Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 25.06.2005, Síða 28
E itt frækilegasta björgunar- afrek síðustu aldar hér á landi var unnið þegar 29 mönnum úr áhöfn togarans Egils rauða var bjargað 27. janúar 1955. Þrjú mikil sjóslys urðu við Vestfirði miðvikudaginn 26. janúar 1955. Tveir breskir togarar, Roderigo og Lor- ella, fórust með allri áhöfn, samtals um 50 manns, í foráttuveðri um 40 til 50 sjómílur norðaustur af Horni. Fjöldi skipa leitaði vars undir Grænuhlíð, þeirra á meðal Eg- ill rauði frá Neskaupstað. Samkvæmt fréttum frá Jóni Páli Hall- dórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins á Ísafirði á þessum tíma, og fréttum Morg- unblaðsins af sjóprófum vegna slyssins strandaði Egill rauði um kvöldmatar- leytið 26. janúar undir Teista, innst undir Grænuhlíð, um eina sjómílu suðvestur af Sléttu. Á strandstaðnum undir snar- brattri Grænuhlíðinni var hvassviðri og haugabrim. Gengu ólögin stöðugt yfir skipið. Að sögn skipbrotsmanna voru átökin þvílík að þetta sterkbyggða skip brotnaði í tvennt eftir aðeins um tíu mín- útur í brimrótinu. Fjórir hurfu í hafið Í áhöfn Egils rauða voru 34, 19 Færey- ingar og 15 Íslendingar. Komust allir upp í brú skipsins utan fjórir Íslendingar sem horfnir voru í hafið. Ísafjarðarradíó og togarinn Austfirðingur voru í sambandi við Axel Óskarsson, loftskeytamann á Agli rauða, og sagði hann um kl. 19.30 að sjór væri kominn í loftskeytaklefann. Síð- an rofnaði sambandið. Axel sagði í samtali við Morgunblaðið 30. janúar 1955: „Þegar ég yfirgaf loftskeytaklefann, en hann fylltist af sjó skömmu eftir strandið, stóð ég í sjó upp í mitti og hélt á tækjunum, unz þau urðu óvirk.“ Nærstaddir togarar fóru þegar á vett- vang, m.a. Elliði, Austfirðingur, Neptún- us, Askur og breski togarinn Andanes. Reynt var að komast að Agli rauða á björgunarbátum og eins að láta fleka reka að togaranum, en það reyndist ómögulegt vegna óveðurs og brims. Björgun frá sjó var talin útilokuð eins og aðstæður voru. Björgunarsveit Slysavarnafélagsins fór frá Ísafirði með Heiðrúnu ÍS strax um kvöldið og varðskipið Ægir hélt þegar á slysstaðinn. Heiðrún ÍS, togarinn Aust- firðingur og Ægir komu nær samtímis til Hesteyrar um nóttina. Fóru björgunar- menn af skipunum þremur fótgangandi með búnað áleiðis á slysstaðinn. Veður var vont, norðaustan hvassviðri og gekk á með dimmum hríðaréljum. Um svipað leyti og þeir fóru frá Hesteyri héldu vél- bátarnir Andvari frá Ísafirði og Páll Páls- son á slysstaðinn. Í Morgunblaðinu segir þannig frá atburðum: „Í birtingu héldu bátarnir tveir upp undir brimgarðinn, sem stóð þá 50 faðma frá landi. Mönnunum á Andvara tókst að skjóta taug yfir í Egil rauða. Og síðan tókst bátunum tveim í sameiningu að koma dráttartaug með björgunarstól á milli flaksins og bátanna. Þegar skip- brotsmenn höfðu fest dráttarvírinn sín megin og björgunin sjálf gat hafizt, björg- uðu bátarnir samtals 13 mönnum. Á há- degi voru 5 menn af Agli rauða komnir yf- ir í bátana, og síðan komu þeir hver af öðrum. Var farið með 12 skipbrotsmanna yfir í togarann Jörund frá Akureyri, en einn mann um borð í Goðanes.