Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá 25 fé- lagsmönnum í Samfylkingunni í Kópavogi. „Við undirritaðir félagar í Sam- fylkingunni í Kópavogi, sem starfað hafa í framvarðasveit flokksins, ým- ist sem bæjarfulltrúar, nefndarmenn og trúnaðarmenn til margra ára, lýs- um stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í kosningu til formanns flokksins. Ingibjörg Sólrún hefur sýnt það og sannað að hún er búin miklum forystuhæfileikum. Við lítum á hana sem framtíðarforingja Samfylking- arinnar.“ Undir yfirlýsinguna skrifa, Arn- þór Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Bjarni Pálsson, Brynhildur Flóvens, Guðmundur R. Jónsson, Guðmundur Örn Jónsson, Guðmundur Oddsson, Halldór Björnsson, Hafsteinn Karls- son, Heiðrún Sverrisdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Hjörleifur Hringsson, Hulda Finnbogadóttir, Kristinn Ó. Magnússon, Kristín Jónsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Kristján Guð- mundsson, Rannveig Guðmunds- dóttir, Sigrún Jónsdóttir, Sólveig Helga Jónasdóttir, Steingrímur Steingrímsson, Svala Jónsdóttir, Svandís Skúladóttir, Sverrir Jóns- son og Þráinn Hallgrímsson. 25 forystumenn í Kópavogi styðja Ingibjörgu Sólrúnu REFSINGAR yfir þremur sakborn- ingum í Landssímamálinu, svokall- aða, stærsta fjárdráttarmáli sem um getur hér á landi, voru mildaðar með dómi Hæstaréttar sem féll í gær. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir fyrir hylmingu með því að taka við fé sem Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum að- algjaldkeri Landssímans og bróðir Kristjáns Ragnars, dró sér úr rekstri fyrirtækisins, halda því ólöglega og nýta það í eigin þágu og félaga sem þeir áttu að hluta eða öllu leyti. Taldi Hæstiréttur að Árna Þór og Kristjáni Ragnari hefði ekki getað dulist að fjárstreymið var óeðlilegt. Árni Þór var í Hæstarétti dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar hlaut 18 mánaða dóm. Í hér- aði hlutu báðir tveggja ára fangels- isdóm. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur fyrir peningaþvætti, með því að taka við samtals 3,3 milljónum króna frá Sveinbirni, framselja tékka að upphæð 22 milljónir sem runnu til ýmissa aðila og loks fyrir að taka við um sex milljónum sem runnu til einkahlutafélags hans. Hæstiréttur taldi að ekki yrði fullyrt að hann hefði haft ásetning til að hylma yfir brot Sveinbjörns en honum hefði þó ekki átt að dyljast að atferli hans var ekki eðlilegt. Þetta var metið honum til „stórfellds gáleysis“ og var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og mildaði Hæstiréttur þar með refsingu hans um fimm mánuði. Fjárdráttur Sveinbjörns Kristjánssonar nam alls rúmlega 261 milljón króna. Brotin voru talin stórfelld og án hliðstæðu. Fyrir þau hlaut hann í héraði 4 1⁄2 árs fangelsi og áfrýjaði hann ekki dómn- um. Samkvæmt ákæru nam heildar- fjárhæð greiðslna, sem bárust frá Sveinbirni til Árna Þórs og Kristjáns Ragnars, 163,5 milljónum. Auk þess runnu um 20 milljónir til tveggja einkahlutafélaga sem þeir áttu aðild að en fyrir það var ekki ákært. Þeir neituðu báðir að hafa nokkuð vitað um að fjármunirnir voru ekki fengnir með löglegum hætti og gerðu þeir báðir lítið úr þekkingu sinni á fyrir- tækjarekstri og fjármögnun á þess- um tíma enda hafi þeir aðeins verið 23 ára gamlir. Ekki venjulegt fjárstreymi Í dómi Hæstaréttar segir að nið- urstaða málsins ráðist af því hvað telj- ist sannað um vitneskju þeirra um heimildir Sveinbjörns til að ráðstafa þessu fé. Telur rétturinn að Kristjáni Ragnari hafi ekki getað dulist að fjár- streymið frá Landssímanum var ekki venjulegt fjárstreymi frá lánastofnun og er m.a. bent á að hann átti í marg- víslegum viðskiptum við önnur fyrir- tæki og við lánastofnarnir. Þá yrði að teljast algjörlega útilokað að Árni Þór hafi ekki gert sér grein fyrir því að viðskipti hans og Kristjáns Ragnars við Sveinbjörn aðalgjaldkera voru þeim síðastnefnda algjörlega óheimil. Á þessum tíma hafi Árni Þór eignast íbúðarhúsnæði og aukið hlutabréfa- eign sína og auk þess hafi verulegar fjárhæðir farið um reikninga sem hann átti hjá lánastofnunum. Ganga yrði út frá því að hann hafi fengið yf- irlit yfir þessa reikninga og getað fylgst með þeim. Þá hafi Árni Þór átt frumkvæði að því að kaupa hlutabréf í félaginu Urði-Verðandi-Skuld en samkvæmt gögnum