Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SÍMINN SELDUR
Formenn stjórnarflokkanna hafa
handsalað samkomulag sín í milli,
um það með hvaða hætti verður
staðið að sölu Símans. Sam-
komulagið felur í sér að Síminn
verður seldur í einu lagi, en jafn-
framt að eigi færri en þrír hópar eða
einstaklingar verða að standa að
kaupunum og má enginn einn fjár-
festir eiga meira en 40% til 45% hlut.
Páfa ekki hugað líf
Milljónir manna úti um allan heim
biðu fyrir Jóhannesi Páli II páfa í
gær þegar skýrt var frá því að
ástand hans væri orðið mjög alvar-
legt vegna hjarta- og nýrnabilunar,
auk þess sem hann átti erfitt með
öndun. Var páfa ekki hugað líf.
Verður ekki fréttastjóri
Auðun Georg Ólafsson ákvað
seinnipartinn í gær að þiggja ekki
starf fréttastjóra vegna aðstæðna á
fréttastofu Ríkisútvarpsins og muni
því ekki skrifa undir ráðningar-
samning að því er fram kemur í yf-
irlýsingu sem hann sendi frá sér.
Rætt um yfirtöku á S&F
Stjórn breska fjárfestingarbank-
ans Singer & Friedlander sendi í
gær tilkynningu í bresku kauphöll-
ina þar sem staðfestar voru við-
ræður við Kaupþing banka sem leitt
gætu til kaupa Kaupþings á öllu
hlutafé bankans. Í yfirlýsingunni er
lögð áhersla á að brugðið geti til
beggja vona í viðræðunum. Það
muni skýrast þegar fram líður.
Mugabe sakaður um svik
Flokkur Roberts Mugabe, forseta
Zimbabwe, fékk öruggan meirihluta
á þingi landsins í kosningum í fyrra-
dag samkvæmt síðustu kjörtölum í
gær. Stjórnarandstaðan sakaði
Mugabe um „stórfelld kosn-
ingasvik“.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Fréttaskýring 8 Forystugrein 34
Úr verinu 14 Skák 39
Viðskipti 15 Minningar 41/49
Erlent 18/19 Kirkjustarf 49
Akureyri 23 Messur 50/51
Árborg 24 Dagbók 56/58
Landið 25 Víkverji 56
Daglegt líf 26/27 Staður og stund 58
Ferðalög 28/29 Menning 59/61
Úr Vesturheimi 30 Ljósvakamiðlar 66
Listir 31 Staksteinar 67
Umræðan 32/39 Veður 67
* * *
LYFJAGREIÐSLUNEFND, sem ákveður leyfi-
lega hámarksálagningu lyfseðilsskyldra lyfja í
heildsölu og smásölu hér á landi, hefur ákveðið að
breyta smásöluálagningu í áföngum með það að
markmiði að smásöluverð hér verði áþekkt því
sem er á hinu Evrópska efnahagssvæði, einkum í
Danmörku og í Finnlandi. Tekur fyrsti áfanginn
gildi um næstu mánaðamót, en aðlöguninni á að
vera að fullu náð fyrir árslok á næsta ári, 2006.
Páll Pétursson, formaður lyfjagreiðslunefndar,
sagði að fulltrúi lyfjasmásala í nefndinni hefði
staðið að ákvörðuninni með öðrum nefndarmönn-
um. Ákveðið hefði verið að vinna að því að lækka
verð hér á landi til samræmis við það sem gerðist í
Danmörku og í Finnlandi. Þetta yrði gert í fjórum
áföngum og fyrsti áfanginn kæmi til framkvæmda
1. maí næstkomandi. Þar væri að vísu ekki um
stóran áfanga að ræða, en yrði þó til þess að nær
öll lyfseðilsskyld lyf lækkuðu í verði.
Páll benti á að þegar væri samningur í gildi við
lyfjaheildsala um lækkun á verði í áföngum þannig
að meðalheildsöluverð hér yrði hliðstætt meðaltali
af heildsöluverði í Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Þeim áfanga ætti að ná að fullu nokkru fyrr en
hvað smásöluna snerti eða 1. september 2006.
„Ég lít svo á að það sé mjög mikilvægt að hafa
náð þessum áfanga og að fulltrúi lyfjasmásala
standi að honum,“ sagði Páll.
Hann sagði að jafnframt hefði verið ákveðið að
setja vinnuhóp á laggirnar til að fara yfir og bera
saman kringumstæðurnar í þessum löndum hvað
lyfjasölu snerti. Þar kæmi til skoðunar skatt-
heimta sem væri ólík í löndunum, auk þess sem
mismunandi kröfur væru gerðar til lyfsölu í lönd-
unum. Þannig væru meiri kröfur gerðar til lyfsölu
hér á landi í sumum tilvikum en annars staðar og
taka þyrfti tillit til þess annaðhvort með því að
slaka á þessum kröfum eða meta þær til verðs.
„Það eru ýmsar íþyngjandi kröfur sem gerðar
eru til lyfjaverslunar hér, sem sýnist kannski vera
óhætt að slaka á og eru stífari en annars staðar,“
sagði Páll ennfremur.
Stefnt að hliðstæðu lyfjaverði
hér og í Danmörku og Finnlandi
JÓNAS Bergmann
Jónsson, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykja-
vík, andaðist á Landa-
kotsspítala aðfaranótt
1. apríl, tæplega 97 ára
að aldri.
Jónas fæddist á
Torfalæk í Austur-
Húnavatnssýslu 8. apr-
íl 1908.
