Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 114. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Eldað af
fingrum fram
Matarkistan við grillið með Bjarna
Jóhannessyni Daglegt líf
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Fornbílunum fjölgar Reiði í umferðinni
GPS-vegaleiðsögukort væntanleg Íþróttir | Krafa
um breytingar í körfunni Keflavík lá á Skaganum
Ferskleiki
og gæði
íslenskrar
matvöru
gerir hana
að úrvals kosti
fyrir heimilin
í landinu.
JÓN Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, varð í gær fyrsti
Íslendingurinn sem fagnar sigri í Evrópukeppni í körfuknattleik. Hann
skoraði 9 stig í sigri rússneska liðsins Dynamo St. Pétursborg gegn BC
Kiev frá Úkraínu í FIBA-Evrópukeppninni, en leikurinn fór fram í Istanbúl
í Tyrklandi í gærkvöld. Jón Arnór og félagar skoruðu 85 stig gegn 74 stig-
um Kænugarðsliðsins en Dynamo-liðið fór í gegnum keppnina án þess að
tapa leik.
Á myndinni lyftir Jón Arnór sigurverðlaununum hátt á loft ásamt Ognj-
en Askrabic og Mate Milisa.
Jón er ekki sá fyrsti úr sínum systkinahóp sem verður Evrópumeistari
en elsti bróðir hans, Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður, hefur þríveg-
is fagnað Evrópumeistaratitli, tvívegis í EHF-keppninni og einu sinni í
Meistaradeildinni sem leikmaður þýska liðsins Magdeburg. Ólafur á mögu-
leika á að bæta fjórða titlinum í safnið sem leikmaður Ciudad Real sem
leikur í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Barcelona um helgina.
Þar með er enn sá möguleiki fyrir hendi að íslenskir bræður fagni Evrópu-
meistaratitli í liðsíþrótt á sömu leiktíð en slíkt hefur aldrei gerst áður hjá
íslenskum íþróttamönnum. / C1
Jón Arnór Evrópumeistari
Reuters
EINGÖNGU einbýli verða á legudeildum nýs
Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) og á þar
að vera hægt að sinna sjúklingi allan dvalartíma
hans á sjúkrahúsinu. Lífvísindasetur Háskóla Ís-
lands, aukin áhersla á göngu- og dagdeildir, einn
bráðakjarni þar sem öll bráðastarfsemi sjúkra-
hússins verður til húsa eru meðal áherslna í sam-
keppnisgögnum fyrir nýjan spítala, sem heil-
brigðisráðherra afhenti sjö hönnunarhópum,
sem taka þátt í skipulagssamkeppni svæðisins, í
gær. Gangi framkvæmdaáætlun eftir verður
hægt að gangsetja skurðgröfurnar og hefjast
handa við byggingu sumarið 2008.
Nýjar hugmyndir um hönnun spítala verða
hafðar að leiðarljósi við bygginguna. Þær byggj-
ast á rannsóknum sem sýna að með einbýlum
megi lágmarka flutning sjúklinga innan sjúkra-
húsa og þar með draga úr kostnaði, minnka sýk-
ingarhættu til muna og fækka legudögum.
Ný hugsun
„Þetta krefst nýrrar hugsunar og nýrra vinnu-
aðferða,“ segir Jóhannes M. Gunnarsson, for-
stjóri LSH. „Sennilega þarf að taka tillit til þess-
arar nýju hugmyndafræði við menntun
heilbrigðisstarfsmanna. Með tímanum mun eign-
arhaldshugsunin, „þetta er deildin mín“, víkja
vegna þess að hugmyndin er sú að sjúklingurinn
leggist inn á einbýli, sem verða þannig útbúin að
ekki þarf að flytja sjúklinginn meðan á legunni
stendur. Gert verður ráð fyrir að hægt verði að
sinna öllum þörfum sjúklinganna upp að gjör-
gæslu, í hverju einasta herbergi. En það mun
taka tíma að innleiða þessa nýju hugsun, það er
margra ára vinna.“
Mestmegnis undir eitt þak
Hvorki er gert ráð fyrir að langtímaendur-
hæfing, sem er að Grensási, né langtímameðferð
geðsjúkra, sem nú er á Kleppsspítala, flytjist.
Öldrunarstarfsemin verður áfram á Landakoti.
Hins vegar flytur öll starfsemi LSH, sem nú er í
Fossvogi, á Hringbraut og einnig barna- og ung-
lingageðdeildin, sem er nú á Dalbraut.
