Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TILKYNNT var í gær að Ásdís Halla Bragadóttir hefði verið ráðin forstjóri BYKO en undir fyrirtækið heyrir einnig Elko, Húsgagnahöllin og Intersport. Ásdís Halla hefur verið bæj- arstjóri Garðabæjar í tæplega fimm ár og oddviti Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjórn frá 2002. Ásdís Halla tekur við starfi for- stjóra hinn 27. maí af Jóni Helga Guðmundssyni, eftir að hafa sett nýjan bæjarstjóra inn í bæj- arstjórastarfið. Hún mun sitja sem bæjarfulltrúi út þetta kjör- tímabil en hvorki sitja í nefndum né ráðum á vegum bæjarins. Í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagði Ásdís Halla að Jón Helgi Guðmundsson, for- stjóri BYKO, hefði komið til hennar fyrir nokkru og boðið henni starfið. „Mér fannst það þá þegar mjög spennandi. Þetta er mjög áhugavert fyrirtæki með víðtæka starfsemi bæði hér á landi og erlendis. Þetta var svo einstakt tækifæri að mér fannst ekki annað koma til greina en að þiggja starfið,“ sagði hún. End- anlega hefði verði gengið frá ráðningunni í starfið í fyrrakvöld. „Ég hef fylgst með starfsemi þessa fyrirtækis eins og annarra stórra fyrirtækja á Íslandi og fundist Jón Helgi og samstarfs- fólk hans vera að gera góða hluti. Þarna ríkir mikill metnaður og jafnframt virðist vandað til verka. Þetta er fyrirtæki sem byggir á traustum grunni, fyr- irtækið nýtur mikils traust og það er hluti af því sem gerði starfið heillandi. Ég veit að þarna er mikið af hæfileikaríku starfs- fólki sem margt hefur verið lengi hjá fyrirtækinu sem sýnir þann trúnað sem er milli starfsfólksins og fyrirtækisins,“ sagði hún. „Ég er mjög þakklát fyrir það traust sem mér sýnt með þessu.“ Líka samkeppni í Garðabæ Þetta verður í fyrsta skipti sem Ásdís Halla tekst á við rekstur stórs einkafyrirtækis. „En ég er framkvæmdastjóri í stóru sveit- arfélagi og þó að það sé annars eðlis þá nýtist sú reynsla í þetta starf,“ sagði hún. Í viðskiptalífinu væri mikil samkeppni en sam- keppnin væri engu minni í stjórn- málum. Aðspurð sagði hún að þetta ætti líka við um Garðabæ þó að þar hefðu sjálfstæðismenn verið í meirihluta um áratuga- skeið, raunar frá því bæjarfélagið leit dagsins ljós í núverandi mynd. Eins og fyrr segir verður Ásdís Halla áfram bæjarfulltrúi út þetta kjörtímabil. Aðspurð sagði hún að það yrði ekki endi- lega auðvelt að samrýma for- stjórastarfið og starf sitt sem bæjarfulltrúi. Það myndi þó ein- falda málið að hún mun hvorki sitja í nefndum né ráðum bæj- arins. Ásdís Halla hefur verið virk í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins frá 15 ára aldri og hefur oft verið spáð miklum frama í landsmála- pólitík. Aðspurð hvort ákvörðun um að taka við stjórnartaum- unum hjá BYKO þýði að hún sé hætt í pólitík sagði hún: „Ég hef aldrei tekið ákvörðun fyr allt. Og ég hef aldrei teki ákvörðun að helga líf mit Þegar ég er að fara í svo andi starf þá hvarflar ekk að mér en að einbeita mé og velta ekki öðru fyrir m sagði hún og bætti við að hefði aldrei tekið undir b ingar annarra um hugsan frama sinn í landsmálapó Samheldinn hópur Aðspurð sagði Ásdís H hún hefði fengið mikil og brögð við þessari ákvörðu Flestir hefðu sýnt því ski hún vildi takast á við kre starf á nýjum vettvangi o ákvörðun hennar. Þó hefð sjálfstæðismenn sagst my eftir henni úr bæjarstjóra stólnum. Áður en tilkynn ráðninguna greindi hún ý nánum samstarfsmönnum að þetta væri niðurstaðan meðal formanni Sjálfstæð isflokksins, Davíð Oddssy „Maður hættir ekki sem b arstjóri í Garðabæ þar se stæðisflokkurinn er með meirihluta án þess greina manni flokksins frá því,“ hún. Davíð hefði tekið he og óskað henni velfarnað starfi. Aðspurð hvað stæði up starfi hennar sem bæjars sagði Ásdís Halla: „Það e yndislega samstarf við fr fólk. Í bæjarstjórninni, á arskrifstofunum, embætt og starfsmenn stofnana G bæjar og við félaga mína stæðisflokknum í Garðab hef ekki áður kynnst svon heldnum hópi og fólki sem sig jafnmikið fram um að angri fyrir samfélagið. Þa að vera