Morgunblaðið - 26.06.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 37
UMRÆÐAN
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Íbúð í Kópavogi óskast.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-130 fm íbúð í nýlegri blokk í
Kópavogi. Nánari uppl. veita Sverrir og Hákon.
Iðnaðarhúsnæði í Garðabæ óskast.
250-400 fm iðnaðarhúsnæði með góðri lofthæð í Garðabæ óskast.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Einbýlishús í Garðabæ óskast - staðgreiðsla.
180-280 fm einbýlishús, helst á einni hæð, óskast sem fyrst.
Staðgreiðsla í boði. Allar uppl. veitir Sverrir.
Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast - staðgreiðsla.
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 150-200 fm ein-
býlishús á einni hæð á Seltjarnarnesi. Allar nánari upplýsingar veitir
Sverrir.
Íbúð við Espigerði óskast - staðgreiðsla.
Traustur kaupandi óskar eftir 110 fm íbúð við Espigerði.
Nánari uppl. veitir Sverrir.
Sérhæð við miðborgina óskast.
Fjársterkur kaupandi óskar eftir 150-200 hæð sem næst miðborg-
inni. Staðgreiðsla. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast - rýming eftir 1 ár.
Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð við Hæðargarð eða
í háhýsi við Sólheima. Staðgreiðsla í boði. Eignin þarf ekki að losna
fyrr en eftir 1 ár. Nánari uppl. veitir Sverrir.
,,Penthouse" í miðborginni óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 200-250 fm ,,penthouse"-íbúð eða (efstu) sérhæð í
miðborginni eða í nágrenni hennar. Rétt eign má kosta 40-75 millj.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Íbúð við Kirkjusand óskast.
Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm íbúð við Kirkjusand.
Nánari uppl. veitir Sverrir.
Hæð í Hlíðunum eða Kleppsholti óskast.
Traustur kaupandi óskar eftir 120-140 fm
hæð í Hlíðunum.
Sverrir veitir nánari upplýsingar.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
Upplýsingar veita Sverrir Kristinsson
og Hákon Jónsson.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar
stærðir raðhúsa og einbýlishúsa víðs vegar á höfuð-
borgarsvæðinu - einnig vantar flestar stærðir og gerðir
íbúða - traustir kaupendur
Dæmi úr kaupendaskrá:
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - HOLTSGÖTU 20, 3. HÆÐ
NJÁLSGATA - GLÆSILEG
Vorum að fá í sölu mikið endurnýjaða 83 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi í miðbænum.
Íbúðin skiptist m.a. í stofu og tvö rúmgóð herbergi. Nýstandsett eldhús með tækjum úr stáli. Gaselda-
vél. Baðherbergið er einnig nýstandsett með hornbaðkari með nuddi. Mikil lofthæð er í íbúðinni. Listar í
loftum. Dimmer í stofu og herbergjum. Eikarparket og flísar á gólfum. Glæsileg íbúð í miðborginni sem
hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt. V. 19,7 m.
HVAMMSGERÐI - EINBÝLISHÚS
Fallegt einbýlishús sem skiptist í hæð og ris ásamt litlum kjallara og bílskúr. Aðalhæðin er björt og opin
og skiptist í forstofu, hol, eldhús, snyrtingu, tvö herbergi, stóra stofu og borðstofu. Rishæðin skiptist í
þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er þvottahús og geymsla. V. 36,5 m.
FLÉTTURIMI - MEÐ
BÍLSKÝLI
Fjögurra til fimm herbergja glæsileg endaíbúð á
annarri hæð ásamt stæði í bílageymslu sem er
innangengt í. Íbúðin skiptist í hol, þrjú herbergi,
baðherbergi, þvottahús, eldhús og tvær samliggj-
andi stofur. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og
sameiginleg hjóla-/vagnageymsla o.fl. Einnig er
stæði í góðri bílageymslu. V. 23,9 m.
BLIKAÁS - GLÆSILEG M. 40
FM VERÖND
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með um
40 fm timburverönd í litlu fjölbýlishúsi við Blikaás í
Áslandi, Hafnarfirði. Sér inngangur. Sér þvottah.,
vandaðar innréttingar og fallegt útsýni.
V. 18,9 m.
EYJABAKKI - ÚTSÝNI GYÐUFELL
ÞÓRSGATA - GÓÐ SIGLUVOGUR - GÓÐ STAÐSETNING
4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með fallegu út-
sýni. Íbúðin skiptist í gang, baðherbergi, þrjú her-
bergi, stofu, eldhús og bað. Íbúðin snýr í norður
og er með fallegu útsýni yfir Esjuna og víðar, einnig
til austurs. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og sam-
eiginlegt þvottahús o.fl. V. 16,9 m.
Mjög falleg og mikið standsett 3ja herbergja íbúð á
2. hæð í litlu fjölbýlishúsi, sem skiptist í stofu, tvö
herbergi, eldhús og bað. Góðar suðursvalir. Sér-
geymsla með glugga er á jarðhæð (nýtt sem
vinnuherbergi í dag). V. 16,5 m
Góð 3ja herbergja 86 fm rísíbúð í tvíbýlishúsi á
góðum og rólegum stað. Íbúðin skiptist í hol, tvö
herbergi, stofu, eldhús og bað. Vestursvalir. Íbúðin
er undir súð að hluta og gólfflötur hennar hátt í
100 fm. V. 17,9 m
Snyrtileg 3ja herbergja 84 fm íbúð í blokk sem
hefur verið klædd með varanlegri klæðningu.
Íbúðin skiptist í hol, tvö herbergi,eldhús, baðher-
bergi, stofu og yfirbyggðar svalir. Á jarðhæð er
sameiginlegt þvotthús og sér geymsla.
