Morgunblaðið - 22.09.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.09.2005, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT TÓNLISTARHÚS É g hef tekið þátt í mörg- um samkeppnum á þeim tuttugu árum sem ég hef verið í bransanum, en hef aldrei komið að verkefni sem er eins umfangsmikið, hvort heldur er í tíma né að stærð og þetta. Hér er um feiki- lega flókið verkefni að ræða, en að sama skapi ákaflega spennandi,“ seg- ir Sigurður Einarsson, hönn- unarstjóri Tónlistarhúss í Reykjavík, en Sigurður er arkitekt hjá Batt- eríinu ehf. sem stendur að Portus- hópnum, ásamt Nýsi hf., Íslenskum aðalverktökum hf., Landsafli hf., Henning Larsens Tegnestue A/S, Rambøll Danmark A/S, Hönnun hf., Hnit hf. og Tryggva Tryggvasyni arkitekt, en í gær var tilkynnt að til- laga Portus að tónlistarhúsi, ráð- stefnumiðstöð og hóteli við Reykja- víkurhöfn hefði orðið fyrir valinu í samningskaupaferlinu. Að sögn Sigurðar fólst talsverður undirbúningur í því að setja saman hópinn sem kemur að Portus- hópnum þar sem ekki var um hefð- bundna arkitektasamkeppni að ræða heldur samkeppni um tilboð í einka- framkvæmd. Aðspurður segir Sig- urður það sitt hlutverk sem hönn- unarstjóra að halda utan um allt verkið, samræma hluti og passa upp á að allt gangi upp. Segir hann hönn- unarvinnuna fram að þessu hafa ein- kennst af náinni samvinnu allra þeirra hönnuða og ráðgjafa sem að verkinu komi sem og fjárfestanna, sem hafi gefið verkinu mun meiri dýpt en ella. Í þessu samhengi nefnir Sigurður sérstaklega hlut Ólafs Elí- assonar, sem er listrænn hönnuður byggingarinnar, Peers Teglgaards Jeppesens, arkitekts sem er meðeig- andi í Henning Larsens Tegnestue og aðalhönnuður Óperuhússins í Kaup- mannahöfn, og aðkomu Vladimirs Ashkenazys og Jaspers Parrotts, um- boðsmanns hans, sem fengnir voru að verkinu sem listrænir ráðgjafar til að skipuleggja viðburði tónlistarhússins fyrstu rekstrarárin. Samspil andstæðna Aðspurður segir Sigurður hönnun hússins hafa mótast af áhrifum frá stórbrotinni og svipmikilli náttúru Ís- lands. „Þannig má segja að byggingin sé bæði undir áhrifum íss og elds, því glerhjúpurinn sem Ólafur hannar og umlykur bygginguna minnir á ís, en á sama tíma endurspeglar glerið um- hverfið og sólina og gefur þannig til- finningu fyrir eldi eða hita. Ólafur fer svo sannarlega á flug í glerverki sínu sem byggist á stuðlabergsforminu og framkallar ljósalist sem varpast yfir kassana þrjá sem rúma salina, en kassarnir verða þaktir sléttri, ljósri steypu til þess að litasinfónían úr glerhjúp Ólafs fái virkilega notið sín,“ segir Sigurður og bendir á að í hönn- uninni sé lögð sérstök áhersla á sam- spil andstæðna. „Þannig einkennist glerhjúpurinn af köntuðum formum stuðlabergins en salirnir verða eins og viðarklæddar mjúkar öskjur þar sem mýktin er ríkjandi.