Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 11 FRÉTTIR ÁKVÖRÐUN Auðuns Georgs Ólafs- sonar, að taka ekki við starfi frétta- stjóra Útvarpsins, er skiljanleg eft- ir þann hama- gang sem á honum hefur dunið, að mati Gunnlaugs Sæv- ars Gunnlaugs- sonar, formanns útvarpsráðs. Hann sagði ákvörðun Auð- uns hafa valdið sér vonbrigðum, en hann ætlaði ekki að álasa Auðuni. Það væri varla í mannlegu valdi að standast slíkt áhlaup sem hann hefði orðið fyrir. Gunnlaugur segir að fundur hans og Auðuns í fyrradag hafi ekki ver- ið neinn leynifundur. Hann hafi hitt Auðun, líkt og hann hitti fjölda fólks daglega. Auðun segir í yfirlýs- ingu sinni að það hafi verið reynt að koma sér í vandræði í fyrrnefndu viðtali og það tekist. Varð hann missaga um hvort hann hefði átt fund með formanni útvarpsráðs. Gunnlaugur taldi að viðtalið þyrfti að skoða í ljósi þeirra aðstæðna sem ríktu þegar það var tekið. „Mönnum væri hollt, sérstaklega þeim sem eru að út- varpa þessu, að setja sjálfa sig í hans spor. Mér hefur þótt fyrir neð- an allar hellur framganga frétta- stofunnar, sem hefur gengið allt of hart fram vegna sinna hagsmuna- mála. Það hlýtur að vera umhugs- unarefni fyrir ráðamenn á Rík- isútvarpinu, allt þetta mál, sem ég tel að eigi að skoða í framhaldinu.“ Hvað framhaldið varðar taldi Gunnlaugur Sævar marga mögu- leika í stöðunni sem nú er komin upp. Hægt væri að bíða eftir nýjum lögum um Ríkisútvarpið varðandi ráðningu í stöðu fréttastjórans, líkt og ákveðið var að gera með stöðu Jóhanns Haukssonar fyrir norðan. Önnur leið væri að auglýsa stöðuna aftur. Sú hlyti að verða niðurstaðan ef menn ætluðu að ráða í starfið. Ef til vill þyrfti ekki að vænta margra umsókna, ef umsækjendur mættu eiga von á „trakteringum eins og þessi ungi maður varð fyrir“, sagði Gunnlaugur. Verður eitthvað gert, t.d. af hálfu útvarpsráðs, til að bera klæði á vopnin innan stofnunarinnar? „Útvarpsráð getur haft skoðun á hinu og þessu, en það ræður engu. Það er umsagnaraðili um stöður, en ræður ekki í þær. Útvarpsstjóri er hið endanlega vald innan stofn- unarinnar. Við höfum enga stöðu í það að gera neitt slíkt. Ég ber fyllsta traust til Markúsar og sé ekki að þetta hafi nokkur áhrif á hans stöðu,“ sagði Gunnlaugur. En hefur orðstír stofnunarinnar beðið hnekki? „Já, ég get ekki neitað því að mér finnst það. Sérstaklega fréttastofu Útvarpsins. Ég væri ekki heið- arlegur ef ég segði annað. Mér finnst allt þetta mál fyrir neðan virðingu manna sem ætlast til þess að þeir séu teknir alvarlega. Þetta er eins og grófasta gerð af einelti sem maður hefur orðið vitni að síð- ustu dagana.“ Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs Þetta er eins og grófasta gerð af einelti STJÓRN Félags fréttamanna (FF) verður kölluð saman í dag vegna þeirrar ákvörðunar Auðuns Georgs Ólafssonar að taka ekki við starfi fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Jón Gunnar Grjetarsson, formaður FF, segir að þetta hafi verið mjög skynsamleg ákvörðun hjá Auðuni Georg. „Mér finnst hann maður að meiri að hafa gert þetta,“ sagði Jón Gunnar. Auðun Georg segir í yfirlýsingu sinni að frétta- maður RÚV, sem tók við hann við- tal í gær, hafi ekki verið hlutlaus heldur aðili málsins. Aðspurður sagðist Jón Gunnar ekki vilja tjá sig um það nema hlusta sjálfur á við- talið, en hann hefði ekki heyrt það allt. „Grundvallaratriði er að menn segi satt og rétt frá. Menn virða að sjálfsögðu trúnað, en það er ekki þar með sagt að menn eigi að skrökva.