Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STJÓRNENDUR og starfsmenn
Ríkisútvarpsins þurfa nú að taka
höndum saman og gera það sem
mestu máli skiptir: Að starfrækja
öfluga og góða
fréttastofu,“
sagði Þorgerður
Katrín Gunn-
arsdóttir
mennta-
málaráðherra
þegar hún var
innt eftir við-
brögðum við
ákvörðun Auð-
unar Georgs Ólafssonar.
En verður staða fréttastjórans
auglýst á ný, eða sett í biðstöðu þar
til nýtt rekstrarform Ríkisútvarps-
ins tekur við. „Mér skilst að útvarps-
ráð komi saman á þriðjudaginn
kemur og útvarpsstjóri og það
munu fara sérstaklega yfir hvað
verður. Ég tel einnig að þetta mál
sýni að það er afar mikilvægt að
frumvarpið sem nú liggur fyrir Al-
þingi um breytingu á lögum um Rík-
isútvarpið verði samþykkt sem
fyrst.“ Þorgerður Katrín vonast eft-
ir að það verði nú á vorþinginu.
Traust og virðingu fréttastofu Út-
varpsins hefur oft borið á góma.
Óttast menntamálaráðherra að það
hafi beðið hnekki í þessari atburða-
rás?
„Þegar svona mál eru annars veg-
ar er alltaf hætta á að traustið og
virðingin geti beðið hnekki, að
minnsta kosti tímabundið. En ég hef
trú á að fréttastofa Ríkisútvarpsins
verði eftir sem áður sterk, eins og
hún var.“
Starfsmenn hafa oftar en einu
sinni samþykkt vantraust á útvarps-
stjóra. Þurfa stjórnvöld að grípa þar
inn í?
„Það er engan veginn hægt að
taka undir vantraust sem starfs-
menn samþykktu. Stjórnendur
þurfa oft að taka ákvarðanir um
ýmsa þætti og það liggur í hlutarins
eðli að allar ákvarðanir geta ekki
verið óumdeilanlegar. Stundum
verða starfsmenn óánægðir og
stundum ekki. Það er líka með ýms-
um hætti hvernig menn kjósa að
setja fram óánægju sína. Markús
Örn hefur verið farsæll útvarps-
stjóri. Hann hefur langa og mikla
reynslu af starfi innan Ríkisútvarps-
ins og hefur stýrt þessu skipi mjög
vel. Það sést ekki síst á því að áhorf
á sjónvarpið og hlustun á útvarpið
eru mjög góð. Hann nýtur fulls
trausts,“ sagði Þorgerður Katrín.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra
Stjórnendur og starfs-
menn RÚV þurfa að
taka höndum saman
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MÉR kom þetta mikið á óvart og
þykir miður að svona skyldi fara,“
sagði Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri þegar leitað var við-
bragða hjá honum við ákvörðun
Auðuns Georgs Ólafssonar, að taka
ekki við starfi
fréttastjóra Út-
varpsins.
Markús sagði
að í gærmorgun
hafi verið haldinn
fundur á frétta-
stofunni, þegar
Auðun Georg
kom til starfa, og
þótti honum
fundurinn takast vel. Að fundi lokn-
um segist hann hafa talið að næsta
skref myndi takast jafnvel. Hann
hafi ekki haft meira samband við
Auðun í gærdag, en frétt síðdegis af
útvarpsviðtalinu, sem Auðun nefnir
í yfirlýsingu sinni.
„Ég var spurður út í efnisatriði,
sem höfðu verið í þessu viðtali við
Auðun, og ég varð satt að segja afar
hissa á spurningum sem verið var að
leggja fyrir hann. En það var
ákvörðun viðkomandi fréttamanns
og fréttastofunnar væntanlega.“
Sagði Markús að sér þætti afar leitt
og sárt að viðtalið skyldi verða korn-
ið sem fyllti mælinn og gerði að
verkum að Auðun hætti við að taka
starfið að sér.
