Morgunblaðið - 26.06.2005, Side 10
10 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H
eldur þú með
Wham eða Dur-
an Duran?“
Það sem skil-
greindi íslensk
ungmenni um
miðjan níunda
áratuginn var með hvoru bandinu
þau héldu. Síðara bandið fékk tölu-
vert meiri athygli. Haldnar voru
sérstakar skemmtanir þar sem
boðið var upp á Duran Duran-hár-
sýningar, Duran Duran-drykk og
jafnvel Duran Duran-dansa við lög
eins og „Wild Boys“.
Kjartan Guðbergsson plötusnúð-
ur man vel eftir æðinu, þó að hann
hafi ekki sjálfur verið forfallinn
Duran Duran-aðdáandi.
„Hægt er að ímynda sér að Dur-
an Duran-æðinu hafi svipað til
Bítlaæðisins og ólíklegt að það
verði nokkurn tímann hægt að upp-
lifa annað æði á þessu stigi,“ segir
hann. Duran Duran-aðdáendurnir
sem blaðamaður talaði við eru sam-
mála um að tíðarandinn hafi verið
einstakur og vegna breyttra að-
stæðna yrði erfitt að ná sömu
stemmningunni í dag. Engir gsm-
símar voru til og lítið var af tækj-
um á heimilunum. Þetta var fyrir
tíma tölva og sjónvarpa inni í
hverju herbergi. Tónlistin var á
plötum og hún var spiluð inni í
stofu á plötuspilara heimilisins,
með eða án fjölskyldunnar. Vasa-
diskóin voru rétt að byrja að öðlast
vinsældir og þegar tónleikar með
Duran Duran voru sýndir í sjón-
varpinu var litla kassettutækið sett
alveg upp við skjáinn og tónleik-
arnir teknir upp á meðan áhorf-
endur inni í stofu áttu að gjöra svo
vel að sitja stilltir og prúðir. Á
þessar upptökur var síðan hlustað í
marga mánuði. Aðeins var um tvær
útvarpsstöðvar að velja og eina
sjónvarpsstöð og ef lag var spilað
einu sinni á vinsældalista hlustenda
á Rás tvö var búist við því að allir á
ákveðnum aldri hefðu heyrt lagið.
Blár augnskuggi niður á kinnar
Á þessum tíma var það helst
skemmtistaðurinn sem mótaði tíð-
arandann, að mati Kjartans. Þang-
að kom fólk til þess að ræða mál-
efni líðandi stundar, tískuna og
hlusta á tónlistina. Hann man vel
eftir því þegar stelpurnar á Duran
Duran-hátíðunum báðu um óska-
lögin sín með tárin í augunum.
„Þá hafði ekki verið til siðs að
gráta og falla í yfirlið síðan á sjö-
unda áratugnum. Það var ákveðin
geðshræring sem greip áhangend-
ur sveitarinnar og oftar en ekki
rann blái augnskugginn niður kinn-
arnar og var kominn langleiðina
niður á háls á stelpunum. Í lok
kvöldsins var hárið, sem búið var
að eyða hátt í tveimur tímum í að
Duran Duran-æðið
Blásið hár og herðapúðar
eru ekki jafn vinsæl
fyrirbæri nú og fyrir tutt-
ugu árum. Holdgervingur
þessa tíma er þó enn við
lýði og á dygga aðdáendur
hér á landi. Sara M. Kolka
hlýddi á bjartar minningar
frá tímum vasadiskóa og
Bravo-blaða.
Simon Le Bon í broddi fylkingar. Tuttugu ára bið er lokið og loksins geta ís-
lenskir Duran Duran-aðdáendur séð sveitina á sviði næsta fimmtudag.
Duran Duran á hátindi vinsældanna um 1985. Þeir höfðu sannarlega efni á því
að fagna og hefur tónlist þeirra haft áhrif á hljómsveitir til vorra daga. Þeirra á
meðal eru The Killers, Marilyn Manson og Kylie Minogue.
Morgunblaðið/Jim Smart
Aðdáendurnir Gunni „Thaylor“, Ester og Magnús Geir setja upp Duran Duran-svipinn. Ester er í Duran-bol sem hún fékk frá London þegar hún var 12 ára, árið 1985.
túpera, farið að síga vel niður. Það
átti við jafnt um stráka sem stelp-
ur.“
Þýskunámskeið til
að geta lesið um goðin
Bravo-blöðin voru vægast sagt
vinsæl og runnu út eins og heitar
lummur (og kostuðu 41 krónu).
Eins og Ester Andrésdóttir, flug-
freyja hjá Icelandair, rifjar upp þá
voru það ekki bara Bravo-blöðin
sem hún „varð“ að eignast:
„Blöðin Bravo, Popcorn og Pop
Rocky komu út einu sinni í viku og
ég man eftir því að hafa hringt
vikulega í bókabúðina og svo drifið
mig af stað um leið og þau voru
komin í búðina til að tryggja mér
eintak.“
Það kom ekki að sök að blöðin
voru á þýsku og þá var bara orða-
bókin tekin fram og hafist handa
við að þýða orð fyrir orð grein-
arnar sem snertu Duran Duran og
Wham. Ester lét það þó ekki
nægja.
„Ég fór 12 ára á þýskunámskeið,
gagngert til þess að geta lesið
Bravo-blöðin, það var alveg öm-
urlegt að geta ekki lesið hvað þeir
voru að segja“ segir hún brosandi.
