Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 26.06.2005, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa gulli betri HLJÓMSVEITIN Duran Duran kemur til landsins á næstu dögum og spilar í Egils- höll 30. júní. Í tilefni þess er farið aftur í tímann þegar stríðið á milli áhangenda Duran Duran og Wham stóð sem hæst. Rætt er við nokkra forfallna aðdáendur Duran Duran, saga hljómsveitarinnar er rifjuð upp og einnig „stóra Rásar tvö mál- ið“ sem margir muna eftir. | 10–11 Morgunblaðið/Eyþór Duran Duran og aðdáendurnir ÍSLENDINGAR leggja mesta áherslu á það í uppeldi á heimilum að kenna börnum að vera sjálfstæð. 85% töldu það mjög mikilvægt sam- kvæmt nýrri Eurobarometer-við- horfskönnun sem gerð var í 32 Evr- ópulöndum. Engin önnur Evrópu- þjóð lagði jafn ríka áherslu á þetta skv. könnuninni. Spurt var hvaða eiginleika svar- endur teldu mjög mikilvægt að rækta með börnum í heimilisuppeld- inu s.s. umburðarlyndi og virðingu fyrir öðrum, hlýðni, ábyrgðartilfinn- ingu og ráðdeild. Svíar leggja meiri áherslu en aðrar þjóðir á að virkja ímyndunarafl barna, harðfylgi og erfiðisvinna voru þættir sem nutu mests stuðnings meðal Tyrkja. 83% svarenda á Ís- landi sögðu einnig mjög mikilvægt að kenna börnum umburðarlyndi og að bera virðingu fyrir öðrum. Umtals- verður munur er á afstöðu Evrópu- búa til jafnréttismála skv. nýrri Eurobarometer-viðhorfskönnun sem gerð var í 32 Evrópulöndum. Sú spurning var m.a. lögð fyrir þátttak- endur hvort þeir væru sammála eða ósammála eftirfarandi fullyrðingu: Ef skortur er á störfum eiga konur sama rétt til starfa og karlar. Hlut- fallslega færri Íslendingar lýstu sig sammála þessari staðhæfingu en íbú- ar annarra Evrópulanda að Slóvakíu undanskilinni, eða 62% svarenda hér. 35% svarenda á hér á landi sögðust vera ósammála fullyrðingunni. Til samanburðar sögðust 95% Dana, Frakka og Finna vera þeirrar skoðunar að konur ættu jafnan rétt til starfa og karlar þó skortur væri á störfum. Evrópubúar eru almennt mjög jákvæðir í garð umhverfis- verndar , könnunin leiðir í ljós að níu af hverjum tíu eru þeirrar skoðunar að manninum beri skylda til að vernda náttúruna þó það þýði að draga muni úr framförum. Ólík afstaða til náttúrunnar Töluverður munur er á afstöðu einstakra þjóða til nýtingar náttúr- unnar í atvinnuskyni. Mestur stuðn- ingur mældist meðal Slóvaka, Ís- lendinga og Pólverja við þá fullyrðingu að maðurinn ætti óskor- aðan rétt til að nýta náttúruna til að bæta líf sitt. 77% Slóvaka og 74% Ís- lendinga lýstu sig sammála þessu en til samanburðar var meðaltalið í Evr- ópusambandslöndunum 43% sem lýstu sömu afstöðu. Áhersla á að innræta börnum sjálfstæði  Lífsánægja | 6 ÞAÐ rigndi á skógræktarmenn þegar þeir héldu upp á 75 ára af- mæli Skógræktarfélags Íslands með því að gróðursetja 75 birkitré í Vinaskógi í Kárastaðalandi í Þingvallasveit í gær. Rigningunni var vel tekið enda var vætan kær- komin fyrir plönturnar og varla hægt að óska sér betra veðurs til að halda upp á afmælið. „Það er búið að rigna og guði sé lof að við höfðum rigningu,“ sagði Brynj- ólfur Jónsson framkvæmdastjóri félagsins. Meðal þeirra sem gróðursettu afmælistrén var frú Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrum forseti Íslands, og ötull skógræktarmaður. Hátíð- arhöldin heppnuðust að sögn Brynjólfs afskaplega vel og þar sem þarna hefðu verið sam- ankomnir þaulvanir menn hefði gróðursetningin gengið hratt og örugglega fyrir sig. Í afmælisveisl- unni voru ýmsir þeir sem hafa starfað með skógræktarfélögum eða veitt þeim lið á einn eða annan hátt