Morgunblaðið - 29.04.2005, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.003
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá
Wes Craven!
i il
ll j t lli f
!
WWW.BORGARBIO.IS
Sýnd kl. 8 og 10. 30 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 5.30
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina
sem getur fundið morðingjann
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að
berjast fyrir lífi sínu!
Sýnd kl. 6. B.I 16 ÁRA Sýnd kl. 10.30. bi. 16 ára
Nýjasta meistaraverk Woody Allen
Gagnrýnendur eru sammála um að þetta sé hans
besta mynd í mörg ár. Mynd sem engin sannur
kvikmyndaáhugamaður má missa af!
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÓÖH DV
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
V I N S Æ L A S T A M Y N D I N
Í U S A U M H E L G I N A
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
kl. 5.45, 8, 10.15 og 00.30.
Sýnd kl. 5.45, 8, 10.15 og 00.30. b.i. 12. áraSýnd kl. 6, 8 10 og 12. B.I 12 ÁRA
Heimsfrumsýnd í dagi í
Heimsfrumsýnd í dag
Frá leikstjóra
Die Another DayFrá leikstjóra
Die Another Day
Will Smith er
POWERSÝNING KL. 00.30
Apótekarinn heitir óperaneftir Joseph Haydn semverður frumsýnd í Íslensku
óperunni í kvöld kl. 20. Sýningin
er afrakstur samstarfs Óperu-
stúdíós Íslensku óperunnar og
Listaháskóla Íslands, en Óperan
og Íslandsbanki gerðu með sér
samstarfssamning í haust sem fel-
ur í sér að Íslandsbanki kostar
verkefnið að hluta til. Þátttak-
endur í sýningunni eru tónlistar-
nemendur úr tónlistarskólum á
höfuðborgarsvæðinu, en tilgangur
Óperustúdíósins er meðal annars
að gefa söngnemendum raunhæfa
reynslu af starfi í óperuhúsi.
Apótekarinn er gamanópera um
ást og afbrýðisemi. Grilletta er
ung og efnuð stúlka, skjólstæðing-
ur gamla apótekarans Sempronio.
Hann hefur lítinn áhuga á apótek-
arastarfinu og kysi helst sjálfur að
kvænast Grillettu, en hún á sér
tvo vonbiðla. Þeir eru hinn ríki
Volpino og ungi pilturinn
Mengone, sem starfar í apótekinu
til að vera nálægt sinni heittelsk-
uðu þó hann kunni lítt til verka.
Eftir mikinn misskilning og
fjaðrafok sigrar ástin að lokum og
allt fellur í ljúfa löð.
Fáir tengja nafn Haydns við óperulistina, og engin af
óperum hans er meðal þeirra sem
oftast eru á fjölum óperuhúsa
heims. Þó samdi hann nokkrar
bæði dramatískar og gam-
anóperur, enda afar afkastamikið
tónskáld. Meðal þeirra þekktari
eru Armide, La infedelta delusa
og Il mondo della luna. Flestar
ópera sinna, eins og megnið af
öðrum verkum sínum, samdi hann
fyrir Eszterhazy greifa og hirð
hans, en þar starfaði Haydn um
rúmlega þrjátíu ára skeið á seinni
hluta 18. aldar. Apótekarinn, eða
Lo speziale, var frumsýnd 1768
við vígslu óperuhúss sem Nikulás
Eszterhazy lét byggja við höll
sína.
Ingólfur Níels Árnason, leikstjórisýningarinnar, segist sjálfur
hafa hváð þegar til tals kom að
setja Apótekarann upp. „Bækur
tala lítið um Haydn sem óperu-
tónskáld og það er ekki auðvelt að
nálgast upplýsingar um óperur
hans. Það hefur þó verið mjög
skemmtilegt að kynnast þessari
óperu, sem ég þekkti ekki neitt.
Það hefur verið gaman að upp-
götva tónlistina – og heyra í henni
stef sem maður kannast við, og
komu kannski fyrir í öðrum verk-
um nokkrum árum seinna, og þá
útfærð á annan hátt. Maður heyrir
til dæmis votta fyrir einhvers kon-
ar næturdrottningu, en ómögulegt
að segja hvort það sé tilviljun, eða
að Mozart hafi heyrt þessa óperu.