V. 14,5 m.
Falleg og björt 81 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í fjórbýlishúsi við Holtsgötu. Ein íbúð á hæð. Íbúðin
skiptist m.a. í tvær rúmgóðar samliggjandi stofur og tvö herbergi. Íbúðin er vel skipulögð. Mikil lofthæð
er í íbúðinni. Fulningahurðir. Listar í loftum. Húsið hefur nýlega verið standsett. Íbúðin er laus 1. júlí nk.
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 14-16. V. 17,9 m.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Til sölu er eign við Laugaveg í Reykjavík. Húsið er timburhús á hlöðnum
grunni sem byggt var árið 1902. Við húsið hafa þó verið byggðar við-
byggingar. Lóðin undir húsinu er 475 fm og skv. skipulagi Reykjavíkur er
heimilt að stækka jarðhæð hússins alveg út að lóðarmörkum, þannig að
hún verði um 475 fm. Einnig má lyfta húsinu þannig að jarðhæðin verði
með u.þ.b. 330 cm lofthæð. Efri hæðir hússins má einnig stækka um ca
160 fm hvora fyrir sig eða um alls 320 fm. Nýtingarhlutfall lóðarinnar má
vera allt að 2,28 sem gerir u.þ.b. 1100 fm.
Óskað er eftir tilboðum í húsið og allar nánari upplýsingar veitir Jason
Guðmundsson lögg. fasteignasali á skrifstofu Eignamiðlunar.
Laugavegur - heil húseign - byggingarréttur
hlýtur það að mestu að gerast í
anda „austurkirkjunnar“. Eins er
með siðbótarmenn á Norður-
löndum, Þýskalandi, Hollandi og
víðar, að kirkjur þeirra eru óháðar
páfadómi ef eðlilegum ástæðum.
Sama á einnig við um ensku kirkj-
una, Church of England. Hún er
siðbótarkirkja og kirkja konungs í
„Hinu sameinaða konungdæmi
Stóra-Bretlands og Norður-
Írlands“. Ekki þar fyrir, róm-
versk–kaþólska kirkjan er fjöl-
menn í Bretlandi. Í siðbótar-
löndum er víðast góður vilji til
frjálsra samskipta við rómversk-
kaþólska kirkju, enda langt um
liðið síðan leiðir skildi. Íslenskir
þjóðkirkjumenn bera réttmæta
virðingu fyrir rómversk-kaþ-
ólskum sið og sjá í viðhorfum að-
skilinna kirkjudeilda margt sem
sameinar kristna menn hvarvetna,
þótt sitthvað beri á milli.
Fyrir mér og mörgum öðrum
getur það þó ekki orðið keppikefli
að allar kirkjur og hvers konar
kristinn félagsskapur renni saman
í eina stjórnarheild á borð við
hugsað veraldaralræði „almennrar
kirkju“. Slík hugsjón er óraunsæ
og útópísk. Kristindómur á að
virða og þola fjölhyggju í kirkju-
skipan og útbreiðslu trúarkenn-
inga og siðaboðskapar.
Karlamagnúsarheilkennið
Í þessu sambandi verður manni
á að minnast ofsafengins áróðurs
forustumanna fjölmennustu ríkja á
meginlandinu um stofnun Banda-
ríkja Evrópu í andstöðu við kjós-
endavilja. Karlamagnúsarheil-
kennið leynir sér ekki í
hugmyndum um allt um lykjandi
yfirráð ríkisvalds og kirkjuskip-
unar í álfunni. Ekki getur það tal-
ist björt framtíðarsýn að gera við-
sjála samrunahugmynd
Evrópulanda að banameini sjálf-
stæðis og fullveldis þjóðríkja, auk
þess að lama fjölhyggju, fjölmenn-
ingu og umburðarlyndi í trú-
málum, sem allt hefur góð skilyrði
til að þróast farsællega á grund-
velli frjálsrar alþjóðasamvinnu
innan og utan Evrópu, fái hún að
njóta sín eðlilega.
Hugmyndir forustumanna Evr-
ópusambandsins um aukið alrík-
isvald þess hafa beðið varanlegan
hnekki eftir úrslit þjóðaratkvæðis
í Frakklandi og Hollandi um drög
að nýrri stjórnarskrá, þar sem
stefnan er sett á stofnun Banda-
ríkja Evrópu. Efnahagsástand
margra ríkja innan ESB vekur al-
menningi ugg. Atvinnuleysi hefur
verið viðvarandi um langt árabil.
Unga fólkið finnur mest fyrir því
og miðstétt menntafólks óttast um
framtíð sína. Þýskaland er markað
af hnignun og úrræðaleysi stjórn-
málamanna. Ástandið í Frakklandi
er álíka. Evran, hinn nýi gjaldmið-
ill, sem átti að efla atvinnu- og
viðskiptalífið, er orðinn dragbítur
og skaðvaldur í ýmsum aðild-
arríkjum, svo að raddir verða sí-
fellt háværari um að þau væru
betur komin utan evrusvæðisins.
Bretar, sem halda fast í sitt sterl-
ingspund, þakka almættinu fyrir
þá gæfu sem sú íhaldssemi hefur
fært þeim, enda vegnar þeim ólíkt
betur.
Íslendingum er enginn hagur að
inngöngu í Evrópubandalagið.
Vonandi fer nú að draga úr áróðri
fyrir aðild að því hér á landi. Ís-
lendingar eiga að varðveita sjálf-
stæði sitt og fullveldi.
Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra,
nú stjórnarmaður í Heimssýn, hreyf-
ingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.
Fréttir í
tölvupósti