Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 1
„ÉG MUN aldrei geta fullþakkað læknunum
sem framkvæmdu aðgerðina á syni mínum.
Hann hefur nú fengið nýja byrjun í lífinu og ég
hef orðið vitni að algjörri umbreytingu á honum
þar sem hann hefur endurheimt gleði sína og
sjálfstraust,“ segir Maggý Fe Bacolod, móðir
hins fimmtán ára gamla Erwins Jóns Bacolod,
sem í vetur fór í mjög flókna skurðaðgerð á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Mæðginin
fluttust hingað til lands frá Filippseyjum fyrir
fimm árum.
Aðgerðin er ein umfangsmesta lýtaaðgerð
sem framkvæmd hefur verið á spítalanum.
Fjarlægja þurfti meðfæddan heilagúl, sem
þrýstist út um gat á höfuðkúpunni milli augn-
anna. Til þess að þetta væri mögulegt varð að
taka höfuðkúpu Erwins í sundur en fyrst var
höfuðleðrinu og andlitshúðinni flett af. Með því
móti var að mestu hægt að komast hjá skurðum
í andliti hans. Þegar búið var að fjarlægja heila-
gúlinn voru augun færð saman og búið til nýtt
nef á Erwin. Aðgerðin tók sex klukkustundir og
að henni komu fimm skurðlæknar. Þar af þrír
íslenskir og tveir frá Bandaríkjunum.
Ian T. Jackson, skoskur lýtalæknir sem starf-
ar í Michigan í Bandaríkjunum og hefur sér-
hæft sig í sundurhlutun og enduruppbyggingu
höfuðkúpunnar, var sérstaklega fenginn hingað
til lands til að hjálpa til við aðgerðina ásamt ís-
lenskum sérfræðingum, auk svæfingalækna.
Áður höfðu sérfræðingar lýtalækninga- og
brunadeildar LSH leitað samstarfs við aðra út-
lenda sérfræðinga en án árangurs. Var m.a. leit-
að til Svíþjóðar, en þar treystu menn sér ekki til
að framkvæma jafnviðamikla og flókna aðgerð.
Höfuðkúpan tekin í sundur
Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækninga-
og brunadeild LSH, segir aðgerðina hafa
heppnast mjög vel. Hún hófst á því að höfuð-
leðrinu ásamt efsta hluta andlits var flett frá
höfuðkúpunni. Fremsti hluti höfuðkúpunnar
var svo tekinn burt til að hægt væri að einangra
heilagúlinn og fjarlægja hann en gúllinn reynd-
ist vera óstarfhæfur vefur. Þá voru augntóft-
irnar sundurhlutaðar og færðar saman og búið
til nýtt nef með beinplötu, sem tekin var úr höf-
uðkúpunni sjálfri. Höfuðkúpunni, ásamt augn-
tóftum og nefbeini var síðan raðað saman og
fest með títanskrúfum. Að síðustu var and-
litshúð og höfuðleður sett yfir að nýju. Þar með
var aðgerðinni lokið. Greru beinin síðan líkt og
um beinbrot væri að ræða.
Í dag hefur göngu sína í Morgunblaðinu
greinaflokkur um Landspítala – háskólasjúkra-
hús. Frá því sjúkrahúsin í Reykjavík voru sam-
einuð fyrir fimm árum hefur margt áunnist í
rekstrinum. En aukaverkanir sameiningar eru
engu að síður fyrir hendi eins og rakið verður á
síðum blaðsins á næstu dögum.
Umfangsmikil lýtaaðgerð framkvæmd á fimmtán ára dreng á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
Heilagúllinn var áber-
andi í andliti Erwins.
Búið var til nýtt nef í
velheppnaðri aðgerð.
Aron
Björnsson
„Felur í sér algjöra umbreytingu“
Jens
Kjartansson
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
og Silju Björk Huldudóttur
Spítali í spennitreyju | 10-17
STOFNAÐ 1913 157. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Bræðralagið
Africa-United
Í fjölþjóðlegasta knattspyrnuliði
landsins er vináttan í fyrirrúmi | 18
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Heimur hótelsins Stjörnum prýddir gististaðir
Umgjörð og innblástur Atvinna | Atvinnuleysi algengast með-
al ungra Könnun á rafrænum skjalavörslukerfum ríkisstofnana
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
Aðgerðin tók sex klukkustundir og hana
framkvæmdu fimm skurðlæknar; lýtalækn-
arnir Jens Kjartansson, Ólafur J. Einarsson,
Ian T. Jackson, Jeffrey S. Topf og heila- og
taugaskurðlæknirinn Aron Björnsson.
