Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
0 $1
$1
2
3 24
5%
!"#
!$
% "&' (&
)* &# &
)#&
$&' (& % "&'
+,"
-# .
/0,.
/0 !. , &#(
1
! 0 % "&'
2 &'
20 .&
3(&
$45& .6 &&
+
! &
78,.
9:! "&
9,",0
/%!
/"0 ;
<;## � &
= && " &
>0 00 ?/5(,#
!"
(
! ,"' @;..
$&' 40 % "&'
/" A"# /"&'
<5 5
! #$
%
BC@D
/4
,
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
,; &#
; ,
?
?
?
? ?
? ?
?
?
?
?
?
? ? ?
?
?
?
?
?
?
?
?
E FG
?
E
FG
E FG
E FG
E ?FG
E FG
E FG
?
E FG
E FG
E ?FG
?
E FG
E ?FG
?
?
?
?
?
E FG
?
E ?FG
E ?FG
?
?
?
?
?
?
E FG
?
?
?
2, "'
'# &
< "( 4 " '# H
) /"
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
= 4 *I
<2 J #&" !."'
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
<2? K 0 0"'&' " ".
<2? /;"' " ",##. 0 ; "( , &
<2? =,#& ; 0 . 0#&& A"#
<2? (, & I#,,&'
● MIKIL viðskipti voru með bréf í Ís-
landsbanka stuttu eftir opnun Kaup-
hallar Íslands í gærmorgun. Strax
um hálftíma eftir opnun var ljóst að
bréf fyrir rúmlega 1,3 milljarða króna
að markaðsvirði höfðu skipt um eig-
endur í einum viðskiptum en það
samsvarar um 0,7% af heildar-
hlutafé. Skömmu seinna voru heild-
arviðskipti með Íslandsbanka komin
í rúmlega 4 milljarða króna og við
lokun markaðarins var heildarvelta
dagsins með bréf Íslandsbanka orð-
in ríflega 4,3 milljarðar króna. Ekki
fengust upplýsingar um hverjir stóðu
að viðskiptunum.
Mikil viðskipti með
Íslandsbanka
● VEXTIR verðtryggðra íslenskra
skuldabréfa með gjalddaga sem
næst árinu 2015 hafa nánast staðið
í stað frá því í mars á þessu ári en á
meðan hafa vextir samskonar bréfa
erlendis lækkað. Um er að ræða
skuldabréf með lánshæfismat AAA.
„Þessi þróun kemur í kjölfar minnk-
andi vaxtamunar frá áramótum sem
einnig átti rætur að rekja til breytinga
á vöxtum erlendis þar sem vaxta-
stigið hérlendis hefur verið nokkuð
stöðugt í kringum 3,55%,“ segir í
Morgunkorni Íslandsbanka.
Raunvaxtamunur
eykst
● EIGENDUR 27,2% hlutafjár í Þor-
móði ramma – Sæbergi hf. hafa
samþykkt yfirtökutilboð Nýbergs.
Kaupverð var 3,85 krónur á hlut.
Nýberg og aðilar sem gert hafa
með sér samkomulag um stjórnun
og rekstur Þormóðs ramma, hafa því
eignast 92,5% hlutafjár í Þormóði
ramma – Sæbergi en eignarhlutur
þeirra var áður verið 65,4%. Eignar-
hlutur Nýbergs er nú 73,2% alls
hlutafjár. Á næstu dögum verður
send beiðni til Kauphallarinnar um
afskráningu allra hluta Þormóðs
ramma. Nýbergs eiga Marteinn Har-
aldsson ehf.(34%), Gunnar Sigvalda-
son (22%), Svavar Berg Magnússon
(22%) og Þerna ehf. (22%).
Þormóður rammi
úr Kauphöllinni
SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN „Hægðu á þér“ er
komin í úrslit í Cannes Lions, stærstu auglýsinga-
samkeppni heims. Auglýsingin var gerð af auglýs-
ingastofunni Hvíta húsinu og Spark kvikmynda-
gerð fyrir Umferðarstofu og sýnir afleiðingar
hraðaksturs. Þetta er í annað sinn sem íslensk
auglýsing er tilnefnd til verðlauna í Cannes en úr-
slitin verða tilkynnt í dag.
Gísli Sigurjón Brynjólfsson, markaðsráðgjafi
hjá Hvíta húsinu, segir Cannes Lions vera virt-
ustu auglýsingaverðlaun sem veitt eru í heiminum
í dag. Þar keppi allar bestu auglýsingar sem fram-
leiddar voru síðastliðið ár. „Í dómnefnd sitja
fulltrúar helstu auglýsingastofa í heimi, auk leik-
stjóra og framleiðenda. Hátíðin er þekkt fyrir dá-
litla sérvisku og það eru mörg dæmi þess að aðeins
séu veitt verðlaun fyrir annað og þriðja sætið,
jafnvel bara, þriðja sætið þar sem engin auglýsing
hafi átt fyrsta sætið skilið.“
Gísli segir að auglýsingin sé ein af sextán í úr-
slitum viðkomandi flokks en þær hafi aftur á móti
verið valdar úr þúsundum innlendra auglýsinga.
Því sé það í raun mikill áfangi að hafa náð í úrslit-
in. „Tilnefningin hefur mikla þýðingu fyrir Hvíta
húsið, enda verður hennar væntanlega getið í
helstu fagtímaritum fyrir auglýsinga- og markaðs-
iðnaðinn,“ segir Gísli.
Auglýsingin vakti mikla athygli og umtal þegar
hún var frumsýnd hérlendis á síðasta ári. Hún var
valin besta auglýsing ársins 2004 í almannaheilla-
flokki á Ímarkhátíðinni í febrúar sl. og vann gull-
verðlaun í evrópsku auglýsingasamkeppninni
Eurobest Awards. Hún fékk einnig bronsverðlaun
á auglýsingahátíðinni New York Festival fyrr á
þessu ári. Hugmyndasmiður og grafískur hönn-
uður auglýsingarinnar er Bjarney Hinriksdóttir
og leikstjóri Guðjón Jónsson.
„Hægðu á þér“ í úrslitum í Cannes
Hægðu á þér! Sjónvarpsauglýsingin er í hópi 16
auglýsinga sem keppa til verðlauna í Cannes Lions.
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
STJÓRN Sparisjóðs Hafnarfjarðar
hefur sent frá sér tilkynningu
vegna umfjöllunar um málefni
sjóðsins að undanförnu og birtir
Morgunblaðið hana hér í heild en
fyrirsögn er blaðsins.
„Undanfarna daga hafa málefni
Sparisjóðs Hafnarfjarðar mikið
verið til umfjöllunar í fjölmiðlum
og þá einkum hugsanleg sala á
stofnfé sparisjóðsins. Það hefur
ekki verið venja þeirra sem farið
hafa með stjórn SPH að ræða mál-
efni sjóðsins, einstakra stofnfjár-
aðila, viðskiptamanna eða starfs-
manna í fjölmiðlum. Vegna hinnar
háværu umræðu, alvarlegra ásak-
ana í garð stjórnarmanna og ann-
arra, auk kviksagna sem hafa verið
á kreiki í bæjarfélaginu, telur
stjórn SPH þó nauðsynlegt að
breyta frá þessari venju nú og
koma örfáum athugasemdum á
framfæri.
