Morgunblaðið - 02.04.2005, Side 4
4 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKOMULAG er um það milli
stjórnarflokkanna, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, að í
tengslum við sölu Landssíma Ís-
lands hf. verði stofnaður sjóður,
sem hluti af söluandvirði Símans
renni í og notaður verði til upp-
byggingar á fjarskiptakerfi landsins
á grundvelli útboða.
Samkvæmt heimildum blaðsins er
í samkomulagi stjórnarflokkanna
rætt um að hægt verði að bjóða út
nettengingar og farsímaþjónustu á
tilteknum landsvæðum. Rætt hefur
verið um að 800 milljónir króna fari
til að ljúka því að koma upp GSM-
sambandi á öllum hringveginum og
á svæðum út frá honum. Þá hefur
verið rætt að enn hærri fjárhæðir
fari til þess að tryggja aðgang að
bandbreiðum nettengingum.
Í gærmorgun var samþykkt í rík-
isstjórn frumvarp til breytinga á
fjarskiptalögum, þar sem m.a. er
kveðið á um að á fimm ára fresti
skuli lögð fram tillaga til þings-
ályktunar um fjarskiptaáætlun. Slík
áætlun er nú í smíðum í samgöngu-
ráðuneytinu og er þar m.a. gert ráð
fyrir útboðum á „samþjónustu“,
sem boðin verði út og greidd úr op-
inberum sjóðum, samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins.
Heimild er nú þegar til slíkra út-
boða í 23. grein fjarskiptalaga, þar
sem segir að samgönguráðherra
geti falið Póst- og fjarskiptastofnun
að ganga til samninga við fjar-
skiptafyrirtæki á grundvelli útboða,
um uppbyggingu þjónustu, sem
ætla megi að skili ekki arði. Þar er
hins vegar gert ráð fyrir að kostn-
aður við slíkar framkvæmdir sé
greiddur úr ríkissjóði.
Horft til áætlana bjóðenda
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er ennfremur samkomu-
lag um það í einkavæðingarnefnd að
það verði ekki eingöngu verðhug-
myndir bjóðenda, sem ráði því
hvaða tilboðum í Símann verður
tekið, heldur verði jafnframt horft
til greinargerðar bjóðenda um
framtíðarsýn fyrir hönd fyrirtæk-
isins, þar á meðal um uppbyggingu
dreifikerfisins.
Sjóður til að efla netteng-
ingar og farsímaþjónustu
Hluti af söluandvirði Símans notaður í verkefni á landsbyggðinni, sem boðin verða út
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
TALSVERÐUR fjöldi fólks lagði leið
sína í kaþólskar kirkjur á Íslandi í gær til
að vera við messur og bænahald vegna
veikinda páfa.
Séra Jakob Rolland, kanslari kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi, sagði að messur og
bænastundir hefðu verið í Kristskirkju í
Landakoti og Jósefskirkju í Hafnarfirði,
og hefðu þær verið mjög vel sóttar. Það
hefði verið greinilegt að bæði kaþólskir og
fólk úr öðrum kirkjudeildum tæki þátt í
bænahaldi fyrir yfirhirði kirkjunnar.
Morgunblaðið/Golli
Beðið fyrir páfa
ATLANTSOLÍA hækkaði í gær
verð á 95 oktana bensíni um fjórar
krónur, úr 97,20 í 101,20 krónur.
Dísilolía hækkaði úr 44,70 krónum í
47,70 lítrinn og skipagasolía úr
36,30 í 40,90 krónur. Í gærkvöldi
höfðu Shell, Esso og Olís ekki
hækkað verð hjá sér.
Samkvæmt upplýsingum frá Atl-
antsolíu er ástæða hækkunarinnar
mikil hækkun á innkaupsverði elds-
neytis hjá fyrirtækinu en þetta sé í
fyrsta sinn frá áramótum sem elds-
neytisverð breytist hjá fyrirtækinu.
