Morgunblaðið - 29.04.2005, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING Leifs Breiðfjörð, þekkt-
asta glerlistamanns á Íslandi, í for-
rými Salarins í Kópavogi er hluti af
glerlistahátíð sem fer fram í Gerð-
arsafni. Þar má sjá margar litríkar
glermyndir sem hanga í gluggum
og lofti, flestar þeirra eru úr
steindu gleri, aðrar eru áþrykktar
eða sandblásnar og eitt verk unnið
með blandaðri tækni. Sýningin
fjallar um anda mannsins sem
táknaður er með formi mannshöf-
uðs í ýmsum útfærslum. Blýteikn-
ingin í myndunum er leikandi létt
og örugg um leið og hún er kyrfi-
lega stílfærð og ber með sér yf-
irbragð grafískrar hönnunar. Haus-
arnir og önnur hálffígúratíf form
sem sum hver vísa til lýsinga gam-
alla handrita, ásamt táknrænni
kalligrafíu ýta enn frekar undir
hugmyndina um að verkin séu
myndskreytingar við fornan texta,
en yfirskrift sýningarinnar vísar þó
til einhvers sannleika eða hug-
myndar sem er utan við rúm og
tíma.
Að myndskreyta eða túlka svo
vítt og hátíðlegt hugtak sem anda
mannsins er ekki allra, en fyrir
mann eins og Leif sem hefur unnið
steinda glugga fyrir á annan tug
kirkna og er vel inni í andlegu og
trúarlegu táknmáli er slík hug-
mynd ekki eins fjarstæðukennd og
fyrir marga aðra. Hausarnir eru
sterk höfundareinkenni Leifs og
hér að öllum líkindum bornir fram
sem persónulegar táknmyndir and-
ans, en höfuðformið vísar sterklega
til huga og skilningarvita mannsins.
Að þessu sinni bera hausarnir flest-
ir eða allir einhvers konar hjálm
sem minnir helst á skírlífisbelti eða
gjörð sem liggur einnig oftast yfir
augun. Þá standa iðulega tveir eða
þrír flipar, eins og mekanískar
tengingar, annaðhvort út úr hjálm-
inum og/eða úr hálsinum sem gefa
til kynna möguleika á tengingu við
líkama eða einhvers veruleika utan
höfuðsins. Margar myndanna eru
tvískiptar með láréttri burð-
arstyrktarlínu í miðju myndar og
er hún notuð á táknrænan hátt.
Hausinn virðist hafður þeim megin
línu sem hæfir eftir því hver and-
legur staður hans er samkvæmt
titli verksins. Þannig er hann fyrir
ofan línu í myndinni Opinberun en
fyrir neðan í myndinni Sagnameist-
ari sem er einnig eina myndin þar
sem hausinn virðist vera partur af
líkama og er þar að auki með gal-
opin augu. Þessi túlkun ber nokk-
urn keim af tvíhyggjuhugmyndum
hellenískrar heimspeki og seinna
guðfræðikenningu Ágústínusar. En
hann samþætti á miðöldum kristna
trú við nýplatónisma sem hélt því
fram að sálin væri aðsetur hins
guðdómlega í manninum en lík-
aminn aðsetur syndarinnar og þar
af leiðandi bæri mönnum að afneita
líkamanum eftir því sem hægt væri
og gera sálina að vettvangi lífsins,
þrátt fyrir ritningarorð á borð við:
„Vitið þér ekki að líkami yðar er
musteri heilags anda sem í yður er
og þér hafið frá Guði?“
Nú þarf það ekki að vera að
þessi sýning fjalli um anda manns-
ins samkvæmt kristinni trúarkenn-
ingu þar sem hér er um „frjálsa“
sýningu að ræða en ekki kirkjulist.
Dr. Pétur Pétursson, prófessor í
kennimannlegri guðfræði við Há-
skóla Íslands, ritar texta um verkin
í sýningarskrá og notar orð eins og
ljós, innblástur, endurfæðingu, op-
inberun, frelsi í anda og skapandi
anda listamannsins. Þar sjást
hvergi orðin guð, kristur, trú eða
heilagur andi. Sumir titlar Leifs
eins og Skírn og Vakning vísa þó
til kristinna táknmynda og í mynd-
inni Úr fjötrum má sjá haus sem
hefur slitið sig úr vöggu líkamans
til móts við ljósið þar sem hvít
„dúfa“ virðist anda eða blása fram-
an í hann, sem er sterk vísun til
viðtekinnar táknmyndar um inn-
blástur heilags anda. Það er sjald-
gæft í dag að listamenn fjalli um
andlegar víddir og trúarlegt tákn-
mál af áhuga, alvöru og einlægni
eins og hér er raunin og er sýn-
ingin að því leyti kærkominn um-
ræðuvettvangur fyrir áhugafólk um
slík málefni. Vegna ofgnóttar hins
efnislega og ríkulegra effekta ljóss
og lita virðist vægi sýningarinnar
þó liggja meira í hlutveruleikanum
en anda mannsins.
Sýningunni fylgir vel unnið
myndband þar sem Leifur Breið-
fjörð og kona hans Sigríður Jó-
hannsdóttir sýna ferlið við gerð
glerverkanna, en þar kemur fram
að Sigríður sér alfarið um hið
vandasama verk að blýleggja stein-
dar glermyndir Leifs ásamt því að
vinna að sinni eigin listsköpun.
Andi manns í
veruleika efnisins
MYNDLIST
Salurinn Kópavogi
Opið alla daga kl. 11–17
Sýningin er framlengd til 22. maí.
Leifur Breiðfjörð
Andi manns
Þóra Þórisdóttir
Morgunblaðið/Eyþór
Leifur Breiðfjörð: Opinberun.
FASTEIGNIR
mbl.is
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 30. apríl kl.14.00-17.30. Sýningin er á hliðarsvölum
Íslensku óperunnar (gengið er inn um aðalinngang).
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar
Otello eftir Verdi
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Í kvöld kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fi 12/5 kl 20 - Aukasýning
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 30/4 kl 20,
Su 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 5/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 6/5 kl 20 - UPPSELT,
Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 8/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 12/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 13/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Fö 6/5 kl 20,
Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Lau 30/4 kl 20,
Fö 6/5 kl 20,
Lau 7/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Su 1/5 kl 19.09
Síðasta sýning
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fi 5/5 kl 20,
Fi 12/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 1/5 kl 14 - UPPSELT, Su 1/5 kl 17 - UPPSELT,
Su 5/5 kl 14, Lau 7/5 kl 14,
Su 8/5 kl 14, Lau 14/5 kl 14
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti
Eftir Henry Adams
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Uppselt
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
Græna landið
Eftir Ólaf Hauk Símonarson
Gestasýning frá Þjóðleikhúsinu
Fös 13. 5 kl. 20
Lau 14. 5 kl. 15
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveitin KARMA
í kvöld