hluti af því í fimm upplifa svona mikla vinát einlægni í samstarfi er ei sem mun ylja mér um hja ur um ókomna tíð. Þetta að vera algjörlega einstak sagði Ásdís Halla Bragad Ásdís Halla Bragadóttir hættir sem bæjarstjóri Garðabæjar og tekur við starfi forstjóra BYKO „Aldrei tekið þá ákvörðun að helga líf mitt pólitík“ Ásdís Halla Bragadóttir hættir sem bæjarstjóri í Garðabæ og tek- ur við starfi forstjóra BYKO. „SVEITARFÉLÖGIN verða að hafa meiri samvinnu í brunamálum og sérstaklega í eldvarnaeftirliti,“ sagði dr. Björn Karlsson bruna- málastjóri í samtali við Morgun- blaðið í gær, en allir slökkviliðs- stjórar landsins sækja nú tveggja daga langa ráðstefnu á Egilsstöð- um. Hörð gagnrýni kom fram á ráð- stefnunni í garð eftirlitsaðila með byggingaframkvæmdum og bygg- ingaraðila, eldvarnaeftirlits og sveitarfélaganna í landinu fyrir slæ- leg vinnubrögð sem sköpuðu stór- hættu. Guðmundur Gunnarsson, yfir- verkfræðingur Brunamálastofnun- ar, gagnrýndi m.a. húseigendur og byggingaraðila í kynningu á skýrslum sem Brunamálastofnun hefur látið vinna um stórbruna á ábyrgð sína. Þá væri eldva lit máttlaust og víða virtist vera til. Húsráðendur kæm með að hunsa kröfur eldva lits og jafnvel í skjóli sveita Húseigendur bera fulla „Við þurfum að taka ok bæði Brunamálastofnun og liðin í landinu, en ekki síst þeirra bygginga sem ver reisa í landinu,“ sagði Bjö eru eigendur sem bera fu gera ábyrgð á því að farið um og þeir bara axla ekki þ Það borgar sig fyrir byg endur og atvinnurekendur með þetta í lagi. Þótt þei fullu tryggðir og fái rekstr ingu, eignatryggingu, v ingu og allt saman borgað u eftir bruna, eru meira en h líkur á því að fyrirtækin fa inn innan tveggja ára.“ iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á síð- ustu árum. Þær fjalla um brunana í Faxafeni, á Ólafsvík, Blönduósi, hjá Hringrás og nú síðast í Grindavík, en þar brann fiskimjölsverksmiðja Samherja í febrúar sl. Í Grindavík- urskýrslunni, sem ekki er endan- lega lokið, kemur m.a. fram að eig- endur byggingarinnar hafi ekki virt ábyrgð sína á brunavörnum hússins og krafa slökkviliðsstjóra um úr- bætur var ekki virt. Þá hafi ekki verið til samþykktar teikningar af byggingunni, byggingareftirlit hafi verið takmarkað og byggingar- fulltrúi og byggingarstjóri ekki far- ið eftir þeim fáu teikningum sem fyrir lágu og finnist um bygginguna. Guðmundur sagði að byggingareft- irlit hjá sveitarfélögum virkaði ekki almennt. Hús væru í mörgum til- fellum byggð án leyfis, teikninga og eftirlits og byggingastjórum og meisturum virtist einatt sama um Gagnrýnir sveitarfélög, byggingaraðila og eigen Eigendur bera óskoraða ábyrgð Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is STAÐA FRIÐARGÆSLULIÐA Tryggingastofnun hefur ekkigreitt friðargæsluliðunum,sem slösuðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í haust, bætur. Forsendan að baki ákvörðun Tryggingastofnunar er sú að frið- argæsluliðarnir þrír hafi ekki verið í vinnunni þegar árásin var gerð og því særst í frítíma sínum. Á meðan annað kemur ekki í ljós hlýtur staða þeirra, sem starfa á vegum Íslensku friðargæslunnar, að vera í algerri óvissu. Eins og kemur fram í viðtali við Steinar Örn Magnússon og Hauk Grönli, sem særðust í sprengju- árásinni á Kjúklingastræti í Kabúl 23. október sl. ásamt Stefáni Gunn- arssyni, í Morgunblaðinu í dag stóðu þeir í þeirri trú að þeir væru tryggðir frá því þeir fóru frá Ís- landi til að gegna friðargæslustörf- um þar til þeir sneru aftur og höfðu ekki ástæðu til að ætla annað. Arnór Sigurjónsson, yfirmaður íslensku friðargæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í október að íslensku friðargæsluliðarnir hlytu góðan undirbúning, vel væri farið yfir alla áhættuþætti með þeim og þeir væru vel tryggðir. Það liggur í augum uppi að því fylgir áhætta að taka að sér störf við friðargæslu. Það eitt að frið- argæslu sé þörf ber því vitni að á viðkomandi stað sé ástand ótryggt. Þegar átök brjótast út eða framin eru hryðjuverk er ekki spurt