Morgunblaðið - 26.06.2005, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.gjtravel.is
outgoing@gjtravel.is
Beint flug til Zürich í sumar:
Keflavík-Zürich 3., 17., 24. og 31. júlí og 7. og 14. ágúst.
Zürich-Keflavík 16., 23. og 30. júlí og 6. og 13. ágúst.
Flug fram og til baka kr. 24.900.
Flug aðra leið kr. 15.900.
Allir skattar og þjónustugjöld innifalin.
Beint flug til Prag í ágúst:
Flogið til Prag 3. ágúst og aftur til Keflavíkur 17. ágúst.
Flug fram og til baka kr. 28.800.
Allir skattar og þjónusturgjöld innifalin.
ALMENN ánægja með lífið og til-
veruna á hér á landi er með því
mesta sem mælist meðal íbúa Evr-
ópulanda og Íslendingar eru í hópi
þeirra þjóða sem eru hvað jákvæð-
astar í garð vísinda og tækni. Þetta
er meðal þess sem lesa má út úr nið-
urstöðum nýrra Eurobarometer-
viðhorfskannana, sem gerðar voru
fyrr á þessu ári í 32 Evrópulöndum
á vegum framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins.
Megináhersla var lögð á að kanna
viðhorf Evrópubúa til ýmissa álita-
mála er varða vísindi og tækni en
einnig voru könnuð félagsleg viðhorf
og lífsgildi íbúanna og á hvern hátt
Evrópumenn líta tilgang lífsins, við-
horf til jafnréttis- og umhverf-
ismála, trúmála o.fl. Könnunin náði
til 25 aðildarríkja ESB, fjögurra
landa sem sótt hafa um aðild að
sambandinu og EFTA-landanna
þriggja.
94% Íslendinga eru almennt
ánægð með lífið og tilveruna
Fjórir af hverjum fimm Evr-
ópubúum sögðust vera ánægðir með
lífið og tilveruna skv. könnununum
en í ljós kom að nokkur munur er
þar á milli þjóða. Hollendingar eru
ánægðastir Evrópuþjóða en 97%
þeirra sögðust ánægðir með líf sitt.
Íslendingar koma næstir í röðinni
en 94% svarenda hér á landi segjast
almennt vera ánægðir með lífið og
tilveruna. Fylgja Danir, Finnar,
Norðmenn og Svisslendingar í kjöl-
farið þar sem um eða yfir 90% íbúa
eru ánægðir með hlutskipti sitt í líf-
inu. Minnst lífsánægja mælist hins
vegar í Búlgaríu, Litháen og Ung-
verjalandi.
Einnig var kannað hvort og í
hversu ríkum mæli Evrópubúar
velta fyrir sér spurningum um til-
gang lífsins. Heildarniðurstaðan er
sú að um 35% íbúa álfunnar segjast
oft velta þessum spurningum fyrir
sér og 39% sögðust stundum gera
það. Á Íslandi sögðust 80% oft (40%)
eða stundum (40%) hugsa um merk-
ingu og tilgang lífsins. Kýpurbúar
eru hins vegar efstir á þessum lista
en þar sögðust 69% oft velta fyrir
sér spurningum um tilgang lífsins
og 23% sögðust stundum gera það.
38% segjast trúa á guð
38% Íslendinga segjast trúa því
að guð sé til skv. niðurstöðum könn-
unarinnar. Til samanburðar var
meðaltal þeirra sem sögðust trúa á
tilvist guðs 52% í Evrópusambands-
löndunum. Mest guðstrú er á Möltu
þar sem 95% sögðust trúa því að
guð væri til, 81% Grikkja og Portú-
gala, 74% Ítala og 73% Íra sögðust
trúa á guð. Á hinn bóginn sögðust
aðeins einn af hverjum fimm svar-
endum í Tékklandi og Eistlandi trúa
á tilvist guðs.
Mismikill stuðningur
við dýravernd
Meirihluti íbúa allra Evrópuland-
anna sögðust vera sammála þeirri
staðhæfingu að manninum bæri
skylda til að vernda réttindi dýra,
hvað sem það kostaði. Afstaðan til
dýra er þó mismunandi meðal þjóða.
Minnstur stuðningur við þessa stað-
hæfingu reyndist vera í Búlgaríu
þar sem 58% sögðust sammála því
að manninum bæri skylda til að
vernda réttindi dýra og á Íslandi
þar sem 60% svöruðu þessari spurn-
ingu játandi. Stuðningur við dýra-
vernd mældist hins vegar mestur
um eða yfir 90% meðal íbúa Grikk-
lands, Slóveníu og Lúxemborgar.
Einnig var könnuð afstaða þjóð-
anna til jafnréttismála og mennt-
unar. Voru þátttakendur m.a. spurð-
ir hvort þeir væru sammála eða
ósammála þeirri staðhæfingu að há-
skólamenntun væri mikilvægari fyr-
ir drengi en stúlkur. 95% Íslendinga
og Dana sögðust ósammála þessari
staðhæfingu og er hlutfallið hvergi
hærra. 93% Norðmanna, og 92%
Svía voru sömu skoðunar. Í Slóvakíu
voru aftur á móti 39% svarenda
þeirrar skoðunar að háskóla-
menntun væri drengjum mikilvæg-
ari en stúlkum og 46% Tyrkja voru
sömu skoðunar.
