Morgunblaðið - 12.06.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 41
AUÐLESIÐ EFNI
MIKIL spenna er í Addis Ababa, höfuð-
borg Eþíópíu, þar sem 26 stjórnar-and-
stæðingar voru skotnir til bana á mið-
viku-daginn.
Forsætis-ráðherra landsins Meles Ze-
nawi bannaði öll mót-mæli eftir kosn-
ingar í síðasta mánuði, en stjórnar-and-
stæðingar í mið-borginni saka yfir-völd
um að ætla að falsa úr-slit kosninga.
Sér-sveitir yfir-valda fara um göturnar,
ógnandi með vél-byssur að vopni. Þær
leita að stjórnar-and-stæðingum og
hand-taka þá. Ragnar Schram, kristni-
boði í Addis Ababa segist hafa heyrt sög-
ur af því að fólki sé mis-þyrmt og jafnvel
bútað í sundur. Allir borgar-búar eru
hræddir og sam-félagið alger-lega lam-
að.
REUTERS
Eþíópískar konur harma fallna ættingja.
Mót-mælendur
skotnir
SÖNG-KONAN Emilíana Torrini ætlar að
halda tón-leika á Íslandi ásamt hljóm-
sveit sinni í lok júlí. Söng-konan mun
spila og syngja víða um
land frá 20. júlí til 1.
ágúst.
Síðasta plata Emil-
íönu, Fisherman’s Wife,
hefur gengið mjög vel og
þegar selst í yfir 5 þús-
und ein-tökum hér á landi
– sem þýðir að hún fær gull-plötu.
Emilíana er þessa dagana stödd í
hljóm-leikaferð um Banda-ríkin, og síðan
leikur hún á Glaston-bury-hátíðinni í Eng-
landi.
Emilíana syngur
á Íslandi
Í ÁGÚST verður banda-rísk stór-mynd tek-
in upp á Íslandi. Myndinni verður leik-
stýrt af stór-stjörnunni Clint East-wood,
en með-fram-leiðandi hans er enginn
annar er Steven Spiel-berg.
Íslenska fram-leiðslu-fyrirtækið True
North mun aðstoða þá við upp-tökurnar
hér á landi, en þær hefjast 12. ágúst og
lýkur í september. Töku-staðir hafa ekki
verið ákveðnir, en East-wood og Spiel-
berg völdu Ísland vegna allra þeirra
svörtu stranda sem hér eru.
Myndin mun heita Flags of our Fathers
og fjalla um einn frægasta bar-daga
seinni heims-styrj-aldarinnar á eyjunni
Iwo Jima í Kyrra-hafi.
Eastwood við upp-tökur á óskars-verð-
launa-myndinni Million Dollar Baby.
Clint kemur
ÍSLAND vann Möltu, 4:1, í
undan-keppni heims-
meistara-mótsins í knatt-
spyrnu karla. Leikurinn fór
fram á Laugardals-velli á
miðvikudaginn. Gunnar
Heiðar Þorvaldsson, Eiður
Smári Guðjohnsen, Tryggvi
Guðmundsson og Veigar
Páll Gunnarsson skoruðu
mörkin. Þetta var fyrsti sig-
ur Íslands í undan-
keppninni að þessu sinni,
en nú eru 7 leikir þegar
búnir. Um síðustu helgi
tapaði íslenska lands-liðið
fyrir Ung-verjum, 3:2, í
sömu keppni á Laug-
ardals-velli. Íslenska
lands-liðið í knatt-spyrnu
hefur seinustu mánuði
verið mikið gagn-rýnt og
því var sigurinn kærkom-
inn og mikill léttir.
Ísland
vann!
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eiður Smári Guðjohnsen
fyrir-liði í leiknum á móti
Möltu.
VALA Flosadóttir, sem
vann brons-verð-laun í
stangar-stökki á Ólympíu-
leikunum í Sydney árið
2000, hefur ákveðið að
hætta að æfa og keppa í
stangar-stökki.
„Á síðustu árum hef ég
vonast til að geta stokkið
hærra og á stundum þykir
mér að ég hefði getað gert
betur,“ segir Vala, og bæt-
ir við að sú hugsun eða til-
finning sé samt ekki nóg
til þess hún að haldi
áfram að æfa þar sem
hún finnur ekki lengur
ánægju af íþróttinni.
