Morgunblaðið - 29.04.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 37
UMRÆÐAN
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heim-
ilisofbeldi og kortleggjum þenn-
an falda glæp og ræðum vanda-
málið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess
að minnka kynferðisofbeldi
þurfa landsmenn að fyrirbyggja
að það gerist. Forvarnir gerast
með fræðslu almennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð-
isþróun á Íslandi hefur, þrátt
fyrir allt, verið til fyrirmyndar
og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins, um
að skapa betra umhverfi fyrir
bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöðunni
er að láta TR ganga inn í LHÍ
og þar verði höfuðstaður fram-
halds- og háskólanáms í tónlist í
landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrði ekki
bankið þegar vágesturinn kom í
heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mannkynið
þarf fremur á leiðsögn að halda í
þeirri list að þola góða daga en á
helvítisprédikunum á valdi ótt-
ans eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
ÞVERERPÓLITÍSK samstaða
ungliðahreyfinga allra flokka hefur
náðst um að styðja lagafrumvarp
Ágústs Ólafs Ágústssonar alþing-
ismanns um afnám fyrningarfresta
í kynferðisafbrotum gegn börnum.
Nú berast hins vegar þær fregnir
að frumvarpið muni hugsanlega
sofna í allsherjarnefndinni eða hjá
ráðuneytinu. Við teljum afar mik-
ilvægt að þetta brýna réttlætismál
fái afgreiðslu úr allsherjarnefnd-
inni svo þingheimur geti tekið af-
stöðu til þess.
Heimdallur, Ungir jafnaðar-
menn, Félag ungra framsóknar-
manna í Reykjavík suður, Ungir
Vinstri grænir og Ungir frjáls-
lyndir samþykktu fyrir stuttu
áskorun til allsherjarnefndar um að
afgreiða frumvarpið úr nefndinni
og af því tilefni var haldinn opinn
fundur um málið. Bent var á að það
ætti að leyfa Alþingi að afgreiða
frumvarpið á lýðræðislegan hátt en
frumvarpið hefur legið óafgreitt
hjá nefndinni í hartnær 2 ár. Ung-
liðar hvöttu sömuleiðis nefndar-
menn til að horfa fram hjá flokks-
pólitískum dráttum og sjá hve
mikið þjóðþrifa- og mannréttinda-
mál þetta er.
14.000 undirskriftir
Ekki er þó einungis breið sam-
staða um málið hjá ungliðahreyf-
ingum stjórnmálaflokkanna heldur
hafa rúmlega 14.000 einstaklingar
sent áskorun til þingmanna í gegn-
um vefsíðu Blátt áfram,
www.blattafram.is þess efnis.
Einnig hafa fjölmargir fagaðilar
sem allsherjarnefnd
sendi málið til um-
sagnar, svo sem um-
boðsmaður barna,
Barnaverndarstofa,
Barnaheill, Kvenna-
athvarfið, Stígamót,
Mannréttindaskrif-
stofa Íslands o.fl., lýst
yfir stuðningi við
frumvarpið og fagnað
því.
Rangt að láta
brotin fyrnast
Frumvarpið tekur
tillit til sérstöðu þessara brota
gegn börnum. Börn átta sig oft
ekki á því að brotið hafi verið gegn
þeim fyrr en mörgum árum seinna
eða þau bæla minninguna um of-
beldið niður og telja jafnvel sig
bera einhverja sök. Brotin koma
því oft ekki fram í dagsljósið fyrr
en löngu seinna. Nú þegar eru til
dómar um að sekt hafi verið sönnuð
en sýknun hafi verið dæmd vegna
fyrningar. Við teljum að gerandi
eigi ekki að hagnast á þeim mikla
aðstöðumun sem er á honum og
barninu og að hagsmunir barna
vegi þyngra en almennar röksemd-
ir um fyrningu.
Nú þegar hefur löggjafinn metið
að ákveðin afbrot skuli vera ófyrn-
anleg s.s. mannrán, ítrekuð rán,
manndráp, landráð o.fl. og því er
þetta spurning um pólitískt mat á
þeim hagsmunum sem um ræðir.
Krefjumst að frumvarpið
verði afgreitt úr nefndinni
Við teljum það rangt að kyn-
ferðisbrot gegn börnum geti fyrnst.
Þetta er mál sem snertir okkur öll.
Nýjustu tölur sýna að nær fimmta
hvert barn verður fyrir kynferðis-
legu ofbeldi og það er eitthvað sem
þjóðin öll verður setja alla sína
krafta í að stöðva. Við hvetjum al-
menning einnig til að láta í sér
heyra og senda áskorun til þing-
manna af vefsíðunni http://
www.blattafram.is.
Í ljósi þess breiða og mikla
stuðnings sem málið hefur meðal
almennings og fagaðila krefjumst
við að málið verði afgreitt úr alls-
herjarnefnd fyrir þinghlé.
Samstaða um gott mál
Bolli Thoroddsen, Matthías
Imsland, Dögg Hugosdóttir,
Kristín María Birgisdóttir og
Andrés Jónsson segja frá sam-
stöðu ungliðahreyfinga stjórn-
málaflokkanna um laga-
frumvarp um afnám fyrningar-
fresta í kynferðisafbrotum
gegn börnum.
’… krefjumst við aðmálið verði afgreitt úr
allsherjarnefnd fyrir
þinghlé.‘
Kristín María
Birgisdóttir
Höfundar eru formenn eða varafor-
menn ungliðahreyfinga stjórnmála-
flokkanna.
Dögg Proppé
Hugosdóttir
Andrés
Jónsson
Matthías
Imsland
Bolli
Thoroddsen
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið