Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 25
BYGGING NÝS SPÍTALA
sem kallaðar eru fjölnota einbýli,
verður hægt að veita alla hjúkr-
unarmeðferð, sjúkraþjálfun, iðju-
þjálfun og framkvæma minni háttar
inngrip svo sem mænuholsástungur
og speglanir. Þar eiga að geta dvalist
jöfnum höndum sjúklingar sem
gangast undir skurðaðgerðir, sjúk-
lingar sem eru til meðferðar hjá lyf-
læknum eða sjúklingar öldrunar-
lækninga og endurhæfingar.
Bráðakjarni í fyrsta áfanga
Í nýjum spítala verður fyrir komið
sérstökum bráðakjarna og er áætlað
að sá hluti sjúkrahússins rísi fyrst. Í
bráðakjarnanum verður m.a. að
finna bráðamóttöku, myndgrein-
ingar, skurðstofur og gjörgæslu. Út
frá þeim kjarna verða legudeildir,
rannsóknardeildir og blóðbanki. Í
ysta hring sjúkrahússins, ef svo má
segja, verður önnur þjónusta sjúkra-
hússins sem ekki krefst jafnmikillar
nálægðar við bráðastarfsemina. Má
þarf nefna heilbrigðisvísindadeildir,
lífvísindakjarna, öldrun, endurhæf-
ingu, göngu- og dagdeildir, sjúkra-
hótel, geðdeild, geislameðferð og
skrifstofur yfirstjórnar. Hlutverk
þátttakenda í skipulagssamkeppn-
inni verður m.a. að útfæra hvernig
þessu skipulagi verður best fyrir
komið á byggingarlóðinni.
Aukin áhersla á göngu-
og dagdeildir
Við byggingu nýs sjúkrahúss verð-
ur aukin áhersla lögð á göngu- og
dagdeildir til að bæta þjónustu við
sjúklinga, draga úr þörf fyrir inn-
lagnir og gera háskólastarfsemi LSH
markvissari, líkt og segir í sam-
keppnisgögnum. Hugmyndin er jafn-
vel sú að þessar deildir verði í sér-
byggingu á spítalalóðinni þó það sé
ekki skilyrði. Krafist er mikilla
stækkunarmöguleika, um 50%, við
hönnun slíkrar byggingar. Þá er gert
ráð fyrir möguleika á annars konar
rekstarformi við göngu- og dagdeild-
arhúsið.
Á göngudeild er árið 2025 gert ráð
fyrir 207.000 komum árlega og að
dagdeildarrými verði 116. Í dag- og
göngudeildarbyggingu eru áætlanir
um fimm dagdeildarskurðstofur.
Fyrirséð er að sjúkrahústengd
heimaþjónusta vaxi á komandi árum
og því þarf við uppbyggingu nýs spít-
ala að gera ráð fyrir talsverðum
fjölda starfsmanna og góðri aðstöðu
á LSH fyrir hana.
Öldrun og endurhæfing
Ekki er gert ráð fyrir líknardeild á
lóðinni né endurhæfingu en góð að-
staða verður þó fyrir endurhæfingu
&'()*+ ,+
&'()
B=
)@! 6"7-,M= ;1=1)1 /57A6
+<3,7A6
,M=
+<3,7A6
'C:-,
,M=
+A6-" 6 :,54
=B))3!- ,M=
+"4" 6 ,M=
2
,'
H $7 -'76-'7
7"4" 6 ,M=
+<3,7A6-" 6 ,M=
<M!6 '7
/B)"6 /",:",7
!-,4)$0-,
!-,4)$0-, 5
7" 6
47",4
,)$0-, /<
,)
;,A4 '7 $1061
A4 '7
,)$0-,
E'7," ' '7
,)$0-,
)
,0="''
"="'-, @ *",!'5=
7" 6 ,M=
+3'7-" 6 !$4-'
,/",:",7
- , .
