Morgunblaðið - 02.04.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 23
MINNSTAÐUR
ÁSGEIR Magnússon, forstöðumaður
Skrifstofu atvinnulífsins, hefur mikl-
ar efasemdir varðandi túlkun á nið-
urstöðum könnunar sem Gallup gerði
á viðhorfi Akureyringa og Eyfirðinga
til álvers, en Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra kynnti þær á fundi
um stóriðju í Eyjafirði í fyrrakvöld.
Niðurstaða hennar var sú að ríf-
lega helmingur íbúa á Akureyri og
Eyjafirði 51,6% er hlynntur því að ál-
ver rísi í næsta nágrenni bæjarins,
35,2% eru andvíg og 13,2% kváðust
hvorki fylgjandi né andvíg. Niður-
stöðurnar komu iðnaðarráðherra á
óvart, en hún sagði á fundinum að
hún hefði talið að viðhorf til álvers
væri jákvæðara.
„Sérstaklega hef ég efasemdir um
túlkun á þessari könnun,“ sagði Ás-
geir. Spurt var í könnuninni hvort
menn væru hlynntir eða andvígir því
að álver risi í næsta nágrenni Akur-
eyrar. „Hvernig skilur hinn almenni
bæjarbúi þessa spurningu, hafa
menn Krossanes í huga eða svæði í
námunda við flugvöllinn? Eða eru
menn að tala um álver við utanverðan
Eyjafjörð? Þetta geta menn skynjað
með mismunandi hætti.“
Ásgeir sagði að viðhorf manna réð-
ust oft af þeirri umræðu sem uppi
væri hverju sinni varðandi ákveðin
málefni. Þannig hefðu margir Aust-
firðingar verið andvígir stóriðjufram-
kvæmdum í upphafi og langur vegur
frá að menn töluðu þar einni röddu.
Meirihluti íbúa hefði hins vegar fallist
á rök sveitarstjórnarmanna eystra
sem og forsvarsmanna í atvinnulífi
varðandi þau áhrif sem framkvæmdir
hefðu á samfélagið. „Þau rök hafa
ekki komið fram hjá okkur nú, menn
hafa í raun ekki enn tekið þessa um-
ræðu, þ.e. hvaða máli þetta skiptir
fyrir samfélagið, en hún er rétt að
fara í gang á nýjan leik,“ sagði Ás-
geir.
Hann nefndi einnig að margir
hefðu umhverfisáhrif stóriðju í huga
þegar þeir svöruðu slíkum spurning-
um í könnunum, en hvað menn ná-
kvæmlega væru að hugsa væri ekki
vitað, þ.e. umhverfisáhrif álversins,
virkjunarframkvæmdanna, línulagn-
anna, „þetta á allt eftir að skoða“.
