Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 51
aranum að Gunnarsholti). Boðið verður upp
á fjölbreytta dagskrá og kaffiveitingar.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Skrif-
stofan er opin: Mánudaga 10–13, þriðjudaga
13–16 og fimmtudaga frá 10–13. http://
www.al-anon.is.
Fundir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Nýliða-
fundir í Reykjavík. Mánudagur, Kirkja
Óháða safn. kl. 20. Þriðjudagur, karlafundur
Seljavegi 2 kl. 18.30. Árbæjarkirkja kl. 20.
Miðvikudagur, Seljavegur 2 kl. 20. Tjarn-
argötu 20 kl. 20. Neskirkja kl. 20. Fimmtu-
dagur, Áskirkja kl. 20. (Mælt er með ca 6
fundum í röð.)
Kynning
Al-Anon | Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon
er félagsskapur fólks sem hefur orðið fyrir
áhrifum af drykkju ættingja eða vinar. Al-
Anon hefur aðeins einn tilgang: Að hjálpa
fjölskyldum og vinum alkóhólista. Nánar á:
www.al-anon.is.
Málþing
Hóladómkirkja | Kaþólskur dagur á Hólum í
dag. Málþing um Guðmund góða Arason,
Hólabiskup 1203–1237, hefst kl. 14. Dr. Stef-
án Karlsson, fyrrverandi forstöðumaður
Árnastofnunar, flytur erindi. Haukur Guð-
laugsson leikur orgelverk.
Námskeið
Árbæjarsafn | Örnámskeið í flugdrekagerð,
tálgun, þæfingu, glímu og kveðskap. Nám-
skeiðin eru ætluð börnum í fylgd með full-
orðnum og eru kl. 13–16. Flugdrekagerð: 1.7.
Tálgun: 29.6, 5.7, 13.7. Glíma: 30.6., 9.7.,
14.7. Þæfing: 28.6., 6.7. Kveðskapur: 23.7.
Verð 1.000–2.500 á mann. Upplýsingar og
skráning í síma 411 6320.
Íþróttir
ICC | Þriðja mótið af tíu í nýrri Bikarsyrpu
Eddu útgáfu og Taflfélagsins Hellis verður í
dag kl. 20. Verðlaun eru í boði Eddu útgáfu.
Nánari upplýsingar á Hellir.com.
Útivist
Garðyrkjufélag Íslands | Garðyrkjufélag Ís-
lands býður upp á garðagöngur í sumar.
Fyrstu göngurnar eru 29. júní kl. 20. Á Ak-
ureyri er mæting við Minjasafnsgarðinn.
Leiðsögn: Helgi Þórsson og Björgvin Stein-
dórsson. Í Kópavogi er mæting við Kópa-
vogskirkju. Leiðsögn: Ingibjörg Steingríms-
dóttir. Á Ísafirði er mæting við bílastæðið
við sjúkrahúsið. Leiðsögn: Samson Bjarni
Harðarson.
Markaður
Lónkot | Markaður verður í Lónkoti í
Skagafirði í dag kl. 13–17. Sölufólk getur
pantað borð hjá Ferðaþjónustunni Lónkoti.
Sími 453 7432.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 51
MENNING
Kletthálsi 13 // s. 5876644 // www.gisli.is
Sterku norsku Steady
bátarnir sameina kosti hefðbundinna
slöngubáta og plastbáta.Verð frá 99.000kr.
Styrkurinn
ogaflið
Þekktustu utanborðsmótorar heims á verði á við það sem ódýrast þekkist.
Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta.Verð frá 79.000kr.
Johnson-Evinrude
Steady
Í GARÐABÆ er lítill bárujárns-
klæddur burstabær, Krókur á
Garðaholti, sem var endurbyggður
úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru
varðveitt gömul húsgögn og munir
sem voru í eigu hjónanna Þor-
bjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og
Vilmundar Gíslasonar. „Þorbjörg
flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki
til ársins 1985. Afkomendur Þor-
bjargar og Vilmundar í Króki gáfu
Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt
útihúsum og innbúi árið 1998. Und-
anfarin sumur hefur Krókur verið
opinn almenningi til sýnis og á vet-
urna hafa listamenn fengið þar
vinnuaðstöðu. Ungir sem aldnir hafa
heimsótt Krók og bærinn er
gott dæmi um húsakost og lifn-
aðarhætti alþýðufólks á þessum
landshluta á fyrri hluta 20. aldar,“
segir í fréttatilkynningu.
Krókur á Garðaholti
Krókur er opinn á hverjum sunnu-
degi í sumar frá kl. 13-17 og að-
gangur er ókeypis. Krókur er stað-
settur á Garðaholti í Garðabæ, á
ská gegnt samkomuhúsinu í ná-
grenni Garðakirkju.
MYNDLISTARSÝNING Önnu Leós
í Ráðhúsi Reykjavíkur stendur nú
yfir. Þessi sjötta sýning Önnu er
tileinkuð verndun íslenskrar nátt-
úru.
Sýningin stendur til 10. júlí.
Opið er í Ráðhúsinu alla virka
daga klukkan 8–19 og um helgar
kl. 12–18.
