Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 45 ALDARMINNING Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ÞÓRDÍS EGILSDÓTTIR glerlistakona, Kambaseli 21, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 19. júní, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 27. júní kl. 13.00. Óskar Smári Haraldsson, Haraldur Helgi Óskarsson, Anna Fanney Gunnarsdóttir, Brynjar Þór Óskarsson, Magdalena Hilmisdóttir, Oddur Jarl Haraldsson. Móðir okkar, AÐALBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR (Lalla), Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, er látin. Jarðarförin verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. júní kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Blindrafélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Birgir Thor Helgason, Ásgeir Bolli Kristinsson, Sybil Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SKÚLI GARÐARSSON, Þverbraut 1, Blönduósi, lést miðvikudaginn 22. júní. Útförin auglýst síðar. Sigþrúður Guðmunda Sigfúsdóttir, Guðni Rúnar Skúlason, Eydís Berglind Baldvinsdóttir, Hanna Dís Skúladóttir, Bergur Ingi Ásbjörnsson, Garðar Freyr Skúlason, Guðmunda Rán Skúladóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BJÖRN K. KRISTJÁNSSON, Ljósuvík 58, 112 Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut laugardaginn 18. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans. Þökkum auðsýnda samúð. Guð blessi ykkur öll. Anna Fossberg Leósdóttir, Fríða Björnsdóttir, Ármann Óskar Sigurðsson, Lára Huld Björnsdóttir, Helgi Þorsteinsson, Anna Birna, Ingibjörg Lára, Sigurður Leó, Ísak Thor. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÓLÍNA GUNNARSDÓTTIR, Dvergabakka 2, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut föstudaginn 24 . júní. Sigfús Jóhannsson, Lára Sigfúsdóttir, Guðmundur Jónsson, Jóhann Sigfússon, Gunnhildur F. Theódórsdóttir, Unnur Sigfúsdóttir, Ragnar Gunnarsson, Þórir Ólason, ömmubörn og langömmubarn. Útför eiginkonu minnar, móður, systur okkar, mágkonu og svilkonu, UNNAR AÐALSTEINSDÓTTUR, Giljalandi 29, fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. júní kl. 13.00. Ólafur Friðfinnsson, Sunneva Líf Ólafsdóttir, Íslaug Aðalsteinsdóttir, Ragnar Aðalsteinsson, Anna Hatlemark, Ása Aðalsteinsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Björn Friðfinnsson, Iðunn Steinsdóttir, Guðríður Friðfinnsdóttir, Hermann Árnason, Stefán Friðfinnsson, Ragnheiður Ebeneserdóttir, Sigrún Bára Friðfinnsdóttir, Ólafur Lárusson, Elín Þóra Friðfinnsdóttir, börn og barnabörn.Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, SIGURÐUR RAGNAR ARNBJÖRNSSON, Kirkjuvegi 18, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 29. júní kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á sjóðinn „Sjálfstyrking ungmenna“, sem stofnaður hefur verið í minningu Sigurðar innan FFGÍR, Foreldrafélag og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ, kennitala 460505-1270, reikningsnr. 1109-05-410289. Erla Björk Sigurðardóttir, Arnbjörn Eiríksson, Hafþór Raul Brown, Kristmundur Arnbjörnsson, Ísar Arnbjörnsson, Hlíf Arnbjörnsdóttir, Elín Arnbjörnsdóttir, Aron Arnbjörnsson, Þórunn Anna Arnbjörnsdóttir, Sigurður Ragnar Björnsson, Jóna G. Arnbjörnsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR OTTESEN GUNNARSSON, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Gunnsteinn Guðmundsson, Áslaug I. Skúladóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Ragnar Þorvaldsson, Gunnar Guðmundsson, Margrét Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hún fæddist inn í sól- bjartan vordaginn norð- ur á Húsavík 26. júní 1905 og ól þar allan ald- ur sinn. Foreldrar hennar voru Anna María Árnadóttir hús- móðir og Karl Einars- son útvegsbóndi í Túns- bergi. Systkini Arn- fríðar voru tvö, Hans- ína, fædd 1904, og Þórhallur, fæddur 1908. Í Túnsbergi við nið- andi Búðarána ólst hún upp við ást og gott atlæti foreldra sinna. Snemma kom dugnaður og myndarskapur fram hjá stúlkunni. 