Ásgeir sagðist þó gera mesta fyr-
irvara á túlkun könnunarinnar, ann-
ars vegar kæmi fram að rúmlega
helmingur væri hlynntur álveri í
næsta nágrenni Akureyrar, um 35% á
móti, en þegar spurt var hvort menn
vildu sjá álverið annars staðar á
Norðurlandi ef það gæti ekki risið við
Eyjafjörð væri niðurstaðan sú
að nær 66% eru hlynnt því en um
22% á móti. „Akureyringar vita að
stóriðjuframkvæmdir hafa skilað
þjóðarbúinu miklu og ef ekki er hægt
að reisa t.d. álver í næsta nágrenni við
bæinn, vilja þeir að sjálfsögðu sjá það
annars staðar á Norðurlandi. Þessi
jákvæða afstaða íbúa hér varðandi
það að stóriðja verði sett upp á Norð-
urlandi er nú túlkuð sem neikvæð af-
staða fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Það
finnst mér mjög skrýtin túlkun.“
Franz Árnason, forstjóri Norður-
orku, sagði að það hefði ekki verið
rétt hjá iðnaðarráðherra að leggja
áherslu á það á fundinum að aðeins
51,2% Eyfirðinga væru mjög eða
frekar hlynnt því að álver yrði byggt í
nágrenni Akureyrar á meðan það
lægi fyrir í sömu könnun að aðeins
um þriðjungur íbúa svæðisins væri
frekar eða mjög á móti því. „Það
skiptir miklu meira máli og það er
mín skoðun að þeir sem ekki tóku af-
stöðu í málinu séu líklegri til að vera
með álveri en á móti.“ Franz sagði
það jafnframt sína skoðun að fjárfest-
irinn velji staðsetninguna en hins
vegar viti allir að stjórnvöld hafa þar
einnig áhrif. „Aðalatriðið er að menn
séu ekki að teygja þetta í það enda-
lausa, finna nýja og nýja staði og í
rauninni að hafa menn að fíflum.“
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
lét gera könnun á viðhorfum Eyfirð-
inga til stóriðju í október síðastliðið
haust, en niðurstaða hennar var sú að
62,3% íbúa á Akureyri voru jákvæð
gagnvart stóriðju í Eyjafirði, 26,3%
neikvæð og 11,1% tók ekki afstöðu. Í
þeirri könnun var spurt um afstöðu
manna til stóriðju í Eyjafirði.
Vona að fallið verði frá
þessum hugmyndum
„Ég vona að niðurstaða þessarar
könnunar verði til þess að fallið verði
frá öllum hugmyndum um að reisa ál-
ver við Eyjaförð því ég er sannfærð
um það að komandi kynslóðir eiga
eftir að þakka okkur það ef tekst að
afstýra því,“ sagði Valgerður H.
Bjarnadóttir, Vinstri grænum. Hún
kvaðst sannfærð um að álver væri
ekki góður kostur í atvinnuuppbygg-
ingu á Eyjafjarðarsvæðinu. Hún
sagði það sitt mat að ekki væri ráð-
lagt að fara út í svo stóra framkvæmd
sem bygging álvers væri þegar fylgi
við það væri ekki meiri en raun ber
vitni, samkvæmt könnunninni. „Þeg-
ar meira en þriðjungur íbúanna er á
móti framkvæmdinni held ég að
menn sjái að þetta er ekki vænlegur
kostur. Ég vona að menn fari nú af
krafti að skoða aðra möguleika og þá
gleymir fólk þessari álverstálsýn.“
Kannanir mæla það
sem um er spurt
Magnús Þór Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar, sagði kannanir mæla
það sem um væri spurt og grundvall-
armunur væri á þessum tveimur
könnunum, spurningarnar væru orð-
aðar með ólíkum hætti. „Ég held að
það skýri að hluta til þennan mun á
niðurstöðunum.“ Þannig taldi Magn-
ús Þór að það spilaði inn í niðurstöðu
á könnun ráðuneytisins hvernig
spurningin var orðuð. Þegar spurt
væri um næsta nágrenni sæju flestir
fyrir sér svæði í jaðri bæjarins. Á því
og t.d. utanverðum Eyjafirði væri
talsverður munur, en í könnun AFE
hefði verið spurt á þeim nótum. Að
mati Magnúsar er spurningin í könn-
un ráðuneytisins óheppilega orðuð.
„Í mínum huga stendur okkar
könnun frá síðastliðnu haust alveg
fyllilega fyrir sínu, en þar kom fram
mikill stuðningur við uppbyggingu
stóriðju í Eyjafirði,“ sagði Magnús.
