Morgunblaðið - 29.04.2005, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
EKKERT lát virðist ætla að verða á innflutningi nýrra bíla hingað til
lands og spilar hátt gengi krónunnar þar án efa stórt hlutverk. Gríð-
arleg aukning hefur orðið á innflutningi á jepplingum og pallbílum og
einnig á notuðum bílum, en margir eru farnir að kaupa sér bíla á net-
inu. Í fyrra jókst innflutningur á nýjum bílum um 20% og eru fáar vís-
bendingar um að hann fari minnkandi.
Á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík má sjá bíla-
breiðu sem bíður tollafgreiðslu áður en haldið er út á göturnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nóg af bílum?
LANGVARANDI deila sókn-
arprests Garðasóknar við
djákna, prest og formann og
varaformann sóknarnefndar hef-
ur valdið miklum sársauka, trún-
aðarbresti og vanda bæði meðal
starfsmanna kirkjunnar og sókn-
arbarna. Enginn gengur burt frá
þessum deilum óskaðaður og
mikilvægt er að deiluaðilar finni
farsæla lausn á vandanum eða
segi sig allir frá störfum ella.
Þetta kom fram í máli nokk-
urra sóknarbarna sem tóku til
máls á afar fjölmennum fundi
Garðasóknar, þar sem kynntar
voru niðurstöður úrskurðar-
nefndar Þjóðkirkjunnar í deilu-
málinu.
Ekki kristilegt
Í úrskurði nefndarinnar er
mælt með því að sr. Hans Mark-
ús Hafsteinsson verði færður til
í starfi. Fundurinn fór vel fram
og án mikilla átaka og ræddu
menn málið af yfirvegun.
Í upphafi fundar rakti
„Þetta er ömurlegt,“ sagði
Björn Ingólfsson, eitt sókn-
arbarna sem tók til máls. „Hvað
er að gerast í kirkjunni okkar?“
Björn sagðist trúa því að það
hlyti að vera hægt að finna far-
sæla lausn á málinu, en annars
þyrftu allir málsaðilar að segja
af sér og sóknin þyrfti að fá
tækifæri til að byrja upp á nýtt,
á ferskum grunni. „Hér eru
ásakanir og reiði, illska og full-
yrðingar um að sumir séu betri
menn en aðrir. Þetta er ekki
kristilegt.“
Rannveig Káradóttir sókn-
arbarn kvaðst hafa starfað mikið
innan sóknarinnar í æskulýðs-
starfi og hefði góða sögu að
segja af sr. Hans Markúsi.
Henni fyndist þó deilumálið ein-
kennast af því að sr. Hans
Markús bæri ekki hagsmuni
kirkjunnar fyrir brjósti, heldur
sína eigin. Sagði hún ljóst að all-
ir aðilar yrðu að teygja sig betur
í sáttaátt. „Ég skil vel að aldrei
geti orðið heimsfriður ef kirkj-
unnar fólk getur ekki unnið sam-
an í kærleika,“ sagði Rannveig
að lokum.
hann þegar hann var í framboði
til prests.
Í máli Matthíasar kom fram
að mjög fljótlega eftir að sr.
Hans Markús hóf störf hefði far-
ið að bera á margvíslegum sam-
skiptaörðugleikum milli hans og
starfsmanna við Garðasókn. Af
þessum sökum hefði hæft fólk
horfið frá störfum við sóknina.
Matthías Guðmundur Pétursson,
formaður sóknarnefndar, nið-
urstöðu úrskurðarnefndar, sem
fjallaði um langvarandi deilur og
ítrekaðar misheppnaðar tilraunir
til sáttagjörða. Sagði Matthías
þetta mál hið erfiðasta, enda
hefði vinátta þeirra Hans Mark-
úsar verið mikil og hann hefði
m.a. verið kosningastjóri fyrir
Deilan eyðileggjandi fyrir alla
Morgunblaðið/Þorkell
Elín Jóhannsdóttir, sóknarnefndarmaður í Bessastaðasókn, sr. Gunnar
Kristjánsson, prófastur Kjalarnesprófastsdæmis, og sr. Þorvaldur Karl
Helgason, biskupsritari og fulltrúi biskups á fundinum, fylgdust með
umræðum á sóknarfundi Garðasóknar.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
KAUPÞING banki hagnaðist um nær 11,1 millj-
arð króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins á
móti liðlega þremur milljörðum á sama tímabili í
fyrra en bankinn hefur tekið miklum breytingum
á sl. ári. Hagnaðurinn hefur aldrei verið meiri á
einum ársfjórðungi en bankinn hagnaðist að
meðaltali um liðlega 123 milljónir á hverjum degi
á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hagnaður
Kaupþings banka er mjög í takt við afkomuspár
bæði Landsbankans og Íslandsbanka.
