Morgunblaðið - 12.06.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 11
nýs sjúkrahúss á lóð LSH. Átján
hópar hönnuða sýndu áhuga á að
taka þátt. Úr þeim voru valdir sjö til
að keppa til úrslita. Í byrjun október
tilkynnir dómnefnd, sem Ingibjörg
Pálmadóttir fer fyrir, bestu lausnina.
Ekki liggur enn fyrir hvernig
byggingin verður fjármögnuð. Ýms-
ar hugmyndir hafa verið reifaðar.
T.d. að einstaka hlutar spítalans
verði byggðir í einkaframkvæmd og
að nota fjármuni af sölu ríkiseigna,
t.d. Símans, eins og fyrr segir. Fyrir
liggur áætlun um það að bygging nýs
spítala við Hringbraut muni kosta 36
milljarða króna. „Það er ekki búið að
ráðstafa hagnaði af sölu Símans, en
sú vinna stendur fyrir dyrum þegar
ljóst verður hver hagnaðurinn er,“
segir Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra.
Munu línurnar væntanlega skýr-
ast í sumar hvað það varðar, að sögn
ráðherra. „Það verður líka að ákveða
hvenær við viljum setja slíka stór-
framkvæmd inn í efnahagskerfið. Ég
vona að ákvarðanir um það verði
teknar sem fyrst.“
Bygging nýja sjúkrahússins á sér
langan aðdraganda. Fyrir liggur
mikið undirbúningsstarf og fjöldi
undirbúningsgagna. Að skipulags-
samkeppni lokinni verður hægt að
ráðast í frekari skipulags- og hönn-
unarvinnu og síðan byggingarfram-
kvæmdir. Miðað við þann tíma-
ramma sem settur hefur verið
verður ákvörðun ríkisvaldsins um
fjármögnun að liggja fyrir haustið
2006 til að framkvæmdir geti hafist
sumarið 2008. 5–10 ár mun þaðan í
frá taka að byggja nýja spítalann.
Í kjölfar sameiningar
Þegar ákveðið hafði verið að sam-
eina sjúkrahúsin í Reykjavík var
skipuð stjórnarnefnd sem heyrir
undir heilbrigðisráðherra. Var
Magnús Pétursson, sem áður hafði
verið ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, ráðinn forstjóri. Búið
var til nýtt stjórnskipurit og ákveðið
að fimm framkvæmdastjórar, ásamt
forstjóra, myndu skipa fram-
kvæmdastjórn spítalans. Fram-
kvæmdastjórarnir tóku til starfa í
maí 2000 og voru ráðnir til fimm ára.
Verksvið þeirra eru: Fjárreiður og
upplýsingar, umsýsla tækni og
eigna, skipulag kennslu, vísinda og
þróunar, stjórnun hjúkrunar og
stjórnun lækninga. Talsverð breyt-
ing varð einnig á klínísku skipulagi
spítalans. Hún skiptist nú í fjórtán
stjórnunarlegar einingar eða svið og
stýra þeim að jafnaði tveir sviðs-
stjórar, læknir og hjúkrunarfræð-
ingur. Á þessum sviðum eru 38 sér-
greinar í læknisfræði og 62
legudeildir.
Skrifstofur spítalans, þar sem
fram fer önnur starfsemi en klínísk
þjónusta, skiptist einnig í svið. Sviðs-
stjórar eru valdir úr röðum starfs-
manna til fjögurra ára í senn. Hefur
það fyrirkomulag verið gagnrýnt
eins og síðar verður komið inn á. Þá
var ákveðið að sameina sérgreinar,
hverja fyrir sig, og koma þeim fyrir í
húsnæði spítalans eftir því sem best
hentaði út frá eðli starfseminnar.
Sameiningu sérgreina fylgdi tilflutn-
ingur deilda og val nýrra yfirmanna.
Er sú vinna að mestu leyti að baki.
Stjórnendur LSH líta svo á að hag-
ræðing hafi náðst í mönnun með
sameiningu sérgreinanna. Vaktlín-
um á spítalanum hafi fækkað og yfir-
mönnum sömuleiðis um 60–70 sem
m.a. gerðist þegar heilt stjórnunar-
lag, forstöðulæknar og fram-
kvæmdastjórar hjúkrunar, var lagt
niður. Var verkefnum þeirra deilt á
sviðsstjóra, deildarstjóra hjúkrunar
og yfirlækna í kjölfarið.
Gagnrýni Ríkisendurskoðunar
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
árangur sameiningar sjúkrahúsanna
í Reykjavík sem kom út árið 2003,
kom m.a. fram að kostnaðarlega hafi
sameiningin ekki skilað ávinningi en
faglega séð hafi hún styrkt spítal-
ann. Þá kom fram að stjórnvöld
þyrftu að leggja skýrari línur um það
hvernig sjúkrahús LSH væri ætlað
að vera í framtíðinni. Í skýrslunni
var m.a. gagnrýnt að við upphaf
sameiningar hafi ekki legið fyrir
nein heildarstefnumörkun fyrir hið
nýja sjúkrahús og engin skýr eða
mælanleg markmið sett fram um
þann árangur sem átti að ná. Yfirlýst
markmið hafi verið „að skila öflugri
stofnun sem veitti markvissari og
hagkvæmari þjónustu til hagsbóta
fyrir skjólstæðinga sína“. Sú fram-
tíðarsýn hafi verið of óljós til að geta
verið sá leiðarvísir sem þurfti til að
byggja upp svo margbrotna stofnun
sem LSH er.
„Ég sagði aldrei að við myndum
spara peninga á því að sameina spít-
alana, en ég hef sagt að útgjöldin
myndu ekki aukast eins mikið eins
og þau gerðu ár frá ári ef við sam-
einum,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir.
„Við munum nýta betur peningana
sem við fáum og útgjöldin aukast
ekki eins hratt.“
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að með sameiningu
treyju
Nýr spítali mun rísa við Hringbraut
Byggingarlóð Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut er tæplega 175 þúsund fermetrar. Hún afmarkast að norðan af Eiríksgötu, Barónsstíg og gömlu Hringbraut
og að sunnan af nýrri Hringbraut. Á lóðinni mega Landspítali og Háskóli Íslands vera með byggingar upp á 170 þúsund fermetra.