Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Þ ingflokkur Framsókn- arflokksins reið á vaðið í vikunni og birti upplýsingar um fjárhagsleg tengsl sín og eigur. Sannarlega virðing- arvert framtak og ber að hrósa framsóknarmönnum fyrir. Þeir sögðust hafa verið að bregðast við kröfum úti í þjóðfélaginu og einnig var haft eftir þingflokks- formanninum að þeir hefðu verið búnir að fá sig fullsadda af róg- burði og gróusögum. Því hefði verið ákveðið að leggja spilin á borðið og upplýsa almenning um fjárhagslega hagsmuni sína. Í ljósi þessa finnst mér athyglisvert hvað fjölmiðlar hafa lítið vitnað í þessar eftirsóttu upplýsingar og lítil umræða verið um þær. Næg hefur umferðin á vef flokksins verið, hátt í 50 þús- und flettingar á tveimur tímum einn daginn. Því rýndi ég í gögn- in. Við fyrstu sýn er kannski ekki að undra að lítið hafi verið vitnað í þau. Upplýsingarnar eru ekki miklar og greinilegt að þing- menn Framsóknarflokksins eru ekki áhættufíklar að braska með eigin fé. Ekki nema að þeir eigi eftir að birta meira. En þegar nánar er að gáð kemur eitt og annað forvitnilegt og skemmti- legt í ljós, sem mér finnst segja dálitla sögu um þróun Fram- sóknarflokksins. Fyrir það fyrsta er augljóst að flokkurinn, í öllu falli þingmenn hans, hefur ekki lengur þau sterku tengsl við samvinnuhreyfinguna og hann hafði áður. Af tólf þingmönnum eru aðeins þrír sem segjast eiga aðild að kaupfélagi. Halldór Ás- grímsson nefnir Kaupfélag Aust- ur-Skaftfellinga, Jón Krist- jánsson á hlut í Kaupfélagi Héraðsbúa og Valgerður Sverr- isdóttir á heilar þúsund krónur í Kaupfélagi Eyfirðinga svf. Og aðeins einn þingmaður, Hjálmar Árnason, á stofnfé í sparisjóði. Engir tilgreina eignir í sameign- arfélögum og svo virðist sem framsóknarþingmenn hafi lítið sem ekkert fjárfest í fasteignum. Aðeins tveir tilgreina slíkar eign- ir. Þeir hafa sömuleiðis lítið kom- ið nálægt sjálfstæðri atvinnu- starfsemi, sem og makar þeirra. Hlutabréfaeign þingmanna flokksins er óveruleg en formað- urinn, Halldór Ásgrímsson, hefur verið einna duglegastur á mark- aðnum. Búið var að upplýsa um eign hans í útgerðarfyrirtækinu Skinney-Þinganesi á Höfn en til viðbótar á hann hluti í sex fé- lögum, m.a. deCode, líkt og Magnús Stefánsson og maki Jóns. Eitt er það hlutafélag sem vekur sérstaka athygli á listum framsóknarmanna en það er Skúlagarður hf. Í því félagi eiga sex þingmenn hlut, eða helm- ingur þingflokksins. Fyrst hélt ég að hér væri um að ræða hið fornfræga félagsheimili við Öx- arfjörð, og þingmennirnir verið látnir rita undir hlutafjárloforð á þorrablóti, en svo safaríkur er sannleikurinn ekki. Mun þetta félag hafa verið stofnað um höf- uðstöðvar flokksins við Hverfis- götu. Gott nafn á félaginu engu að síður. Svo eru þarna for- vitnileg félög eins og Tíguls- félagið ehf., sem Guðni Ágústs- son tilgreinir. Guðni er með húmorinn á réttum stað þegar hann nefnir áhugamannafélög sem hann á aðild að, þ.e. Hrúta- vinafélagið og Þristavinafélagið. Það ætti að vera skylda hvers landbúnaðarráðherra að vera meðlimur í Hrútavinafélaginu en til að mismuna ekki búgreinum ætti hann að sjálfsögðu að vera í fleiri slíkum félögum, séu þau á annað borð til. Framsóknarflokkurinn hefur ekki aðeins verið samofinn sögu samvinnuhreyfingarinnar heldur einnig ungmennafélaganna í landinu. Þingflokkurinn ber örlít- inn keim af þessu þar sem fimm þingmenn nefna aðild sína að ungmenna- og íþróttafélögum. Árni Magnússon er í Ungmenna- félaginu Vesturhlíð, Magnús er í Ungmennafélaginu Víkingi í Ólafsvík, Valgerður er í íþrótta- félaginu Magna á Grenivík, Hjálmar er í stjórn Knatt- spyrnudeildar Keflavíkur og Siv Friðleifsdóttir er í Badminton- hópnum Lurkunum. Siv er