Hann taldi ekki óeðlilegt að um
þriðjungur íbúa væri á móti stóriðju-
framkvæmdum „og ég held að það sé
alls ekki hægt að túlka það sem óvin-
veitt umhverfi,“ sagði hann og bætti
við að flestum væri í fersku minni læt-
in sem urðu í Hvalfirði þegar reisa
átti álver þar. Það hefði verið gert
þrátt fyrir hávær mótmæli. „Það er
klár meirihluti íbúa hér á svæðinu
fylgjandi stóriðjuframkvæmdum
þannig að það ætti ekki að trufla
hugsanlega fjárfesta.“
Forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins hefur efasemdir um túlkun könnunar ráðuneytisins
Umræðan rétt að
hefjast á ný og margt
er eftir að skoða
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
AKUREYRI
„HEYRÐU, jú, ég ætla að mæta á
mánudaginn,“ sagði Arngrímur Jó-
hannsson flugstjóri sem hefur nú ný-
lega látið af störfum, en félagar hans,
vinir, fjölskylda og fyrrverandi sam-
starfs- og samferðamenn á Akureyri
komu saman honum til heiðurs í
Flugsafni Íslands á Akureyrarflug-
velli síðdegis í gær. Arngrímur vann
hjá Flugmálsstjórn á Akureyrar-
flugvelli, en hugðist taka sér leyfi frá
störfum í eitt ár og halda til frekara
náms. Þórhalli Sigtryggssyni, sem
hafði nýlokið námi í útvarpsvirkjun
og bjó suður í Reykjavík, var boðið
að leysa Arngrím af þetta ár og sló
til. „Síðan eru liðin ríflega fjörutíu ár,
ég kom hingað 1963 og er ekki á för-
um,“ sagði Þórhallur. „Ég hef aldrei
séð eftir að hafa tekið að mér þessa
afleysingu, en hún varði dálítið leng-
ur en til stóð í fyrstu.“ Arngrímur
hefur nú látið Þórhall vita af því að
hann sé tilbúinn að „leysa hann af“
strax eftir helgi. Arngrímur sagðist
enn sinna ákveðnum verkefnum í
Reykjavík, en hann væri smám sam-
an að flytja „leikföngin“ sín norður,
þrjár flugvélar af sjö væru komnar á
gömlu heimaslóðirnar norðan heiða.
Morgunblaðið/Kristján
Flugkappi Fjöldi fólks heiðraði Arngrím Jóhannsson með nærveru sinni í hófi í Flugsafni Íslands í gær. Á mynd-
inni með Arngrími eru þeir Þórhallur Sigtryggsson, Sigurður Hermannsson og Húnn Snædal.
Mæti aftur á mánudaginn!
VEGFARENDUR um Ráðhústorg
ráku upp stór augu síðdegis í
gær, en fyrirvaralaust brutust
þar út heilmikil slagsmál með til-
heyrandi afskiptum lögreglu.
Vissu menn vart hvaðan á þá stóð
veðrið, slík voru lætin enda virt-
ust fjölmenn lið eigast þarna við.
Átti þessi hasar sér þó eðlilegar
skýringar, þarna voru á ferð
framhaldsskólanemar í bænum,
nemendur MA og VMA, Hrafnar
og Þrumur. Skólarnir hafa nú í
fyrsta sinn tekið höndum saman
og efna til sameiginlegrar leik-
sýningar. Sú nefnist Rígurinn og
fjallar m.a. um þann meinta ríg
sem er á milli skólanna. Frum-
sýnt verður um aðra helgi og
með uppátækinu vildu leikarar
vekja athygli á sýningunni og
tókst það bærilega.
Nemendur VMA og MA tókust
hraustlega á er þeir kynntu vænt-
anlega leiksýningu á Ráðhústorg-
inu en sýningin ber heitið Ríg-
urinn. Morgunblaðið/Kristján
Slegist á
Ráðhús-
torgi
Sýningarspjall | Baldvin Ringsted
verður til viðtals á sýningu sinni í
Kunstraum Wohnraum, Ásabyggð 2,
600 Akureyri, á morgun, sunnudag-
inn 3. apríl, frá kl. 11 til 13.
Á sýningunni í Kunstraum Wohn-
raum gefst gestum kostur á að spegla
sig í klippihljóðverki þar sem hann
notast m.a. við textabrot úr ævintýr-
um og fegurðarsamkeppnum. Sýn-
ingunni lýkur 21. apríl nk.