Ester og systir hennar Ásta voru
miklir aðdáendur en ólíkt því sem
er í dag tóku foreldrarnir þátt í
þessu áhugamáli og hvöttu dætur
sínar áfram.
„Þeim fannst þetta gott og heil-
brigt áhugamál enda voru textarnir
jákvæðir og lögin björt. Við spil-
uðum plöturnar inni í stofu og eig-
um bara góðar minningar frá þessu
tímabili,“ segir Ester og hugsar
dreymin til baka. Hún sýnir Duran
Duran-nótnabók sem hefur einnig
að geyma texta við lög þeirra og
minnist þess þegar hún æfði sig á
píanó með vasadiskóið í eyrunum.
Var hún þá að spila Duran Duran
lög?
„Nei nei, ég spilaði kannski eitt-
hvað eftir Mozart á píanóið á með-
an ég var með „The Reflex“ í eyr-
unum.“
Það kom ekki í veg fyrir að Est-
er kláraði fimmta stig á píanóið og
því verður þetta að kallast ansi sér-
stakur hæfileiki.
Ekkert H í Taylor
Margir tóku sér gælunöfn og
bættu við nafn sitt eftirnafninu
Taylor eða Le Bon. Meðal þeirra
sem gengu gegnum „nafnabreyt-
ingu“ var Gunnar Hansson leikari,
sem skrifaði sig sem Gunna „Thayl-
or“ í fyrstu bekkjum grunnskólans.
DURAN Duran var stofnuð 1978
af Nick Rhodes hljómborðsleik-
ara og John Taylor bassaleikara.
Þeir fengu fljótlega í lið með sér
Andy Taylor á gítar, Roger Taylor
á trommur og Simon Le Bon
sem söngvara sveitarinnar. Það
er vert að taka það fram að Tayl-
or-meðlimirnir eru ekki tengdir
blóðböndum. Breytingar hafa
orðið á samsetningu bandsins í
27 ára sögu þess en segja má
að þó bandið hafi aldrei hætt
sem slíkt þá séu það fimmmenn-
ingarnir sem Duran Duran er al-
mennt kennd við.
Hljómsveitin náði vinsældum í
byrjun níunda áratugarins og
skrifaði undir sinn fyrsta samn-
ing árið 1980 við EMI útgáfuna.
Lög eins og „Planet Earth“ og
„Girls on Films“ var að finna á
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
sem einfaldlega var nefnd „Dur-
an Duran“ og kom út 1981. Í kjöl-
farið komu plöturnar „Rio“, með
lögum eins og „Hungry like the
Wolf“ og „Save a Prayer“, og
platan „Seven and the Ragged
Tiger“ sem innihélt „The Reflex“
og „Union of the Snake“.
„The Fabulous Five“
Þá fyrst fóru hjólin að snúast.
Duran Duran-æðið skall á,
breska pressan kallaði meðlimi
hljómsveitarinnar „The Fabulous
Five“ og myndbönd þeirra voru
með þeim fyrstu sem voru sýnd
á tónlistarsjónvarpsstöðinni
MTV. Vinsældirnar náðu til tán-
inga beggja megin Atlanshafs-
ins, alla leið til Ástralíu og fóru
Íslendingar ekki varhluta af
þessu nýja poppæði. Duran Dur-
an þótti nýstárleg sveit, átti
margar smáskífur á vinsældalist-
um, gerði mögnuð myndbönd
(þar á meðal „Girls on film“ sem
þótti of djarft og var bannað á
MTV í upprunalegri mynd) og
leiddu meðlimir hljómsveit-
arinnar tískustrauma níunda
áratugarins (þó að þeir vilji síður
vera kenndir við þá bylgju nú í
dag). Tónlist sveitarinnar er
kennd við nýrómantík og hafði
mikil áhrif á bönd sem á eftir
komu. Hljómsveitir eins og Aha,
The Killers og Deftones hafa
sagt að Duran Duran hafi verið
áhrifavaldur á tónlist þeirra en
einnig hafa tónlistarmenn allt frá
Kylie Minogue til rapparans
Notorious, í gegnum Marylin
Manson, sagst vera undir áhrif-
um hljómsveitarinnar.
Wham vs Duran Duran
Vinsældir Duran Duran og
„rígur“ milli áhangenda þeirra og
aðdáenda Wham, með George
Michael og Andrew Ridgeley í
fararbroddi, stóð sem hæst á ár-
unum 1983 til 1985. Eftir þann
tíma fóru vinsældir hljómsveit-
arinnar að dala og margfrægt er
orðið er sveitin tók lag á Live
Aid-tónleikunum 1985. Duran
Duran hafði þá átt lagið “A view
to a Kill“ úr samnefndri kvik-
mynd í fyrsta sæti vinsældalista
í nokkurn tíma en Simon söng
falskt í viðlaginu og hefur sjálfur
minnst þessa sem mestu nið-
urlægingu ferils síns. Þessir tón-
leikar voru þeir síðustu sem Dur-
an Duran spilaði á í upprunalegri
mynd, eða allt þar til þeir komu
saman aftur í júlí 2003. Mikil eft-
irvænting ríkti eftir endurkomu
hljómsveitarinnar meðal aðdá-
enda en einnig meðal tónlist-
arpressunar og ný plata Duran
Duran, „Astronaut“, kom út í
október á síðasta ári. Hljóm-
sveitin hefur fylgt nýju plötunni
eftir með miklum tónleikatúr og
ekki er langt þar til Íslendingar
geta barið sveitina augum en
Duran Duran mun spila í Egils-
höll 30. júní.
Duran Duran í 27 ár