Einu skilyrðin, sem sett eru varðandi eldra
húsnæði á byggingarlóðinni, er að gamli Kenn-
araskólinn, sem er friðaður, verði ekki rifinn og
að gamli Landspítalinn, sem Guðjón Samúelsson
teiknaði, standi óhaggaður og fái að njóta sín.
Hönnunarhópar skipulags LSH hafa fengið samkeppnisgögn í hendur
Fækka legudögum og
spara peninga með einbýli
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Fjölnota einbýli/24–26
Jerúsalem. AFP, AP. | Vladímír Pútín
Rússlandsforseti reyndi í gær að
fullvissa ísraelska ráðamenn um að
Ísrael stafaði ekki hætta af fyrir-
hugaðri sölu á rússneskum flug-
skeytum til Sýrlands og samstarfi
Rússa við Írana í kjarnorkumálum.
Pútín ræddi við Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, í þrjár
klukkustundir í Jerúsalem í gær.
Þeir samþykktu að auka samstarf
landanna í baráttunni gegn hryðju-
verkum og samvinnu á sviði há-
tækni.
Pútín tókst þó ekki að fullvissa
ísraelska ráðamenn um að Ísrael
stafaði „alls engin hætta“ af nýrri
gerð loftvarnaflugskeyta sem Rúss-
ar hyggjast selja Sýrlendingum. Ísr-
aelar óttast að flugskeytin komist í
hendur herskárra hreyfinga sem
hafa notið stuðnings sýrlenskra
stjórnvalda.
Aðeins varnarvopn
Pútín lagði áherslu á að flugskeyt-
in væru varnarvopn. „Það eina sem
þið gætuð gert til að verða fyrir
þessum flugskeytum væri að ráðast
á Sýrland. Viljið þið gera það?“
Moshe Katsav, forseti Ísraels,
sagði að enn væri ágreiningur milli
ríkjanna í þessu máli.
Hann kvaðst hins vegar vera sátt-
ari við loforð Pútíns um að beita sér
fyrir því að Íranar framleiddu ekki
kjarnavopn. Pútín sagði að Rússar
vildu aðeins aðstoða Írana við að
hagnýta kjarnorkuna í friðsamleg-
um tilgangi en væru andvígir því að
þeir auðguðu úran sem hægt væri
að nota í kjarnavopn.
Reuters
Pútín og Moshe Katsav, forseti Ísr-
aels, við móttökuathöfn í Jerúsalem.
Pútín reyn-
ir að sefa
áhyggjur
Ísraela
BANDARÍKJAMENN óttuðust að
Norðmenn kynnu að þróa eigin
kjarnavopn á fyrstu árunum eftir síð-
ari heimsstyrjöldina og beittu þá
þrýstingi til að hindra það, að sögn
fréttavefjar Aftenposten í gærkvöldi.
Aftenposten segir að þetta komi
fram í grein sem Olav Njølstad, yf-
irmaður rannsóknadeildar Nóbel-
stofnunarinnar, leggi fram á ráð-
stefnu í Ósló í dag. Ástæða þess að
Bandaríkjamenn höfðu þessar
áhyggjur var að Norðmenn fluttu út
þungt vatn og stóðu framarlega í þró-
un kjarnorkunnar. Norðmenn áttu
þegar árið 1951 tilraunakjarnaofn
sem aðeins Bandaríkin, Bretland,
Kanada, Rússland og Frakkland
höfðu yfir að ráða á þessum tíma.
Óttuðust norsk
kjarnavopn
ÁSDÍS Halla Bragadóttir, bæjar-
stjóri í Garðabæ, hefur ákveðið að
hætta sem bæjar-
stjóri til að taka
við starfi forstjóra
BYKO. Þetta var
tilkynnt í gær. Ás-
dís Halla hefur
verið bæjarstjóri í
fimm ár og oddviti
sjálfstæðismanna
frá 2002.
Jón Helgi Guð-
mundsson, aðal-
eigandi Norvikur, móðurfélags
BYKO, og fráfarandi forstjóri BYKO,
mun áfram gegna starfi forstjóra Nor-
vikur-samsteypunnar.
Ásdís Halla sagðist hafa fengið mik-
il og góð viðbrögð við þessari ákvörðun
sinni, flestir hefðu sýnt henni skilning
og stutt hana. „Þetta var svo einstakt
tækifæri að mér fannst ekki annað
koma til greina en að þiggja starfið,“
sagði hún./Miðopna
Bæjarstjóri
til BYKO
Ásdís Halla
Bragadóttir
♦♦♦