Morgunblaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 57
Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!
Hetja. Þjóðsögn. Svampur
Svampur Sveinsson og félagar eru
komnir með sína fyrstu bíómynd.
Með íslensku og ensku tali.
Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við
Indiana Jones og James Bond myndirnar.
Og þið sem hélduð að þetta væri bara einhver draugasaga
Bráðfjörug, spennandi og sprenghlægileg gamanmynd
með ofurtöffaranum Vin Diesel í aðalhlutverki!
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANÁLFABAKKI
Kvikmyndir.is
Frá þeim sem færðu okkur
Princess Diaries og Freaky Friday.
Sýningartímar
THE JACKET kl. 3.50 - 6 - 8.10 - 9.20 - 10.30 B.i. 16
THE JACKET VIP kl. 6 - 8.10 - 10.30 B.i. 16
SAHARA kl. 5.30- 8 - 10.30
ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8 - 10
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 8.10 - 10.30
MRS. CONGENIAL. 2 kl. 6
SAHARA kl. 6 - 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8
BOOGEY MAN kl. 10 B.i. 16.
THE PACIFIER kl. 4 - 8.30 - 10.30
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6
XXX 2 Kl. 6, 8 og 10
Svampur Sveinsson m/ísl.tali Kl. 6
In Good Company Kl. 8
Be Cool Kl. 10
Jacket kl. 8-10
SAHARA kl. 8
SVAMPUR SVEINSSON kl. 6
Les choristes kl. 6
The Motorcycle Diaries kl. 10.20
Ice Princess
Byggð á metsölubók Clive Cussler
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
Góð heilsa - Gulli betri
-fyrir útlitið
HEILSUBÚÐIN
NJÁLSGÖTU
Gómsætar og
ljúffengar
kökur frá
Næstum enginn sykur
Alvöru kökubragð
Engin rotvarnarefni
Engin litarefni
Enginn vandi að baka
Uppskriftir á
www.internet.is/novus
Sölua›ilar:
Hagkaup (Kringlunni,
Ei›istorgi, Akureyri) - Fjar›arkaup
Gripi› og greitt - Vöruval, Vestmannaeyjum
Nesbakki, Neskaupsta› - Samkaup, Egilsstö›um.
EITT umtalaðasta tónlistarfyr-
irbæri í heiminum í dag, Antony
and the Johnsons, heldur tónleika
hér á landi í júlí.
Verða tónleikarnir haldnir á Nasa
við Austurvöll 11. júlí en það munu
vera lokatónleikar Antony and the
Johnsons á tónleikaferð um Evrópu
sem nú stendur yfir.
Frá því að kanadíski tónlist-
armaðurinn Antony kom fram á
sjónarsviðið fyrir réttum átta árum
hefur hróður hans farið ört vaxandi.
Það var þó ekki fyrr en fyrir nokkr-
um mánuðum sem heimspressan
tók við sér fyrir alvöru eða um það
leyti sem nýjasta plata hans, I’m a
Bird Now, kom út í febrúar á þessu
ári. Fáar plötur sem út hafa komið
síðustu misseri hafa hlotið annað
eins lof og sú plata hefur fengið og
er talað um Antony and the
Johnsons sem eina stærstu
tónlistaruppgötvun ársins og að
platan muni vafalítið koma víða við
sögu á uppgjörslistum fyrir árið
2005.
Árni Matthíasson, poppskríbent á
Morgunblaðinu, sagði í umfjöllun
sinni og viðtali við Antony and the
Johnsons 30. janúar sl.: „[I am a
Bird Now] er með bestu plötum
sem rekið hefur á fjörur mínar und-
anfarin ár og þegar búin að koma
sér kirfilega fyrir á lista yfir plötur
ársins 2005, svo mikið er víst.“
Tónlistarstíll Antony liggur nærri
rótunum; blúsnum, djassinum, sál-
inni, en er samt þegar allt kemur til
alls aðgengilegt og tregablandið
kertaljósapopp eins og stundum er
kallað.
Á þessari marglofuðu nýju plötu
nýtur Antony aðstoðar listamanna –
og einlægra aðdáenda sinna – á
borð við Boy George, Devandra
Banhart, Rufus Wainwright og Lou
Reed en tveir síðastnefndu fengu
hann einmitt til að syngja á síðustu
plötum sínum Want Two og The
Raven.
Aðalsérkenni Antony er söngrödd
hans sem þykir alveg einstök en
henni hefur gjarnan verið líkt við
einhvers konar blöndu af Ninu
Simone og Brian Ferry.
I Am A Bird Now er önnur plata
Antony en fyrir fimm árum síðan
kom út frumburðurinn sem hét ein-
faldlega Antony and the Johnsons
og fékk góða dóma en merkilega
litla athygli.
Tónleikar Antony and The John-
sons þykja sjónarspil hið mesta
enda er Antony ekki síður skemmti-
kraftur en tónlistarmaður og kemur
hann gjarnan fram í „dragi“. Í text-
um sínum fjallar hann gjarnan á op-
inskáan og hæðinn máta um sam-
kynhneigð sína og þá fordóma og
hræsni sem blasir við honum og
hans líkum.
Antony er nú á tónleikaferð um
Bretland við mjög góðan orðstír. Á
dögunum steig á svið með honum í
Queen Elizabeth Hall í Lundúnum
einn hans helsti aðdáandi, söngv-
arinn Marc Almond, og tóku þeir
saman lagið, en þetta mun hafa ver-
ið í fyrsta sinn sem Almond kom
fram opinberlega eftir að hann lenti
í mótorhjólaslysi og slasaðist lífs-
hættulega á síðasta ári.
Það er Austur Þýskaland sem
stendur að tónleikum Antony and
The Johnsons á Íslandi. Miðasala
hefst föstudaginn 20. maí nk. kl. 10 í
verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg
og á midi.is.
Tónlist | Antony and the Johnsons halda eina tónleika á Nasa í júlí
Ein helsta tónlistar-
uppgötvun síðustu ára
Eftir Skarphéðin Guðmundsson
skarpi@mbl.is
Antony nýtur ört vaxandi hylli nú um mundir, bæði meðal almennings og
annarra listamanna, sem keppast um að fá að vinna með honum.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111