“ Af teikningum má sjá að gert er ráð fyrir að gengið verði inn á jarð- hæð þar sem finna má kaffihús, miða- sölu, verslun, ráðstefnuherbergi, smærri ráðstefnusali og tónlistar- akademíu svo eitthvað sé nefnt. Það- an liggur leiðin upp eina hæð þar sem salirnir þrír eru ásamt svæði fyrir áhorfendur fyrir og eftir viðburði sem og í hléi. „Um er að ræða þrjá sali sem liggja hlið við hlið og eru eins og þrír frístandandi kassar. Hægt verð- ur að samnýta þá ef um t.d. tónlist- arhátíð eða ráðstefnu er að ræða þar sem æskilegt er að fólk flæði óhindr- að um fremra rýmið, en einnig verður hægt að einangra hvern sal fyrir sig með ákveðnu áhorfendasvæði ef um þrjá ótengda atburði er að ræða sama kvöldið,“ segir Sigurður. Svalir til allra átta Eins og áður hefur komið fram verða salirnir þrír mismunandi að stærð og hlutverki. „Við erum með ráðstefnusal fyrir 750 manns sem er með minni lofthæð, en hinir salirnir tveir og er sá salur aðallega hugsaður fyrir talað mál og rafmagnaða tónlist, s.s. rokkkonserta. Þessum sal verður einnig hægt að skipta upp í tvo minni sali. Síðan höfum við 450 sæta æf- ingasal sem er fyrst og fremst hugs- aður sem æfingasalur fyrir Sinfón- íuhljómsveitina, en við höfum sett fram hugmynd um að hægt verði að minnka þann sal með ákveðnum skil- veggjum, þ.e. hreyfanlegum veggj- um, þannig að það fari ekki illa um 50-100 manns á litlum kammertón- leikum,“ segir Sigurður og bendir á að í öðrum enda salarins verði gler- veggur sem þýði að hægt verði að láta dagsbirtuna leika um salinn á dagæf- ingum Sinfóníunnar, auk þess sem möguleiki gefist á því að gestir bygg- ingarinnar geti fengið að fylgjast með æfingum hljómsveitarinnar í gegnum glervegginn. Hins vegar verður auð- vitað einnig hægt að draga fyrir, kjósi tónlistarmenn það. „Mestu áhersluna leggjum við á stærsta salinn sem er aðalhluti húss- ins, en sá salur mun taka 1.800 manns í sæti, miðað við að setið verði einnig fyrir aftan sviðið. Sá salur er með langmestu lofthæðinni til þess að hafa sem mest rúmtak. Líkt og hinir tveir salirnir verður hann viðarklæddur og höfum við rætt um að gefa salnum rauðbrúnleitan blæ með hlyn, þ.e. þann heita tón sem einkennir strengjahljóðfæri,“ segir Sigurður og bendir á að sérhanna þurfi hvern ein- asta fersentimetra í hliðarveggjum salarins og svölum með tilliti til hljómburðar, en veggþiljurnar verða einnig hannaðar með stuðlabergs- minnið í huga. „Til hliðar í salnum aft- an við svalirnar er gert ráð fyrir óm- rýmum sem hægt er að opna með sérstökum hlerum, og það eykur rúmmál salarins næstum um helm- ing, en það er gert til að skapa ákveðna vídd í músíkinni þegar tón- listin kallar á það. Inni í þessum óm- rýmum reiknum við að vera með lýs- ingu sem getur skapað mismunandi litbrigði, auk þess sem við getum dregið dagsbirtu í gegnum þakglugga inn í salinn í gegnum þessi hlið- arrými, þannig að við getum gert mjög margt til að breyta um and- rúmsloft í salnum,“ segir Sigurður og leggur áherslu á að útgangspunkt- urinn í allri hönnuninni sé að yf- irbragðið sé yfirvegað og klassískt. „Enda verið að reisa hús sem standa mun um ókomin ár.“ Þess má geta að byggingin er sam- tals um sex þúsund fermetrum stærri en áskilið var af hendi verkkaupa sem skýrist að sögn Sigurðar af því að fjárfestar verksins töldu það væn- legra til frambúðar að hafa meira rými þar sem í því felist auknir mögu- leikar á nýtingu. Sem dæmi má nefna að á fjórðu hæð byggingarinnar er að sögn Sigurðar gert ráð fyrir veit- ingastað með útsýni yfir Kvosina fyr- ir allt að tvö hundruð manns og á fimmtu hæðinni verða stórar hallandi svalir sem snúa út að Faxaflóa og Esjunni þar sem hægt væri að vera með útitónleika og myndlistarsýn- ingu svo dæmi séu nefnd. Raunar er gert ráð fyrir svölum