hvort þeir, sem eru á vettvangi, séu í frí- tíma sínum eða vinnunni. Vissulega er hægt að takmarka hættuna á því að eitthvað gerist – og það á við um árásina í Kjúklingastræti – en það er aldrei hægt að eyða allri hættu, sérstaklega ekki á stöðum á borð við Afganistan og Írak. Friðar- gæsluliði er alltaf á vettvangi vinnu sinnar, hvort sem hann er á vakt eða ekki. Ragna Haraldsdóttir, lögfræð- ingur á sjúkratryggingasviði á slysadeild Tryggingastofnunar, segir í Morgunblaðinu í gær að samkvæmt ákvæðum almanna- tryggingalaga séu einungis atvik, sem verði í vinnutíma, bætt. Í svör- um utanríkisráðuneytisins, sem er vinnuveitandi mannanna þriggja, hafi komið fram að ferð þeirra í Kjúklingastræti hafi ekki tengst vinnu þeirra og því væri þeim synj- að um bætur. Með stofnun Íslensku friðargæsl- unnar var farið inn á verksvið, sem er nýtt fyrir Íslendingum, og ekki hægt að ætlast til þess að hægt sé að sjá alla hluti fyrir. Það er hins vegar augljóst að ekki er hægt að ætlast til þess af fólki að fari það á hættuslóðir eigi það ekki rétt á bót- um komi eitthvað fyrir – hvort sem það er í vinnunni eða frítíma. Óvissunni, sem hefur skapast við það að friðargæsluliðunum, sem særðust í Kabúl, var synjað um bætur, verður að eyða. STUÐNINGUR FYRIR ÞÁ SEM ÞURFA HANN Skýrsla sú, sem Tryggvi Her-bertsson, forstöðumaður Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur unnið um fjölgun öryrkja á Ís- landi, hlýtur að vekja marga til um- hugsunar. Þar er fjallað um þá þver- sögn að þrátt fyrir góðan aðgang allra að heilbrigðisþjónustu og mikl- ar framfarir í læknavísindum hefur þeim, sem teljast öryrkjar, fjölgað stórlega hér á landi á undanförnum árum. Einkum hefur ungum öryrkj- um fjölgað, sem verður að teljast sérstakt áhyggjuefni. Tryggvi færir sannfærandi rök fyrir því í skýrslu sinni að ástæð- urnar fyrir fjölgun öryrkja séu ekki nema að takmörkuðu leyti heilsu- farslegar, heldur eigi þær sér aðrar ástæður. Vegna hertra krafna um arðsemi á vinnumarkaði sé þeim afkastaminnstu ýtt út af honum og þeir endi oft sem öryrkjar eftir langt atvinnuleysi, enda séu örorku- bætur betri en atvinnuleysisbætur. Þá sé fjárhagslegur hvati til þess fyrir þá allra lægst launuðu að reyna að fá örorkumat, af því að bæturnar séu hærri en lægstu laun- in. Nýr örorkumatsstaðall hafi vald- ið því að einstaklingar, sem áður voru á vinnumarkaði, geti nú sótt um örorkulífeyri þrátt fyrir að starfsgeta þeirra hafi lítið sem ekk- ert skerzt. Stjórnmálamenn verða að taka þessar upplýsingar til vandlegrar skoðunar. Sú vinna, sem átt hefur sér stað undanfarin ár í því skyni að bæta kjör öryrkja, sem rík þörf var á, átti auðvitað aldrei að leiða til þess að fólk, sem er fært um að vinna fyrir sér, hætti því og færi þess í stað að þiggja örorkubætur. Gefa þarf gaum að ýmsum þeim tillögum, sem Tryggvi Herbertsson setur fram, t.d. um að á ný verði tekið tillit til starfsþreks og aflahæf- is við örorkumat og að fólki verði leyft að halda hluta bóta sinna er það fer aftur á vinnumarkað. Þá er afar brýnt að grípa til aðgerða til að efla endurhæfingu og starfsþjálfun, ekki sízt hjá ungu fólki, til að koma því aftur út á vinnumarkað. At- vinnulífið verður að axla sinn hluta af ábyrgðinni með því að bjóða störf, sem geta hentað þeim sem vilja vinna en eru e.t.v. ekki færir um að vinna fullan vinnudag. Mikilvægt er að þessi vinna fari fram í góðu samstarfi við öryrkja og samtök þeirra. Það er mikilvægt fyrir þá, sem raunverulega þurfa á aðstoð samfélagsins að halda til að framfleyta sér og fjölskyldu sinni, að tekið verði fyrir að fólk þiggi ör- orkubætur á fölskum forsendum. Haldi sú þróun, sem Tryggvi lýsir, áfram, mun þeim annars vegar fækka sem stunda atvinnu og standa undir velferðarkerfinu og hins vegar munu ríkisútgjöld til þessa mála- flokks halda áfram að þenjast út. Öryrkjabandalag Íslands hefur enda lýst sig reiðubúið til að ráðast að rótum vandans, sem Tryggvi lýsir í skýrslu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.