Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 23 sem við teljum helst ganga á íslenskum markaði og einbeitum okkur að því. Það að kunna að velja og hafna er lykillinn að því að geta veitt góða og trausta þjónustu, því þetta snýst á endanum um það að geta veitt þjónustu og að eiga til varahluti þegar viðskiptavinir okkar þurfa á þeim að halda. Við getum ekki verið öllum allt, en með þessu tókst okkur að verða fremstir eða stærstir þar sem ákváðum að taka þátt í samkeppninni. Þá má nefna í þessu sambandi að fyrirtækið hefur alltaf haft þannig starfsmannastefnu að starfsmenn geti gengið inn í störf annarra starfs- manna, að alltaf væri staðgengill til að geta þjón- að viðskiptavinum okkar, án þess að þeir þurfi að leita að „sínum“ starfsmanni. Árangur þessarar stefnu hefur sannarlega staðist prófið nú þegar nokkrir reyndir starfsmenn ákváðu að hætta störfum nýlega. Þá tóku aðrir við kyndlinum og sýna kannanir sem við höfum gert, svo og árang- ur fyrirtækisins undanfarna mánuði, að við- skiptavinir okkar hafa ekki liðið fyrir þessa breytingu.“ Þensla í Kraftvélum Páll hefur ekki eingöngu fengist við innflutn- ing á bílum því árið 1990 fékk P. Samúelsson um- boð fyrir gröfur og tæki frá Komatsu. Var fyr- irtækið valið úr hópi 25 fyrirtækja sem sóttust eftir umboðinu. „Við stofnuðum fyrirtækið Kraftvélar um Komatsu-umboðið. Á fyrstu ár- unum var nokkur uppgangur, síðan kom öldudal- ur og má segja að innflutningur á þessum at- vinnutækjum sé ekki síður en bílarnir viðkvæm- ur og háður margs konar sveiflum. Þegar þessi lægð gekk yfir tókum við að sinna þjónustu við aðrar tegundir í gröfum og tækjum og sköpuðum okkur þannig næg verkefni. Innflutningur á gröfum hefur síðan aukist aft- ur og fyrirtækið, sem nú er til húsa við Dalveg í Kópavogi, er að stækka við sig þar.“ Stækkunin er líka á öðru sviði því nýlega tóku Kraftvélar að sér sölu á Komatsu í Danmörku. Segir Páll líklegt að fyrirtækinu takist að byggja þar upp jafnmikla sölu og stærð heildarmark- aðarins er hérlendis. Þegar litið er út fyrir bílainnflutninginn og annan fyrirtækjarekstur sjást fingraför Páls hér og þar á góðgerðarmálum – en aðeins ef vel er að gáð – og er skógræktin ekki minnsta verkefnið. „Við ákváðum á 20 ára afmæli fyrirtækisins að gefa 10 þúsund trjáplöntur sem voru gróðursett- ar í öllum landsfjórðungum.“ Einnig má nefna að fyrirtækið gaf Skógrækt- arfélagi Íslands bíl fyrir fimm árum, á 70 ára af- mæli félagsins. Þá hefur Krabbameinsfélagið notið stuðnings fyrirtækisins með bílum og svo hafa þeir feðgarnir Bogi og Páll gefið vildarbörn- um gistirétt á tveimur íbúðum í Flórída. Ekki er í anda Páls að hafa mikið fleiri orð um þennan þátt og enda spjallið á því sem nefnt var í upphafi, því sem er honum jafnan ofarlega í huga, þjónustulundinni við viðskiptavinina þegar hann er spurður hvað honum finnist standa upp úr eftir áratuga störf í fyrirtækjarekstrinum: „Ég er fyrst og fremst mjög þakklátur öllu því góða fólki sem hefur átt við okkur viðskipti gegn- um árin.“ ’Fyrirtækiðhefur alltaf haft þannig starfsmanna- stefnu að starfsmenn geti gengið inn í störf annarra starfs- manna.‘ ’Ég er afarþakklátur fyr- ir að nýliðinn maímánuður er söluhæsti mánuður í sögu fyrir- tækisins.‘ joto@mbl.is M IX A • fít • 5 0 7 6 5 Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun Sumarið er okkar tími! Tilvalið að líta inn Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Végarður í Fljótsdal Kynnið ykkur Kárahnjúkavirkjun og allt sem henni viðkemur í Végarði. Tilvalið að koma þar við áður en haldið er upp að Kárahnjúkum. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals „Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð sýning um mannlífið í Þjórsárdal í 1100 ár. Blöndustöð í Húnaþingi Þorir þú 200 metra niður í jörðina? Hvað verður í göngum Blöndustöðvar í sumar? Magnaður viðkomustaður. Kröflustöð í Mývatnssveit Allt um Kröfluelda í Gestastofu. Kynnist eldsumbrotunum sem urðu í nágrenni Kröflustöðvar 1975-1984. „Hreindýr og dvergar“ Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir magnaða tréskúlptúra í Laxársstöð í sumar. „Hvað er með Ásum?“ Frábær sýning Hallsteins Sigurðssonar, sem hlotið hefur einróma lof. Ljósafosstöð í Soginu „Ár og kýr“ Jóns Eiríkssonar komnar suður. Veit Guðni af þessu? 365 kúamyndir sem hlotið hafa verð- skuldaða athygli. Hvernig verður rafmagn til? Hvers vegna er rafmagn á Íslandi umhverfisvænna en hjá öðrum þjóðum? Laxárstöðvar í Aðaldal Heimsókn til Landsvirkjunar er upplýsandi og skemmtileg Hapro farangurskassi er snjöll lausn til að koma öllum farangrinum fyrir í bílnum. Verð frá 19.900 Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is Það sem upp á vantar Sterku kerrurnar frá Camp-let í mörgum stærðum Fortjöld frá Isabella fyrir fellihýsi, ferðabíla og hjólhýsi. Örugglega bestu fortjöld sem fáanleg eru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.