Hreinar rekstrartekjur Kaupþings banka voru
breytanlegs skuldabréfs í Bakkavör Group auk
þess sem töluverður gengishagnaður var af
markaðsviðskiptum.
Aðrar tekjur námu 3,5 milljörðum króna á móti
138 milljónum í fyrra og er sú aukning að lang-
stærstu leyti til komin vegna söluhagnaðar sem
myndaðist við sölu bankans á dótturfélaginu Lýs-
ingu nú í febrúar.
Arðsemi eigin fjár bankans eftir skatta var lið-
lega 33% á móti rúmum 29% á fyrsta ársfjórð-
ungi í fyrra.
21,8 milljarðar króna á móti 9,6 milljörðum á
sama tíma í fyrra. Þar af jukust vaxtatekjur
bankans um nærri 3,5 milljarða og losuðu sjö
milljarða og þóknanatekjur jukust úr 3,2 millj-
örðum í 4,4 milljarða.
Meiri gengishagnaður
Mikið munar um aukinn gengishagnað bank-
ans, hann nam 2,7 milljörðum fyrstu þrjá mán-
uðina í fyrra en 6,8 milljörðum á sama tímabili í
ár. Um helming gengishagnaðarins má rekja til
Kaupþing banki búinn að
hagnast um 11,1 milljarð
SUNDABRAUT verður boðin út síðla árs
2007 ef allt gengur að óskum. Þetta kom
fram í ræðu Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra á borg-
arafundi á Akranesi um
samgöngumál.
Sturla sagði m.a. að
enn væri beðið úrskurð-
ar umhverfisráðherra og
niðurstöðu Reykjavík-
urborgar hvað varðar
veglínu Sundabrautar,
hvort heimilað verði að
fara svonefnda innri leið.
„Þegar Reykjavíkur-
borg hefur tekið afstöðu til veglínu verður
hægt að setja af stað vinnu við að verk-
hanna brautina. Sérfræðingar telja að sú
vinna mundi taka tvö til tvö og hálft ár.
Þegar verkhönnun er lokið verður verkið
boðið út,“ sagði Sturla. Hann sagði ljóst að
Sundabraut yrði ekki að veruleika nema til
kæmi sérstök fjármögnun utan hefðbund-
innar tekjuöflunar Vegasjóðs.
Meðal mikilvægra framtíðarverkefna í
samgöngumálum Vesturlands nefndi Sturla
nýjan veg um Grunnafjörð og færslu þjóð-
vegar 1 vestur fyrir Akrafjall og nýja leið
um Hafnarmela. Sturla sagði að nýr vegur
um Grunnafjörð stytti hringveginn aðeins
um einn km en mun styttra verði á milli
Akraness og Borgarness en nú er. Þá muni
nýja veglínan að öllum líkindum liggja um
svæði þar sem er veðursælla en á núverandi
vegarstæði. „Því tel ég eðlilegt að í lang-
tímaáætlun verði þessi leið skoðuð að nýju í
þeim tilgangi að stytta leiðir milli þjónustu-
svæðanna á Akranesi og Borgarnesi, sem
munu vaxa saman sem samfelld byggð í
tímans rás,“ sagði Sturla.
Sundabraut
boðin út
árið 2007
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Sturla Böðvarsson
HAUKAR tryggðu sér Íslandsmeist-
aratitilinn í 1. deild kvenna í handknatt-
leik í gær er liðið lagði ÍBV frá Vest-
mannaeyjum í þriðja sinn í röð í
úrslitakeppni DHL-deildarinnar. Loka-
tölur voru 26:23. ÍBV hafði titil að verja
en Hafnarfjarðarliðið var sterkara að
þessu sinni. „Eins og staðan er í dag er-
um við með langbesta liðið og sýndum
það svo sannarlega og sönnuðum í
kvöld,“ sagði Hanna Gréta Stefánsdóttir,
leikmaður Hauka, en hún skoraði 9 mörk
í leiknum.
Haukaliðið tapaði ekki leik í úr-
slitakeppninni og á leiktíðinni tapaði lið-
ið ekki á heimavelli á Ásvöllum. / C2
Haukar fögn-
uðu titlinum
Morgunblaðið/Þorkell
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, lyftir Ís-
landsbikarnum á loft.