Fulltrúi Atlantsolíu sagði við
Fréttavef Morgunblaðsins að und-
anfarnar vikur hefði bensínverð
hækkað meira en 20%, væri verð-
hækkunin því óhjákvæmileg. Þrátt
fyrir að gengi krónunnar gagnvart
Bandaríkjadal hefði styrkst dygði
það ekki til að vega upp hækkun á
innkaupsverði.
Atlantsolía hækk-
ar bensínverð
um fjórar krónur
DÓMSTÓLL í Ósló dæmdi í gær-
morgun 42 ára gamlan Íslending í
tveggja ára og þriggja mánaða
fangelsi fyrir að nauðga tveimur
konum um borð í ferju í janúar í
fyrra. Fólkið starfaði allt í ferjunni.
Að sögn fréttavefjar VG kom
fram í dómnum að maðurinn laum-
aðist með viku millibili inn í klefa
kvennanna þar sem þær sváfu og
nauðgaði þeim. Gerðist þetta þegar
ferjan lá við bryggju í Ósló. Ferjan
var í ferðum milli Ósló og Hirtshals
í Danmörku.
Maðurinn var einnig dæmdur til
að greiða konunum tveimur jafn-
virði einnar milljónar íslenskra
króna hvorri.
Dæmdur fyrir
tvær nauðganir
í ferju
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
slapp óslasaður eftir að hann missti
stjórn á fólksbíl sínum á Sandgerð-
isvegi um klukkan átta í gærkvöldi.
Maðurinn er grunaður um ölvun við
akstur.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
hafnaði bíllinn fyrir utan veg og
innan fjárgirðingar sem þar er.
Maðurinn var einn á ferð.
Velti bílnum á
Sandgerðisvegi
LÖGREGLAN á Keflavíkurflugvelli rannsakar nú mál Litháa á þrí-
tugsaldri sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á fimmtudag með
jafnvirði tæplega einnar milljónar króna í reiðufé. Féð var í evru-
seðlum sem maðurinn geymdi í tveimur umslögum.
Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa sýslumannsins á Kefla-
víkurflugvelli, kom maðurinn til landsins á miðvikudag og vaknaði þá
grunur um að hann væri að smygla fíkniefnum til landsins. Engin
fíkniefni fundust við leit á manninum en jafnframt kom í ljós að hann
hafði afar lítið reiðufé á sér. Þegar maðurinn ætlaði aftur að halda ut-
an á fimmtudag töldu tollverðir ástæðu til að leita aftur á manninum
og við þá leit fundu þeir seðlana.
Eyjólfur segir að maðurinn hafi verið handtekinn þar sem það
þótti grunsamlegt að hann skyldi ætla úr landi með svo mikið fé sem
hann hafi augljóslega ekki borið með sér inn í landið daginn áður. Við
yfirheyrslur hafi maðurinn að auki orðið margsaga um tilurð pening-
anna, hvers vegna hann ætlaði að bera svo mikið reiðufé úr landi og
um ástæður þess að ekki var hægt að millifæra féð í banka. Því hafi
verið lagt hald á peningana í þágu rannsóknar málsins en manninum
var sleppt úr haldi í gær.
Að sögn Eyjólfs hefur einn til viðbótar verið yfirheyrðir vegna
málsins; maður sem er búsettur hér á landi og Litháinn sagði að væri
eigandi peninganna.
Handtekinn
með tæplega
milljón í seðlum
NOKKRIR lesenda Morgunblaðsins hlupu apríl í gær, þegar
blaðið vék örlítið af þröngum vegi sannleikans og lét með slæð-
ast fréttir með vafasömu sannleiksgildi.
Þannig lá straumur af fólki í verslunina Maður lifandi, þar
sem kynna átti jurtaseyði sem læknuðu skalla. „Það var mikið af
fólki sem vildi kynna sér hvað væri í boði og koma á þessa kynn-
ingu,“ segir Hjördís Ásberg, framkvæmdastjóri Maður lifandi.
