Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 53
MENNING
Salou
Súpersól 8. júlí
frá kr. 39.995
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port
Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Salou skartar stórkostlegum
ströndum, fjölbreyttri aðstöðu, menningu og litríku næturlífi. Terra Nova býður þér
einstakt tækifæri á ótrúlegum kjörum. Þú bókar og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir.
Kr. 49.990 í 5 daga
Kr. 59.990 í 12 daga
M.v. 2 fullorðna. Súpersól 8. júlí,
5 eða 12 dagar. Netverð á mann.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Kr. 39.995 í 5 daga
kr. 49.995 í 12 daga
M.v. 2 fullorðna og 2 börn. Súpersól 8. júlí,
5 eða 12 dagar. Netverð á mann.
Óhætt er að fullyrða aðbreska rokksveitinColdplay er einhverstærsta hljómsveitin í
heiminum um þessar mundir. Ein-
hverjir myndu ofmetnast vegna
þessa en ekki Will Champion,
trommari sveitarinnar, sem er kurt-
eis og ánægður með að heyra að
X&Y, nýútkomin þriðja hljóðvers-
skífa Coldplay, hafi farið beint á topp-
inn á Íslandi, rétt eins og í 27 löndum
til viðbótar. Sveitin nýtur líka mikilla
vinsælda í Bandaríkjunum og nær að
halda toppsætinu aðra vikuna í röð,
þrátt fyrir samkeppni frá Foo Fight-
ers og Backstreet Boys. Er þetta
jafnframt í fyrsta skipti í meira en tvo
mánuði sem sama platan er á toppn-
um lengur en eina viku.
„Við elskum Ísland,“ segir Will en
Coldplay á sterkan aðdáendahóp hér-
lendis, sem varð til snemma á ferli
sveitarinnar enda hefur hún tvisvar
heimsótt landið. „Þegar við höfum
komið til Íslands höfum við skemmt
okkur rosalega vel. Aðdáendurnir og
áhorfendurnir hafa alltaf verið frá-
bærir.“
Tökum engu sem sjálfsögðu
Í Bretlandi seldist platan í um 450
þúsund eintökum í fyrstu vikunni,
sem er önnur mesta salan þar í landi
frá upphafi. Will og félagar hans,
Chris Martin (söngur og píanó),
Jonny Buckland (gítar) og Guy
Berryman (bassi), bjuggust ekki við
þessu. „Við bjuggumst ekki við neinu.
Hvað okkur varðar tökum við engu
sem sjálfsögðum hlut. Við búumst
ekki við því að fólk kaupi plötuna eða
verði ánægt með hana bara út af því
að það var ánægt með hinar plöt-
urnar. Okkur finnst við vera að byrja
á byrjunarreit uppá nýtt. Við verðum
að sanna okkur aftur. Þegar við
heyrðum þessar góðu fréttir fannst
okkur við vera heppnir og njóta for-
réttinda.“
Platan var átján mánuði í vinnslu
sem er dágóður tími svo að þeir eru
fegnir því að platan fái svona góðar
viðtökur. „Það kemur í ljós með tím-
anum hvað fólki á eftir að finnast um
plötuna en þetta hefur byrjað vel.
Það tók langan tíma að gera og klára
plötuna og við erum ánægðir með að
hún sé komin út en við erum ennþá
stressaðir því að við vitum ekki alveg
hvað fólki finnst,“ segir Will sem
minnist ítrekað á það hvað þeir séu
heppnir og hamingjusamir. Þeir
mega vera ánægðir því margir virð-
ast reikna út að X & Y sé jafnt og A
og gefa plötunni toppeinkunn.
Morgunblaðið gefur henni fimm
stjörnur af fimm mögulegum og plat-
an er með 70 af 100 á rýnivefnum
Metacritic.com, sem tekur saman
gagnrýni frá helstu miðlum.
Chris Martin er óneitanlega leið-
togi sveitarinnar og ekki minnkaði
áhugi fjölmiðla á honum eftir að hann
tók saman við Hollywood-leikkonuna
Gwyneth Paltrow. Gerir athyglin á
Chris Martin lífið auðveldara fyrir
ykkur hina?
„Já, hún gerir það. Ég get gengið
út í búð alveg óáreittur og enginn veit
hver ég er. Það er fínt. Pressan er
augljóslega mikil á Chris en það er
ástæða fyrir því að hann er söngv-
arinn og ég trommarinn. Við pössum
fullkomlega í þessi hlutverk. Ég
myndi aldrei skipta um hlutverk við
hann og ég held að hann vildi ekki
skipta við mig.“
Athyglin hefur væntanlega aukist
eftir samband hans við Gwyneth?