óum- deilanlega „félagsmálafrík“ þing- flokksins því hún á aðild að hvorki fleiri né færri en 19 fé- lögum og samtökum, m.a. með- limur númer 1208 í Bifhjóla- samtökum lýðveldisins, Sniglunum. Ég ítreka fyrri orð mín um að hrósa beri framsóknarmönnum fyrir að veita þessar upplýsingar. Mættu fleiri þingflokkar fylgja í kjölfarið en þess skal getið að Vinstri-grænir segjast hafa haft allt sitt bókhald opið, bara ef ein- hver ber sig eftir því. En eftir lesturinn á vef Framsókn- arflokksins leið mér svolítið eins og verið væri að gera nett grín að manni. Ég sé þingflokkinn fyrir mér á fundi ákveða þetta og segja með hæðnisglotti: „Við höf- um ekkert að fela, látum þau bara hafa það óþvegið!“ Að öllu gríni slepptu þá segja þessar upplýsingar okkur að ekki er eftir svo miklu að slægj- ast, eftir allt saman. Þingmenn vita sem er að þeir geta starfs síns vegna ekki tengst atvinnulífi og hagsmunasamtökum nema að takmörkuðu leyti. Síðan má deila um hversu miklar upplýsingar á að gefa upp og hve langt á að fara út fyrir borð þingmannsins. Þannig finnst mér ástæðulaust að þingmenn upplýsi um eigur maka sinna. Til að koma í veg fyrir hags- munaárekstra og tortryggni í garð þingmanna er þó betra að hafa sem mest uppi á borðum. Framsóknarmenn hafa sett sér ákveðnar reglur, um leið og þeir hafa óskað eftir samhæfðum reglum Alþingis. Verði þær regl- ur settar er afar brýnt að þing- menn gefi þá upp allar umbeðnar upplýsingar. Ekki má gefa upp eitt og fela annað. Þá geta þing- menn alveg eins sleppt þessu og haft sín einkamál áfram í friði. Er eftir miklu að slægjast? Fyrst hélt ég að hér væri um að ræða hið fornfræga félagsheimili við Öxar- fjörð, og þingmennirnir verið látnir rita undir hlutafjárloforð á þorrablóti, en svo safaríkur er sannleikurinn ekki. VIÐHORF Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Margir sem eiga eða hafaátt Toyota-bifreið ættuað kannast við hjóninÁsgeir Jamil Allansson og Báru Einarsdóttur, sem hafa sér- hæft sig í bílapörtum fyrir Toyotur en þau hafa rekið saman bílaparta- sölu í Rauðahvammi í sextán ár. Bærinn Rauðihvammur stendur skammt frá Rauðavatni í svokölluðu Norðlingaholti og nú hafa borgaryf- irvöld ákveðið að byggja á þessu svæði og því hafa Jamil og Bára ver- ið skikkuð til að fara. Allt skal jafnað við jörðu og nýjar og háreistar blokkir rísa. Langt og erfitt stríð „Við erum mjög ósátt við að vera neydd til að fara héðan. Hugtakið eignarréttur virðist vera merking- arlaust og við höfum öðlast alveg nýja sýn á lýðræðið sem við héldum að væri ríkjandi í þjóðfélagi okkar. Við vorum þvinguð til að setjast að samningaborði um sölu á eignum okkar, með vonlausa samnings- aðstöðu því okkur var sagt að ef við ekki semdum yrði þetta tekið eign- arnámi. Ég veit að við vorum rosa- lega erfið í þessum samningum og við tókum þátt í óskemmtilegu stríði. Við töpuðum í þessu stríði og við það finnst okkur við hafa tapað vissu sjálfstæði. Okkur þykir vænt um þennan stað og svæðið hér í kring, hér ólst ég upp í hálfgerðri sveit og miklu frelsi, ég hjólaði mikið og lék mér sem barn í Rauðhólunum og móðir mín hefur búið hér alla tíð frá því að hún og faðir minn festu kaup á Rauðahvammi fyrir tæpum fjörutíu árum,“ segir Jamil sem hefur kynnst mörgu misjöfnu í þessu stríði sem hann segist þó vera feginn að loks sé lokið. Sonur landnema Sagan hefur á vissan hátt end- urtekið sig nú þegar Jamil og Bára eru hrakin burt frá Rauðahvammi, því faðir Jamils, Alí Allan Shwaiki, var landflótta Palestínumaður frá Hebron sem hrökklaðist frá sínu heimalandi og flutti til Íslands árið 1966. Þessi landnemi settist að í Rauðahvammi nokkrum árum síðar og var þar fyrst með nokkur þúsund hænur en stofnaði seinna bílaparta- sölu. Alí eignaðist íslenska konu og fjögur börn, lagði sig fram um að að- lagast nýju landi og varð nýtur þjóð- félagsþegn. „Pabbi fór út til Palestínu árið 1986 með fjölskyldu sína og seldi því partasöluna en leigði út aðstöðuna. Hann var nýrnasjúklingur og fékk heilablóðfall stuttu eftir að hann kom aftur hingað heim ári síðar. Þá var sá aðili sem hafði leigt partasöl- una hættur, og var allt bíladótið hreinsað út. Þremur árum síðar stofnuðum við Bára okkar partasölu hér, en pabbi lést skömmu síðar.