Morgunblaðið - 29.04.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 21
MINNSTAÐUR
Vestmannaeyjar | Mikil vakning hef-
ur orðið í skáklífi Vestmannaeyja síð-
ustu misseri og nú æfa um 50 krakkar
þá göfgu list, skákina, reglulega fyrir
utan mót sem haldin eru reglulega.
Krakkar, allt frá leikskólaaldri eru
stærsti hópurinn og árangurinn er
farinn að skila sér því Taflfélag Vest-
mannaeyja eignaðist sinn fyrsta Ís-
landsmeistara í 35 ár í upphafi þessa
árs. Í kvöld hefst Skákævintýrið í
Höllinni í Vestmannaeyjum þar sem
ungir skákmenn af öllu landinu etja
kappi. Í gær höfðu 120 skráð sig og
enn var að bætast við.
Fréttaritari Morgunblaðsins fylgd-
ist með síðustu umferðunum í skóla-
móti Vestmannaeyja sem lauk fyrir
nokkru. Keppendur voru 32, allt
strákar. Það var mikil spenna í loftinu,
einbeitnin skein úr hverju andliti, það
var vegið á báða bóga. Stundum báru
tilfinningarnar hina ungu keppendur
ofurliði en þegar staðið var upp frá
borðum voru allir sáttir. Spennan í
lokin var nánast óbærileg og þurfti að
tefla aukaskákir til að knýja fram úr-
slit.
En áhugamálin eru fleiri og á einu
taflborðinu voru peyjarnir að stilla
upp Chelsea-liðinu í kringum okkar
mann Eið Smára. Skákborðið var þá
Stanford Bridge og taflmennirnir
knattspyrnumenn.
Magnús Matthíasson, formaður
Taflfélags Vestmannaeyja, segir að
starfið hafi verið mjög öflugt síðustu
þrjú árin en bætt hafi verið í þegar fé-
lagið eignaðist eigið húsnæði síðasta
haust. „Við vorum með 25 krakka áð-
ur en í haust fjölgaði þeim upp í 50,“
sagði Magnús. „Við erum með fimm
æfingar á viku fyrir utan mót sem við
höldum reglulega. Þeir sem eru búnir
að vera lengst hjá okkur eru farnir að
standa sig mjög vel á mótum á fasta-
landinu þannig að við erum að sjá
árangur af starfinu.“
Best að byrja
á leikskólaaldrinum
Magnús segir að best sé að fá
krakkana sem yngsta, helst á leik-
skólaaldri. „Þá fáum við tíma til að
gera úr þeim góða skákmenn. Við
byrjum á undirstöðunni þó alltaf séu
einhverjir sem kunna mannganginn
þegar þeir koma til okkar. Eftir eitt til
eitt og hálft eru þeir búnir að læra
grundvallaratriðin og farnir að vinna
foreldrana auðveldlega. Ég og Karli
Gauti Hjaltason sjáum um byrjunina,
þá tekur Sigurjón Þorkelsson við
þeim og loks Sverrir Unnarsson sem
gerir þá að snillingum. Þetta starf og
þjálfun er farið að skila árangri því við
áttum Íslandsmeistara í flokki tíu ára
í vetur. Hann heitir Nökkvi Sverr-
isson og áttum við fjóra meðal ellefu
efstu á mótinu.“
Uppgangurinn í félaginu nær líka
til þeirra eldri og þar er helsta Helgi
Ólafsson, stórmeistari, helsta skraut-
fjöðrin en hann gekk nýlega í TV eftir
áratuga fjarveru. „Þeir fullorðnu náðu
bronsinu í efstu deild í deildarkeppn-
inni í vetur. Það var frábær árangur
en starfið í kringum þá er alveg óháð
strákunum.“
Magnús segir að krakkarnir séu
mjög áhugasamir og það svo að ÍBV
fór fram á við TV að færa til æfingar
þannig að þeir kæmust líka á hand-
bolta- og fótboltaæfingar. „Markmiðið
er að eiga alltaf skákmenn í fremstu
röð, þar eru Íslandsmeistaratitlar
lokatakmarkið því við viljum bera
hróður Eyjanna á þessu sviði,“ sagði
Magnús að lokum.