í gegnum tíðina. Í afmælinu færði Páll Sam- úelsson hjá Toyota Skógrækt- arfélaginu að gjöf 35.000 trjá- plöntur sem verða gróðursettar í sumar. Tilefnið var bæði afmæli skógræktarfélagsins og Toyota. Morgunblaðið/Þorkell Vigdís Finnbogadóttir gróðursetur eitt af þeim 75 birkitrjám sem gróðursett voru á 75 ára afmælinu. Gott að það rigndi í afmælinu HIN þekkta tónlistar- kona Patti Smith heldur ásamt hljómsveit tón- leika á Nasa við Austur- völl þriðjudaginn 6. september. Event stendur fyrir komu rokkgyðjunnar til landsins og verða aðeins 550 miðar í boði. Ráðgert er að hefja miðasölu um miðjan júlí og verður tilkynnt um hana innan tíð- ar. | 56 Patti Smith til landsins GUL, blá, rauð, bleik og önnur litrík arm- bönd, svonefnd tryggðarbönd, fara nú um álfuna eins og eldur í sinu. Efnið í bönd- unum er sílíkon og fyrir utan að vera í mis- munandi litum tákna þau mismunandi skoðun eða stuðning við ákveðið málefni og er áletrun þess efnis þá greypt í bandið. Hér á landi hafa Krabbameinsfélagið, barna- og unglingageðdeild Landspítal- ans og MS-félagið t.a.m. hafið sölu á bönd- um í fjáröflunarskyni, band BUGL er grænt og á því stendur: GEÐVEIKT! Hermt er að það hafi meðal annars selst giska vel meðal framhaldsskólanema að undanförnu. Ungt fólk er í meirihluta meðal þeirra sem bera böndin, en kvikmyndastjörnur á rauða dreglinum í Cannes og knatt- spyrnukappar í ensku úrvalsdeildinni eiga ásamt öðrum stjörnum þátt í vinsældun- um. „Þetta gengur út á að vera flottur og góður í senn,“ segir Björn Sigurbjörns- son, 24 ára, í Tímariti Morgunblaðsins í dag, og vísar til mikilvægis þeirra málefna sem böndin vitna um. Nefna má armbönd gegn fátækt og eyðni, einelti, heimilisof- beldi og kynþáttafordómum. | Tímarit Tíska með tilgang Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson GPS-staðsetningartæki var grætt í nokkra þorska á Eyjafirði í gærmorgun með lítilli skurðaðgerð og í gegnum lítið senditæki, sem komið verður fyrir um borð í smábátum, verð- ur hægt að fylgjast með ferðum fiskanna sem þannig eru merktir. Áður hafa rafeindamerki verið fest utan á fisk en nú er rist á kvið þorsksins, tækinu komið fyrir inni í honum og síðan saumað fyr- ir. Tilraunir voru reyndar gerðar með þetta á síðasta ári við suðurströndina, en senditækið sem þá var notað var risastórt, um borð í haf- rannsóknarskipi. Nú er senditækið orðið handhægt og auðveldlega hægt að flytja það á milli báta. Hér er um að ræða íslenska hátækni; það er fyrirtækið Stjörnu-Oddi í Reykjavík sem þróað hefur tækið í samstarfi við Simrad í Noregi og Hafrannsóknastofnun, auk þess sem Háskólinn á Akureyri og fleiri taka þátt í verkefninu. „Við byrjum á því núna að rannsaka fisk við hverastrýturnar í Eyjafirði, í því skyni m.a. að sjá hvort það er staðbundinn fiskur, næsta ár stefnum við að því að gera þessar rannsóknir í öllum firðinum og seinna á öllum Íslands- miðum. Þetta gerir okkur kleift að fylgjast með hegðun þorsksins,“ segir Hreiðar Þór Valtýsson, útibússtjóri Hafrannsóknastofn- unar á Akureyri og lektor við Háskólann á Akureyri í samtali við Morgunblaðið. Í gær stóð til að setja hið nýja staðsetning- armerki í 24 fiska. Staðsetningartæki í eyfirska þorska Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vilhjálmur Þorsteinsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, saumar saman skurðinn á þorskinum sem hann risti til þess að koma staðsetningartækinu fyrir í fiskinum. Til hægri er Hreiðar Þór Valtýsson, forstöðumaður Hafró á Akureyri. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.