradag
samkvæmt síðustu kjörtölum í
gær. Leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar, Morgan Tsvangirai,
sakaði Mugabe um „stórfelld
kosningasvik“ og sagði hann
hafa beitt öllum brögðum til að
tryggja að flokkur hans fengi
tvo þriðju þingsætanna, eða
nógu mörg til að geta breytt
stjórnarskránni að eigin vild.
Kosið var um 120 þingsæti og
flokkur Mugabe hafði fengið 69
þeirra samkvæmt síðustu frétt-
um, en flokkur Tsvangirai 35.
Forsetinn skipar 30 þingmenn
til viðbótar og útlit var því fyrir
að flokkur hans fengi tvo þriðju
þingsætanna.
„Stjórnin hefur enn einu
sinni svikið þjóðina með kosn-
ingasvikum,“ sagði Tsvangirai.
Mannréttindahreyfingar og
bandarískir stjórnarerindrek-
ar, sem fylgdust með kosning-
unum, tóku undir þessar ásak-
anir.
Mugabe
sakaður
um svik
Páfagarði. AP, AFP. | Jóhannes Páll II páfi lá fyrir
dauðanum í gærkvöldi. Embættismenn í Páfagarði
sögðu að ástand páfa væri mjög alvarlegt vegna
hjarta- og nýrnabilunar, auk þess sem hann ætti
erfitt með öndun.
Milljónir manna út um allan heim biðu fyrir páfa,
krupu, lutu höfði og kveiktu á kertum.
„Í kvöld, eða í nótt, opnar Kristur dyrnar fyrir
páfa,“ sagði Angelo Comastri, prestur í Páfagarði
og aðstoðarmaður páfa, við tugi þúsunda manna
sem báðu fyrir páfa á Péturstorginu í gærkvöldi.
Sérstakar messur voru einnig haldnar í kaþólsk-
um kirkjum víða um heim til að biðja fyrir páfa sem
er trúarlegur leiðtogi um 1,1 milljarðs manna.
Fyrr um daginn var tilkynnt í Páfagarði að
ástand páfa væri „mjög alvarlegt“ vegna hjarta- og
nýrnabilunar og blóðsýkingarlosts vegna þvag-
færasýkingar. Joaquin Navarro-Valls, talsmaður
Páfagarðs, sagði að páfi ætti erfitt með öndun og
blóðþrýstingurinn hefði lækkað.
Javier Lozano Barragan, kardináli og heilbrigð-
isráðherra Páfagarðs, sagði að páfi væri „að dauða
kominn“. „Ég talaði við lækna og þeir sögðu mér að
öll von væri úti.“
Embættismenn í Páfagarði neituðu fréttum um
að páfi væri látinn eftir að ítölsk fréttastofa skýrði
frá því að heilasívaki hans sýndi að heilinn starfaði
ekki lengur. Embættismennirnir sögðu að enginn
heilasívaki væri í íbúð páfa.
Vildi ekki fara á sjúkrahús
Talsmaður Páfagarðs sagði síðdegis í gær að páfi
hefði viljað vera þar um kyrrt og neitað að fara á
sjúkrahús. Hann hefði fulla meðvitund og mætti ör-
lögum sínum af æðruleysi.
Eftir að heilsu páfa hrakaði í fyrradag bað hann
um að lesnar yrðu upp nokkrar ritningargreinar og
bænir þar sem fjallað er um píslarsögu og kross-
festingu Krists. Hann krossaði sig við hverja bæn.
Hátt settur kardináli sagði að páfi hefði „gefið sig
vilja Guðs á vald“. Haft var eftir Konrad Hejmo,
presti og leiðtoga kaþólskra Pólverja í Róm, að páfi
væri „tilbúinn að deyja“.
Marcio Francesco Pompedda kardínáli heimsótti
páfa í gærmorgun og sagði hann hafa opnað augun
og brosað. „Ég sá að hann þekkti mig. Þetta var
yndislegt bros – föðurlegt. Ég tók líka eftir því að
hann vildi segja mér eitthvað en gat það ekki. En
það sem heillaði mig mest var hvað hann var frið-
sæll.“
Jóhannes Páll II var kjörinn páfi 1978 og varð þá
fyrsti páfinn í 455 ár sem ekki var ítalskur.
Páfa ekki hugað líf
Reuters
Áætlað er að allt að 70.000 manns hafi safnast saman á Péturstorginu í Rómaborg, fyrir framan íbúð páfa, til að biðja fyrir honum í gærkvöldi.
„Í kvöld, eða í nótt, opnar Kristur dyrnar fyrir páfa,“ sagði að-
stoðarmaður páfa á fjölmennri bænasamkomu á Péturstorginu
Verður næsti páfi/34