„Ég veit ekki hvort ég
var að leggja stund á
stangar-stökk fyrir aðra
síðustu ár, en því miður
þá er ljóst að ég var ekki
að æfa og keppa fyrir
sjálfa mig og þegar svo er
komið er senni-lega best
að hætta,“ segir Vala
Flosadóttir, eins mesta
frjáls-íþrótta-stjarna sem
Íslendingar hafa átt.
Vala
hættir
Morgunblaðið/Sverrir
Völu þótti bronsið gott í
Sydney árið 2000.
GERA þarf nýtt umhverfis-mat
vegna álvers Alcoa í Reyðar-firði,
sam-kvæmt dómi Hæsta-réttar í
vikunni.
Sigríður Anna Þórðardóttir um-
hverfis-ráðherra telur ekki að
dómurinn þýði að Alcoa verði að
fresta byggingu ál-versins í Reyð-
ar-firði. Hún segir að ekki sé ljóst
hvenær matið verði tilbúið.
Tómas Már Sigurðsson, fram-
kvæmda-stjóri Alcoa Fjarða-áls
sf., segir að niður-staða Hæsta-
réttar komi sér á óvart. Fram-
kvæmdir séu enn í gangi og undir-
búningur fyrir nýtt umhverfis-mati
hafinn.
Nýtt um-
hverfis-mat
vegna ál-
versins
UM-FERÐAR-RÁÐ fundaði í vikunni.
Það skorar á öku-menn að aka var-
lega nú þegar sumarið er komið og
um-ferðin á vegum landsins eykst.
Og minnir einnig á að öku-menn þurfi
að haga sér eins og þeir vilji að aðrir
hagi sér í um-ferðinni
Einar Rúnar Einarsson er sam-
mála þessu, en hann hefur verið að
jafna sig eftir hræð-ilegt bíl-slys und-
an-farið hálft ár. Bíll hans lenti fram-
an á flutninga-bíl í brekkunni við Litlu
kaffi-stofuna. Einar var heppinn að
lifa slysið af, en á hverju sumri láta
að meðal-tali 8 manns lífið í um-
ferðar-slysum.
Einar segir að öku-menn verði að
vera skyn-samir og taka ekki óþarfa
áhættu, eins og að flýta sér of mikið.
„Ég sýp hveljur stundum þegar ég
sé framúr-akstur fyrir framan mig, ég
veit hvernig það er að lenda framan á
bíl,“ segir Einar sem verður aldrei
samur eftir slysið sem hann hugsar
um dag-lega enda finnur hann alltaf
til.
Morgunblaðið/RAX
Einar Rúnar ásamt eigin-konunni
Guðbjörgu Emmu, dætrunum Berg-
lindi Ósk og Guðrúnu Ósk, og tíkinni
Millý sem var með honum í bílnum
þegar slysið varð.
Ökum var-lega
CLEMEN-TINA Cantoni er 32 ára
ítölsk kona sem haldið hefur verið
í gíslingu í Afgan-istan í meira en
3 vikur. Henni hefur loksins verið
sleppt og hún kom heim á föstu-
daginn með foreldrum sínum sem
fóru til Kabúl, höfuð-borgar Afgan-
istan, til að sækja dóttur sína.
hafi verið greitt lausnar-gjald fyrir
hana.
Málið hefur vakið hræðslu með-
al erlendra hjálpar-starfs-manna í
Afgan-istan, og mikla athygli á Ítal-
íu. Þar var ákaft fagnað þegar Cle-
men-tinu var sleppt og hún er við
góða heilsu.
Clemen-tina vinnur fyrir hjálpar-
sam-tökin CARE við að að-stoða
ekkjur og börn þeirra við að finna
mat og vinnu.
Henni var rænt 16. maí af
glæpa-gengi og var mikil sam-
staða í Afgan-istan um að hún yrði
frelsuð. Ráða-menn segja að ekki
REUTERS
Clementina Cantoni spjallar við ítalska forsætis-ráðherrann Silvio Berlusconi eftir komuna.
Cantoni frelsuð