Anna Leós sýnir í Ráðhúsinu
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
SPÆNSKI tenór-
söngvarinn Placido
Domingo kom fram á
blaðamannafundi í
Róm á föstudag. Til-
efnið var það að hann
snýr senn aftur til hins
fræga Terme di Cara-
calla, sem eru minjar
eftir almenningsbaðhús
Rómar til forna, í
fyrsta sinn í 15 ár, eða
síðan hann kom fram
sem hluti af Ten-
órunum þremur ásamt
Jose Carreras og
Luciano Pavarotti þeg-
ar Heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu fór fram á
Ítalíu árið 1990.
Domingo mun að þessu sinni
leikstýra þar óperunni Aídu eftir
Giuseppe Verdi sem
frumsýnd verður 23.
júlí og sýnd til 4. ágúst.
Á blaðamannafund-
inum sagði Domingo
vel hugsanlegt að Ten-
órarnir þrír eigi eftir
að syngja saman aftur.
„Það er erfitt fyrir
okkur að finna tíma til
að koma allir saman …
En þegar það hefur
borið á góma hefur það
ætíð verið tengt knatt-
spyrnu – 2006 hefur
verið nefnt til sög-
unnar, þannig að við
sjáum til,“ sagði Dom-
ingo og vísaði þar til Heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu sem
fer fram í Þýskalandi á næsta ári.
Fyrir 15 árum sungu Tenórarnir
þrír aríur á borð við „O, Sole Mio“ og
„Nessum Dorma“ á tónleikum sem
haldnir voru í tengslum við HM á
Ítalíu og var sjónvarpað til milljóna
manna um heim allan. Útsendingin
jók til muna almennan áhuga á
óperutónlist og sala á plötum sem
höfðu að geyma upptökur á verkum
sem þeir fluttu á tónleikunum sló öll
fyrri sölumet á klassískri tónlist.
Uppfærsla Domingos á Aídu
markar enduropnun á Terme di
Caracalla fyrir óperuflutning en
þessi 7 þúsund manna tónleika-
staður hefur verið lokaður í meira en
áratug vegna óttans við að stórir
tónleikar kynnu að skaða þessar
merku fornminjar. Nýverið gaf for-
stöðumaður fornminja í Róm grænt
ljós á að hægt yrði að setja upp
óperusýningar á nýjan leik í Terme
di Caracalla.
Tónlist | Domingo leikstýrir Aídu í Róm
Mögulegt að Tenórarnir
þrír syngi á HM 2006
Placido Domingo
GRUPPO Atlantico mun halda
tónleika í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar sunnudaginn 26.
júní. Gruppo Atlantico var
stofnað sumarið 2003 og hefur
spilað á hverju sumri síðan.
Meðlimir hópsins eru Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir og Hlíf
Sigurjónsdóttir fiðluleikarar,
Guðrún Þórarinsdóttir víólu-
leikari og Þórir Jóhannsson
kontrabassaleikari. Á þessum
tónleikum fá þau sér til full-
tingis þá Sigurgeir Agnarsson
selló, Rúnar Óskarsson klarin-
ett, Darren Stonham fagott og
Emil Friðfinnsson horn. Á efn-
isskránni er eitt verk, oktett D
803 fyrir blásara og strengi eft-
ir Franz Schubert. Í kynningu
segir um verkið: „Þetta vinsæla
kammerverk samdi Schubert
árið 1824 og er óhætt að segja
að þar er kammertónlist eins
og hún gerist best enda er okt-
ettinn vinsæll á efnisskrá hinna
ýmsu kammerhópa.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Gruppo
Atlantico
EM á Tenerife.
Norður
♠8
♥D8
♦ÁK754
♣ÁK1094
Suður
♠63
♥ÁKG62
♦10986
♣G5
Suður spilar sex hjörtu. Austur
hefur sagt spaða og vestur tekið
undir. Útspilið er spaði upp á ás
og austur kemur með tromp til
baka.
Hver er besta áætlunin?
Þessa dagana stendur yfir mikil
bridshátíð á Tenerife, sem spiluð
er undir formerkjum Evrópu, þótt
hátíðin sé reyndar opin öllum
þjóðum. Spilið að ofan er frá
fyrsta mótinu, parasveitakeppni,
sem norsk/ensk sveit vann (Espen
Erichsen, Helen Erichsen, Boye
Brogeland, Tonje Brogeland, Tor
Helness og Gunn Helness).
Sex hjörtu var furðu algengur
samningur, þrátt fyrir 5-2 sam-
legu. Frakkinn Paul Chemla spil-
aði beint af augum, tók trompin og
svínaði fyrir laufdrottningu. Það
reyndist ekki vel:
Norður
♠8
♥D8
♦ÁK754
♣ÁK1094
Vestur Austur
♠KG74 ♠ÁD10952
♥10753 ♥94
♦G3 ♦D2
♣632 ♣D87
Suður
♠63
♥ÁKG62
♦10986
♣G5
Ítalinn Guido Ferraro valdi
betri leið. Eftir spaða út og hjarta
til baka, tók Ferraro á hjarta-
drottningu og lagði niður tígulás
til að leita eftir stöku mannspili í
austur (og lét auðvitað háan tígul
heima). Þegar ekkert markvert
gerðist í tígli, tók Ferraro ÁK í
laufi í þeirri von að fella drottn-
ingu aðra.
Ekki kom hún, en tígullinn var
2-2 og það dugði til vinnings.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is