til allra átta á mismunandi hæðum. Eins og fyrr var getið er byggingin á sjö hæðum, en gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir lista- menn og aðra starfsemi á efstu fimm hæðum hússins, s.s. búningsherbergi og skrifstofur. Reykjatorg skapar dulúð sem umvefur bygginguna Tónlistarhús erlendis vekja oft á tíðum sérstaka athygli fyrir spenn- andi og flotta hönnun sína. Aðspurður segir Sigurður það hafa verið eitt af markmiðum við hönnun tónlistarhúss við höfnina að það væri þess virði að skoða. „Við hönnun byggingarinnar höfðum við það í huga að hún yrði þess eðlis að það yrði þess virði að koma til Íslands þó ekki væri nema til þess að skoða þetta hús,“ segir Sig- urður og bendir á að ráðgert verði að bjóða upp á sýningarferðir um húsið líkt og gert er í Óperuhúsinu í Kaup- mannahöfn. Eitt af því sem væntanlega mun vekja sérstaka erlendra gesta er svo- nefnt Reykjatorg sem fyrirhugað er að reisa fyrir framan tónlistarhúsið. Á torginu verða litlar eyjar, sumar eru veitingastaðir og kaffihús en aðr- ar eru hluti af heilsulind hótelsins, sem fyrirhugað er að reisa gegnt tón- listarhúsinu. „Þetta torg verður um- lukt gufu og þannig mynduð sann- kölluð hverastemning í kringum mannvirkið. Segja má að við séum með þessu móti að skapa sérstaka „reykvíska“ stemningu sem verður vafalaust alveg einstök, því menn spreða ekki svona með heitu vatni annars staðar í heiminum,“ segir Sig- urður og tekur fram að einn af út- gangspunktunum við hönnunina hafi verið að skapa ákveðna „mystík“ eða dulúð í kringum tónlistarhúsið. Ekki er hægt að sleppa Sigurði án þess að spyrja hann hvaða þýðingu það hafi fyrir hann og fyrirtækin sem að Portus-hópnum standa að hafa orðið fyrir valinu við byggingu tón- listarhússins. „Þetta er auðvitað al- gjör vítamínssprauta. Ég sé þetta sem frábært tækifæri til að gera góða og framúrskarandi hluti. Við arki- tektar erum því marki brenndir að við erum alltaf að baslast við að gera hlutina sem allra best og stundum notar maður allt of mikinn tíma í vinnuna miðað við það sem maður fær greitt fyrir, þar sem metnaðurinn keyrir mann stundum úr hófi fram, en það hlýtur að vera markmið allra arkitektastofa að gera sem flottasta og besta hluti. Að mínu mati eru bestu launin alltaf þakklátur og ánægður verkkaupi. Í þessu tilfelli er verkkaupinn almenningur í gegnum ríkið og því skiptir okkur öllu máli að almenningur verði ánægður með út- komuna.“ Yfirvegað og klassískt yfirbragð í fyrirrúmi Tilkynnt var á blaðamannafundi í gær að til- laga Portus-hópsins að tónlistarhúsi, ráð- stefnumiðstöð og hóteli við Reykjavíkurhöfn hefði orðið fyrir valinu í samningskaupaferlinu. Í samtali við Silju Björk Huldudóttur segir Sigurður Einarsson, hönnunarstjóri hópsins, um feikilega flókið en að sama skapi spennandi verkefni að ræða. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Þetta er frábært tækifæri til að gera framúrskarandi hluti,“ segir Sig- urður Einarsson, hönnunarstjóri Tónlistarhúss í Reykjavík. silja@mbl.is                                ! ! "    #   ! # $  %          Uppdráttur af hafnarsvæðinu. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið er í rauðum lit nyrst, en aðrar byggingar í grænum lit til suðvesturs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.