Fannst það ekki leiðinlegt
Sindri Freyr Guðjónsson er tíu ára
og hefur teflt í fjögur ár. „Ég byrjaði
að fara á æfingar hjá Taflfélaginu og
fannst það ekki leiðinlegt. Minn besti
árangur er 3. sætið í keppni A-liða,“
segir Sindri Freyr sem er ákveðinn í
að halda áfram að tefla. Hann segir að
þeir læri Sikileyjarvörn,
franska og ítalska sem er í
uppáhaldi hjá honum. „Ætli
Spassky sé ekki minn uppá-
halds skákmaður og vonandi
verð ég einhvern tímann Ís-
landsmeistari.“
Hafsteinn Valdimarsson er
ekki nema átta ára. „Afi, hann
Þórarinn Ingi Ólafsson, kenndi
mér mannganginn og mér
finnst mjög gaman að tefla. Ég
varð í 1. sæti í mínum flokki á
Suðurlandsmótinu og ég ætla
að halda áfram að tefla.“
Nökkvi Sverrisson er fyrsti
Íslandsmeistari TV í 35 ár en
hann byrjaði að tefla fyrir fjór-
um árum. „Þetta er mjög gaman og
mest gaman er að fara á mót með hin-
um strákunum. Ég varð Íslandsmeist-
ari í vetur og í 2. sæti á Suðurlands-
mótinu,“ segir Nökkvi sem þrátt fyrir
ungan aldur á sínar uppáhaldsvarnir.
„Ég nota Sikileyjarvörnina þegar
ég er með svart og ítölsku vörnina
þegar ég tefli með hvítu mönnunum.
Ætli Tobolof sé ekki minni uppáhalds
skákmaður og vonandi verð ég ein-
hvern tímann stórmeistari.“
Vakning hefur orðið í skáklífi Vestmannaeyja og fimmtíu börn æfa nú hjá taflfélagi bæjarins
Markmiðið að
eiga alltaf menn
í fremstu röð
Sigurvegarar í yngri flokki Sindri Freyr varð í þriðja
sæti, Nökkvi í því fyrsta og Hallgrímur í öðru.
Eldri flokkur Haraldur Pálsson varð í öðru
sæti og Þórhallur Friðriksson sigraði.
Eftir Ómar Garðarsson
Spennan í hámarki Nökkvi Sverrisson t.v. og Hallgrímur
Júlíusson tefla til úrslita um 1. sætið og hafði Nökkvi betur.
Morgunblaðið/Sigurgeir
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1,
Fjarðarkaupum
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum,
Borgartúni 24,
Spektro
Lyfjaval Hæðasmára
Mosfellsbær
Lyfjaval Þönglabakka
Stúdíó Dan Ísafirði
Ein með
öllu
Multivítamín, steinefnablanda
ásamt spírulínu, Lecthini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Reykjavík | Víðtækt samráð verður
haft við áhugasama borgara um
framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar,
fjórir samráðsfundir verða haldnir á
næstu mánuðum og sett upp sýning
þar sem almenningur getur tjáð
skoðanir sínar í Hafnarhúsinu í
haust. Umræðan um hvort flugvöll-
urinn eigi að fara eða vera er þó enn í
pólitískum hnút.
Þetta kom fram á opnum fundi um
skipulag Vatnsmýrarinnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær. Tæplega 100
manns mættu á fundinn og hlýddu á
erindi m.a. frá Degi B. Eggertssyni,
formanni skipulagsráðs, og Ágústu
Kristófersdóttur frá Listasafni
Reykjavíkur eftir stuttan inngang
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur
borgarstjóra.
Umræðan í skotgröfunum
Dagur sagði í framsögu sinni að við
skipulag Vatnsmýrarinnar yrði að
ganga út frá þeirri forsendu að flug-
völlurinn hyrfi þaðan, hvort svo sem
það yrði raunin í fyrirsjáanlegri
framtíð eða ekki. Horfa þyrfti á
svæðið sem eina heild og skipuleggja
það út frá þeirri forsendu, ella væri
hætta á því að uppbygging næstu ára
skerti tækifæri svæðisins í heild í
framtíðinni. Aðalskipulag svæðisins
gerir ráð fyrir því að flugvöllurinn
fari þó að sá hluti skipulagsins hafi í
raun ekki verið samþykktur af um-
hverfisráðuneyti þar sem samkomu-
lag um brotthvarf vallarins hefur
ekki náðst milli borgarinnar og sam-
gönguráðuneytis.
