Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 21 F ólk er áhyggjufullt. Ég óttast hvað tekur við,“ stendur svörtum stöfum á tölvuskján- um fyrir framan mig. Þetta er bréf frá eþí- ópískum vini mínum, móttekið rétt fyrir helgi. Ég stend upp frá tölvunni, geng að opnum glugganum og dreg að mér ferskt kvöldloftið. Sól er enn á lofti. Þetta er sama sól og skín yfir fé- laga mínum. Í Eþíópíu er hins vegar komin nótt og þar eru blikur á lofti. „Það er fullt af hermönnum og lög- reglumönnum í bænum og ég hef séð alls kyns byssur sem ég hafði aðeins séð í sjónvarpinu áður,“ suðar fyrir eyrum mér og ég legg ennið að rúð- unni. Á einu augabragði er ég komin mörg þúsund kílómetra suður á bóg- inn. Ég og félagi minn stígum út úr rútu eftir eins og hálfs dags ferðalag. Stundum var vegurinn góður en stundum einungis moldarslóði. Við lentum í úrhelli á leiðinni og það rigndi inn í beyglaða rútuna. Þrátt fyrir að vera skítug upp fyrir haus er- um við kampakát, enda komin í heimabæ vinar míns, Bahir Dar. Þar bíða fjölskylda hans og félagar bros- andi út að eyrum. Valdataka árið 1991 Bahir Dar er yndislegur staður og þar á ég góða daga. Ég sigli á speg- ilsléttu vatni, sit í skugganum undir pálmatrjám, skoða gömul klaustur, virði fyrir mér falleg fjöll og drekk kaffi með stórfjölskyldunni. Við ríf- umst um hvort Arsenal eða Man- chester United sé betra lið og allir biðja að heilsa til Íslands. „Þar hlýtur að vera kalt,“ segir móðirin á heimilinu og skenkir mér kaffi í pínulítinn bolla. Í hann sigla einnig tvær kúffull- ar skeiðar af sykri. „En sonur minn sagði mér að þar væri friðsælt. Hérna er líka friður. Eþíópía hefur kannski ýmis vandamál en ófriður hefur ekki verið eitt þeirra í langan tíma,“ bætir hún við. Ég kinka kolli. Derg-stjórninni svokölluðu var steypt af stóli fyrir að verða fimmtán árum og Meles nokk- ur Zenawi tók völdin. Hann varð for- sætisráðherra og er enn í dag. Fyrir nokkrum árum háði stjórn hans blóð- ugt stríð gegn Erítreu en það átti sér fyrst og fremst stað uppi við landa- mæri ríkjanna tveggja. Eþíópíubúar hafa almennt lifað við frið í mörg ár. Það er öruggt að ferðast um Eþíópíu og landið er heillandi. „Innst inni held ég að þú hafir talið Eþíópíu vera samsafn vandamála. Nú veistu betur,“ segir vinur minn grallaralegur þegar ég held til Kenýa eftir tveggja mánaða dvöl í landinu. Á þriðja tug borgara skotinn Þar sem ég geng niður Hverfisgöt- una og skoða útsölutilboð í Kringl- unni í júnímánuði á Íslandi, er skrýt- ið til þess að hugsa að vinur minn virði fyrir sér vopn í Eþíópíu. Hann er jafnóvanur vígtólum og ég sjálf. Hann átti ekki von á því sem gerðist í vikunni og ég ekki heldur. Lögreglan og herinn skutu á þriðja tug borgara á miðvikudag, mest stúdenta. Fólkið mótmælti yfirvöldum og sakaði þau um að ætla að falsa úrslit kosning- anna sem haldnar voru 15. maí. Sum- ir mótmæltu ekki einu sinni en voru engu að síður skotnir. Skotin dundu meðal annars uppi við Merkato, aðal- markaðinn í höfuðborginni Addis Ababa. Á íslensku sumarkvöldi strýk ég fingri yfir kaffibolla úr leir sem ég keypti á Merkato og minnist vinalega mannsins sem seldi mér hann. Hann vildi nýja ríkisstjórn en átti ekki von á breytingum. „Þessi mun sko ekki afsala sér völdum svo auðveldlega,“ sagði mað- urinn. Stjórnin sökuð um kosningasvindl Sumir segja fyrri kosningar eftir að stjórnin tók völdin, frekar hafa verið upp á punt en nokkuð annað. Ríkisstjórnin sækir fylgi sitt til landsbyggðarinnar, þar sem 80% landsmanna búa og kjósendur þekkja fáa eða enga aðra frambjóð- endur. Stjórnarandstaðan fullyrðir að hún hafi litla möguleika á að koma boðskap sínum til landsbyggðarfólks. Dagblöð fara lítið út á land og stór hluti fólks er ólæs. Útvarpsstöðin er ríkisrekin og að margra