Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMKVÆMT samningi sem þrír
Lettar, sem Héraðsdómur Suður-
lands dæmdi í gær fyrir að starfa
ólöglega hér á landi, höfðu gert við
fyrirtæki í Lettlandi áttu þeir að fá
jafnvirði um 90.000 íslenskra króna
fyrir starf sitt hér á landi, samkvæmt
upplýsingum frá sýslumanninum á
Selfossi. Að öllum líkindum er þar átt
við mánaðarlaun en það er þó ekki
tekið sérstaklega fram í samningn-
um. Kveðið var á um sex daga vinnu-
viku, 11 vinnustundir á dag.
Fulltrúi lettneska fyrirtækisins
heldur því á hinn bóginn fram að þeir
hafi verið hér á landi á grundvelli
þjónustusamnings en ekki var tekist
á um það atriði fyrir dómi.
Við dómsyfirheyrslur sögðust
mennirnir ekki hafa vitað betur en að
gengið hefði verið frá öllu í Lettlandi
sem varðaði atvinnuleyfi og þeim ver-
ið sagt að þeim væri heimilt að vinna
hér. Þeir hafi þó ekki gengið úr
skugga um það sjálfir. Þeir játuðu
síðan allir fyrir dómi að hafa unnið við
byggingarvinnu á Stokkseyri án lög-
bundinna atvinnuleyfa frá 3.–31.
mars og fyrir það voru þeir dæmdir í
eins mánaðar skilorðsbundið fang-
elsi.
Þar sem mennirnir eru útlendingar
var óskað eftir flýtimeðferð málsins
og voru þeir bæði ákærðir og dæmdir
í gær. Þeir óskuðu ekki eftir að dómn-
um yrði áfrýjað. Tæplega vika er síð-
an Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
þrjá Pólverja fyrir samskonar brot og
hlutu þeir jafnþunga refsingu. Pól-
verjarnir voru í byggingarvinnu í
Rangárþingi eystra.
Að sögn Ólafs Helga Kjartansson-
ar, sýslumanns á Selfossi, komu
mennirnir til Íslands 18. febrúar sl.
Þeir hafi greint frá því að á Keflavík-
urflugvelli hafi Íslendingur tekið á
móti þeim og ekið þeim til Ólafsvíkur
þar sem þeir munu hafa unnið fram í
byrjun mars. Þaðan fóru þeir til
Stokkseyrar þar sem þeir hófu störf
3. mars. Við brottför frá Lettlandi
hafi þeir ekki vitað hvaða störf biðu
þeirra hér á landi heldur hafi þeir far-
ið að öllu eftir verkstjórn Íslendinga
sem unnu með þeim og unnið þau
störf sem féllu til. Ef þeir hefðu ein-
hverjar spurningar áttu þeir að
hringja í manninn sem sótti þá á flug-
völlinn.
Aðspurður segir Ólafur Helgi að
mennirnir hafi ekki greint frá hugs-
anlegum þjónustusamningi og á
vinnustað þeirra á Stokkseyri hafi
enginn viljað kannast við að vera
vinnuveitandi þeirra. Þá hafi í
samningnum sem mennirnir framvís-
uðu ekkert verið tilgreint um ákveðið
verk, vinnustað eða verkkaupa.
Áfram er unnið að rannsókn máls-
ins og má maðurinn, líkt og sá sem
hafði Pólverjana þrjá í vinnu, búast
við að verða ákærður fyrir að hafa
Lettana í vinnu án tilskilinna atvinnu-
leyfa. Líklegt er að rannsókn málsins
muni m.a. beinast að því hvort sá
þjónustusamningur sem lettneska
fyrirtækið hefur vísað til standist lög.