20% telja karla betur
fallna til pólitískrar forystu
Þátttakendur voru jafnframt
spurðir hvort þeir væru sammála
eða ósammála eftirfarandi staðhæf-
ingu: Þegar á heildina er litið eru
karlar betur fallnir til pólitískrar
forystu en konur. 76% Íslendinga
lýstu sig ósammála þessari fullyrð-
ingu en 20% sögðust vera henni
sammála. Að meðaltali lýstu 66% í
Evrópusambandslöndunum sig
ósammála þessari fullyrðingu en
27% sögðust vera henni sammála.
Mikill munur var á afstöðu þjóð-
anna til spurningarinnar. Þannig
voru 86% Svía og 83% Dana ósam-
mála því að karlar væru betur til
pólitískrar forystu fallnir en konur.
Hins vegar voru 50% Tékka og 54%
Slóvaka öndverðrar skoðunar.
Þegar könnuð var afstaða Evr-
ópubúa til réttinda kynjanna til
starfa á vinnumarkaði kom í ljós að
86% Evrópubúa eru að meðaltali
þeirrar skoðunar að konur eigi sama
rétt til starfa og karlar þó skortur
sé á störfum.
Töluverður afstöðumunur kemur
hins vegar í ljós þegar svörin eru
skoðuð eftir einstökum löndum og
sker afstaða Íslendinga sig nokkuð
úr. Sú spurning var lögð fyrir þátt-
takendur hvort þeir væru sammála
eða ósammála eftirfarandi fullyrð-
ingu: Ef skortur er á störfum eiga
konur sama rétt til starfa og karlar.
Hlutfallslega færri Íslendingar
lýstu sig sammála þessari staðhæf-
ingu en aðrir Evrópubúar eða 62%
og 35% Íslendinga sögðust vera
ósammála fullyrðingunni. Til sam-
anburðar sögðust 95% Dana,
Frakka og Finna vera þeirrar skoð-
unar að konur ættu jafnan rétt til
starfa og karlar þó skortur væri á
störfum. 93% Svía, 91% Breta og
90% Hollendinga voru sömu skoð-
unar.
Íslendingar eru í hópi þeirra
þjóða sem reyndust vera jákvæð-
astar gagnvart hlutverki vísinda og
tækni í framtíðinni. Þannig reynd-
ust 89% svarenda hér á landi vera
þeirrar skoðunar að vísindi og tækni
muni auka lífsgæði kynslóða fram-
tíðarinnar. Að meðaltali voru 77%
íbúa Evrópubandalagsþjóðanna
þessarar skoðunar.
Í könnuninni var einnig spurt
hvaða svið tækniframfara muni hafa
jákvæðust áhrif á næstu 20 árum.
Mældist stuðningur við líftækni og
erfðatækni mestur á Íslandi, en 86%
svarenda hér á landi sögðust binda
mestar vonir við hana.
Kannanirnar voru gerðar með
viðtölum á heimilum svarenda á
fyrstu mánuðum þessa árs. Ann-
aðist Gallup framkvæmd könnunar-
innar hér á landi og kemur fram í
niðurstöðum skýrslunnar að niður-
stöðurnar hvað Ísland varðar eru
byggðar á 500 viðtölum.
Niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar Eurobarometer meðal 32 Evrópuþjóða
Lífsánægja á Íslandi
næstmest í Evrópu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
!"#$
!
" #
$"#
%#
#&'"(
#
)
*
+"
" #
$!,
-#
.
/0
%
,1
+
#
2 '
/4
51 %#
.(
6
7
8
9
:
;
<
6=
66
6
67
68
6
69
6:
6;
6<
=
6
7
8
9
:
;
<
7=
76
7
%&
%
%'
%(
)
)'
)(
&%
&)
&&
&*
&*
&
&
&'
&(
*+
*)
*)
*)
*&
**
*(
,+
,&
,*
,,
,
,
*
)
*% &
-
" #
-#
+"
#&'"(
%#
+
51
" #
$!,
)
$"#
/0
#
,1
*
%#
%
.
/4
!
#
2 ' .(
6
7
8
9
:
;
<
6=
66
6
67
68
6
69
6:
6;
6<
=
6
7
8
9
:
;
<
7=
76
7
))
),
)'
)(
&)
&
&
&'
&(
&(
&(
*&
**
*,
*
*(
*(
,+
,)
,*
,
+
'
&
*
,
'
'
'
'(
,& &
!
-
*
" #
$!,
+
.
#
#
#&'"(
$"#
!
