Morgunblaðið - 29.04.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.plusferdir.is
N E T
Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
*Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar.
1. júní, 6. júlí og 17. ágúst
Feneyska Rivieran
á Res Madrid í 7 nætur.
Verð frá 46.620 kr.*
63.620 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð miðast við að bókað sé á netinu, ef bókað er
í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun.
BÆJARSTJÓRI HÆTTIR
Tilkynnt var í gær að Ásdís Halla
Bragadóttir, bæjarstjóri Garða-
bæjar, hefði verið ráðin forstjóri
BYKO. Hún tekur við starfinu 27.
maí nk., en allt bendir til þess að
Gunnar Einarsson taki við starfi
bæjarstjóra.
Stjórn samþykkt í Írak
Þing Íraks samþykkti í gær ráð-
herralista Ibrahims al-Jaafaris, for-
sætisráðherra landsins, með miklum
meirihluta atkvæða. Sextán sjítar
eiga sæti í stjórninni, sex súnní-
arabar og átta Kúrdar. Sex ráð-
herranna eru konur.
Hönnunarsamkeppni LSH
Heilbrigðisráðherra afhenti sjö
hópum sem taka þátt í skipulags-
samkeppni Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss samkeppnisgögnin í gær.
Þar kemur fram að eingöngu verða
einbýli á legudeildum og aukin
áhersla verður á göngu- og dagdeild-
ir.
Pútín ver vopnasöluna
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
reyndi í gær að fullvissa ísraelska
ráðamenn um að Ísrael stafaði ekki
hætta af fyrirhugaðri sölu á rúss-
neskum flugskeytum til Sýrlands og
af samstarfi Rússa við Írana í kjarn-
orkumálum. Hann samþykkti á fundi
með Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, að auka samstarf landanna í
baráttunni gegn hryðjuverkum og
samvinnu á sviði hátækni.
Jón Arnór meistari
Jón Arnór Stefánsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, varð í gær
fyrsti Íslendingurinn sem fagnar
sigri í Evrópukeppni í körfuknatt-
leik, með liði sínu Dynamo St. Pét-
ursborg, sem sigraði gegn BC Kiev
frá Úkraínu í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Fréttaskýring 8 Umræðan 34/38
Úr verinu 14 Bréf 38
Viðskipti 16 Minningar 39/42
Erlent 18/19 Myndasögur 46
Minn staður 20 Dagbók 46/49
Höfuðborgin 21 Víkverji 46
Landið 21 Staður og stund 48
Akureyri 22 Leikhús 50
Suðurnes 22 Af listum 54
Austurland 23 Bíó 54/57
Menning 27 Ljósvakamiðlar 58
Daglegt líf 28/33 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
Á FUNDI borgarráðs Reykjavíkur í
gær var samþykkt samhljóða að
ítreka andstöðu Reykjavíkurborgar
við áform um skattlagningu orku-
fyrirtækja. Allar líkur séu á því að
þessi fyrirhugaða skattlagning muni
leiða til hækkunar á raforkuverði,
heitu vatni og vatnsgjaldi í nánustu
framtíð, en skipulagsbreytingar á
raforkumarkaði hafi þegar leitt til
hækkunar raforkuverðs. Borgarráð
mótmælir því harðlega að ríkið fari
fram með þessum hætti og krefst
þess að viðræður fari fram milli rík-
is og sveitarfélaganna áður en laga-
frumvarp um skattlagningu orku-
fyrirtækja verður að lögum.
Alþingi er með til umfjöllunar
stjórnarfrumvarp þar sem orku- og
hitaveitur eru gerðar skattskyldar,
en þau hafa verið undanþegin tekju-
og eignaskatti til þessa. Er gert ráð
fyrir að skattskyldan taki til ársins
2006 við álagningu árið 2007.
„Ótrúleg gjörð“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi og formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, gerir þetta að
umtalsefni í grein í Morgunblaðinu í
dag. Þar segir hann að færa megi
rök fyrir því að raforkuframleiðsla
sé skattlögð þar sem nýleg lög geri
ráð fyrir að hún fari á samkeppn-
ismarkað. Ekkert slíkt sé fyrirhug-
að um hitaveitur sem hafi einkaleyfi
til starfsemi sinnar og enn síður um
vatnsveitur sem að langmestu leyti
séu lögskyld starfsemi sveitarfé-
laga.
„Það að flutt skuli stjórnarfrum-
varp um að skattleggja skuli hita-
veitur og vatnsveitur er ótrúleg
gjörð. Ekki einu sinni tilskipun frá
Evrópusambandinu krefst þess að
það verði gert.
Ljóst er að ef frumvarp um skatt-
lagningu orkufyrirtækja verður
samþykkt mun það í næstu framtíð
hafa verulega hækkun orkugjalda
og vatnsgjalda í för með sér fyrir
íbúa og atvinnulíf,“ segir Vilhjálmur
m.a. í greininni.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að erfitt sé að meta áhrif þess-
ara breytinga á orkuverð og arð-
semi orkufyrirtækja. Miklar sveiflur
hafi verið í afkomu þeirra á síðustu
árum. Þannig hafi fimm af sex
stærstu fyrirtækjunum verið rekin
með tapi árið 2001, en öll fyrirtækin
nema eitt hafi verið rekin með hagn-
aði árið 1999.
Í annarri grein frumvarpsins er
að finna skilgreiningu á því hvað
skuli teljast orkufyrirtæki. Þar segir
að í lögunum merki orkufyrirtæki
fyrirtæki sem stundi vinnslu, dreif-
ingu, flutning, sölu og afhendingu á
raforku og heitu vatni.