“ Á starfsmannafundi Ríkis- útvarpsins í fyrradag sagði einn starfsmanna að fréttamenn hefðu misnotað fjölmiðla útvarpsins í þessari atburðarás. Jón Gunnar sagðist alfarið vera ósammála því og út í hött að halda slíku fram án þess að rökstyðja það nánar. En hefur traust fréttastofu Rík- isútvarpsins beðið hnekki? „Ef það hefur orðið þá er það okkar að afla fréttastofunni trausts,“ sagði Jón Gunnar. Hann sagði að í gær hefði stefnt í óefni og því hefðu starfsmenn RÚV ákveðið að leita til Alþingis og óska eftir að það gripi í taumana. Það hefði verið ákveðinn vendipunktur þegar Auðun Georg sagði á fundi á fréttastofunni í gærmorgun að hann hefði leitað til utanaðkomandi manna að koma þar inn. Síðan hefði hann boðið þeim sem vildu starfa með honum að gera vel við þá. „Þetta er ekkert annað en mútur og vinnubrögð sem eiga ekki að eiga sér stað í þessum geira,“ sagði Jón Gunnar. Fréttamenn og starfsmenn RÚV hafa ítrekað samþykkt vantrausts- yfirlýsingar á Markús Örn Antons- son útvarpsstjóra. Standa þær? „Hann hefur ekkert gert til að breyta forsendum sem þar liggja að baki,“ sagði Jón Gunnar. Útvarps- stjóri hefði t.d. verið viðstaddur og ekki hreyft neinum athugasemdum þegar Auðun Georg lýsti því yfir að hann mundi gera vel við þá sem mundu fylgja honum, né heldur þegar hann sagðist hafa verið að leita að nýju starfsfólki, jafnvel á öðrum fjölmiðlum, til að koma sér til aðstoðar á fréttastofu Útvarps. Jón Gunnar sagði að fréttamenn hefðu rétt út sáttahönd og gefið út- varpsstjóra færi á að koma til móts við þá, en hann hefði slegið það frá sér. Hann hefði komið fram í Kast- ljósi og hellt olíu á eldinn. „Hann hefur ekkert bakkað með það sem hann sagði þar. Það er heilmikil vinna eftir ef á að takast að byggja upp traust milli starfs- manna í húsinu og útvarpsstjóra.“ Jón Gunnar sagðist vilja veg Rík- isútvarpsins sem mestan. Hann sagðist vona að það tækist að end- urvinna trúnað, en eitthvað þyrfti að koma frá yfirmanni stofnunar- innar ef það ætti að takast. Jón Gunnar Grjetarsson, formaður Félags fréttamanna Heilmikil vinna að byggja upp traust starfs- manna til útvarpsstjóra ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar gerðu fréttastjóramál Ríkisútvarps- ins ítrekað að umtalsefni á Alþingi í gær. Gagnrýndu þeir ráðningu hins nýja fréttastjóra harðlega og sögðu að vegna hennar ríkti ófremdar- ástand á Ríkisútvarpinu. Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, var eini stjórnarliðinn sem tók efnislega þátt í umræðunum. Þorgerður K. Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra var ekki á landinu í gær. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að út- varpsstjóri, Markús Örn Antonsson, yrði að skilja að hann hefði aðeins tvo kosti í stöðunni: að breyta ákvörðun sinni (um að ráða Auðun Georg Ólafsson sem fréttastjóra Út- varpsins) eða að víkja sjálfur. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, sagði að hinum nýráðna fréttastjóra, sem eflaust væri ágætis maður, væri eng- an veginn sætt í sinni nýju stöðu. „Hann verður að fara frá. Útvarps- stjóri verður líka að fara frá. Honum er heldur ekki sætt í sinni stöðu eftir það sem á undan er gengið.“ Þá sagði Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að menntamálaráð- herra yrði að ógilda ráðningu hins nýja fréttastjóra. Auk þess sagði hún: „Fréttastofa Ríkisútvarpsins verður ekki hornsteinn lýðræðis- legrar umræðu í landinu meðan fyrir stofnuninni fer útvarpsstjóri sem gerist handbendi valdsjúkra stjórn- valda. Það er alveg á hreinu. Út- varpsstjóri verður að víkja.“ Telja sig eiga RÚV Fleiri þingmenn stjórnarandstöð- unnar tóku til máls og gagnrýndu ráðninguna harðlega. Pétur H. Blön- dal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var eini stjórnarliðinn sem tjáði sig efnislega um þetta mál, eins og áður sagði. „Hverjir ráða og reka yfir- menn í venjulegum fyrirtækjum?“ spurði hann og svaraði um hæl. „Það eru eigendurnir. Nú hafa starfs- menn RÚV samþykkt vantraust á útvarpsstjóra, vilja reka hann. Þeir telja sig eiga RÚV.“ Pétur sagði að þetta væri algjör- lega í samræmi við þá tillögu sem hann hefði flutt á Alþingi um að einkavæða ætti Ríkisútvarpið og selja það og að starfsmenn ættu að hafa forkaupsrétt á lægra verði. „Starfsmennirnir ættu að sam- þykkja þá tillögu,“ sagði hann og bætti við: „Fréttaflutningur RÚV undanfarnar vikur sýnir mér að draumurinn um óháða frétta- mennsku er bara draumur. Skoðanir starfsmanna menga allar fréttir og þarf ekki nema horfa á Kastljósið í gær til að sjá það. Þannig blasa þess- ir atburðir við mér.