“ Auk áhafnar Andvara voru einnig þar um borð skipverjar af togaranum Goða- nesi, þeirra á meðal Magnús Gíslason skipstjóri, bróðir Ísleifs Gíslasonar, skip- stjóra á Agli rauða. Fyrstu tilraunir til að skjóta línu um borð í Egil rauða frá And- vara mistókust. Fengu þeir fleiri skot og liðsauka um borð í togaranum Jörundi. Magnúsi tókst loks að hæfa stjórnpallinn með línuskotinu. Þá var akkeri Andvara látið falla um 150 til 200 metra frá togar- anum. Braut bæði fyrir framan og aftan bátinn. „Skipstjórinn á Andvara varð að láta beita vélinni til hins ýtrasta mót veðri og sjó, þar sem hann lá, til þess að hið æðisgengna brimrót ekki sogaði bátinn með sér upp í stórgrýtta fjöruna,“ skrifar fréttaritari Morgunblaðsins. Skipbrotsmennirnir voru dregnir í sjó alla leið út í Andvara. Fengu þeir þurr og hlý föt um leið og þeir komu um borð í bátinn. Voru þeir síðan selfluttir í togara fyrir utan með mótorbátnum Páli Páls- syni og léttibáti varðskipsins Ægis. Einn skipbrotsmaður losnaði úr björgunar- stólnum og fórst. Gríðarlega erfið björgun Ferðalag þeirra sem fóru landleiðina frá Hesteyri reyndist hin mesta þrekraun. Helgi Hallvarðsson, fyrrverandi skip- herra og yfirmaður gæsluframkvæmda hjá Landhelgisgæslunni, var á þessum tíma 2. stýrimaður á varðskipinu Ægi. Helgi skrifaði um þennan atburð og birt- ist frásögn hans í Morgunblaðinu 23. des- ember 1962. Varðskipið lá fyrir akkeri á Önundarfirði, enda vitlaust veður. Strax og neyðarkall heyrðist frá Agli rauða var haldið af stað á fullri ferð. Þegar kom út úr firðinum þurfti að slá af vegna óveðurs- ins þar til svo langt var komið inn í Djúp að skjól fékkst af Ritnum. Þegar Ægir kom á slysstaðinn var reynd björgun af sjó sem mistókst vegna óveðurs og brotsjóa. Þá var ákveðið að taka land innar með ströndinni og reyna björgun frá landi. Leitað var lendingar og var talið mögulegt að lenda innarlega í Hesteyrarfirði. Lögðust varðskipið Ægir og togarinn Austfirðingur þar fyrir akk- eri. Í sama mund kom björgunarsveitin frá Ísafirði á vélbátnum Heiðrúnu ÍS og lagðist hann að varðskipinu. Þá var klukk- an um 3 að morgni 27. janúar. Veðrið var vont, norðaustan tíu vindstig og stórhríð. Eftir að hafa ráðslagað um aðgerðir fóru 6 björgunarsveitarmenn frá Ísafirði, 11 úr áhöfn Austfirðings og Helgi úr áhöfn varðskipsins í land. Helgi var með litla talstöð svo hægt væri að hafa sam- band við varðskipið. Leiðangurinn lagði af stað þessa 6 km l þungklyfjaður m línur í tildráttart fleira. Menn voru klofhá stígvél. Fy ganga í fjörunni þá þurftu þeir að fjallshlíð og óðu o arnar blotnuðu o á leið. Gísli Jónss sögumaður og ru vel staðkunnugu Um kl. 10–11 u angurinn kominn Þar var kveikt up menn fengu sér a skipsins hafði útb á Sléttu var hald strandstaðinn. V in um 12 vindstig hlið en ekki lengu „Leiðangursm sljóir, en áfram e slá efa í huga ým sé á strandstað, s og menn séu enn ákveðið að hvílas gefist upp og er s með öðrum. Jafn sendir áfram á st farangurs til að k Það verða því bíða, og reyna að drep, en það er e standa upp á end vinds og hríðar, s Tíminn er lengi a standa, og öllum $5 >, /5(6"  / "'"    $ %&  %   $   &     '  "      (  )   *   ")   (  %  ) %     (  %  *    ) %   + !       , -  ). 01  % 6   1    2 2  "    '     +     )3     ' 4                    !   "#$ % &"#$      ' 1,23,42 (,      Rúmlega hálf öld er liðin frá því að áhöfn Eg Björguðust nau 28 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. OLÍUVERÐ OG EFNAHAGSLÍF Ef olíuverð helzt í þeim hæðum,sem það er nú, er óhjákvæmilegt að það fari fyrr en síðar að hafa þung- bær áhrif á íslenzkt efnahagslíf, rekstrarstöðu fyrirtækja og afkomu heimilanna. Sjávarútvegurinn er mjög háður olíuverði um afkomu sína. Fiskiskipin eru knúin með olíu. Atvinnugreinin stendur nú þegar höllum fæti vegna hás gengis krónunnar. Það sem hefur bjargað sjávarútveginum hingað til er annars vegar mikil hagræðing á undanförnum árum og hins vegar hækkandi afurðaverð á erlendum mörkuðum. Að óbreyttu fer hið háa olíuverð að segja til sín. Önnur atvinnugrein, sem á mikið undir verði á eldsneyti er flugrekstur og ferðaþjónusta. Ef verð á eldsneyti verður til einhverrar frambúðar jafn hátt og nú leiðir það óhjákvæmilega til hækkunar fargjalda á milli landa, fækkunar farþega og versnandi rekstrarafkomu flugfélaganna. Fækkun farþega hefur svo áhrif á alla ferðaþjónustu hverju nafni sem nefn- ist. Benzínverð er nú þegar mjög hátt. En jafnframt er ljóst að stórum bílum hefur fjölgað mjög seinni árin, sem eru dýrir í rekstri, þegar benzínverð hækkar svo mjög, sem raun ber vitni. Hærra benzínverð er fljótt að hafa áhrif á afkomu heimilanna. Flestar fjölskyldur hafa tekið á sig svo miklar skuldbindingar að erfitt er fyrir fólk að standa undir stórauknum kostnaði við notkun á dýrum og þungum bílum. Í sjálfu sér er ekkert, sem við get- um gert í þessum efnum. Við getum engin áhrif haft á þróun olíuverðs á heimsmarkaði. Það eina, sem við get- um gert er að reyna að draga úr þeim áhrifum, sem sveiflur í olíuverði geta haft á þjóðarbúskap okkar. Mikið hefur áunnizt í þeim efnum. Miklu fleiri hús eru nú hituð upp með heitu vatni en var í olíukreppunni, sem skall yfir okkur í byrjun áttunda ára- tugarins og við lok hans. Þá skapaðist hreyfing fyrir því að nota fyrst og fremst bíla, sem eyddu litlu benzíni. Mikilvægi þessa er löngu gleymt en ekki ólíklegt að margir eigi eftir að vakna upp við vondan draum. Nýrri vélar í fiskiskipum eru áreiðanlega sparneytnari en hinar eldri voru, sem hjálpar til. En það verður með engu móti kom- ið í veg fyrir, að haldist núverandi olíuverð til lengri tíma verði það verulegt áfall fyrir þjóðarbúskap okkar á næstu misserum. Þeir sem fórust af Agli rauða voru Stef- án Einarsson, 3. vélstjóri frá Neskaup- stað, Atli Stefánsson, kyndari og sonur Stefáns, Hjörleifur Helgason, kyndari frá Neskaupstað, Magnús Guðmunds- son, háseti frá Fáskrúðsfirði og Sofus Skoradal, háseti frá Færeyjum. Alls björguðust ellefu Íslendingar af Agli rauða. Af þeim eru enn á lífi Axel Óskarsson loftskeytamaður og Guð- mundur Arason bátsmaður. Aðrir Ís- lendingar sem björguðust en eru nú látnir voru Ísleifur Gíslason skipstjóri, Guðmundur Ingi Bjarnason, 1. vélstjóri, Einar Hólm, 2. vélstjóri, Vilmundur Guðbrandsson, bræðslumaður, Helgi Jóhannesson, matsveinn, Guðjón Mar- teinsson, 1. stýrimaður, Pétur H. Sig- urðsson, 2. stýrimaður, Sofus Gögvra, bátsmaður og Marteinn Hjelm, mat- sveinn. Af færeysku sjómönnunum 18 sem björguðust eru fj rálvur Mohr Olse in Örvarodd og L Aðrir sem björgu hétu Jóhan Petur ur Olsen, Vittus Z Viderö, Adrian H Ólavur Joensen, Nielsen, Símun J ansen, Símun Eli Tausen og Jóhan Sex skipverja enn á lífi Togarinn Egill r FUNDUR HVALVEIÐIRÁÐSINS Hvalstöðin í Hvalfirði er frekareyðileg um þessar mundir ogvirðist fremur vitnisburður um liðna tíð, en verstöð þar sem þess er beðið að allt verði sett af stað. Í Reykjavíkurhöfn