„Já, hún hefur tvímælalaust gert
það. En það er ekki hægt að velja
hverjum maður verður ástfanginn
af,“ segir hann og ítrekar að þetta
skapi ekki spennu í sveitinni.
Áhugaverð staðreynd um Coldplay
er að hún er samfélagslega meðvituð
hljómsveit sem hefur lagt sitt af
mörkum í baráttunni fyrir aukinni
velferð þróunarlanda. Sérstaklega
hefur sveitin lagt áherslu á „fair
trade“ eða sanngjörn viðskipti.
Finnst þér mikilvægt að nota
frægðina til að leggja áherslu á hluti
sem eru mikilvægir fyrir ykkur?
„Já, þetta er mikilvægt fyrir okk-
ur. Með því erum við ekki að segja að
allir þurfi að gera eins og við. Alveg
eins og Beyoncé eða einhver annar
notar frægð sína til að auglýsa ham-
borgara eða gos þá getum við gert
þetta. Kannski trúir þetta fólk virki-
lega á þessa hluti og kannski gefur
það því mikla ánægju að hjálpa þess-
um fyrirtækjum. En fyrir okkar leyti
finnst okkur mikilvægt að nota þau
litlu áhrif sem við höfum til að reyna
að styðja góðan málstað.“
Coldplay-liðar voru að vonum
ánægðir með ákvörðun G8-þjóðanna
að fella niður skuldir nokkurra þró-
unarríkja. „Þetta er góð byrjun.
Þessi niðurfelling er auðvitað stórt
mál, segir hann og það heyrist að það
er „en“ á leiðinni. „En ef ekki er
hugsað um það hvernig þróunarlönd
versla við iðnvæddar þjóðir á þetta
allt eftir að gerast aftur. Ástæðan
fyrir því að þessi lönd eru svo skuld-
sett er að þau geta ekki átt viðskipti
við önnur lönd á sanngjörnum
grunni.“
Honum liggur greinilega mikið á
hjarta. „Vandamálin sem við erum að
kljást við eru út af þessum ósann-
gjörnu ástæðum. Fólk vill ekki endi-
lega fá gefins peninga heldur frekar
fá tækifæri til að vinna sig út úr stöð-
unni sjálft. Það vill enga ölmusu held-
ur bara tækifæri til að sanna að það
geti gert það sjálft. Þetta er bara al-
menn regla og það er alveg út í hött
að setja þessar viðskiptahömlur á
þessi lönd. Hin löndin eru alveg nógu
rík fyrir eins og Bandaríkin og stór
hluti Evrópu. Þau þurfa ekki meiri
pening heldur er það græðgin sem
rekur þau áfram. Það er hægt að
leysa þetta og það þarf ekki að taka
langan tíma.“
Sumir halda því fram að Coldplay
sé að hrekja frá sér aðdáendur vegna
pólitískra skoðana sinna en sveitin er
ekki hrædd við það. „Fólk þarf ekk-
ert endilega að hlusta á það sem við
erum að segja. Við erum fyrst og
fremst hjómsveit sem fæst við tónlist.
Ef við semjum vonda plötu með léleg-
um lögum þá getum við ekki verið
áhrifamiklir á neinn hátt. Við verðum
að ná til fólks með tónlistinni svo við
getum rætt við fólk um sanngjarna
viðskiptahætti. Mér finnst við ekki
vera að hræða neina frá með því að
ræða þetta. Ef fólki líkar tónlistin er
það gott, það er þegar allt kemur til
alls mikilvægasti þátturinn. Það er
enginn að neyða fólk til að hlusta á
það sem við erum að segja.“
Spenntur fyrir Live8
Það ætti ekki að koma á óvart að
Coldplay er ein þeirra sveita sem
spila á góðgerðartónleikunum Live8,
sem fram fara víðsvegar um heiminn
2. júlí og er Will spenntur fyrir uppá-
komunni. „Já, mjög. Það er mjög
gaman að hafa allar þessar spennandi
hljómsveitir og vera hluti af ein-
hverju sem er til þess gert að vekja
athygli fólks á stóru alþjóðlegu
vandamáli. Og fyrir utan allt þetta þá
er Pink Floyd að koma saman á ný.