Stýrihópur um skipulag Vatns-
mýrarinnar ræddi mikið stöðuna í
flugvallarmálinu svokallaða, sagði
Dagur fundarmönnum, og segir hann
kyrrstöðu hafa ríkt í málinu undan-
farið. „Málið hefur verið í pólitískum
hnút og umræðan um flugvöllinn hef-
ur verið í skotgröfunum. Það er ekki
staða sem er til þess fallin að vinna
þessu gríðarlega mikilvæga máli lið.“
Þetta hefur leitt til þess að mik-
ilvægar hugmyndir sem e.t.v. hafa
verið á floti lengi hafa verið ókann-
aðar og sum sjónarmið órædd. Um-
ræðan hafi fyrst og síðast fjallað um
hvort flugvöllurinn verði eða fari og
við það verður ekki búið, að mati
Dags.
Eins og gert er ráð fyrir í aðal-
skipulagi fyrir Vatnsmýrina mun
fara fram alþjóðleg samkeppni um
skipulag svæðisins í framtíðinni.
Dagur sagði að áður en það gerðist
yrðu að fara fram rannsóknir og út-
tektir auk þess sem opnir vinnufund-
ir og samráð með íbúum þyrfti að
fara fram. Búa þyrfti til vettvang þar
sem hugmyndir íbúa verði kallaðar
fram til rýni og rökræðna. Einungis
þegar þessu ferli væri lokið sé hægt
að fara í hugmyndasamkeppnina.
Hvernig borg má bjóða þér?
Ágústa Kristófersdóttir frá Lista-
safni Reykjavíkur sagði fundar-
mönnum frá því hvernig safnið mun
koma að þeirri hugmyndavinnu íbú-
anna sem verður hluti af skipulags-
ferli Vatnsmýrarinnar. Á haustdög-
um verður haldin sýning í Hafnar-
húsinu þar sem hugmyndir sem eru
uppi á borðinu eru ræddar, og reynt
að nálgast aðrar hugmyndir frá
áhugasömum, bæði almenningi og
sérfræðingum.
„Meginspurningin sem við ætlum
að leita svara við er: Hvernig borg
má bjóða þér? Það er okkar trú að all-
ir séu sérfræðingar í því hvernig borg
þeir vilji búa í. Sýningin í Listasafni
Reykjavíkur verður vettvangur fyrir
sem flesta til þess að koma þessum
hugmyndum á framfæri,“ segir
Ágústa. Hún segir að með þessu
verði fetað í fótspor borgaryfirvalda í
Stokkhólmi í Svíþjóð þar sem haldin
var sýning með svipuðu markmiði.
Meðal annars er reiknað með að risa-
vaxin loftmynd af Reykjavíkurborg
verði sett á gólf safnsins fyrir al-
menning að vinna með.
Miklu samráði við íbúa heitið vegna skipulags Vatnsmýrarinnar
Flugvallarmálið enn í pólitískum hnút
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Vatnsmýrin skipulögð Tæplega 100 manns mættu á opinn fund um framtíð Vatnsmýrarinnar í gær.
ÞAÐ var mikill handagangur í öskj-
unni við Kvennaskólann í Reykja-
vík þegar nokkrir nemendur skól-
ans, sem eru í framboði til stjórnar
og skemmtiráðs, ákváðu nýverið að
taka forskot á sælu stjórnartíðar
sinnar með því að blása til nokkurs
konar vorhátíðar með pylsum,
trampólíni, sælgæti og leikjum og
öðru tilheyrandi.
„Við ákváðum að bjóða upp á
skemmtun, fengum fyrirtæki til að
styrkja þetta og borguðum líka fyr-
ir sumt,“ segir Eva Reynisdóttir,
sem ásamt sex félögum sínum býð-
ur nú fram til stjórnar og skemmti-
nefndar. Eva býður sig fram til for-
manns skólafélagsins. „Við tókum
áhættu með veðrið, en það marg-
borgaði sig.“
Kennarar sem fylgdust með voru
hinir kátustu með þetta uppátæki,
svo framarlega sem vel yrði gengið
frá. Þótti þeim hátíðin setja líf í
skólastarfið og ekki var annað að
sjá en þessi nýbreytni mæltist vel
fyrir hjá nemendum.
Morgunblaðið/Sverrir
Þessar stúlkur, þær Kristín Eygló
Kristjánsdóttir og Heiðrún Ágústs-
dóttir, stunda nám á málabraut.
Kosningagleði
kvenskælinga
í sól og blíðu