„Það komu bæði konur og
karlar á öllum aldri og sum-
ir voru sendir fyrir hönd
annarra. Allir tóku þessu
vel þegar þeir voru minntir
á hvaða dagur væri og það
var yfirleitt nóg.“
Þeir sem hlupu apríl inn í
Maður lifandi fengu að
sjálfsögðu afsláttarkort í
sárabætur auk leiðbeininga
um góð vítamín og bætiefni
þótt engin töfralyf væru í boði á staðnum.
Einnig sáust nokkrir vongóðir einstaklingar ráfandi um við
höfnina þar sem hljómsveitin Coldplay átti að vera að taka fólk í
prufur vegna myndbandsgerðar. Leituðu margir „manns“ sem
ætti að veita þeim frekari upplýsingar.
Þá efuðust einhverjir lesendur blaðsins um sannleiksgildi
fréttar þar sem fjallað var um nauðsyn þess að gamalt fólk borð-
aði rjóma og majónes. Þessi frétt var hins vegar enginn upp-
spuni og er rétt að taka mark á ábendingum Guðrúnar Þóru
Hjaltadóttur næringarráðgjafa um orkuríka fæðu fyrir eldri
borgara.
Fundu upp talmálið
Með áhugaverðari aprílgöbbum gærdagsins má nefna apríl-
gabb norsk-íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera Software
ASA, sem ákvað að bregða á leik í tilefni dagsins og sendi frá
sér tilkynningu um, að náðst hefði stórmerkur áfangi í þróun
samskipta. Hefði fyrirtækið uppgötvað óháða raddtæknilausn
fyrir fjarskipti milli einstaklinga sem ekki eru í mikilli fjarlægð
hver frá öðrum. Þegar lesið var í gegnum tækniorðaflauminn í
tilkynningu fyrirtækisins kom í ljós, að fyrirtækið sagðist hafa
uppgötvað talmálið.
Vildu losna við skalla
og hitta Coldplay
Starfsstúlkur Maður lifandi áttu anna-
saman dag við að taka á móti aprílhlaup-
andi lesendum Morgunblaðsins.
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur
staðfest úrskurð Skipulagsstofn-
unar um að heimila byggingu raf-
skautaverksmiðju á Katanesi í
Hvalfirði með skilyrðum. Land-
vernd og umhverfisnefnd Skil-
mannahrepps kærðu úrskurðinn til
ráðuneytisins.
Í úrskurði Skipulagsstofnunar
kom fram, að fyrirhugað er að stað-
setja verksmiðjuna um tvo kíló-
metra norðaustur af Grundartanga
á um 18 hektara lóð á fyrirhuguðu
iðnaðarsvæði samkvæmt tillögu að
aðalskipulagi Hvalfjarðarstrand-
arhrepps 2002–2014. Áætluð árs-
framleiðsla er allt að 340.000 tonn
af rafskautum.
Ráðuneytið segir í úrskurði sín-
um, að ekki liggi fyrir að fyr-
irsjáanleg PAH mengun frá verk-
smiðjunni verði umtalsverð í
skilningi laga um mat á umhverfis-
áhrifum og því séu ekki ástæður til
að leggjast gegn starfseminni á
þeim forsendum. Hins vegar sé rétt
að framkvæmdaaðili standi fyrir
vöktun á PAH efnasamböndum um-
hverfis iðnaðarsvæðið samanber
skilyrði í hinum kærða úrskurði.
Þá kemur fram að mati ráðuneyt-
isins sé óvissa um umhverfisáhrif
PAH-efna frá fyrirhugaðri raf-
skautaverksmiðju óveruleg og ekki
verulegar líkur á að mengun hvað
þetta snerti verði umtalsverð.
Heimilt að byggja
rafskautaverk-
smiðju í Katanesi
♦♦♦