málsins voru fengnar rúmlega fimm milljónir úr sjóðum Landssímans sem voru lagðar inn á reikning hans. Í dómi Hæstaréttar segir að brot þeirra Árna Þórs og Kristjáns Ragn- ars séu stórfelld og upphæðin eigi sér ekki hliðstæðu í öðrum dómsmálum. Refsing Kristjáns Ragnars var þyngri þar sem hann hafði að mestu umsjón með fjármálum þeirra. Ellefu daga gæsluvarðhaldsvist dregst fá dómnum. Bogi Nilsson ríkissaksóknari sótti málið. Verjandi Árna Þórs var Gestur Jónsson hrl., verjandi Kristjáns Ragnars var Ásgeir Þór Árnason hrl. og verjandi Ragnars var Sigmundur Hannesson hrl. Málið dæmdu Markús Sigur- björnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Hrafn Bragason. Hæstiréttur mildar refsingu í umfangsmesta fjárdráttarmáli sem um getur hér á landi Gat ekki dulist hvað var á seyði Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í lík- fundarmálinu svonefnda í Neskaup- stað og voru þeir Grétar Sigurðar- son, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas allir dæmdir í 2½ árs fangelsi hver. Til frádráttar kemur 32 daga gæsluvarðhald sem mennirnir þrír sátu í meðan á rann- sókn málsins stóð. Þremenningarnir voru allir sak- felldir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 220 grömm- um af amfetamíni sem Litháinn Vaidas Jucevicius tók að sér að flytja til landsins. Jucevicius veiktist dag- inn eftir komu sína til landsins og lést þremur dögum síðar vegna stíflu í mjógirni af völdum fíkniefnapakkn- inganna. Mennirnir létu hjá líða að koma honum til hjálpar og eftir að hann lést fluttu þeir lík hans til Nes- kaupstaðar og sökktu því þar í sjó. Fyrir þetta voru þeir dæmdir fyrir brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki. Aðeins Malakauskas játaði að hafa staðið að fíkniefnainnflutningnum. Jónas Ingi hélt því fram að hann hefði engan þátt átt í fíkniefnainn- flutningnum og ekki vitað af því að lík Jucevicius væri aftan í jeppa sem hann var í þegar hann og Grétar óku með líkið til Neskaupstaðar, hvað þá að hann hefði tekið þátt í að sökkva því í höfninni og raunar hefði hann ekki vitað af því að það hefði verið gert. Grétar Sigurðarson var eini sakborningurinn sem var viðstaddur dómsuppkvaðninguna í gær. Í viðtöl- um við fjölmiðla kvaðst hann veru- lega ósáttur við að hafa hlotið jafn þunga refsingu og þeir Malakauskas og Jónas Ingi. Rétt hefði verið að meta það honum til hagsbóta að hann hefði verið samvinnuþýður við lögreglu. Ragnheiður Harðardóttir sótti málið af hálfu ríkissaksóknara. Verjandi Grétars var Brynjar Níels- son hrl., verjandi Malakauskas var Björgvin Jónsson hrl. og verjandi Jónasar Inga var Sveinn Andri Sveinsson hrl. Málið dæmdu Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Hrafn Bragason. Refsingar í líkfundarmál- inu staðfestar af Hæstarétti Morgunblaðið/Þorkell Grétar Sigurðarson, einn af þeim sem dæmdir voru í líkfundarmálinu, finnst að hann hefði átt að fá vægari dóm en aðrir sakborningar í málinu. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.isUNGUR ökumaður þykir hafa sloppið vel þegar bíll sem hann ók lenti út af veginum um Norðurárdal í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi hafði maðurinn verið við malbikunarvinnu á Reyðarfirði en lagt af stað áleiðis til Reykjavíkur um klukkan 14. Þegar hann kom í Norðurárdal- inn, um átta klukkustundum síðar, virðist hann hafa verið uppgefinn á akstrinum, a.m.k. sofnaði hann undir stýri og ók út af. Eftir áreksturinn kvikn- aði í bílnum en aðvífandi flutn- ingabílstjóri náði að slökkva. Við þessa utanvegarferð rifnaði hjólabúnaður undan bílnum og er hann gjörónýtur. Ökumað- urinn var í bílbelti og virtist hafa sloppið með skrámur. Dottaði undir stýri og ók út af BÓNUS til starfsmanna Impregilo við Kárahnjúkastíflu var 19,46% ofan á öll laun í marsmánuði. Kom þetta fram á nýlegum fundi fastanefndar verkalýðsfélaganna og Impregilo á virkjunarsvæðinu, og greint er frá á vefsíðu Starfsgreinasambandsins. Á fundinum var farið yfir eldri ágreiningsatriði og ábendingar verkalýðsfélaganna og úrbætur Impregilo í þeim efnum. Aðallega var rætt um bónusmál, aðbúnað og vinnutíma. Á vef SGS segir að að- búnaður hafi batnað verulega fá því fyrir áramót. Starfsfólk í mötuneyti hafi m.a. breytt vaktafyrirkomulagi. 19,46% bónus við Kárahnjúkastíflu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.