Snýst um vinnuréttarsamband
Í samtali Morgunblaðsins við Hildi
Dungal, forstjóra Útlendingastofn-
unar, fyrir skömmu kom fram að tals-
vert væri um að fyrirtæki, einkum í
byggingariðnaði, reyndu að sneiða
framhjá reglum um atvinnuleyfi út-
lendinga með því að gera þjónustu-
samninga til málamynda þegar þau
væru í raun og veru einungis að verða
sér úti um ódýrt vinnuafl. Málið sner-
ist um vinnuréttarsamband milli ís-
lensku fyrirtækjanna annars vegar,
og útlendinga sem ynnu fyrir þau
hins vegar. Ef útlendingarnir þyrftu
að fylgja skilyrðum íslensku fyrir-
tækjanna um vinnutíma, verklag, lúti
þeirra verkstjórn o.s.frv. gæti ekki
verið um þjónustusamninga að ræða,
eða verktöku sjálfstæðs atvinnurek-
anda, heldur væru útlendingarnir
einfaldlega í vinnu hjá íslensku fyr-
irtækjunum og þyrftu sem slíkir at-
vinnuleyfi.
Þrír Lettar dæmdir fyrir að vinna hér án atvinnuleyfa
Unnið sex daga vik-
unnar fyrir 90 þús. kr.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
LÖGMAÐUR lettneska fyrirtækis-
ins Vislander, Sveinn Andri Sveins-
son hrl., gagnrýnir vinnubrögð
sýslumannsins á Selfossi í máli
Lettanna þriggja harðlega og efast
um að sýslumaður hafi gert þeim
nægilega skýra grein fyrir því að
ákvæði um þjónustusamninga væru
umdeild hér á landi.
Sveinn Andri segir að vinnuveit-
andi mannanna sé Vislander sem
hafi gert þjónustusamning við
fyrirtækið á Stokkseyri þar sem
þeir unnu. Hér á landi ríki ágrein-
ingur um túlkun laga um þjónustu-
samninga en samkvæmt skilningi
vinnuveitenda mannanna hafi þeir
unnið hér með lögmætum hætti.
Mennirnir hafi væntanlega ekki vit-
að um þennan ágreining og hann
efast um að sýslumaður hafi skýrt
þeim nægjanlega vel frá honum. Þá
gagnrýnir hann að sýslumaður hafi
ekki látið hann vita af því þegar
málið fór fyrir dóm, þrátt fyrir að
hafa verið beðinn um það sérstak-
lega, en Vislander hafi beðið hann
um að gæta hagsmuna mannanna.
Aðspurður segir Sveinn Andri að
hann telji að útlendingar geti unnið
hér á landi á grundvelli þjónustu-
samninga við fleiri en eitt fyrirtæki
og megi vinna undir verkstjórn fyr-
irtækisins hér á landi. Um þetta ríki
þó mikill ágreiningur og því hefði
þurft að flytja málið fyrir dómi en
ekki ljúka því með flýtimeðferð.
Aðspurður segir Sveinn Andri að
í þjónustusamningnum sé kveðið á
um að þeir njóti sömu kjara og Ís-
lendinga en hann viti ekki um kjör
þeirra að öðru leyti.
Gagnrýnir vinnubrögð sýslumanns
SPÖLUR ehf., sem á og rekur Hval-
fjarðargöng, hefur komist að sam-
komulagi við Íslandsbanka um að
endurfjármagna 5 milljarða kr. lán
félagsins, innlend og erlend.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir að ný gjaldskrá, sem
tók gildi í gær, sé mikil tímamót fyrir
viðskiptavini Spalar og fyrirtækið
sjálft. Gjald fyrir stakar ferðir lækk-
ar ekki en Gísli sagði í gær að mark-
miðið hefði verið að ná bættum kjör-
um fyrir þá sem nota göngin mest á
venjulegum heimilisbílum og lækkar
verð til þeirra viðskiptavina um allt
að 38%.
Lækkun veggjaldsins skilar sér
strax til áskrifenda og ónotuðum
ferðum þeirra fjölgar í samræmi við
lækkun veggjaldsins. Gjald fyrir alla
áskrifendur lækkar og verð á 10
ferða afsláttarkortum sömuleiðis.
