Morgunblaðið - 02.04.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
FRÉTTIR
Vestmannaeyjar | Það vakti minn-
ingar frá upphafi skuttogaraaldar
á Íslandi í kringum 1970 að sjá
togara í höfninni í Vestmanna-
eyjum með gamalkunnu lagi.
Þarna var kominn togarinn Bjart-
ur NK frá Neskaupstað sem var
að landa 125 körum eða um 40
tonnum sem fóru í gáma sem send-
ir voru á England og Þýskaland.
Bjartur er einn tíu skuttogara
sem smíðaðir voru í Japan fyrir Ís-
lendinga á árunum eftir 1970 og
kom hann til heimahafnar í febr-
úar 1973. Bjartur hefur þá sér-
stöðu að vera sá eini af Japanstog-
urunum sem ekki hefur verið
breytt. En þó hann sé kominn á
fertugsaldurinn ber hann eig-
endum sínum í Síldarvinnslunni
fagurt vitni því honum er vel við
haldið.
Birgir Sigurjónsson, skipstjóri á
Bjarti frá 1993, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu skotist
inn til að koma fiskinum sem
ferskustum í gáma. „Þetta er gert
af hagkvæmnisástæðum og það var
styst hingað til Eyja,“ sagði Birgir.
„Aflinn er þorskur og ýsa sem fara
í tveimur gámum á England og
karfinn fer í einn gám sem við
sendum á Þýskaland.“
Þegar talið barst að hinu
reynslumikla skipi sagði Birgir að
það væri búið að reynast vel enda
gott skip í alla staði. „Þó hann
haldi sínu gamla útliti er í honum
ný vél og spil og innréttingar hafa
að einhverju leyti verið endurnýj-
aðar. Að öðru leyti er þetta sami
gamli og góði Bjartur,“ sagði Birg-
ir skipstjóri, greinilega stoltur af
sínu fleyi.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Bjartur í góða veðrinu í Vestmannaeyjahöfn í gær en hann var einn þriggja togara sem landaði þar í gær.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ríkharð Svan Axelsson háseti og afleysingastýrimaður.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Birgir skipstjóri og Viðar Sigurðsson annar stýrimaður.
Skutust til
Eyja til að
koma fiskin-
um sem fersk-
ustum í gáma
Skapti Hallgrímsson
og Magnús Sigurðsson
ræða við Bobby Fischer
Ekkert
annað land
vildi taka
við mér
á morgun
GYÐA Baldursdóttir hjúkrunar-
fræðingur, formaður hjúkrunar-
ráðs LSH, hefur sent frá sér eft-
irfarandi athugasemd:
„Þótt mörgum kunni að þykja
það að bera í bakkafullan lækinn
að fjalla enn um málefni Landspít-
ala –háskólasjúkrahúss (LSH) op-
inberlega, finn ég mig knúna til að
leiðrétta það sem kom fram í grein
Sveins Guðmundssonar, yfirlæknis
Blóðbankans, í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 31. mars sl.
Þar segir hann: „Stuðningsyfir-
lýsing hjúkrunarráðs við bréf okk-
ar yfirlæknanna dregur fram mik-
ilvæga þætti, sem starfsmenn
LSH ræða daglega.“ Þarna er
hallað réttu máli. Stjórn hjúkr-
unarráðs LSH hefur ekki sent frá
sér stuðningsyfirlýsingu við bréf
yfirlæknanna 12.
Hins vegar sendi stjórn hjúkr-
unarráðs frá sér fyrir rúmu ári
síðan eða 8. mars 2004 umsögn til
stjórnarnefndar LSH vegna end-
urskoðunar á stjórnskipulagi sem
þá stóð yfir. Þar segir stjórnin að
hún álíti stjórnskipulag LSH
þungt í vöfum og tryggi ekki nægi-
lega faglegar áherslur í starfi spít-
alans. Þar er einnig tekið fram að
stjórnin álíti að klínísk starfsemi
þurfi að eiga meira vægi í yf-
irstjórn hans.
Stjórnarnefnd hefur nú sent frá
sér ályktun þar sem m.a. kemur
fram að forstjóri og framkvæmda-
stjórn muni á næstunni boða til
fundar með ýmsum stjórnendum
spítalans og fulltrúum hjúkrunar-
ráðs og læknaráðs með það að
leiðarljósi að efla enn frekar sam-
skipti og auka samráð þessara að-
ila og yfirstjórnar LSH. Þessu
fagnar stjórn hjúkrunarráðs. Nú
ber að líta til framtíðar og snúa
okkur að því að efla starfsemi spít-
alans enn frekar, sjúklingum og
landsmönnum til heilla.“
Athugasemd
formanns hjúkr-
unarráðs LSH
NÝ dagvöruverslun tók til starfa á
Stöðvarfirði í gær, föstudag. Þar hef-
ur ekki verið starfrækt matvöruversl-
un frá því í september í fyrra, þegar
Stöðfirska verslunarfélagið hætti
starfsemi.
Nýja verslunin, sem ber nafnið
Brekkan, er kærkomin fyrir íbúa
fjarðarins í þéttbýli og til sveita, sem
undangengna mánuði hafa þurft að
sækja sér allan annan varning en
mjólk og brauð um nokkuð langan
veg í nágrannabyggðarlögin. Hægt
var fram til 1. febrúar sl. að kaupa
mjólk og brauð í Kútternum á Stöðv-
arfirði, þar sem rekin var veitinga-
sala.
Það eru þær Ásta Snædís Guð-
mundsdóttir og Rósmarý Dröfn Sól-
mundardóttir sem hafa opnað versl-
unina í húsnæði Kúttersins. Rósmarý
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þær Ásta yrðu með á boðstólum mat-
vöru og ætluðu jafnframt að reka
veitingastofu samhliða.
„Ástandið hefur verið hræðilegt og
ömurlegt að þurfa að fara í önnur
byggðarlög eftir nauðþurftum,“ segir
Rósmarý. „Við erum með þessu að
svara sárri þörf íbúanna fyrir mat-
vöruverslun og þótt við byrjum smátt,
eða mun smærra en Stöðfirska versl-
unarfélagið var, þá ætlum við að auka
við okkur í júní og svo vonandi dafnar
þetta áfram.“ Á opnunardeginum
mættu Stöðfirðingar í nýju búðina til
að kaupa í matinn og krakkarnir
streymdu að með klink til að kaupa
sér sælgæti.
Stöðfirðingar geta aftur
keypt í matinn í heimabyggð
Morgunblaðið/Albert Kemp
Frá Stöðvarfirði.
STUÐNINGSMENN Össurar
Skarphéðinssonar, formanns Sam-
fylkingarinnar, opna starfsstöð í
Ármúla 40 í Reykjavík, sunnudaginn
3. apríl kl. 15, vegna formannskjörs
flokksins sem fram fer 22. apríl til
19. maí næstkomandi.
Við opnunina mun Össur ávarpa
gesti og kynna helstu áherslur á
næsta kjörtímabili formanns flokks-
ins. Boðið verður upp á kaffi og
pönnukökur og leikin létt tónlist.
Stuðningsmenn Öss-
urar opna starfsstöð