Það er kraftaverk, hver hefði getað
giskað á það?“
Honum finnst fólk áhugasamara
nú um málefni þróunarlandanna en
fyrir nokkrum árum. „Fyrir fimm ár-
um hafði fólk varla heyrt um hug-
takið sanngjörn viðskipti. Það var
ekki hægt að kaupa sanngirniskaffi í
stórmörkuðum og fólk vissi ekkert
brögð við nýju lögunum á tónleikum
og hlakkar til að spila þau fyrir áhorf-
endur núna þegar platan er komin út.
„Fólk á vonandi eftir að þekkja lögin
og kunna eitthvað af textunum. Það
er alveg frábær tilfinning,“ sagði
hann en það er ekki ólíklegt að aðdá-
endur hafi sungið með ófáum lögum á
tónleikum Coldplay á Glastonbury-
tónlistarhátíðinni í gærkvöldi.
Finnst þér að Coldplay hafi startað
tísku með öldu svipaðra hljómsveita?
„Ég veit það ekki, það kemur mér
ekki á óvart að það séu til hljóm-
sveitir sem hljóma svipað og við.
Flestar þessar hljómsveitir ólust upp
á sama tíma og við og eru á svipuðum
aldri. Ég held að þær séu ekki undir
beinum áhrifum frá Coldplay heldur
eru þær undir áhrifum frá sömu hlut-
um og við þegar við vorum að semja
okkar plötur. Svona virkar tónlist,
hún gengur í bylgjum.“
Hvaða áhrif ertu helst að tala um?
„Varðandi þessa plötu, þá vorum
við að hlusta á mikið af tónlist frá
miðjum eða síðari hluta áttunda ára-
tugar síðustu aldar og frá upphafi
þess níunda, mikið af Kraftwerk,
David Bowie, Joy Division, New Ord-
er og sitthvað fleira. Það var ekkert
eitt ákveðið. Ef við hefðum verið að
hlusta á eitthvað annað hefði platan
getað orðið allt öðruvísi,“ segir hann
en það má líka greina Kate Bush og
meira að segja Dire Straits á plöt-
unni.
Líka er stef úr laginu „Computer
Love“ með Kraftwerk á plötunni,
nánar tiltekið í laginu „Talk“. „Já, við
stálum því beint. Vonandi eru þeir
sáttir við það.“ Þeir hljóta að vera það
því Coldplay fékk leyfi frá Kraftwerk
til að nota kaflann.
Ekki of stórir fyrir Ísland
Eigum við eftir að fá að heyra aftur
í Coldplay á Íslandi eða eruð þið
orðnir of stórir fyrir okkar litla land?
„Ég er viss um að þið eigið eftir að
heyra meira frá okkur. Það á ekkert
eftir að halda okkur frá Íslandi, þetta
er einn af uppáhalds stöðum okkar í
heiminum. Þarna er líka eitt uppá-
halds kaffihúsið okkar, Kaffi-
brennslan,“ segir hann, með sann-
færandi íslenskum hreimi.
„Mörg uppáhalds tónlistin okkar
er ættuð frá Íslandi. Sigur Rós er
uppáhalds hljómsveitin okkar núna,
þeir eru alveg magnaðir. Og Björk
auðvitað. Líka Emilíana Torrini og
allar þessar ótrúlegu hljómsveitir.
Við hlustum mikið á þessar sveitir.“
Það væri gaman að fara á tónleika
með Sigur Rós og Coldplay á Íslandi.
„Það væri frábært. Sjáum hvort
það sé ekki hægt að koma því við. Það
er eitthvað sem við myndum virki-
lega vilja gera.“
Tónlist | Will Champion, trommari Coldplay, ræðir málin
Engin hamborgarahljómsveit
Þeir eru heppnir og hamingjusamir og semja
grípandi popplög. Inga Rún Sigurðardóttir
ræddi við Will Champion, trommara Coldplay.
Coldplay-liðar standa þétt
saman þó sviðsljósið skíni
skærast á Chris Martin, sem
hér er lengst til hægri. Will
Champion, lengst til vinstri,
er sáttur við að ganga óáreitt-
ur um götur og vildi ekki
skipta um hlutverk við hann.
Ætli Jonny Buckland og Guy
Berryman séu ekki sammála?
ingarun@mbl.is
hvað þetta er. Núna veit fólk almennt
hvað þetta er og það er bara gott.“
Hvað finnst þér um sífelldan sam-
anburð á Coldplay og U2?