Verð fyrir 100 áskriftarferða fjöl-
skyldubifreið lækkar mest eða um
38%, úr 440 kr. í 270. kr. Fyrir 40
ferðir í áskrift greiðir fjölskyldubif-
reið 29% lægra gjald eða 390 kr. fyrir
einstaka ferð í stað 550 kr. áður.
Gísli sagði að skuldbreytingin
hefði tekið langan tíma, en Íslands-
banki lánar 2 milljarða alls og hefur
selt 13 fagfjárfestum skuldabréf fyrir
þrjá milljarða. Spölur hefur greitt
upp þriggja milljarða kr. skuld við
bandaríska líftryggingafélagið John
Hancock og tveggja milljarða kr.
skuld við íslenska ríkið. Lánssamn-
ingurinn á sér langan aðdraganda en
í maí árið 2001 samdi Spölur við Ís-
landsbanka um að kanna möguleika á
endurfjármögnun en á þeim tíma
reyndist það óhagstætt.
Algjör umskipti frá 1998
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, sagði við undirritun
samninga í gær að samningurinn
bæri þess merki að algjör umskipti
hefðu orðið á íslenskum fjármála-
markaði frá árinu 1998 er Hvalfjarð-
argöngin voru opnuð.
„Það hefði verið óhugsandi árið
1998 að þetta verkefni hefði verið
fjármagnað að öllu leyti af innlendum
fagfjárfestum og einum innlendum
banka. En það hefur verið ánægju-
legt fyrir Íslandsbanka að annast
endurfjármögnun á lánum Spalar og
við óskum félaginu velfarnaðar á
komandi árum,“ sagði
Bjarni. Hann bætti því einnig við
að það væri sérstakt fyrir hann að
koma að þessu verkefni þar sem hann
væri fæddur og uppalinn á Akranesi.
Þegar samið var um Hvalfjarðar-
göngin árið 1996 var gert ráð fyrir að
langtímalán Spalar yrðu endur-
greidd að fullu á tímabilinu 2018–
2020, en tekjur félagsins hafa verið
meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og
að öllu óbreyttu hefði Spölur greitt
upp skuldir sínar árið 2014.
Í nýja samkomulaginu er gert ráð
fyrir að nýju lánin verði að fullu
greidd árið 2018 og að íslenska ríkið
fái göngin afhent skuldlaus í fram-
haldi af því.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Stefán Reynir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Spalar, Gísli Gíslason,
stjórnarformaður Spalar, Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og
Jóhannes Hauksson, viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka.
Veggjald lækkar
um allt að 38%
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
FERÐATORGIÐ 2005 var opnað í
gær í Vetrargarði Smáralindar, en
þar kynna fulltrúar ferðaþjónust-
unnar fjölbreytta ferðamöguleika
og afþreyingu sem í boði er á Ís-
landi. Öll ferðamálasamtök lands-
ins standa að Ferðatorginu, en
þetta er í fjórða sinn sem það er
haldið. Meðal þess sem gestir
Ferðatorgsins geta fengið að sjá og
upplifa eru 1500 kílóa rostungur,
uppstoppaður selur og sprang að
vestmannaeyskum sið.
Ferðaútgáfan Heimur útnefndi
við opnunina ferðafrömuð ársins
2004. Heiðurinn hlaut Guðrún
Bergmann fyrir uppbyggingu á
vistvænni ferðaþjónustu á Hellnum
á Snæfellsnesi sem hún hefur staðið
að, ásamt manni sínum Guðlaugi
Bergmann sem lést í desember á
síðasta ári.
Í fyrra var viðurkenningin afhent
í fyrsta sinn og varð þá fyrir valinu
„galdramaðurinn“ Jón Jónsson á
Kirkjubóli á Ströndum, sem hefur
undanfarin ár unnið að uppbygg-
ingu galdrasýningar á Ströndum.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrún Bergmann
ferðafrömuður ársins