Íslensku læknarnir
Peking. AFP. AP. | Að minnsta kosti
64 biðu bana, þar á meðal 62 skóla-
börn, þegar skyndilegir vatnavextir
ollu því að flóðbylgja skall á grunn-
skóla í Heilongjiang-héraði í norð-
austurhluta Kína á föstudag. Í
fyrstu var talið að 29 hefðu farist, en
í gær varð ljóst að tala látinna var
mun hærri.
352 nemendur á aldrinum sex til
fjórtán ára og 31 kennari voru í skól-
anum þegar flóðið skall á honum. Að
minnsta kosti 455 manns hafa beðið
bana í flóðum og skriðum í Kína frá
því í byrjun maí, þegar árleg rign-
ingartíð hófst í landinu. Ár hvert
deyja þúsundir Kínverja af völdum
rigninga og flóða og hafa yfirvöld í
landinu varað við því að veðurfarið í
ár verði líklega verra en í meðalári.
64 fórust
í flóði
í skóla
London. AFP. | Bretar lifa nú leng-
ur en forfeðurnir vegna framfara
í læknavísindum og betri lífs-
hátta á mörgum sviðum. En
gæludýrin þeirra lifa líka lengur
og útgjöld eigendanna vegna
læknisaðgerða og lyfja handa
þeim vaxa stöðugt.
Tryggingafélagið More Than
hefur látið kanna málið og segir
að algengt sé orðið að hundar og
kettir verði hátt í tveggja ára-
tuga gamlir sem svarar til þess
að manneskja verði allt að 100
ára. Eigendur eru orðnir meðvit-
aðir um að dýrin þurfa að fá
nægilega hreyfingu og passa
þarf mataræðið svo að þau
hlaupi ekki í spik. En mestu
skiptir að dýralæknar ráða nú
yfir margvíslegum búnaði til að
tryggja gæludýrunum lengra líf.
Beitt er ómskoðun til að greina
krabbamein, gigt eða hjarta- eða
nýrnagalla. Eigandinn getur
þurft að greiða 500 pund, nær 60
þúsund krónur, á ári fyrir gigt-
armeðferð handa dýrinu. Með-
ferð vegna hjartakvilla getur
verið mun dýrari.
Rannsóknin leiddi í ljós að
margir gæludýraeigendur geta
vel hugsað sér að láta sjúkra-
þjálfara og hómópata sinna öldr-
uðu dýri, einnig að beitt sé leysi-
geislameðferð.
Gæludýrin lifa lengur líkt og eigendurnir
GOLFARAR fá oft „örn“ eða „skolla“ þegar leik-
ið er en það telst til tíðinda að þeir fái sér kríu á
golfvellinum. Þessar kríur, sem tylltu sér niður á
staur á golfvellinum á Seltjarnarnesi, hafa ef-
laust borið saman bækur sínar og skipst á sögum
af heimshornaflakki sínu en krían er farfugl á Ís-
landi eins og í öllum öðrum varpheimkynnum
sínum og færir sig með árstíðunum, heimskaut-
anna á milli.
Morgunblaðið/Ómar
Kríur spjalla
á golfvellinum
Ólafur
Einarsson
London. AFP. | Fjármálaráðherrar
átta helstu iðnríkja heims (G-8
ríkjanna) náðu í gær ramma-
samkomulagi um að fella niður
skuldir 18 af fátækustu ríkjum
heims. Samkomulagið nemur millj-
örðum Bandaríkjadollara en ekki
hefur verið gengið frá öllum atriðum
varðandi útfærslu þess. Fjár-
málaráðherrarnir héldu fundi í
London í gær og á föstudag til að
undirbúa leiðtogafund G-8 ríkjanna
sem verður haldinn í Skotlandi í
næsta mánuði. Þar verður vandi þró-
unarríkja efst á baugi. | 20
G-8 ríki
aflétta
skuldum
♦♦♦