Morgunblaðið - 02.04.2005, Blaðsíða 56
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
EKKI FARA
ÞARNA INN
LALLI!
ÞVÍ MIÐUR
MARGRÉT. ÉG
VERÐ...
HUGRAKKI
LALLI
HUGRAKKI,
HEIMSKI,
LALLI
STÓRA
GRASKERIÐ
ER KARL-
REMBA!
HMM
AF HVERJU MÁ ÉG EKKI VAKA
LENGUR? ÞIÐ MEGIÐ ÞAÐ!
ÞETTA ER EKKI
SANNGJARNT!
LÍFIÐ ER EKKI
SANNGJARNT KALVIN
ÉG VEIT. EN AF HVERJU ER
ÞAÐ ALDREI ÓSANNGJARNT
MÉR Í HAG?
Risaeðlugrín
© DARGAUD
Dagbók
Í dag er laugardagur 2. apríl, 92. dagur ársins 2005
Víkverji ók fyrirskemmstu bifreið
sinni inn á bensínstöð,
dældi á hana eldsneyti
og hugðist greiða fyrir
bensínið með greiðslu-
korti í þar til gerðum
bensínsjálfsala. Þetta
væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir
það að sjálfsalinn
brást hinn versti við
og harðneitaði að taka
við greiðslukortinu,
spýtti því út úr sér í
tvígang og sagði enga
heimild fyrir þessum
viðskiptum Víkverja.
Víkverji varð dálítið hvumsa, taldi
sig ætíð hafa staðið í öllum skilum og
vera fyrirmyndarviðskiptavinur.
Hann dældi engu að síður bensíni á
bíl sinn og arkaði inn í bensínstöðina
með greiðslukortið á lofti. En þar
var kveðinn upp sami dómur,
greiðslukorti Víkverja var enn hafn-
að og því þurfti hann að reiða fram
reiðufé fyrir bensíninu.
Málinu var hinsvegar ekki lokið af
hálfu Víkverja. Hann hringdi þegar í
stað í greiðslukortafyrirtæki sitt,
sagði farir sínar ekki sléttar og
spurðist fyrir um hverju sætti. Ekki
stóð á svörum. Jú, eitthvað er um að
bensínsjálfsalar og bensínstöðvar
hafni greiðslukortum
að ástæðulausu. Þann-
ig var það í tilfelli Vík-
verja.
En þar með er ekki
öll sagan sögð, því þó
að korti hans hafi ver-
ið hafnað var upp-
hæðin færð í öllum
höfnunartilfellunum
inn á greiðslukort-
areikning Víkverja.
Hann borgaði sem
sagt fjórum sinnum
fyrir bensínskammt-
inn sinn. Þetta þótti
Víkverja ótækt og
krafðist leiðréttinga,
sem hann og fékk hjá viðkomandi ol-
íufélagi.
Víkverji verður seint sakaður um
aðhaldssemi eða árvekni í fjármál-
um. Hann hefði sennilega aldrei
uppgötvað þessar umframfærslur
nema fyrir það að honum var bent á
þær af starfsmanni greiðslukorta-
fyrirtækisins. Nú eru eflaust flestir
aðgætnari í fjármálum en Víkverji
en hann hvetur alla til að huga vel að
þessu, verði þeir fyrir því að
greiðslukorti þeirra sé hafnað að
ástæðulausu á bensínstöðvum. Það
ku víst vera nokkuð algengt. Nógu
dýr er víst bensíndropinn þó að ekki
þurfi að greiða margoft fyrir hann.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
H.C. Andersen | Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til fjölskyldutónleika í Há-
skólabíói í dag kl. 15 þar sem fjörið og ævintýrin verða í hávegum. Örn Árnason
verður kynnir og sögumaður en hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnars-
son. Dagskráin er helguð minningu H.C. Andersens en hann fæddist þennan
dag fyrir 200 árum, svo víða um heim er hans minnst. Miðaverði er stillt í hóf,
aðeins 1.000 krónur fyrir börn og 1.500 fyrir fullorðna. Á efnisskránni er For-
leikur að Nýársnóttinni eftir Árna Björnsson, Hljómsveitin kynnir sig eftir
Benjamin Britten og Förunauturinn eftir Fuzzy / H.C. Andersen.
Miðasalan hefst í Háskólabíói klukkan 13.
Morgunblaðið/Eyþór
Ævintýri og fjör á
fjölskyldutónleikum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá,
sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann velur. (Róm. 14, 22.)