Morgunblaðið - 02.04.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2005 37
UMRÆÐAN
Okkar bestu bo›!
Vaskar og handlaugar
Ver› 29.900
19.900
Ver› 29.900
19.900
Handklæ›aofnar
60 x 60 sm 60 x 120 sm
Ver› 39.900
29.900
Ver› 29.900
19.900
Salerni
Ver› 58.000
39.900
Ver› 24.900
19.900
Hur›irMjög gott úrval af innihur›um
Spónlagt Mahony: ver› 25.900
Eik, Hlynur, Mahony, Hnota. 70, 80 og 90 sm.
19.900
Sturtuhausar
Ver› frá 7.990
2.990
Margar stær›ir og ger›ir
Victory sturtuklefar
Ver› 92.900
49.900
Ver› 92.900
49.900
Gólfflísar Frábært úrval
Ver› frá
1.790
30 x 60 sm 30 x 30 sm 45 x 45 sm
Ver› 29.000
14.900
Ver› 28.900
14.900
Ver› 12.900
9.999
Ver› 15.900
9.999
Ver› 7.990
4.900
-flegar flú kaupir gólfefni
Parketúrvali› er í Har›vi›arvali
BEYKI 60cm
1.990
BEYKI Country 60cm BEYKI 60cm
1.990
BEYKI Natur 60cm BEYKI 60cm
1.990
ik 60cm
BEYKI 60cm
3.990
Eik Tundra s ellt BEYKI 60cm
2.490
ik Natur BEYKI 60cm
2.690
Eik Rusti al
Me› hljó›einangrandi
undirlagi og gólflistum
Vi›arfliljur
Ver› 1.690
1.290
Ver› 1.600
1.290
Ver› 11.900
7.900
Ver› 19.990
9.900
Blöndunartæki
Ver› frá
1.790
Veggflísar
á ba›herbergi og eldhús
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
2
8
7
.0
4
1
13 x 260 sm
20 x 25 sm
Ver› 29.000
14.900
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins, um
að skapa betra umhverfi fyrir
bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöðunni
er að láta TR ganga inn í LHÍ
og þar verði höfuðstaður fram-
halds- og háskólanáms í tónlist í
landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrði ekki
bankið þegar vágesturinn kom í
heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mannkynið
þarf fremur á leiðsögn að halda í
þeirri list að þola góða daga en á
helvítisprédikunum á valdi ótt-
ans eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu for-
setans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon: „Ljóst
er að án þeirrar hörðu rimmu og
víðtæku umræðu í þjóðfélaginu
sem varð kringum undir-
skriftasöfnun Umhverfisvina
hefði Eyjabökkum verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluaðferð-
irnar? Eða viljum við að námið
reyni á og þjálfi sjálfstæð vinnu-
brögð og sjálfstæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson: „Ég
hvet alla sjómenn og útgerð-
armenn til að lesa sjómanna-
lögin, vinnulöggjöfina og kjara-
samningana.“
EINN algengasti heilsuvandi
barna í vestrænum ríkjum er mið-
eyrnabólgur. Oftast eru mið-
eyrnabólgur afleiðing veirusýkinga
og kvefpesta þar sem vökvi hefur
myndast í miðeyranu. Miðeyrnabólg-
unum fylgja oft verkir en hægt er að
gefa verkjalyf (paracetamól) til að slá
á einkennin. Á síðustu áratugum hef-
ur miðeyrnabólga orðið algengasta
orsök fyrir notkun sýklalyfja meðal
barna hér á landi. Sýklalyfjameðferð
er þó oft ekki nauðsynleg. Henni
fylgja ýmsir ókostir svo sem nið-
urgangur og ofnæmisviðbrögð. Al-
varlegast er þó þróun sýkla-
lyfjaónæmis baktería í þjóðfélaginu
sem tengist sýklalyfjanotkuninni
beint eins og rannsóknir undanfarin
ár, m.a hér á landi, hafa sýnt þar sem
áhætta á bera ónæma stofna 4–5-
faldast eftir hvern sýklalyfjakúr.
Þess vegna hefur verið hvatt til að
nota ekki sýklalyf nema þá hjá
yngstu börnunum eða ef grunur er
um alvarlega miðeyrnabólgusýkingu.
Heimilislæknum hefur tekist að
minnka sýklalyfjaávísanir vegna mið-
eyrnabólgu um 1⁄3 á síðasta áratug.
En hvað með notkun annarra úrræða
við miðeyrnabólgum barna?
Þriðjungur barna fær
rör á Íslandi
Úrræði sem beitt hefur verið í
vaxandi mæli á síðustu árum við
endurteknum eða þrálátum mið-
eyrnabólgum hjá börnum er rörísetn-
ing í hljóðhimnur. Þannig má tíma-
bundið koma í veg fyrir vökvasöfnun í
miðeyranu. Í rannsóknum sem und-
irritaður gerði ásamt fleirum á um
1.800 börnum á landinu 1998 og 2003
kom einnig í ljós að um þriðjungur
barna höfðu fengið hljóðhimnurör í
annað eða bæði eyrun.
Um er að ræða miklu
hærra hlutfall en þekk-
ist annars staðar (sjá
mynd). Miðað við fjölda
aðgerða má ætla að um
16.000 1–12 ára barna
hafi fengið einhvern-
tímann hljóðhimnurör.
Hverri aðgerð fylgir
svæfing með tilheyr-
andi óþægindum og
áhættu fyrir barnið auk
mikils kostnaðar.
Möguleikar eru síðar á
kölkun í hljóðhimnunni og vægri
heyrnarskerðingu.
Þótt tilgangur rör-
ísetningar sé oft að
fækka sýklalyfjakúrum
hjá barni hefur sýnt sig
á Íslandi að rörið sjálft
veldur oft sýkingu og
börn með rör hafa ekk-
ert síður fengið sýklalyf
en börn sem ekki eru
með rör. Flestir eru þó
sammála um að nota rör
í þeim fáu tilvikum þeg-
ar grunur er á umtals-
verðri heyrnarskerð-
ingu vegna vökva í
miðeyra. Miklu oftar er þó um að
ræða mjög væga heyrnarskerðingu
með vökva í miðeyra sem talið er að
skaði ekki tal og eða heyrnarþroska
barns þegar til lengri tíma er litið.
Þar sem ekki hefur verið hægt að
sýna fram á ótvíræða gagnsemi hljóð-
himnuröra hvað varðar tal og heyrn-
arþroska í erlendum rannsóknum
nema e.t.v. hjá litlum hóp slæmra
eyrnabólgubarna og að íslensk börn
virðast fá a.m.k jafnmikið af sýkla-
lyfjum þótt þau hafi rör vekja upplýs-
ingar um mikla röranotkun í hljóð-
himnur barna hér á landi kröfu um
endurskoðun á notkun hljóðhimnu-
röra hjá íslenskum börnum.
Vilhjálmur Ari Arason fjallar
um eyrnabólgur og hvað sé best
að gera við því meðal barna
Vilhjálmur Ari Arason
’Heimilislæknum hefur tekist að
minnka sýklalyfja-
ávísanir vegna mið-
eyrnabólgu um 1⁄3 á
síðasta áratug. En
hvað með notkun
annarra úrræða við
miðeyrnabólgum
barna?‘Heimilislæknir í Hafnarfirði.
Eyrnabólgur og „rörabörnin“ á Íslandi