Haydn semur alveg eftir bókinni.
Formið er klippt og skorið – mað-
ur heyrir örlítinn óm af barokk-
inu, sem var að líða hjá, en líka
óm af upphafi klassíska tímans og
Mozart, þótt Haydn hafi tón sem
er manni ekki eins kunnugur.“
Ingólfur Níels segir að það hafistrax verið ákveðið að kalla
þetta ekki nemendasýningu, þótt
skólarnir sæju um undirbúning
nemenda sinna. „Svo áttu krakk-
arnir að koma hingað í hús eins
og hverjir aðrir atvinnumenn. Það
hefur gengið vel, en skólarnir auð-
vitað misvel í stakk búnir til að
undirbúa nemendur sína undir
svona vinnu. En til þess er þetta
samstarf – til að pússa okkur sam-
an. Vinnan með krökkunum hefur
komið mér á óvart. Þau fengu
aldrei tækifæri til að haga sér eða
hugsa eins og amatörar, á því var
enginn möguleiki. Þar af leiðandi
fóru þau í ákveðinn gír, þann gír
að þau áttu að setja upp óperusýn-
ingu á prófessjónal hátt, og það
setti tóninn strax í upphafi. Þau
máttu ekki hafa á tilfinningunni
að þau væru í skóla – og engar af-
sakanir teknar gildar. Í þessu húsi
er unnið svona og þannig þróaðist
þetta samstarf.“
Sýningar standa til 10. maí og
er aðgangur ókeypis. Nánari upp-
lýsingar um sýninguna og sýning-
ardaga er að finna á Óperu-
vefnum: www.opera.is
’Vinnan með krökk-unum hefur komið mér
á óvart. Þau fengu aldr-
ei tækifæri til að haga
sér eða hugsa eins og
amatörar.‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
Guðbjörg Sandholt, Erlendur Er-
lendsson og Þorvaldur Þorvaldsson
sem apótekarinn gamli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í þessu húsi er unnið svona
begga@mbl.is
Eftir: Josef Haydn
Leikstjóri: Ingólfur Níels
Árnason
Hljómsveitarstjóri: Kurt
Kopecky
Konsertmeistari: Huld
Hafsteinsdóttir
Lýsing: Jóhann Bjarni
Pálmason
Leikmynd og búningar:
nemendur LHÍ
Hlutverk:
Sempronio: Þorvaldur Þor-
valdsson
Grilletta: Jóna Fanney
Svavarsdóttir og Ólafía
Línberg Jensdóttir
Volpino: Guðbjörg Sandholt og
Sólveig Samúelsdóttir
Mengone: Erlendur
Erlendsson
Apótekarinn
Söngkonuskiptin í Stuðmönn-um hafa vakið mikla athygli
og virðist sitt sýnast hverjum
um þá ráðstöfun. Hvað sem því
líður mun borgarbúum gefast
fyrsta tækifærið til að sjá Hildi
Völu syngja með Stuðmönnum
nú um helgina, nánar tiltekið á
laugardagskvöldið, þegar Stuð-
menn og Hildur Vala halda stór-
dansleik á Nasa við Austurvöll.
Eru vafalítið margir mjög
spenntir að sjá hvernig stað-
gengill Ragnhildar Gísladóttur,
Idol-stjarnan Hildur Vala, tekur
sig út í hljómsveit allra lands-
manna, hvernig „Ástardúett-
inn“ er t.d. í flutningi Stinna
stuð og Hildar Völu. Miðað við
þær góðu viðtökur sem Hildur
Vala fékk er hún steig í allra
fyrsta sinn á svið með Stuð-
mönnum í Festi í Grindavík 16.
apríl virðist dæmið ætla að
ganga upp og fjörlegt sumar
vera framundan en stefnan er
að Stuðmenn og Hildur Vala
verði iðin við dansleikjahald um
land allt.
Hildur Vala hefur annars ný-
lokið við upptökur á fyrstu plötu
sinni, sem er væntanleg í versl-
anir í byrjun maí. Hún mun svo
halda útgáfutónleika í Salnum
15. maí og er miðasala nú þegar
hafin á www.concert.is.
Fólk folk@mbl.is