“ Bílategundir og fólk Þau byrjuðu á að selja parta í hinar ýmsu bílategundir en eftir nokkur ár ákváðu þau að vera eingöngu með Toyota-bílaparta. „Við fundum fljótt að það er nánast hægt að flokka fólk eftir því hverrar tegundar bíllinn er sem það ekur. Af okkar við- skiptavinum voru Toyota-eigendur þægilegasta, kurteisasta og þakklát- asta fólkið. Og þess vegna einbeitt- um við okkur að þeirri bílategund, okkur finnst skipta máli að það sé gaman í vinnunni og jákvætt and- rúmsloft. Eigendur Benz-bíla voru til dæmis svo miklir sérviskupúkar og þeir sem áttu Range Rover voru mjög erfiðir,“ segja Jamil og Bára og hlæja að þessum vísindum sínum. Bílahald og dýrahald Þau fluttu heimili sitt frá Rauða- hvammi fyrir tíu árum, því þeim fannst of mikið ónæði af því að eiga heima á sama stað og fyrirtækið. „Fólk var bankandi hér upp á í tíma og ótíma. En mamma og ein systir mín hafa búið hér allan tímann. Við segjum stundum að við séum bíla- bændur því Corollurnar eru okkar rollur og Carinurnar kanínur.“ En það skortir ekki bráðlifandi dýr í kringum þau. Hundarnir eru sjö og stórvaxin tíkin Svala sem heldur til á pílapartasölunni, biður ævinlega um klapp á kollinn frá viðskiptavinum. Einnig eru þau með tíu íslenskar hænur, nokkrar kanínur og fiska. Jamil heldur bréfdúfur og ein þeirra er orðin 25 ára, en nýlega náði fálki annarri jafnöldru hennar og lauk þar hennar langa dúfulífi. Á nýju partasölunni þeirra Jamils og Báru sem er í Grænumýri 3 í Mosfellsbæ, ætla þau að hafa stóran talandi páfa- gauk. Skráin er í kollinum Að flytja bílapartasölu er mikið verk því mikið safnast upp af bílum þó svo að nokkrum sé hent í hverri viku. Þau hjón keyptu kranabíl fyrir ári og hafa verið að flytja smátt og smátt síðan þá. „Hér voru 150 bílar og 110 vélar þar fyrir utan. Við erum búin að henda hátt í hundrað bílum og allt tekst þetta að lokum.“ Níutíu prósent þeirra bíla sem þau selja parta úr eru tjónabílar sem þau kaupa af tryggingafélögunum og Jamil hefur yfirsýn í kollinum yfir alla þá hluti sem þau eiga á lager, hverju hafi verið lofað og hvað sé á leiðinni inn. Og þegar síminn hringir og spurt er um ákveðinn hlut af ákveðinni árgerð í ákveðna tegund af Toyota-bíl, þá flettir Bára upp í kollinum á manni sínum. Þetta eru samhent hjón sem horfa björtum augum til framtíðar, þó að ekki hafi mátt miklu muna að þau lokuðu end- anlega þegar í ljós kom að þau þyrftu að fara. „Þetta fyrirtæki er í raun barnið okkar og við eigum svo mikið af við- skiptavinum sem hafa haldið tryggð við okkur í öll þessi ár og margir þeirra eru orðnir vinir okkar. Það er fyrst og fremst þeim að þakka að við ákváðum að halda áfram með bíla- partasöluna.“  FLUTNINGAR | Bílabændur brottrækir úr Norðlingaholti Morgunblaðið/Eyþór Hjónin Bára og Jamil finna réttu bílapartana fyrir viðskiptavinina sína. Bílarnir eru þeirra rollur og kanínur Í nágrenni Rauðavatns eru hjón í óða önn að flytja burt allt sitt hafur- task á milli þess sem þau afgreiða bílaparta. Kristín Heiða Kristins- dóttir leit inn í kaffi hjá Báru og Jamil sem segja að það sé hægt að flokka fólk eftir því hvernig bíla það eigi. khk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.