Morgunblaðið - 12.06.2005, Side 48
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
KALVIN! HVAÐA HÁVAÐI ER
ÞETTA? ÞÚ ÁTT AÐ VERA
FARINN AÐ SOFA!
ÞAÐ ERU SKRÍMSLI UNDIR
RÚMINU MÍNU PABBI! ÉG
VAR AÐ BERJA EITT MEÐ
KYLFUNNI MINNI
ÞETTA ER EKKI SKRÍMSLI.
ÞETTA ER TÍGRISDÝRIÐ ÞITT,
HANN HOBBES
ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÉG
HITTI EKKI ALLTAF
JÁ... LEYFÐU
MÉR AÐ SJÁ
KYLFUNA ÞÍNA
© DARGAUD
Bubbi og Billi
ÉG GET EKKI SOFNAÐ. EF
ÉG GÆTI BARA FENGIÐ
AÐ HORFA Á SJÓNVARPIÐ
NEI...
VOFF!
BLESSAÐUR VINUR
MINN! ERTU ENNÞÁ
VAKANDI?
ÉG SKIL. ÞÉR LEIÐIST OG ÞIG LANGAR TIL ÞESS AÐ HORFA Á
SJÓNVARPIÐ. ÉG SKAL KVEIKJA Á ÞVÍ EN VIÐ GETUM EKKI
HAFT NEITT HLJÓÐ ANNARS VAKNA ALLIR Í HÚSINU
HVAÐ ER Á DAGSKRÁ? HEPPNIN ER MEÐ ÞÉR!
ÞAÐ ER HEIMILDARMYND UM RISAEÐLUBEINAGRINDUR
SEM FUNDUST Í AFRÍKU
ÞAÐ ER LÍKA VERIÐ AÐ
ENDURSÝNA LEIKINN Í
MEISTARADEILDINN SEM
ÉG MISSTI AF
BEININ ERU AÐ
MISMUNANDI
STÆRÐUM OG
GERÐUM
NEI
VOFF
NEI!
VOFF!
MÉR HEYRIST EINHVER VERA AÐ
TALA VIÐ BILLA ÞARNA NIÐRI
ÉG SKAL FARA
NIÐUR
FARÐU
GÆTILEGA
VIÐ VORUM BÚNIR AÐ RÆÐA ÞETTA!
ÞÁTTURINN ÞINN ER BÚINN OG NÚNA MÁ ÉG
HORFA Á FÓTBOLTALEIKINN!
VOFF!!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 12. júní, 163. dagur ársins 2005
Víkverji flokkastekki sem einn af
gömlu fréttahauk-
unum enda er hann
ungur að árum og
ekki með ýkja langa
starfsreynslu. Engu
að síður hefur Vík-
verji sterkar skoðanir
á öllu sem varðar fjöl-
miðlun og getur röfl-
að út í eitt yfir ýms-
um starfsvenjum
samstarfsfólks síns
sem og keppinaut-
anna.
Víkverji á bágt
með að skilja sjón-
varpsfréttamenn sem nota þá „tak-
tík“ að byrja á að rífa niður það sem
viðmælandi þeirra hefur fram að
færa. Þótti Víkverja keyra um þver-
bak um daginn þegar fréttamaður
Stöðvar 2 var að taka viðtal við
dómsmálaráðherra sem hafði sama
dag tilkynnt að endurskoðun á kyn-
ferðisbrotakafla hegningarlaganna
væri hafin. Fréttamaðurinn spurði:
„Björn, þú hefur skrifað allsherjar-
nefnd út af aðgerðahópnum, þú leit-
aðir til refsiréttarnefndar, þú hefur
falið ríkislögreglustjóranum að gera
sérstakar verklagsreglur um heim-
ilisofbeldi og nú skiparðu heilan pró-
fessor í að endurskoða lög sem eru
ekki nema þrettán ára
gömul? Eru þau strax
úr sér gengin?“
x x x
Víkverji fékk á tilfinn-inguna að frétta-
manni þætti út í hött að
endurskoða þrettán ára
gömul lög, þrátt fyrir
að fjöldi ábendinga hafi
komið fram um að laga-
kaflinn sé úr sér geng-
inn enda mikið vatn
runnið til sjávar síðan
1992 hvað varðar þekk-
ingu á kynferðisofbeldi.
Þessi undarlega
áhersla á „heilan prófessor“ virkaði
líka þannig á Víkverja að frétta-
manni þætti Björn algjör kjáni.
Víkverji ræddi þetta við vinkonu
sína sem sagðist hafa farið í sjón-
varpsviðtal þar sem fréttamaðurinn
sagðist myndu hefja viðtalið á nei-
kvæðri spurningu. Það gæfi vinkonu
Víkverja tækifæri til þess að svara
vel.
Víkverji á erfitt með að skilja
hvernig það getur virkað vel að tala
með svona mikilli neikvæðni um það
sem fólk hefur fram að færa. Enda
er Víkverji venjulega hinn jákvæð-
asti og getur ekki séð að það komi
niður á fréttunum sem hann skrifar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Borgarleikhúsið | Styrktarsýning á einleiknum Alveg brilljant skilnaður
verður í Borgarleikhúsinu nk. þriðjudag. Allur ágóði sýningarinnar rennur
til Árna Ibsen leikskálds en hann á við alvarleg veikindi að stríða um þessar
mundir.
„Við hvetjum alla þá sem langar til að sjá sýninguna og vilja styrkja þetta
góða málefni í leiðinni til að kaupa miða í miðasölu Borgarleikhússins,“ segir
Edda Björgvinsdóttir sem leikur í sýningunni.
Borgarleikhúsið býður húsnæðið endurgjaldslaust og allir aðstandendur
gefa vinnu sína.
Styrktarsýning í
Borgarleikhúsinu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og
áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum og
syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar. (Kól. 3, 17.)