viti málgagn stjórnarinnar. Tæpum mánuði eftir kosningarnar nú í vor liggja úrslit ekki enn fyrir. Ríkisstjórnin lýsti því reyndar yfir tveimur dögum eftir kosningar, áður en talningu var lokið, að hún hefði unnið. Hún viðurkenndi að stjórnarandstað- an hefði unnið stórsigur í höfuð- borginni en sagði það einfaldlega ekki nóg. Stjórn- arandstaðan ásakaði stjórnina um kosninga- svindl. Endanleg úrslit áttu að liggja fyrir 8. júní en vegna ásakana um svindl hefur þeim verið seinkað um heilan mánuð, til 8. júlí. Kunningjakona mín frá Addis Ababa var æf þegar hún skrifaði tölvupóst í gær: „Eftir kosningarnar bannaði for- sætisráðherrann öll mótmæli á göt- um úti. Bannaði það bara sisvona. Eins og ekkert sé er bara tekinn af fólki réttur þess. Þeir sem þekkja lögin vel segja að forsætisráðherrann megi ekki gera þetta,“ sagði hún. „Fólk er auðvitað mjög reitt út af þessu,“ skrifaði annar félagi minn. Óvíst er hvað tekur við Í júnímánuði á Íslandi handfjatla ég útprent af bréfunum að utan og minnist umræðna á veitingahúsum og samtala í rútuferðum og fallegu landslagi. „Af hverju halda svona margir að Eþíópía sé bara hungursneyð og stríð?“ var ég spurð aftur og aftur. „Nú, þetta er það sem við heyrum af,“ svaraði ég. „Er þetta ekki eðli fréttaflutnings? Þið heyrið ekki frá Íslandi nema ef eitthvað markvert gerist og þá er það oftast eitthvað slæmt – snjóflóð, jarðskjálfti eða álíka.“ Nú er loft lævi blandið víða í Eþíóp- íu og það er markvert. Óvíst er hvað gerist. Stúdentar létu sér ekki segj- ast, þótt mótmæli væru bönnuð. Mun fólk sætta sig við líklegustu niður- stöðu kjörstjórnarinnar í byrjun júlí, þá að stjórnin haldi velli? Eftir at- burði liðinnar viku liggja viðskipti og almenningssamgöngur niðri í höfuð- borginni og óánægjan breiðist út. Mótmæli og skotárásir í Eþíópíu árið 2005 eru stórfrétt. Stórfréttir brenna sig inn í vitund okkar þannig að löngu síðar munum við enn eftir þeim. Hugmyndum um stórfréttir verður ekki auðveldlega breytt. 20 árum eftir hungursneyðina frægu ár- ið 1985 tengjum við Eþíópíu enn við sársvöng börn. „Ég óttast hvað tekur við“ Fyrir tæpum mánuði voru kosningar í Eþíópíu. Úrslit liggja ekki enn ljós fyrir, mótmæli hafa brotist út og staðan er tvísýn. Sigríður Víðis Jónsdóttir var í Eþíópíu fyrir stuttu og velti fyrir sér málum. sigridurv@mbl.is Morgunblaðið/Sigríður Víðis Jónsdóttir Skólastúlkur úti á landi. Flestir Eþíópíubúar lifa á landsbyggðinni. Þangað sækir ríkisstjórnin fylgi sitt. AP Í Eþíópíu skarst í odda í vikunni þegar að minnsta kosti tuttugu og sex borgarar voru skotnir til bana. Þeir höfðu mót- mælt yfirvöldum og sakað þau um að falsa úrslit kosninganna 15. maí, en endanleg úrslit þeirra hafa enn ekki verið birt. ’Það er fullt af her-mönnum og lög- reglumönnum í bænum og ég hef séð alls kyns byssur sem ég hafði aðeins séð í sjónvarpinu áður.‘ Borgarholtsskóli Innritun nemenda úr grunnskóla á haustönn 2005 stendur yfir og lýkur 14. júní Í boði eru eftirtaldar námsbrautir: Nánari upplýsingar um einstakar námsbrautir eru á heimasíðu. Borgarholtsskóli v/Mosaveg, 112 Reykjavík, sími 535 1700, bréfasími 535 1701. Sjá nánar á heimasíðu: www.bhs.is Bóknám til stúdentsprófs: • Félagsfræðabraut • Málabraut • Náttúrufræðabraut Iðnnám: • Grunndeild bíliðna • Fyrrihlutanám í málmiðnum Listnám: • Margmiðlunarhönnun, grafísk áhersla • Margmiðlunarhönnun, fjölmiðlatækni Annað starfsnám: • Félagsliðabraut, námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum • Verslunarbraut Almenn námsbraut er einnig í boði fyrir þá nemendur sem ekki standast inntökuskilyrði annarra námsbrauta. Opið hús verður í skólanum 13. og 14. júní frá kl. 11-18 þar sem kynnt verður það nám sem er í boði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.