Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Já, er það ekki, bara á Group-limmósínunni.
Samfélagslegurstuðningur viðunga foreldra
breyttist mikið með til-
komu fæðingarorlofs fyr-
ir feður. Stuðningurinn
mun aukast enn meira ef
áformum R-listans í
Reykjavíkurborg um
gjaldfrjálsan leikskóla
verður hrundið í fram-
kvæmd. Ennfremur mun
ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um hækkun barna-
bóta og lækkun tekju-
skatts bæta enn hag
barnafólks.
Áður en Fæðingaror-
lofssjóður var stofnaður árið
2001 voru feður með mjög tak-
markaðan rétt til feðraorlofs.
Faðir sem eignaðist barn árið
2000 átti rétt á tveggja vikna
fæðingarorlofi og fékk greiðslur
frá Tryggingastofnun, sem það
ár námu 33.684 krónur. Þegar
búið var að draga skatta af
þeirri upphæð sátu eftir rúmlega
20 þúsund krónur. Með stofnun
Fæðingarorlofssjóðs fengu feður
þriggja mánaða fæðingarorlof og
greiðir sjóðurinn 80% af föstum
launum feðra. Faðir sem er t.d.
með 300 þúsund krónur í mán-
aðarlaun fær því 240 þúsund
krónur á mánuði meðan hann er
í fæðingarorlofi. Faðir sem tekur
þriggja mánaða feðraorlof fær
því samtals 720 þúsund krónur.
Leikskólagjöldin lækka
Reykjavíkurborg hefur boðað
gjaldfrjálsan leikskóla árið 2008
fyrir öll börn sem eru í skólanum
sjö tíma á dag. Fyrsta skrefið
var stigið í vetur þegar börn
eldri en fimm ára fá þriggja tíma
skólavist á dag án endurgjalds.
Næsta skref verður stigið 2006
þegar tvær stundir bætast við.
Ekki er búið að tímasetja næstu
skref að öðru leyti en því að
áformað er að taka síðasta skref-
ið haustið 2008.
Í dag kostar 8 tíma leikskóla-
vist hjá Reykjavíkurborg í fyrsta
gjaldflokki 28.080 krónur eða
samtals 336.960 krónur á ári.
Reykjavíkurborg gefur fyrirheit
um að öll börn eldri en 18 mán-
aða eigi kost á leikskólavist.
Mörg börn eru í vist hjá dag-
mömmum áður en þau hefja nám
í leikskóla. Sé miðað við að for-
eldrar greiði þetta gjald fyrir
barnið sitt í fimm ár nema leik-
skólagjöldin samtals 1.684.800
krónur. Þetta er sú upphæð sem
foreldrar barns sem fætt er árið
1998 hafa greitt í leikskólavist á
fimm árum. Þess má og geta að
faðir barnsins fékk rúmlega 30
þúsund krónur í fæðingarorlof á
sínum tíma.
Dæmið lítur talsvert öðruvísi
út fyrir foreldra barns sem fæð-
ist árið 2003. Þá var fæðing-
arorlof feðra að fullu komið til
framkvæmda. Faðir sem var
með t.d. 300 þúsund krónur í
mánaðarlaun fékk 240 þúsund
krónur í fæðingarorlof eða sam-
tals 720 þúsund í þrjá mánuði.
Barnið byrjaði í leikskóla á síð-
asta ári og útskrifast úr honum
árið 2009. Gangi áform R-listans
eftir lækka leikskólagjöld barns-
ins á síðustu þremur skólaárun-
um. Leikskólagjöldin á þessum
fimm árum verða því ekki
1.684.800 krónur heldur
1.248.000 krónur. Er þá miðað
við að lækkun gjaldanna komi til
framkvæmda á árunum 2006,
2007 og 2008.
Munurinn er enn meiri ef mið-
að er við barn sem fætt er á
þessu ári. Þá fær faðir þess, mið-
að við sömu forsendur, 720 þús-
und í fæðingarorlof, en barnið
greiðir í leikskólagjöld á árunum
2006–2012 samtals 777.600 krón-
ur.
Og barnabætur hækka
Miðað við þessar forsendur,
þ.e. átta tíma leikskólavist barns
sem á föður sem er með 300 þús-
und krónur í mánaðarlaun, mun-
ar þarna um 1,6 milljónum á
fimm árum hvort barnið er fætt
árið 1998 eða árið 2005. Mun-
urinn er í reynd enn meiri þegar
tekið hefur verið tillit til áforma
ríkisstjórnarinnar, sem lögfest
voru á síðasta ári, að hækka
barnabætur og lækka tekjuskatt,
en þessar skattabreytingar koma
til framkvæmda á árunum 2005–
2007.
Eftir á að hyggja má því
kannski segja að foreldrar sem
voru að skipuleggja barneignir
um síðustu aldamót hefðu átt að
bíða í nokkur ár. Það hefði
a.m.k. komið mun betur út fjár-
hagslega.
Fréttaskýring | Aukinn samfélagslegur
stuðningur við foreldra ungra barna
Nú er gott að
eignast barn
Frá 1998 til 2005 hækkaði samfélags-
legur stuðningur um 1,6 milljónir
Það er betra að tímasetja barneignir vel.
Feður fengu 33.686 kr.
í fæðingarorlof í 2 vikur
Árið 2000 gátu feður fengið
samtals 33.684 krónur í fæðing-
arorlof í tvær vikur. Í dag geta
þeir fengið 80% launa í fæðing-
arorlofi í þrjá mánuði. Árið 2000
datt fáum í hug að krefjast gjald-
frjáls leikskóla, en nú hefur
Reykjavíkurborg boðað gjaldfrí-
an leikskóla árið 2008. Þá er búið
að ákveða að hækka barnabætur.
Samfélagslegur stuðningur við
unga foreldra hefur því gjör-
breyst á skömmum tíma.
!
"#$%
& ' %
% !
'%()" '% #*
+,- -% *
- Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is