Lögum um sparisjóði hefur verið
breytt undanfarin ár og meðal ann-
ars ákveðið að sparisjóðir skyldu
hafa ákveðið lágmarks stofnfé, sem
selt yrði og að sjóðunum yrði
stjórnað af eigendum þessa stofn-
fjár. Jafnframt var í lögunum
ákveðið að þeir sem verið höfðu í
ábyrgð fyrir sjóðina ættu rétt á því
að breyta ábyrgðum sínum í
stofnfé. Á þeim tíma voru
ábyrgðarmenn SPH 27 en vegna
krafna laganna um lágmarksfjölda
ábyrgðarmanna var þeim þá fjölg-
að nokkuð. Lítil fjölgun hefur verið
í hópi stofnfjáraðila síðustu ár en
þeir eru nú 47. Var það eindregin
afstaða fyrri stjórnar sjóðsins að
fjölga ekki stofnfjáraðilum og fara
ekki þá leið að bjóða starfsmönn-
um og mikilvægum viðskiptavinum
að kaupa stofnfé í SPH.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Sparisjóður vélstjóra,
Sparisjóður Kópavogs og Spari-
sjóðurinn í Keflavík fóru allir þá
leið eftir lagabreytinguna að marg-
falda fjölda stofnfjáreigenda í sjóð-
unum og voru þeir t.d. þegar flest
var u.þ.b. 1.200 í SPRON, tæplega
700 í SPV og rúmlega 600 í SPKef.
Viðskipti hafa verið fjörleg með
stofnfé í þessum sjóðum og hefur
t.a.m. meira en helmingur alls
stofnfjár í SPRON skipt um eig-
endur á allra síðustu misserum.
Engin höft eru á viðskiptum með
bréf í þessum sjóðum en þau eru
háð samþykki stjórnar samkvæmt
lögum. Engin viðskipti hafa
nokkru sinni verið með stofnbréf í
SPH þrátt fyrir margítrekaðar
óskir um kaup á bréfum, þ.á m. frá
starfsmönnum.
Til þess er þetta rakið að vekja
athygli á þeirri sérstöðu sem verið
hefur með stofnfjáreignina í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar en hún skýrir
væntanlega þá athygli sem fréttir
um hugsanlega sölu stofnbréfa nú
hefur vakið á sama tíma og það
hefur enga athygli vakið að stærsti
sparisjóður landsins hefur skipt
um eigendur.
Það er vilji þeirra manna sem
tóku við stjórn SPH hinn 20. apríl
sl. að fjölga stofnfjáraðilum. Til
þess þarf hins vegar stuðning 2⁄3
hluta atkvæða á aðalfundi en þann
styrk hefur stjórnin ekki í stofn-
fjáraðilahópnum. Það var jafn-
framt afstaða hinnar nýju stjórnar
að standa ekki í vegi fyrir því ef
stofnfjáraðilar vildu framselja bréf
sín. Slík beiðni hefur ekki borist
stjórninni. Berist slík beiðni verður
hún að sjálfsögðu tekin fyrir og
fullnægi hún skilyrðum laga mun
sitjandi stjórn væntanlega taka
hana til greina.
Með hliðsjón af þeirri þróun sem
orðið hefur hjá þeim fjórum spari-
sjóðum sem farið hafa út í það að
auka stofnfé sitt og setja viðskipti
með stofnbréf jafnframt frjáls er
ekkert óeðlilegt við það að fjár-
festar sýni bréfum í SPH áhuga.
Stjórn SPH telur það af hinu góða
ef öflugir fjárfestar hafa áhuga
fyrir sparisjóðnum og eru reiðu-
búnir til að fjárfesta í stofnfé hans.
SPH þarf á því að halda að nýir og
öflugir einstaklingar komi að
stjórn sjóðsins og rekstri.“
Vilja fjölga stofnfjáraðilum
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Minnir Fjármálaeftirlitið á að að-
ilum sem sem hyggist eignast virkan
eignarhlut í fjármálafyrirtæki beri,
lögum samkvæmt, að leita sam-
þykkis Fjármálaeftirlitsins fyr-
irfram.