)
+"
,1
-#
2 ' /4
%#
51
/0
%
" #
%#
.(
6
7
8
9
:
;
<
6=
66
6
67
68
6
69
6:
6;
6<
=
6
7
8
9
:
;
<
7=
76
7
+'
+(
%+
%+
%%
%%
%%
%)
%&
%&
%*
%*
%,
%
%
%
%'
%'
%'
%(
%(
)+
)%
))
))
)&
)*
)(
&%
&%
&(
*%
%( ,
#
$
%
-.
)
,1
#&'"(
$!,
%#
%
.
!
" #
#
*
#
/0
+"
$"#
+
" #
/4
-#
2 ' 51 %#
.(
6
7
8
9
:
;
<
6=
66
6
67
68
6
69
6:
6;
6<
=
6
7
8
9
:
;
<
7=
76
7
+)
+,
+
+
+'
+'
+(
+(
+(
%+
%+
%%
%&
%&
%*
%
%(
%(
)+
)%
))
)*
)*
)
&)
&&
&&
&*
&,
&
&(
)
)+
Meira á mbl.is/ítarefni
RJF-hópurinn, sem er stuðnings-
nefnd Arons Pálma Ágústssonar,
sem er í stofufangelsi í Bandaríkj-
unum, hefur nú sent náðunar- og
reynslulausnarnefnd Texasfylkis
sérstakt erindi með hraðpósti þar
sem þess er farið á leit að fyrirtöku
á máli Arons Pálma verði flýtt, hon-
um veitt ferðafrelsi og leyft að fara
til Íslands sem fyrst.
Þetta kemur fram á vefsíðu RJF-
hópsins. Hópurinn hefur verið í
sambandi við ræðismann Íslands í
Texas, íslenska sendiráðið í Wash-
ington og utanríkisráðuneytið. Fyr-
ir liggur að samningur um fanga-
flutning hefur legið tilbúinn og
staðfestur af Íslands hálfu í yfir
þrjú ár hjá bandaríska dóms-
málaráðuneytinu í Washington, en
viðbrögð frá Texas hafa engin ver-
ið, segir í frétt á vef hópsins.
Fylgjast má með framgangi
málsins á slóðinni http://
www.leit.is/servefir/RJF.
Vilja flýtimeðferð
fyrir Aron Pálma
BRUNINN á athafnasvæði Hring-
rásar í nóvember í fyrra kostaði
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins 33
milljónir króna og er áætlað að
starfsmenn liðsins hafi varið 1.400
vinnustundum í að fást við brunann
og afleiðingar hans. Er þá ótalinn
kostnaður annarra sem komu að
slökkvistarfinu. Þetta kemur fram í
ársskýrslu slökkviliðsins.
Í ársskýrslunni segir að bruninn
hafi sett strik í rekstrarreikning
liðsins. Alls nam rekstrarkostnaður
um einum milljarði en rekstrar-
afgangur varð 50 milljónir.
Um 130 slökkviliðsmenn börðust
við eldinn þegar mest var og voru
tólf slökkvibílar frá þremur slökkvi-
liðum notaðir við slökkvistarfið.
Einn slökkviliðsmaður slasaðist á
hendi og fjórir fengu reykeitrun
sem leiddi til lungnabólgu. Þá er tal-
ið að nær 18 milljónum lítra af vatni
og ríflega 14 þúsund lítrum af froðu
hafi verið dælt á eldhafið.
33 milljónir
fóru í Hring-
rásarbrunann
SAMTÖK verslunar og þjónustu
vara fyrirtæki og stofnanir við svo-
nefndum auglýsingasvindlurum en
það eru þeir aðilar kallaðir sem
hrella fyrirtæki með fjárkröfum
vegna skráningar í viðskiptaskrár
eða annað sem viðkomandi hafði
ekki gert sér grein fyrir að rukkað
væri fyrir.
Í tilkynningu frá samtökunum
segir að margir hafi leitað til skrif-
stofu þeirra vegna slíkrar starf-
semi, einkum European City Guide.
Góð ráð gegn þessum aðilum er að
finna víða á netinu og er tengingar
á slíkar vefslóðir að finna á mbl.is/
ítarefni.
Varað við auglýs-
ingasvindlurum
STEFÁN Jón Hafstein var kjörinn
formaður borgarráðs á fundi ráðs-
ins á fimmtudag. Mun hann gegna
formennskunni til loka kjörtíma-
bilsins. Stefán Jón tekur við af Al-
freð Þorsteinssyni sem hefur verið
formaður borgarráðs frá 2003.
Björk Vilhelmsdóttir var kjörin
varaformaður.
Stefán Jón var kjörinn í borg-
arstjórn 2002 og er hann formaður
menntaráðs og menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar.
Stefán Jón er fjölmiðlafræðingur
að mennt og hefur m.a. starfað sem
ritstjóri dægurmálaútvarps og síð-
ar sem dagskrárstjóri Rásar 2 á ár-
unum 1985 til 1992. Þá var hann rit-
stjóri dagblaðsins Dags 1996 til
1999. Stefán Jón hefur skrifað
nokkrar bækur um fjölmiðla, ferða-
sögur og fluguveiði.
Stefán Jón
Hafstein formað-
ur borgarráðs