13 ára var hún í heim- sókn hjá frænku sinni frammi í Kinn og var þar þá haldin skemmtisam- koma. Arnfríður sýndi snör handtök við að hella upp á kaffi fyrir samkomu- gesti og vakti það aðdáun 18 ára sveita- pilts frá Þóroddsstað, Þóris Friðgeirs- sonar (1901–1996). Ekki vakti það minni aðdáun hans hvað hún var lagleg og lífsglöð þessi stúlka á rauðum flauelskjól með þykkar, brúnar hár- fléttur niður á bak. 17 ára lifði Arnfríður eitt mesta æv- intýri unglingsáranna. Hún sat í litla herberginu inn af eldhúsinu í Túns- bergi og heyrði á tal foreldra sinna gegnum hálfopnar dyrnar. Pabbi hennar er að tala um að sig vanti ráðs- konu á bátinn Njál meðan þeir geri út frá Siglufirði og segist halda að Adda geti alveg tekið þetta að sér. Móðir hennar biður fyrir sér og segir að Adda sé nú bara krakki þótt 17 ára sé. Nú blandar Adda sér sjálf í samræð- urnar, fer að telja upp hvað hún kunni að baka og matbúa. Það verður úr að hún er ráðin ráðskona hjá pabba sín- um þennan tíma og gekk það allt vel. Um þetta ævintýri skrifaði Arnfríður frásögn í Heima er best. Nokkur sumur eftir þetta er Arn- fríður kaupakona á Þóroddsstað og tókust þá nánari kynni með þeim Þóri og enduðu með trúlofun. Árið 1925 þegar Arnfríður er tvítug trúlofuð stúlka fær hún jákvætt svar við umsókn sinni um skólavist í Kvennaskólanum á Blönduósi. Henni finnst hún næstum orðin of gömul og ráðsett en slær þó til og er í skólanum veturinn 1925–26. Um þessa skólavist og ferðalög til og frá skóla skrifaði Arnfríður frásögn sem birtist í bók- inni Djúpar rætur – hugverk þing- eyskra kvenna. Á afmælisdegi Arnfríðar 26. júní 1927 gengu þau Þórir í hjónaband, hún 22 ára, hann 25. Hjónavígslan fór fram í Þóroddsstaðarkirkju og var til þess tekið hvað veður var gott þennan dag. Allmikill fjöldi var í brúðkaups- veislunni, þ. á m. þó nokkrir frá Húsa- vík. Veitinga var neytt bæði úti og inni og mikið sungið og ræður haldn- ar. Ungu hjónin hófu búskap í Nýju stofu, útbyggingu norðan við gamla Þóroddsstaðarbæinn. En ekki voru liðnir nema sjö mánuðir frá brúð- kaupinu þegar Anna María í Túns- bergi dó tæplega sextug að aldri. Fluttu þá ungu hjónin til Húsavíkur og settust að í Túnsbergi hjá þeim feðgum Karli og Þórhalli. Þrem mán- uðum seinna réðist Þórir til starfa hjá Kaupfélagi Þingeyinga fyrst sem af- greiðslumaður í söludeild. Seinna var hann um langt árabil gjaldkeri KÞ en lauk starfsævi sinni sem bókavörður í Bókasafni Suður-Þingeyinga. Þau hjónin eignuðust þrjú börn meðan þau bjuggu í Túnsbergi. Fyrsta barnið var stúlka sem dó í fæðingunni. Anna María fæddist 24. október 1929 og Hildur 31. janúar 1933. Haustið 1933 keypti Þórir Sól- bakka, glæsilegt steinhús úti á Beina- bakka á Húsavík og flutti fjölskyldan þangað en Karl og Þórhallur urðu eft- ir í Túnsbergi en þangað fluttu um svipað leyti Hansína, systir Arnfríðar með manni sínum, Hannesi Jakobs- syni málarameistara og syninum Karli Hannesi en þau höfðu um árabil búið í Ameríku. Þórir kom upp blóma- og trjágarði við Sólbakka, þeim fyrsta á Beina- ARNFRÍÐUR KARLSDÓTTIR bakkanum. Arnfríður var afar ánægð með fal- lega húsið með græn- máluðu bogunum yfir gluggunum. Í svartasta skamm- deginu, 21. desember 1936, fæddist þeim hjónum lítill drengur, sannkallaður ljósgeisli. Hann var skírður frammi á Þóroddsstað á tíu ára brúkaupsafmæli hjónanna og hlaut nafn- ið Friðgeir Karl. En honum voru ekki ætlað- ir langir lífdagar hér á jörðu og hann lést úr lungnabólgu 22. júlí 1938. Vorið 1939 fæddist dóttir, Ragn- heiður. Hún lést tæplega 65 ára í febr- úar 2004. Yngsta dóttirin, Inga, fædd- ist 4. ágúst 1945. Arnfríður var oftast nefnd Adda í Sólbakka og hýrnaði yfir mörgum þegar þeir heyrðu þetta nafn eða tóku sér það í munn. Hún var mikil mynd- arhúsmóðir, allt var fágað og hreint og í röð og reglu í kringum hana og hún bjó til afskaplega góðan mat. Gestrisin voru þau hjón svo af bar og fáir voru þeir dagar um langt árabil sem ekki sat sveitafólk í kaupstaðar- ferð til borðs í hádeginu. Kostgang- arar og leigjendur voru oft á heim- ilinu. Arnfríður tók að sér farlama gömul hjón, Árna Jakobsson og Sig- ríði Sigurgeirsdóttur, um árabil og bjuggu þau í kjallaraherbergi í Sól- bakka og sá Arnfríður um þau með mat og drykk og alla þjónustu. Þegar á ævina leið tók Arnfríður meiri og meiri þátt í félagsmálum, að- allega í Kvenfélagi Húsavíkur. Hún sat lengi í stjórn og var einnig formað- ur þess félags. Hún var heiðursfélagi í Kvenfélagasambandi Suður-Þingey- inga. Í hennar tíð stuðlaði Kvenfélag Húsavíkur að stofnun leikskóla og ráðningu hjálparstúlkna til heimila. Mörg önnur góð málefni hafði félagið á stefnuskrá sinni og Húsavíkur- kirkja naut alla tíð góðs af störfum þess. Nokkrar ferðir fór hún á sam- bandsfundi kvenfélaga og urðu þessi ferðalög henni mikil ævintýri. Seinni hluta ævinnar var Arnfríður mjög heilsuveil og dvaldist langdvöl- um á sjúkrahúsum á Húsavík, Akur- eyri og í Reykjavík. Sjúkdómsböl bugaði ekki hennar léttu lund. Henni þótti gaman að lifa og hún lifði lífinu lifandi. Arnfríður lést á Húsavík 7. júní 1976, tæplega 71 árs að aldri. Anna María Þórisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.