Markús kvaðst ekki ætla að full-
yrða um það nú hvort starf frétta-
stjóra verður auglýst á ný. Málið
verði tekið fyrir á fundi útvarps-
ráðs, sem boðaður hefur verið á
þriðjudaginn kemur.
En hvernig bregst útvarpsstjóri
við ítrekuðum vantraustsyfirlýs-
ingum af hálfu samstarfsmanna
hans?
„Ég sæki ekki umboð mitt sem út-
varpsstjóri til starfsmannafunda í
Ríkisútvarpinu. Á þessum 14 árum
sem ég hef samanlagt verið útvarps-
stjóri hefur oft risið ágreiningur á
milli mín og starfsmannahópsins,
eða einstakra minni starfs-
mannahópa, um einstakar ákvarð-
anir mínar. Ég hef haft fyrir venju
að standa við þær og hef gert það í
þessu tilviki. Ég ætla ekkert að víkja
af þeirri braut samkvæmt sannfær-
ingu minni. Ég hef líka sagt að það
sé ekkert fararsnið á mér og ég
muni starfa áfram að málefnum Rík-
isútvarpsins og vinna að eflingu og
styrkingu þess.“
Verður gripið til aðgerða til að
bera klæði á vopnin?
„Ég get ekki sagt nákvæmlega nú
hvert framhaldið verður. Ég tel
mikilvægt að málið verði reifað á
fundi útvarpsráðs.“ Markús minnti á
að umsagnir um starfsmannaráðn-
ingar væru enn viðfangsefni út-
varpsráðs. Því þurfi kanna hug út-
varpsráðsmanna um framhaldið.
Óttast útvarpsstjóri að traust til
fréttastofunnar og stofnunarinnar
hafi beðið hnekki í þessari atburða-
rás?
„Ég fullyrði ekkert um það. Ég
hef tekið eftir því, eins og aðrir sem
hafa hlustað á útvarpið undanfarnar
vikurnar og komið að máli við mig,
að mönnum finnst afskaplega langt
gengið í umfjöllun um þessi hags-
munamál fréttastofunnar út frá
hennar sjónarhorni í fréttum sem
hún ber ábyrgð á og í fréttaskýr-
ingaþáttum og ýmsum öðrum dag-
skrárþáttum sem eru að fjalla um
málefni líðandi stundar. Það má
segja að hver einasti mögulegi þátt-
ur og hvert horn í dagskránni hafi
með einum eða öðrum hætti tengst á
einhverjum tíma umfjöllun um þessi
mál. Ég get ekki metið hér og nú
hvað þetta sem slíkt hefur að gera
með mat almennings á trúverð-
ugleika fréttastofunnar.“
Markús sagði að báðar fréttastof-
urnar hafi staðið mjög vel að vígi.
Ný könnun á trúverðugleika frétta-
stofu Sjónvarpsins og Stöðvar 2 sýni
sterka stöðu fréttastofu Sjónvarps.
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri
Sæki ekki umboð mitt
sem útvarpsstjóri
til starfsmannafunda
EFTIRFARANDI yfirlýsing barst
Morgunblaðinu frá Auðuni Georg
Ólafssyni í gærkvöldi:
„Með tilliti til aðstæðna á frétta-
stofu Ríkisútvarpsins sé ég mér
ekki fært að þiggja starf frétta-
stjóra og mun ég því ekki skrifa
undir ráðningarsamning.
Ég sótti um starfið á jafnræð-
isgrundvelli án þess að vera til þess
hvattur og ekki í umboði eins eða
neins, hvorki stjórnmálaafla né
annarra.
Þrátt fyrir að vegið hafi verið að
persónu minni með afar ósann-
gjörnum hætti, mannorð mitt svert
með röngum ásökunum, hreinum
lygum haldið á lofti og mér allt að
því hótað, ákvað ég engu að síður að
mæta til starfa með opnum huga og
gefa fréttamönnum á fréttastofu
Ríkisútvarpsins tækifæri til að sýna
að sanngirni, hlutleysi, réttlæti og
fagleg vinnubrögð væru höfð að
leiðarljósi. Í viðtali sem ég veitti
fréttamanni Ríkisútvarpsins í dag í
tilefni af því að ég hæfi störf var
með lævíslegum hætti reynt að
koma mér í vandræði. Það tókst,
þar sem ég vildi ekki rjúfa trúnað.