$!)1
.,@6
".)1
$!)1
=
,
=
@
<M'@
! "#$ %" %
!& ' (
)*+(
, %-". #
P P P Q Q Q Q „GRUNDVÖLLURINN að sameiningu sjúkrahúsanna í
Reykjavík fyrir fimm árum var sú staðreynd að við
þurftum að undirbúa framtíð heilbrigðisþjónustunnar
og þar með að fara að byggja nýjan spítala. Ef við hefð-
um ekki sameinað, þá værum við ekki komin þangað
sem við erum í dag,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir, for-
maður dómnefndar vegna skipulagssamkeppni til und-
irbúnings deiliskipulagi á lóð Landspítalans og fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra. „Það var ljóst að það væri
flóknara að taka ákvörðun um nýjan spítala nema að
sameina fyrst. Sameiningunni er ekki endanlega lokið
fyrr en búið er að byggja nýjan spítala. Því með sam-
einingunni ætlum við að ná fram hagkvæmni í þessari
hröðu tækniþróun sem hefur orðið og verður.“
Ingibjörg segist sérstaklega gleðjast yfir byggingu
einbýla á nýja sjúkrahúsinu og bendir á að nú séu að
vaxa úr grasi kynslóðir sem gera aðrar kröfur en áður
voru gerðar.
„Það sem okkur fannst ágætt fyrir tíu árum síðan,
sættum við okkur ekki við í dag. Fyrir tuttugu árum
var sjálfsagt að fara á dvalarheimili og vera þar til ævi-
loka í herbergi með ókunnugum einstaklingi. Það þótti
ekkert óeðlilegt að sex sjúklingar væru saman í her-
bergi, hefðu ekkert einkalíf, allir heyrðu hvað lækn-
irinn var að segja við hvern sjúkling og það var kannski
hálfur kílómetri á klósettið!“
Sjúklingahópurinn er því allt annar en hann var fyrir
nokkrum árum að mati Ingibjargar, og gerir allt aðrar
kröfur en áður voru gerðar til sjúkrahúsþjónustu. „Það
er eðlilegt að við gerum kröfur í þessu eins og öllu
öðru. Við viljum alltaf vera fremstir, við Íslendingar.
Við erum vissulega með góða heilbrigðisþjónustu, en
að mörgu leyti er húsnæðið sem við bjóðum sjúkling-
unum og starfsfólkinu upp á okkur ekki til sóma. Við
verðum að fylgja þróuninni í þessu og við verðum að
gera það svo húsnæði fari ekki að verða hemill á
framþróun.“
Ingibjörg segir gleðilegt að við séum komin á það
stig að hugsa um framtíðina eins og við viljum hafa
hana. „Það er stór áfangi og mér finnst sérstaklega
ánægjulegt að formenn stjórnarflokkanna skuli hvor
með sínum hætti hafa jafnríkan skilning á mikilvægi
verkefnisins og raun ber vitni. Það þarf bæði framsýni
og raunsæi til að marka stefnu í þessu máli.“
Ingibjörg segir að nú sé rétti tíminn og að um það
séu allir sammála. „Sem betur fer er búið að koma því
þannig fyrir að þjóðin hefur efni á þessu. Það háttar
þannig til í þjóðfélaginu að þetta er hægt. Þetta var
ekki hægt fyrir tíu árum, það var ekki bolmagn. Nú er
búið að skapa bolmagn og þess vegna hlýtur maður að
vera bjartsýnn.
Mér þykir afskaplega vænt um þessa starfsemi sem
fram fer á Landspítalanum, eins og fjölmörgum Íslend-
ingum. Mig langar til að vegur og virðing stofnunar-
innar sé sem mest. Ég veit að þetta er svo mikilvæg
starfsemi sem þarna fer fram, frá vöggu til grafar. Hún
snertir okkur öll einhvern tímann á lífsleiðinni. Þegar
við þurfum sjálf á þjónustunni á halda, hvað viljum við
þá? Er það ekki bara það besta, við viljum ekkert ann-
að.“
Langt ferli og strangt
„Það er langt ferli og strangt að koma upp nýjum
spítala en það má kannski segja að þeim mun ánægju-
legri verði hver áfangi,“ sagði Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra við afhendingu samkeppnislýsing-
arinnar í gær.
Jón sagði í samtali við Morgunblaðið að þó að miðað
sé við starfsemistölur til ársins 2025 við byggingu spít-
alans sé að sjálfsögðu nauðsynlegt að sjúkrahúsið geti
starfað sem best til mun lengri tíma. „Þess vegna er
mjög áríðandi að það sé vandað til þessa verks. Þess
vegna þurfum við að undirbúa hvert skref sem gaum-
gæfilegast. […] Það er áríðandi að við séum í takt við
framtíðina í þessu.“
Landspítalinn snertir okkur öll
Morgunblaðið/Eyþór
Núverandi og fyrrverandi heilbrigðisráðherrar. Ingi-
björg Pálmadóttir og Jón Kristjánsson sem afhenti
hönnunarhópum samkeppnisgögn í gær.