Hann lauk kennara-
prófi 1934 og nam við
kennaraskóla í Gauta-
borg 1938. Árið 1928
hóf hann feril sinn sem
kennari í Torfalækjar-
hreppi og kenndi síðan við Laugar-
nesskóla í Reykjavík til 1943. Jónas
varð þá fræðslufulltrúi og síðar
fræðslustjóri í Reykjavík og gegndi
því starfi í 30 ár.
Hann tók virkan þátt í mótun
nýrra hugmynda um skóla- og upp-
eldismál, kynningu nýrrar kennslu-
tækni og hrinti í framkvæmd
breyttu skipulagi náms og kennslu í
skólum borgarinnar.
Jónas var formaður kennarafélags
Laugarnesskóla 1935–43, sat í stjórn
Stéttarfélags barnakennara í
Reykjavík 1939–42 og í stjórn Sam-
bands íslenskra barnakennara 1942–
50. Jónas var formaður barnavernd-
arnefndar Reykjavíkur 1946–50, for-
maður forstöðunefndar
Námsflokka Reykja-
víkur frá 1946–54.
Einnig samdi hann
kennslubækur og skrif-
aði greinar um uppeld-
ismál og fræðslumál í
blöð og tímarit.
Jónas tók mikinn
þátt í félagsmálum.
Hann var formaður
Barnaverndarráðs Ís-
lands 1953–57 og fram-
kvæmdastjóri Íþrótta-
ráðs Reykjavíkur frá
stofnun þess 1962 og til
1973. Hann sat í stjórn
Bandalags íslenskra skáta frá 1950
og var skátahöfðingi Íslands 1958–
71. Jónas sat í stjórn Reykjavíkur-
deildar Rauða kross Íslands frá
stofnun 1949–79 og var ritari í stjórn
Rauða kross Íslands 1975–79.
Jónas var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1961 og
stórriddarakrossi 1972. Þá var Jónas
kjörinn heiðursdoktor við Kenn-
araháskóla Íslands 2001.
Eftirlifandi eiginkona Jónasar er
Guðrún Ö. Stephensen. Þau eignuð-
ust fjögur börn, Jón Torfa prófessor
við Háskóla Íslands, Ögmund al-
þingismann og formann BSRB, Ingi-
björgu fræðslustjóra KB banka og
Björn bókaútgefanda.
Andlát
JÓNAS B.
JÓNSSON
VORVEIÐIN fór víðast mjög vel af
stað í gær þótt kalt hafi verið suð-
vestanlands opnunarmorguninn. Í
Varmá veiddi Ólafur Hauksson
boltaregnbogasilung, sem sam-
kvæmt mælingum Morgunblaðsins
var 76 sentimetra langur og 6,2 kíló
eða 12,5 pund að þyngd blóðgaður
og er þetta trúlega einn stærsti
regnbogi sem veiðst hefur í á hér á
Íslandi til þessa. Víða veiddist mjög
vel, til að mynda í Tungufljóti, Geir-
landsá, Vatnamótunum, Ytri-Rangá
og ágætlega veiddist í Tungulæk,
Minnivallarlæk og Litluá fyrir
norðan.
Þótt kalt hafi verið vestanlands
snemma í gærmorgun var sólskin,
blíðviðri og fögur jöklasýn þegar
þeir Ragnar Johansen og Þórður
Björnsson hófu vorveiðina í Vatna-
mótunum austan við Kirkjubæjar-
klaustur. Aðeins 15 mínútum síðar
veiddist fyrsti birtingur ársins í
Vatnamótunum, sex punda hæng-
ur, á flæðarmúsina, og skömmu síð-
ar fékk Þórður um níu punda birt-
ing eftir harða viðureign enda
aðeins með 30 metra í undirlínu og
hóflega sterkan taum. „Það voru
ekki eftir nema svona fimm metrar
af undirlínunni þegar hann stopp-
aði. Þetta er alveg dýrlegt, getur
ekki verið betra,“ sagði Þórður.
Létt var yfir árnefndarmönnum úr
Stangaveiðifélagi Keflavíkur þegar
Morgunblaðið heimsótti þá við
Geirlandsána skömmu fyrir hádegi,
þeir höfðu þá veitt sjö birtinga, þar
af 86 cm hrygnu. „Þetta hefur verið
18 til 19 punda fiskur þegar hann
gekk í ána, örugglega það,“ sagði
Gunnar J. Óskarsson, formaður
veiðifélagsins. Allir komu þessir
birtingar af Ármótunum, sem er
langgjöfulasti veiðistaður árinnar.
„ Þetta er staður sem gefur um 90–
95% allrar veiði á vorin,“ segir
Gunnar.
Veiðimenn sem Morgunblaðið
hitti við veiðistaðinn Syðri-Hólma í
Tungufljóti voru hinir hressustu
enda veitt feikivel, 20–30 birtinga,
bæði við hólmann og eins á Flögu-
bökkunum en í Tungufljóti er öllum
fiski sleppt á vorin. Þeir sögðu birt-
inginn hafa sýnt sig í yfirborðinu
og hugðust reyna fyrir sér með
stórum þurrflugum.
Í þann mund sem Morgunblaðs-
menn komu að Ytri-Rangá settu
veiðimenn þar í vænan birting sem
reyndist um 10 pund. Þeir höfðu þá
veitt tæpan tug birtinga og eitthvað
af niðurgöngulaxi og voru hinir
ánægðustu með daginn.
Margir veiðimenn lögðu leið sína
að Vífilsstaðavatni en vatnið var
kalt og menn urðu ekki varir.
Vorveiðin á silungi víðast hvar mjög góð sunnanlands á opnunardaginn
Morgunblaðið/Einar Falur
Þórður Björnsson landar fyrsta sjóbirtingi ársins í Vatnamótunum, um sex punda hæng sem tók flæðarmúsina og fékk að synda aftur út í strauminn.
Risaregnbogi
úr Varmá
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is