Allir eru velkomnir á sýningar-
spjallið.
Líf og friður | Barnakór Gler-
árkirkju og Unglingakór Gler-
árkirkju setja í sameiningu upp
söngleik eftir sænskan höfund, Per
Harling, en hann nefnist Líf og frið-
ur. Sýningin verður í Glerárkirkju í
dag, laugardaginn 2. apríl kl. 14. Það
fjallar um dýrin um borð í Örkinni
hans Nóa, sem eru að velta því fyrir
sér af hverju flóðið mikla hafi skollið
á og komast að sjálfsögðu að þeirri
niðurstöðu að græðgi mannanna
sem ætluðu að stjórna guði sé um að
kenna.
Svo sem vera ber í söngleik er
mikið sungið og dýrin koma fram úti
um alla kirkju. Margrét Eir Hjart-
ardóttir, leik- og söngkona, er leik-
stjóri en undirleik annast Arnór Vil-
bergsson og Stefán Ingólfsson.
Kórarnir mun flytja þennan söng-
leik á Kirkjudögum í Hallgríms-
kirkju í júní í sumar.
AK-EXTREME-snjóbrettamótið
verður haldið í Hlíðarfjalli og á Ak-
ureyri um helgina. Mótið hefur
smám saman verið að festa sig í
sessi og er þetta í fjórða sinn sem
það er haldið. Hápunktur þess er
líklega stökkkeppni efst í Gilinu
sunnanvert við Andapollinn en hún
verður í kvöld, laugardagskvöldið
2. apríl og hefst með flugeldasýn-
ingu kl. 21. Þá verður keppt á snjó-
brettum og loks taka vélsleðamenn
nokkrar bunur niður snarbratta
brautina.
Snjóbretti
í Gilinu
Hraðskákmót | Halldór Brynjar
Halldórsson sigraði á Páska-
hraðskákmóti Skákfélags Akureyrar
sem fram fór sl. mánudag. Alls mættu
14 skákmenn til leiks. Að loknum 13
umferðum voru 3 jafnir og efstir með
11 vinninga, þeir Halldór Brynjar,
Gylfi Þórhallsson og Ágúst Bragi, og
tefldu þeir um sigurinn. Halldór
Brynjar sigraði, en hann vann Ágúst
og gerði jafntefli við Gylfa, annar
varð Ágúst og Gylfi þriðji. Í unglinga-
flokki sigraði Ólafur Evert Úlfsson.
Næsta mót hjá félaginu er Bikar-
mótið, sem hefst sunnudaginn 3. apríl
kl. 14.00. Teflt er í KEA salnum
Sunnuhlíð og eru allir velkomnir.
Tónleikar | Kvennakór Akureyr-
ar heldur sína 4. vortónleika í Ak-
ureyrarkirkju á morgun, sunnu-
daginn 3. apríl, kl. 16. Stjórnandi
kórsins er Þórhildur Örvarsdóttir
og undirleikarar verða Eyþór Ingi
Jónsson á píanó og Snorri Guð-
varðarson á gítar.
Einsöngvari með kórnum að
þessu sinni er Sigrún Arna Arn-
grímsdóttir messósópran.
Efnisskráin er að vanda fjöl-
breytt, þar má finna lög eftir ís-
lenska og erlenda höfunda, þjóð-
lög, negrasálma og fleira.
Starfsár kórsins hefur verið við-
burðaríkt, haldnir voru tónleikar
til styrktar Mæðrastyrksnefnd
Akureyrar í desember, vor-
tónleikarnir nú og þá heldur kór-
inn einnig tónleika í Skúlagarði
21. maí. Starfsárinu lýkur svo með
tónleikaferð til Slóveníu 23. júní.
Kórfélagar eru nú milli 70 og 80
talsins.