En fréttamaðurinn var ekki hlut-
laus, hann var málsaðili, og honum
tókst ekki að gera greinarmun þar
á.
Ég hlakkaði til að takast á við
skemmtilegt og ögrandi starf á
fréttastofu sem naut trausts og
þekkt var fyrir málefnaleg og fag-
leg vinnubrögð.
Það er með miklum trega sem ég
lýsi yfir að væntingar mínar voru á
misskilningi byggðar.“
Auðun Georg Ólafsson tekur ekki við starfi fréttastjóra Útvarps
Vegið að persónu
minni með afar
ósanngjörnum hætti
Morgunblaðið/Árni Torfason
Auðun Georg Ólafsson, nýráðinn fréttastjóri Útvarps, mætti til starfa hjá Ríkisútvarpinu klukkan 9 í gærmorgun.
Auðun Georg vildi ekki tjá sig við fjölmiðlamenn sem þar voru staddir.
AUÐUN Georg Ólafsson mætti til
starfa í gærmorgun og fundaði með
fréttamönnum Útvarps og Sjón-
varps.
Í hádegisfréttatíma Útvarps varð
Auðun tvísaga þegar hann var í
samtali spurður hvort hann hefði
átt fund nýlega með Gunnlaugi
Sævari Gunnlaugsyni, formanni út-
varpsráðs.
Eftirfarandi er hluti viðtals Ingi-
mars Karls Helgasonar frétta-
manns við Auðun Georg í hádeg-
isfréttum Útvarpsins í gær:
– Hefurðu átt fundi með formanni
útvarpsráðs nýlega, spurði frétta-
maður.
„Ekki nýlega nei,“ svaraði Auðun.
– Ég hef öruggar heimildir fyrir
því að þú hafir hitt hann að máli eft-
ir hádegi í gær.
„Ég man nú ekki til þess. Ég man
ekki alveg nákvæmlega hvenær það
var.“
– Hvað hefði verið rætt á slíkum
fundi.
„Það er bara trúnaðarmál.“
– Þannig að þú viðurkennir að
slíkur fundur hafi verið haldinn
þrátt fyrir að þú neitir því.
„Ja, ég neita því ekkert að hann
hafi farið fram en gef ekkert upp
annað um það.“
– Varstu ekki að neita því að
fundurinn hefði verið haldinn?
„Fundurinn hefur verið haldinn
en það var bara trúnaðarmál.“
– Hver boðaði fundinn?
„Það var bara trúnaðarmál,“
– Baðst þú um fund eða formaður
útvarpsráðs?
„Nú man ég það ekki. Ég held að
ég hafi óskað eftir þeim fundi bara
til þess að meta aðstæður og fara
yfir hver staðan væri hér innan-
húss.“
–Hver var niðurstaðan af fund-
inum?
„Niðurstaðan af fundinum var
bara að halda sínu striki. Og ég veit
ekki til þess að ég hafi gert neitt
rangt og bara mæti hér til starfa og
held mínu striki.“
– Mætti ég kannski spyrja, það er
nú lítið eftir af þessu, af hverju neit-
aðir þú því í upphafi að fundurinn
hefði verið haldinn?
„Bíddu hvað áttu við?“
– Ég spurði þig hvort þú áttir
fund í gær og þú sagðir nei.
„Ég mundi ekki hvenær nákvæm-
lega fundurinn fór fram.“
– Þetta var í gær, sagði Ingimar
Karl Helgason fréttamaður
„Já, þá var hann í gær,“ sagði
Auðun Georg Ólafsson.
Varð tvísaga í viðtali
við fréttastofu Útvarps