Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 29 DAGLEGT LÍF ÁSTARHREIÐRIÐ fyrir hunda var opnað í Sao Paulo í Suður-Ameríku í síðasta mánuði en hugmyndin vakn- aði vegna þúsunda slíkra hótela sem leigja út herbergi til brasilískra para fjórar klukkustundir í senn. Her- bergin eru skreytt loppuförum og hjartalaga speglum, loftkæld og þar er hægt að hlusta á rómantíska tón- list eða horfa á kvikmyndir. Verðið er 41 bandaríkjadalur fyrir tvær klukkustundir sem samsvarar um 2.500 íslenskum krónum. Reuters Tveir Yorkshire terrier-hundar, Billy til hægri og Jully til vinstri, sjást hér sitja á rúmi í herbergi á gæludýrahóteli í Sao Paulo.  GÆLUDÝR Ástarhreiður fyrir hunda NOTKUN nagladekkja getur ver- ið varhugaverð bæði af umhverfis- og heilsufarsástæðum. Í sænska neytendablaðinu Råd och Rön kemur fram að örlitlar agnir sem myndast m.a. þegar nagladekk eyða malbiki geta verið mjög hættulegar heilsunni og hefur m.a. fundist mikið magn af þeim í Stokkhólmi. Með því að minnka notk- un nagladekkja um helming er hægt að minnka magn þessara agna um 25%. Rannsóknir hafa sýnt að 1.800 Svíar deyja ótíma- bærum dauða á ári vegna þessara hættulegu agna í loftinu. Það eru þrisvar sinnum fleiri en þeir sem farast í um- ferðarslysum. Í sumum löndum hefur verið gripið til aðgerða til að stemma stigu við notkun nagladekkja. T.d. að leggja hærri gjöld eða skatta á nagladekk en venjuleg vetr- ardekk. Umhverfisfulltrúi í Stokkhólmi leggur áherslu á að þess misskilnings gæti að nagladekk séu mun öruggari, venjuleg vetrardekk geti ein- mitt verið öruggari, auk þess að vera betri fyrir umhverfið.  NAGLADEKK Agnir úr dekkjunum hættulegar heilsu fólks ANDRÚMSLOFTIÐ í æðstu stöðunum í viðskiptalífinu, póli- tíkin og karlaklúbbsmenningin á toppnum fælir sumar konur frá því að feta framabrautina. Þær vilja þá heldur menningu sem einkennist af því að stjórn- andinn sé metinn á grundvelli árangurs. Þetta eru meðal nið- urstaðna úr könnun breskrar stofnunar, CIPD, en greint er frá þeim á vef Svenska Dag- bladet. Þátttakendur í könnun- inni, konur í stjórnunarstöðum, reyndust falla í þrjá hópa skv. niðurstöðum spurningalista:  Þær sem njóta velgengni í starfi og vilja starfa í við- skiptaumhverfi. Þeim er skipt í tvo undirhópa: Annars vegar þær sem vilja hafa áhrif og stjórna og hins vegar þær sem eru óánægðar og finnst þær færa of miklar persónulegar fórnir til að ná í æðstu stöður.  Þær sem hafa stofnað eigin fyrirtæki eftir að hafa verið á framabraut innan annarra fyr- irtækja til að geta sinnt stjórn- unarstörfunum á eigin for- sendum.  Þær sem yfirgefa viðskipta- lífið áður en þær ná toppnum þar sem þeim finnst þær ekki fá verðskuldaða viðurkenningu fyrir störf sín sem þær gætu þó fengið á öðrum vettvangi.  STJÓRNUN And- rúmsloft- ið fælir konur frá flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Hnattvæðing – hraðbraut í báðar áttir „Bókin Straumhvörf er hvort tveggja í senn fræðandi og upplýsandi. Hún varpar skýru ljósi á hvernig íslenskt þjóðfélag hefur alþjóðavæðst á undanförnum árum.“ – Ásta Dís Óladóttir, Aðjúnkt við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Þór Sigfússon Straumhvörf eru að eiga sér stað í íslensku viðskiptalífi. Íslensk fyrirtæki hafa gert strandhögg á erlendri grundu núna í rúman áratug og erlendir fjárfestar eru farnir að horfa mun meira til Íslands sem fjárfestingarkost. • Hvaða tækifæri felast í gagnkvæmum tengslum fyrirtækja yfir landamæri? • Hvers vegna er útrás íslenskra fyrirtækja aðallega í bankastarfsemi, iðnaði, verslun og þjónustu? • Hvernig löðum við erlenda fjárfesta til Íslands? • Hvers vegna er þessi útrásarþrá í Íslendingum? • Hver verður þróunin í hnattvæðingu íslenskra fyrirtækja í framtíðinni? Þessum spurningum og fleirum svarar Þór Sigfússon í glænýrri bók sinni Straumhvörf. Bókin á erindi við alla stjórnendur í dag og þá sem hafa áhuga á íslensku viðskiptalífi. KEMUR Í VERSLANIR Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.