liggja hvalbátar við bryggju og hefur verið lögð í þá hita- veituleiðsla eins og til að undirstrika að á þeim er ekkert fararsnið. Hinum megin við bryggjuna eru bátar, sem siglt er á í hvalaskoðunarferðir. Gamli tíminn og nýi tíminn hlið við hlið og ekki útlit fyrir að það muni breytast í bráð. Í gær lauk árlegum fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem að þessu sinni var haldinn í gömlum hvalveiðibæ, Ulsan í Suður-Kóreu. Samkvæmt fréttum hrósuðu Japanar sigri þegar upp var staðið og sögðu að aldrei hefðu þeir notið meiri stuðn- ings í baráttunni fyrir því að hefja hvalveiðar í ágóðaskyni að nýju. Hvalfriðunarsinnar hrósuðu hins vegar happi að hafa haldið sínu. Greinilegt er að Alþjóða hvalveiði- ráðið er orðin ákaflega óskilvirk og stöðnuð stofnun og í raun er hægt að gagnrýna hana úr öllum áttum. Á fundi þess mæta tveir hópar og hlust- ar hvorugur á hinn. Að þessu sinni tókst Japönum að tryggja sér fleiri atkvæði en áður án þess þó að ná til- skildum meirihluta til að knýja fram afnám hvalveiðibanns. Andstæðingar hvalveiða gagnrýndu vinnubrögð Japana harðlega og líktu þeim við til- raun til „fjandsamlegrar yfirtöku“. Voru Japanar sakaðir um að lokka fá- tæk ríki inn í hvalveiðiráðið rétt fyrir upphaf fundarins og kaupa atkvæði þeirra með þróunaraðstoð. Hyggjast andstæðingar hvalveiða nú hefja sama leik til að reyna fjölga skoðana- systkinum sínum í ráðinu. Þess má þó geta að á óvart kom hversu lítinn stuðning Japanar fengu frá nýjum aðildarríkjum ráðsins þegar upp var staðið, eins og kemur fram í samtali við Árna Finnsson, framkvæmda- stjóra Náttúruverndarsamtaka Ís- lands, í Morgunblaðinu í dag. Hvalveiðar hafa sett mikinn svip á stjórnmálaumræðu á Íslandi frá því að þær voru bannaðar fyrir 19 árum. Öll sú umræða hefur verið mjög eins- leit og hafa andstæðingar hvalveiða úr röðum stjórnmálamanna sjaldnast hátt. Fjöldi ályktana hefur verið sam- þykktur á Alþingi um að hefja hval- veiðar að nýju, en stjórnvöld héldu hins vegar markvisst að sér höndum þar til ákveðið var að hefja vísinda- veiðar á hrefnu. Því hefur ávallt verið haldið fram að andstaða friðunar- sinna við veiðar væri reist á tilfinn- ingum en ekki rökum. Nú er svo kom- ið að ýmsir hvalastofnar eru ekki lengur í útrýmingarhættu og má því spyrja hvers vegna ekki eigi að hefja veiðar að nýju. Í þessu sambandi má hins vegar ekki gleyma því að vega verður alla hagsmuni íslensks efna- hagslífs í þessu sambandi. Sjávarút- vegur er uppistöðugrein í íslensku efnahagslífi. Ferðaþjónusta verður stöðugt mikilvægari. Ekki þarf mikil röskun að verða í þessum atvinnu- greinum til þess að það finnist í ís- lensku efnahagslífi. Það er því aug- ljóst að í spurningunni um hvalveiðar þarf að gæta þess að fórna ekki meiri hagsmunum fyrir minni. Þegar horft er til hvalveiðiráðsins þarf að hafa í huga að ekki er nóg að safna nægum stuðningi við hvalveiðar. Það þarf einnig að velta því fyrir sér hvaðan hann kemur og hvernig hann er feng- inn. Ef helstu viðskiptaþjóðir Íslands eru eftir sem áður í hópi þeirra, sem vilja halda áfram að banna hvalveiðar ber að taka það alvarlega. Átökin í hvalveiðiráðinu líkjast mest hana- slag, en með því að sigra í bardag- anum við friðunarsinnana gætu Ís- lendingar rétt eins setið uppi með svarta péturinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.