Morgunblaðið - 02.04.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 27
DAGLEGT LÍF
Sloggi
tilboð
Sloggi maxi
Þrjár í pakka
á aðeins
1.699 kr.
Hagkaup Smáralind
Hagkaup Skeifunni
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Spönginni
Hagkaup Garðabæ
Hagkaup Eiðistorgi
Hagkaup Akureyri
Nettó, Akureyri
Nettó, Mjódd
Nóatún Selfossi
Kjarval, Kirkjubæjarkl.
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Samkaup Keflavík
Samkaup Hafnarfirði
Samkaup Egilsstöðum
Úrval Hrísalundi Akureyri
Úrval Húsavík
Perla Akranesi
Samkaup Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga,
Hvammstanga
Samkaup, Blönduósi
Skagfirðingabúð Sauðárkróki
Lækurinn Neskaupstað
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Drangsnesi
Efnalaug Dóru, Höfn
Heimahornið, Stykkishólmi
Verslunin 66,
Vestmannaeyjum
Apótek Siglufjarðar
Lyfja,útibú Patró
Paloma Grindavík
Fatabúðin Ísafirði
Verslunin Rangá,
Skipasundi 56
H-Sel, Laugarvatni
Þín verslun, Seljabraut Rvík
Plús markaðurinn, Hátúni 10b
Gamla búðin, Hvolsvelli
Samkaup, Fáskrúðsfirði
Dalakjör, Búðardal
Kassinn, Ólafsvík
Verslunin Strax,Flúðum
Klakkur, Vík
Raflost, Djúpavogi
Útsölustaðir:
„BÆNABANDIÐ er í raun hlið-
stætt við það talnaband sem við
þekkjum úr kaþólskunni,“ segir sr.
Halldór Reynisson,
verkefnisstjóri
fræðslusviðs Bisk-
upsstofu, en hann
verður með nám-
skeið í notkun bæna-
bands á vegum Leik-
mannaskóla kirkj-
unnar.
Uppruna bæna-
bandsins má rekja til
Martins Lönnebos,
sænsks biskups, eftir
ferð hans um lönd
við Miðjarðarhaf.
„Þá laust þessari
hugmynd niður hjá
honum,“ segir Hall-
dór. „Sjálfsagt vegna
áhrifa frá kaþólsk-
unni en síðan hefur bænabandið
orðið mjög vinsælt á Norð-
urlöndum og er að breiðast út um
Evrópu og til Bandaríkjanna.“
Halldór bendir á að talnabönd
séu til í flestum trúarbrögðum með
einum eða öðrum hætti. „Þetta er í
raun tæki til að hjálpa okkur við
daglega trúar- og bænariðkun á
því sem okkur finnst vera mik-
ilvægt í daglegu lífi,“ segir hann og
tekur fram að þetta bænaband
byggist á kristnum grunni og
kristnum arfi. „Það má hins vegar
leggja mismunandi merkingar í
bænabandið. Það einskorðast ekki
við þá sem telja sig mikið trúaða
og leita mikið í kristna trú. Þess
vegna geta allir notað bænaband í
sínu daglega lífi. Við erum kannski
vön því að bænariðkun sé það að
spenna greipar og loka augunum
og krjúpa en bæn er fyrst og
fremst eintal sálarinnar við guð
hvar og hvernig sem það fer fram.
Svo dæmi sé tekið þá er ég skokk-
ari og ég nota þann tíma oft til
bænaiðkana og bæn getur einnig
verið hugleiðsla – hún er bæði orð-
laus og með orðum. Þetta litla
verkfæri er til þess að hjálpa okk-
ur að stunda andlega iðju og iðka
með áþreifanlegum hætti.“
Bænabandið samanstendur af
átján perlum í ýmsum litum og
gerðum og hefur hver og ein sína
merkingu. Guðsperla, þagnarperla,
skírnarperla, reynsluperla, æðru-
leysisperla, kærleiksperla og perla
mótlætis svo dæmi sé tekið.
Á námskeiðinu verður farið yfir
merkingu hverrar perlu og farið
yfir hvernig má nota bænabandið
til að dýpka bænalífið í daglegu lífi.
„Bænabandið er tilkomið vegna
þess að í mótmælendatrú hafa
menn fyrst og fremst reitt sig á
hið talaða orð eða hið skrifaða orð
og vantað tæki eða áhöld sem
hjálpa fólki að dýrka sinn guð
„áþreifanlega“ eins og t.d. í kaþ-
ólskunni, þar sem menn iðka sína
trú með talnabandi. Þetta band
hjálpar kannski mönnum að gera
trúna áþreifanlegri og nánast
áþreifanlega þegar perlurnar eru
handfjatlaðar hvar og hvenær sem
er.“
TRÚMÁL | Bænaband byggist á kristnum grunni og kristnum arfi
Dýpkar bænina í
okkar daglega lífi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Séra Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslusviðs Biskupsstofu, mun
leiðbeina þátttakendum á námskeiði um notkun bænabands.
Hver og ein perla í bandinu hefur sína merkingu.
Námskeiðið hefst mánudaginn
4. apríl kl. 20 í Grensáskirkju.
Kennt verður í þrjú skipti, tvo
tíma í senn. Í tengslum við
námskeiðið kemur út bókin
Bænabandið, eftir Martin Lönnebo
biskup, og Karl Sigurbjörnsson
biskup hefur þýtt og staðfært
og verður hún ásamt bænabandi
til sölu í Kirkjuhúsinu, Laugavegi
31. Skráning á námskeiði er á
Biskupsstofu eða leikmanna-
skoli@kirkjan.is.
krgu@mbl.is