“ Gagnrýndu ráðn- inguna ítrekað Eftir Örnu Schram arna@mbl.is JÓN Gunnar Grjetarsson, formað- ur Félags fréttamanna, afhenti Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, ákall fréttamanna til Alþingis Ís- lendinga, um hádegisbil í gær, vegna ráðningar Auðunar Georgs Ólafssonar í stöðu fréttastjóra út- varpsins. Fréttamenn og aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins fylgdu Jóni Gunnari er hann afhenti ákallið. Þeir fjölmenntu einnig á þingpalla Alþingis, og fylgdust þar með umræðum, sem fram fóru á Alþingi, um fréttastjóramálið. Jón Gunnar sagði, er hann af- henti Halldóri ákallið í anddyri Al- þingis, að ráðning Auðunar Georgs hefði valdið miklum óróa innan Ríkisútvarpsins. „Á fundi í morgun [í gærmorgun] eftir að nýráðinn fréttastjóri á fréttastofu Útvarps kom til starfa blasti við okkur frekar ófögur mynd af þeim stjórnunarháttum, sem hann vill viðhafa,“ sagði Jón Gunnar. Af þeim sökum hefðu fréttamenn á Ríkisútvarpinu sett saman eftir- farandi ákall til Alþingis: „Auðun Georg Ólafsson, nýráð- inn fréttastjóri fréttastofu Út- varps, kom til starfa í morgun og hélt stuttan fund með fréttamönn- um. Þar kom fram hjá honum, að hann ætlaði að gera vel við þá sem vildu starfa með honum en sagðist skilja og virða ákvörðun þeirra sem vildu það ekki og hættu störf- um. Jafnframt greindi hann frá því, að hann hefði haft samband við nokkra menn og beðið þá að vera til taks ef núverandi frétta- menn legðu niður störf. Þetta eru beinar hótanir af hálfu hins nýja fréttastjóra. Hans stefna er augljóslega að deila og drottna. Það á greinilega að kaupa menn til samstarfs en losa sig við þá sem ekki fylgja nýjum siðum. Við telj- um þessar stjórnunaraðferðir í hrópandi ósamræmi við uppbygg- ingu opinberrar þjónustu í lýð- frjálsu landi. Ríkisútvarpið er þjónustustofnun í almannaþágu og verður að vinna í þeim anda. Neyðarástand er að skapast á Ríkisútvarpinu. Fjölmennur fund- ur starfsmanna samþykkti í gær vantraust á útvarpsstjóra vegna ráðningar Auðunar Georgs Ólafs- sonar, með 93% greiddra atkvæða. Útvarpsstjóri er ekki fær um að leysa þann vanda sem uppi er. Við heitum á alþingismenn að standa vörð um Ríkisútvarpið sem þjónað hefur þjóðinni í nær sjötíu og fimm ár.“ Ræðir við ráðherra í dag Halldór Blöndal sagði m.a. er hann tók við ákallinu að hann myndi leggja það fram á lestrarsal Alþingis. Hann sagði ennfremur í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær að hann hefði afhent for- mönnum þingflokkanna ákallið, á fundi með þeim eftir hádegi. Halldór sagði að hann myndi væntanlega í dag, laugardag, ræða við menntamálaráðherra, Þorgerði K. Gunnarsdóttur, um þá beiðni Kolbrúnar Halldórsdóttur, þing- manns Vinstri grænna, að fram fari utandagskrárumræða um mál- efni Ríkisútvarpsins. Menntamála- ráðherra hefur verið erlendis í vik- unni, en von var á henni til landsins seinni partinn í gær. Jón Gunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það hefði verið neyðarúrræði fréttamanna að leita til Alþingis. Forráðamenn Ríkisútvarpsins; útvarpsstjóri, menntamálaráðherra og formaður útvarpsráðs, hefðu allir sagt að ráðning hins nýja fréttastjóra hefði farið fram lögum samkvæmt. „Þegar menn segja: „Ég geri skyldu mína gagnvart lögum“ hljótum við að snúa okkur að lög- gjafanum og biðja hann að grípa inn í málið,“ sagði Jón Gunnar. „Með ákallinu vildum við höfða til alþingismanna, þannig að þeir gripu í taumana áður en í algjört óefni stefndi.“ Ákall fréttamanna til alþingismanna Morgunblaðið/Árni Torfason Jón Gunnar Grjetarsson, formaður Félags fréttamanna, afhenti í gær Halldóri Blöndal, forseta Alþingis, ákall frá fréttamönnum Ríkisútvarpsins þar sem þeir hétu á þingmenn að standa vörð um Ríkisútvarpið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.