„i) Óskað er upplýsinga hvort þér
hafið verið aðili að samkomulagi,
formlegu eða óformlegu um beit-
ingu atkvæðisréttar á aðalfundi
sparisjóðsins þann 20. apríl sl.,
ii) Óskað er upplýsinga um hvort
þér séuð aðili að samkomulagi,
formlegu eða óformlegu um sölu
stofnfjár í sparisjóðnum,
iii) Óskað er upplýsinga um hvort
yður hafi borist tilboð og /eða þér
hafið samþykkt tilboð í stofnfjáreign
þína í sparisjóðnum, og ef svo er, frá
hverjum og efni slíks tilboðs,
iv) Óskað er upplýsinga um hvort
yður sé kunnugt um, eða hafi verið
kunnugt um, samkomulag eða tilboð
skv. liðum i-iii hér að framan,“ segir
jafnframt í bréfinu.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
sendi í gær öllum stofnfjáreigendum
í Sparisjóði Hafnarfjarðar bréf þar
sem m.a. er óskað eftir upplýsingum
um hvort stofnfjáreigendur hafi selt
stofnfé í SPH eða þeim borist tilboð í
stofnfé sitt eða hvort þeir hafi gerst
aðilar að samkomulagi um beitingu
atkvæðisréttar. Óskað er eftir að
stofnfjáreigendur í SPH svari spurn-
ingum FME fyrir næstkomandi
fimmtudag og áréttað er að röng
upplýsingagjöf varði við lög.
„Fjármálaeftirlitið hefur til skoð-
unar hvort virkur eignarhlutur [10%
eða meira] sé til staðar í sparisjóðn-
um, m.a. með hliðsjón af aðdrag-
anda aðalafundar sparisjóðsins þann
20. apríl sl., aðalfundinum sjálfum
og málatilbúnaði að öðru leyti. Jafn-
framt er litið til þess hvort fyriráætl-
anir séu um sölu stofnfjár í spari-
sjóðnum eða hvort slík sala hafi átt
sér stað,“ segir í bréfi Fjármálaeft-
irlitsins til stofnfjáreigenda SPH.
FME vill upplýsingar frá
stofnfjáreigendum SPH
● VIÐSKIPTI með hlutabréf námu
5.458 milljónum króna í gær og var
langstærstur hluti þeirra viðskipti
með hlutabréf í Íslandsbanka, eða
4,3 milljarðar króna. Úrvalsvísitalan
hækkaði um 0,92% og endaði í
4.114 stigum. Mest hækkun varð á
verði hlutabréfa í KB banka 1,53% en
mest lækkun á bréfum SÍF 2,61%.
Mikil viðskipti með
hlutabréf
FIMMTUNGUR allrar
pappírsframleiðslu í
Evrópu hefur verið í
lamasessi síðan 16.
maí en þá fóru finnsk-
ir verkamenn í papp-
írsiðnaði í verkfall. Nú
hafa þeir fellt miðl-
unartillögu sem sett
var fram og virðist
engin lausn í sjónmáli.
Virðist sem allar
samningatilraunir
strandi á því að at-
vinnuveitendur vilja hafa opið yf-
ir sumarmánuðina en venjan hef-
ur verið sú að finnskar
pappírsverksmiðjur
loka á sumrin. Frá
þessu er greint í
danska blaðinu Børs-
en.
Aðrar heimildir
greina frá því að
ástandið sé orðið ansi
bagalegt í Finnlandi
þar sem skortur ku
vera á salernispappír.
Hafa margir Finnar
því gripið til þess ráðs
að kaupa slíkan pappír í utan-
landsferðum sínum.
Pappírslaust í Finnlandi
● VELTA danska fyrirtækisins Carni-
tech, sem framleiðir vélar til mat-
vælaframleiðslu og er í eigu Marels
hf., var um 380 milljónir danskra
króna á síðasta ári, sem samsvarar
um 4 milljörðum íslenskra króna, og
er það svipuð velta og síðustu tvö ár
þar á undan. Hagnaður fyrirtækisins
er þó eilítið betri en áður, eða um
10 milljónir danskra króna (um 105
milljónir íslenskra króna).
Sölumarkmið Carnitech árið 2004
náðust ekki og er afkoman því ekki
sú sem vænst var, en búist er við því
að bæði velta og hagnaður verði
meiri á þessu ári. Carnitech hefur
verið í eigu Marel frá árinu 1997.
Afkoma Carnitech
undir væntingum
7 'L
/M9
F
F
!</@
NO
F
F
CC -+O
F
F
)!O
7 ,
F
F
BC@O NP 3&,
F
F