„Það er auðvitað mikið hrós. Þetta
er hljómsveit sem hefur tekist að
skipta máli í nærri þrjá áratugi núna.
Við erum mjög heppnir að það sé ver-
ið að bera okkur saman við þá. En á
sama tíma erum við ekki að reyna að
herma eftir neinum, við viljum ekki
feta í fótspor neinna heldur ryðja
okkar eigin braut,“ segir hann.
Sérðu ykkur saman eftir tuttugu
ár, ennþá að spila?
„Ég hef ekki græna glóru um það.
Það er nógu erfitt að sjá næstu viku
fyrir sér, hvað þá hvað verður eftir
tíu ár. Við höfum alltaf einbeitt okkur
að markmiðum sem eru nær í tíma,
við höfum ekkert langtímatakmark.
Við settum okkur í upphafi það tak-
mark að gera tónlist sem við virkilega
elskum og það hefur alltaf verið aðal
atriðið. Við erum alltaf hissa á því
hversu margir hafa gaman af tónlist-
inni okkar og mæta á tónleika. Þetta
er stórkostlegt tækifæri sem búið er
að gefa okkur. Fólkið er búið að gefa
okkur ótrúlegt líf og við stöndum í
mikilli þakkarskuld við það. Ég veit
ekki hvað gerist í framtíðinni en hvað
sem við gerum eigum við eftir að gera
það af fullum krafti því við viljum
ekki sóa þessu tækifæri,“ segir Will
og var nýja platan unnin með þessari
einbeitingu.
Almennt er litið á Chris sem helsta
lagasmið sveitarinar en þrátt fyrir
það hefur hann lagt áherslu á í við-
tölum að þeir fjórir hafi allir sett
mark sitt á hvert einasta lag plöt-
unnar. Will segir lögin verða til með
mismunandi hætti. „Stundum kemur
Chris með lag sem er tilbúið. Stund-
um kemur hann bara með hugmynd,
jafnvel titil eða einhver orð. Stundum
kemur Jonny með tilbúið gítarriff.
Það eru engar sérstakar reglur um
hvernig þetta virkar. Það sem gerist,
gerist,“ segir hann en Will hefur m.a.
það hlutverk að henda út lögum og
hugmyndum sem hann telur ekki
henta hljómsveitinni. Allir meðlimir
eru skráðir fyrir lögunum í samein-
ingu og segir Will það hafa verið mik-
ilvægt fyrir þá.
Hefði orðið banjóleikari
Ætlaðirðu alltaf að verða tromm-
ari?
„Umm, heiðarlegt svar við því
verður að vera nei. Mig langaði vissu-
lega að verða tónlistarmaður. Ég
hefði spilað á hvaða hljóðfæri sem er
til að ná því. Vinir mínir voru í hljóm-
sveit og þá vantaði trommara og ég
stökk til. Ef þá hefði vantað hljóm-
borðsleikara eða banjóleikara hefði
ég gert það líka,“ segir hann en Will
er þekktur fyrir að spila á hin ýmsu
hljóðfæri. „Já, en ég spila ekkert vel á
þau. En ég hefði alltaf gert mitt besta
og lært meira.“
Hvernig hefur Coldplay breyst og
þroskast á þessari plötu?
„Það er erfitt að gera sér nákvæm-
lega grein fyrir því vegna þess að
maður breytist eitthvað á hverjum
degi, allt sem maður sér og heyrir,
borgirnar sem maður heimsækir hafa
áhrif á mann á einhvern hátt. Maður
er eitthvað eldri og búinn að sjá
meira. Allt þetta mótar persónuleika
manns. Það sem er öðruvísi við þessa
plötu er kannski það augljósasta. Það
eru tólf eða þrettán ný lög þarna!
Lögin eru ný en sama fólkið er á bak
við þetta og líka sami drifkrafturinn.
Við gerum alltaf það sem kemur nátt-
úrulega til okkar. Við höfum reynt að
semja lög sem eru háðsk og snjöll eða
mjög pólitísk en það kemur ekki eðli-
lega til okkar. Þegar allt kemur til
alls þurfum við bara að gera það sem
fæðist eðlilega en öðruvísi getum við
ekki virkað sem hljómsveit,“ segir
hann en einkennismerki Coldplay er
að lög sveitarinnar fjalla oftar en ekki
um tilfinningar.
Will segir þá hafa fengið góð við-