Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ BYGGING NÝS SPÍTALA M iðað við tímaáætlun sem gerð hefur verið fyrir upp- byggingu Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH), gætu framkvæmdir við fyrsta áfanga sjúkrahússins, sem er bráða- kjarni, hafist sumarið 2008. Áætlað er að þessi kjarni, sem m.a. inniheld- ur bráðamóttöku, gjörgæslu og skurðdeildir, muni kosta tæpa 13 milljarða en í heild er áætlað að bygging nýs spítala við Hringbraut kosti tæpa 37 milljarða króna. Fram hefur komið að vilji sé til þess hjá stjórnvöldum að hagnaður af sölu Símans verði m.a. nýttur til bygg- ingar spítalans. Þó er enn ekkert í hendi hvað það varðar, en eigi fram- kvæmdir að geta hafist um mitt ár 2008, þarf ríkisstjórnin að vera búin að tryggja fjármögnun spítalans, og veita heimild til áframhaldandi skipulagsvinnu og framkvæmda, í október á næsta ári. Nýr spítali frá grunni „Við lítum á þetta sem fyrsta stóra skrefið að þeim raunveruleika að hér muni rísa nýr spítali frá grunni,“ sagði Jóhannes M. Gunnarsson, for- stjóri LSH, í gær þegar heilbrigð- isráðherra, Jón Kristjánsson, afhenti hönnunarhópunum sjö sem valdir hafa verið til þátttöku í samkeppni um skipulag byggingarlóðar LSH, skipulagslýsingu. „Það eru rétt fimm ár síðan spítalarnir í Reykjavík voru sameinaðir,“ sagði Jóhannes enn fremur. „Megin hugsunin sem lá þar að baki og náðist sátt um var sú að byggður yrði einn öflugur háskóla- spítali. Þeim spítala var valinn staður hér við Hringbrautina.“ Skipuð hefur verið sjö manna dóm- nefnd sem fara mun yfir tillögur hóp- anna og er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, for- maður hennar. Þátttakendur eiga að skila dómnefnd tillögum sínum eigi síðar en 8. september nk. og úrslit verða tilkynnt 6. október. Ekki er um að ræða eiginlega hönnun bygging- anna, heldur skila hóparnir tillögu að skipulagi fyrir skipulagssvæðið í heild og nánari skilgreiningu á skipu- lagi nýs spítala á lóðinni. Munu þeir m.a. þurfa að taka tillit til þátta er varða aðkomu, samspils og sveigj- anleika deilda og byggingu þeirra með stækkunarmöguleika í huga sem og tengingu við HÍ sem hefur unnið í náinni samvinnu við LSH að undirbúningnum. Reiknað er með að í öðru þrepi skipulagsvinnunnar verði nánari útfærsla bygginga gerð sem og útlit þeirra hannað. Að sögn heilbrigðisráðherra hefur ekki verið ákveðið hvort farið verði í aðra skipu- lagskeppni um frekari hönnun húsanna. Lykilorðið er sveigjanleiki Eitt helsta lykilorðið í þeirri hug- myndafræði sem liggur að baki byggingu nýja spítalans er sveigj- anleiki í staðsetningu og stærð deilda. Gert er ráð fyrir að spítalinn verði byggður upp af stöðluðum ein- ingum sem auðvelt er að breyta og laga að breyttri starfsemi í framtíð- inni. Þá á við hönnunina að gæta að birtu og útsýni, nýjustu upplýs- ingatækni, sem m.a. hefur í för með sér að allar sjúkrastofur verða net- tengdar, og að hugað verði sér- staklega að sýkingavörnum, kennslu og rannsóknum og aðstöðu fyrir starfsmenn. Á nýjum spítala við Hringbraut er t.d. gert ráð fyrir einbýlum sjúkling- anna, lífvísindasetri Háskóla Íslands (HÍ) og LSH, öflugum bráðakjarna, aukinni áherslu á göngu- og dag- deildir og góðri aðstöðu fyrir starfs- fólk. Við skipulagningu starfsem- innar á að miðast við að þarfir sjúklingsins séu ávallt í miðdepli á nútímalegu háskólasjúkrahúsi, líkt og segir í samkeppnislýsingunni. Þá segir að áhersla eigi að vera lögð á náttúrulega birtu og útsýni þar sem því verði viðkomið. 500 rúma legudeildir Samkvæmt samkeppnislýsing- unni, sem afhent var í gær, er gert ráð fyrir að á byggingarlóð LSH við Hringbraut, sem afmarkast að norð- an af Eiríksgötu, Barónsstíg og gömlu Hringbraut, og að sunnan af nýrri Hringbraut, rísi 500 rúma há- skóla- og bráðaspítali á næstu árum en byggingarlandið er 17,44 ha. Til viðbótar verður á sjúkrahúsinu 65 rúma geðdeild, 80 rúma sjúklinga- hótel, 24 rúma gjörgæsludeild, 22 rúma gjörgæsla nýbura, 24 rúma gæsludeild og 10 rúma geð- gjörgæsludeild. Í áætlun LSH er gert ráð fyrir að unnt verði að fjölga almennum rúmum spítalans úr 500 í 600 og geðdeildarrúmum úr 65 í 105, en allar slíkar áætlanir eru byggðar á starfsemistölum sjúkrahússins fyrir árið 2025. Til grundvallar samkeppn- islýsingunni er ítarleg greining stýri- nefndar notendavinnu LSH en að þeirri vinnu komu um 300 starfs- menn sjúkrahússins. Er þar sett fram áætlun um aðgerðafjölda, rúm- afjölda á einstökum deildum sem og nauðsynleg tengsl starfseminnar innbyrðis. Aðeins tvær byggingar sem ekki má rífa Á lóðinni mega LSH og stofnanir HÍ sem tengdar eru LSH vera með samtals 171.300 m² byggingarmagn og þurfa skipulagstillögurnar að sýna það. Nú er LSH með um 60 þús- und m² á lóðinni og HÍ um 10 þúsund m². Bílageymslur, sem áætlað er að verði að stórum hluta neðanjarðar eru ekki meðtaldar í þessu bygging- armagni. Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið hefur ekki tekið afstöðu til þess hvaða byggingar á svæðinu skuli víkja en gamli Kennaraskólinn við Barónsstíg er friðaður og hefur ráðuneytið ákveðið að gamli Land- spítalinn frá árinu 1930 skuli standa og að tryggð verði góð ásýnd að framhlið hans, eins og segir í sam- keppnisgögnum. Aðrar byggingar geta vikið, sjái hönnuðir hag í því. Þá er hönnuðum bent á að taka til- lit til að á gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir jarðgöngum undir Þingholtin, svokölluðum Holts- göngum. Eingöngu einbýli Ein helsta nýjungin á nýja spít- alanum verður að eingöngu verða byggð einbýli fyrir sjúklingana og heyra því fjölbýli, eins og þekkjast víða inni á sjúkrahúsinu í dag, sög- unni til. Einbýli hafa m.a. í för með sér að flutningur sjúklinga milli deilda verður nánast úr sögunni sem aftur felur í sér minni hættu á með- ferðarmistökum og sýkingum. Einbýlin verða rúmgóð og þannig útbúin að hægt verður að annast sjúklinga á sömu stofu allan tímann sem þeir dveljast á sjúkrahúsinu, að undanskilinni dvöl á gjörgæsludeild- um. Hvert herbergi verður með að- stöðu fyrir snyrtingu, böðun og rými fyrir nauðsynlegustu hjúkr- unarvörur og allar nauðsynlegar lagnir til staðar. Ættingjum verður gert kleift að dveljast á herbergj- unum. Á þessum eins manns stofum, Hönnunarhópum afhent samkeppnislýsing um skipulag byggingarsvæðis Landspítala Fjölnota einbýli og náin tengsl við Háskóla Íslands Bygging nýs sjúkrahúss við Hringbraut, þar sem allar legudeildir verða með björtum og rúmgóðum einbýlum fyrir sjúklinga, gæti hafist sumarið 2008. Sunna Ósk Logadóttir kynnti sér grunn- hugmyndir um skipulag sjúkrahússins sem byggja m.a. á sveigj- anleika, öflugum tengslum við Háskóla Íslands og spám um þróun þjónustu sjúkrahússins og mannfjöldans til ársins 2025. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skipulagssvæðið afmarkast af Snorrabraut, Eiríksgötu, Barónsstíg, Hringbraut að norðanverðu og að sunnan af legu nýrrar Hringbrautar. Gamla Landspítalalóðin er innan lóðarinnar, Umferðarmiðstöðin og Læknagarður. Landspítalinn og Háskóli Íslands leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi skipulagsatriði við hönnun nýs spítala:  Komið verði á bráðakjarna til að skapa nálægð bráða- móttöku, myndgreiningar, skurðstofa og gjörgæslu.  Nauðsynlegt er að hægt verði að loka af hluta spít- alans ef upp kemur farsótt. Einnig þarf að huga að sömu áhersluatriðum varðandi skurðstofur, gjör- gæsludeildir og bráðamóttöku.  Legudeild fyrir smitsjúkdóma þarf að vera staðsett og útbúin þannig að hægt verði að taka sjúklinga beint inn á deildina án þess að þeir fari um almenna inn- ganga spítalans.  Gert er ráð fyrir sérstöku dag- og göngudeild- arhúsnæði. Þar verða m.a. skurðstofur fyrir dag- skurðaðgerðir, speglunaraðstaða o.fl. Nauðsynlegt er að þar verði miklir vaxtar- og stækkunarmöguleikar (50%).  Komið verði upp góðri samvirkni milli rannsókna á vegum HÍ og rannsóknardeilda LSH í lífvísindasetri. Lífvísindasetur og heilbrigðisvísindadeildir eru á þeim hluta lóðarinnar sem teygir sig í vesturátt að HÍ.  Sjúklingahótel á lóðinni þarf að vera vel staðsett með tilliti til aðgengis gesta hótelsins að þjónustu spítalans og aðkomu frá samgönguleiðum.  Leiðir starfsmanna eiga að vera stuttar milli starfsein- inga spítalans. Innangengt skal milli allra bygginga LSH á lóðinni. Flutningaleiðir eiga að vera aðskildar fyrir vörur, sjúklinga og almenna umferð.  Skipulag stoð- og þjónustudeila á að vera þannig að sem best rekstrarhagkvæmni náist og að skipulagið taki fullt tillit til þarfa klínískra deilda og þjónustu við sjúklinga. Þá skal staðsetning stoð- og þjónustudeilda hafa að markmiði að flutningaleiðir verði sem stystar.  Bílastæði og bílastæðahús verði með góðu aðgengi að aðalanddyri spítalans. Aðgengi allra að spítalanum verði gott. Sérstök áhersluatriði við skipulag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.