Vilhjálmur segir í greininni að
orkufyrirtækin hafi í raun sýnt litla
andstöðu við þessar fyrirætlanir.
„Stjórnendur þeirra vita sem er að
þeim er í lófa lagið að hækka gjald-
skrár sínar í kjölfar nýrrar skatt-
lagningar og senda reikninginn til
viðskiptavina sinna,“ segir hann.
Borgarráð mótmælir harðlega frumvarpi um skattskyldu orku- og hitaveitna
Líkur á að lögin leiði til
hækkunar á orkuverði
Alþingi/34
HELGI Bergs, fyrrver-
andi bankastjóri og al-
þingismaður, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir
í Reykjavík aðfaranótt
fimmtudagsins 28. apr-
íl, tæplega 85 ára að
aldri.
Helgi var fæddur í
Reykjavík 9. júní 1920,
sonur hjónanna Helga
Helgasonar Bergs, for-
stjóra Sláturfélags Suð-
urlands, og Elínar
Jónsdóttur Bergs.
Helgi lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1938 og prófi í efna-
verkfræði frá Tækniháskólanum í
Kaupmannahöfn 1943. Hann starfaði
sem verkfræðingur hjá Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga 1945–1952,
var tækniráðunautur hjá FAO, Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna í Tyrklandi 1953–
1954, formaður stjórnar Íslenskra
aðalverktaka 1954–1960 og fram-
kvæmdastjóri iðnaðar- og tækni-
deildar SÍS 1961–1969.
Helgi var alþingismaður Sunn-
lendinga 1963–1967 og bankastjóri
Landsbanka Íslands 1971–1988.
Hann var ritari Framsóknarflokks-
ins 1962–1972 og sat í
miðstjórn flokksins frá
1962 til 2005. Hann var
fulltrúi á þingi Norður-
landaráðs og Allsherj-
arþingi Sameinuðu
þjóðanna, átti setu í
bankaráði Iðnaðar-
banka Íslands, í stjórn
Fiskveiðasjóðs og
framkvæmdastjórn
Iðnþróunarsjóðs.
Á árunum 1973 til
1976 var Helgi formað-
ur stjórnar Viðlaga-
sjóðs, sem ríkisstjórn-
in kom á fót í kjölfar
eldgossins í Vestmannaeyjum 1973
til að annast björgunar- og varnarað-
gerðir í Eyjum, öflun húsnæðis og
uppbyggingu í kjölfar gossins. Hann
var einnig stjórnarformaður Raf-
magnsveitna ríkisins 1974–1978,
hlutafjársjóðs Byggðastofnunar
1989–1991 og Bessastaðanefndar
1989–1998.
Helgi var sæmdur riddarakrossi
norsku St. Olavsorðunnar 1974 og
stórriddarakrossi Hinnar íslensku
fálkaorðu 1990.
Eiginkona Helga var Lís Eriksen
Bergs en hún lést 1997. Börn þeirra
eru fjögur.
Andlát
HELGI BERGS
Á FUNDI stjórnar Árvakurs
hf., útgáfufélags Morgunblaðs-
ins, í gær var samþykkt að fé-
lagið keypti hlutabréf Björns
Bjarnasonar dómsmálaráð-
herra, Guðrúnar Bjarnadóttur
og Önnu Bjarnadóttur í Ár-
vakri.
Hlutur Björns Bjarnasonar
var 1,07%, Guðrúnar 0,53% og
Önnu 0,53%.
Seldu
hlut sinn
MIKIL eftirvænting ríkti í Lista-
safni Reykjavíkur og Listasafni
Íslands þegar fimm gámum var
rennt upp að söfnunum snemma í
gærmorgun. Umfang þeirra var
slíkt að loka þurfti Laufásvegi
tímabundið til að þeir kæmust að.
Í gámunum eru um 300 listaverk
eftir Dieter Roth sem fara upp á
sýningu safnanna en þetta er í
fyrsta sinn í sögu þeirra sem þau
standa sameiginlega að einu sýn-
ingarverkefni, en auk þeirra
verða verk Dieters Roth sýnd í
Galleríi 100° í húsi Orkuveit-
unnar.
Sýning Dieters Roths er stærsta
verkefni Listahátíðar í Reykjavík
þetta árið en hátíðin er helguð al-
þjóðlegri samtímamyndlist undir
yfirskriftinni Tími, rými, tilvera
og dreifist um allt land.
Það var Björn Roth, sonur Diet-
ers, sem tók á móti verkunum,
sem komu frá Basel, Hamborg,
Zürich, Amsterdam og Barcelona,
en hann er jafnframt sýningar-
stjóri sýningarinnar.
Sýning Dieters Roths verður
opnuð á fyrsta degi Listahátíðar,
14. maí, og stendur til 21. ágúst.
Morgunblaðið/Sverrir
Verk Dieters Roths komin í hús
MIKLAR reykskemmdir urðu í elds-
voða í íbúð í þriggja hæða fjölbýlis-
húsi við Álfholt í Hafnarfirði í gær. Í
húsinu eru sex íbúðir og var það rýmt
þegar slökkvistarf hófst. Enginn var
heima þegar að var komið en það var
vegfarandi sem sá eldinn í gegnum
glugga. Eldurinn stafaði frá pappa
sem verið hafði á eldavél. Eldurinn
kom upp skömmu fyrir klukkan 13 og
var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
kallað út til að slökkva. Slökkvistarfið
tók skamma stund.
Miklar reyk-
skemmdir
í íbúð