Morgunblaðið - 22.09.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 43
DAGBÓK
Hvort sem þú þarft að selja eða
leigja atvinnuhúsnæði þá ertu í góð-
um höndum hjá Inga B. Albertssyni.
Nú er góður sölutími sölutími fram-
undan - ekki missa af honum.
Vandaðu valið og veldu fasteigna-
sölu sem er landsþekkt fyrir traust
og ábyrg vinnubrögð.
Franz Jezorski, hdl. og
lögg. fasteignasali
ATVINNUHÚSNÆÐI
HAFÐU SAMBAND
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð á framangreindu
svæði. Rýming samkomulag. Staðgreiðsla.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
ÍBÚÐ VIÐ MIÐBORGINA ÓSKAST - T.D.
Í 101 SKUGGI - VIÐ KLAPPARSTÍG
EÐA SKÚLAGÖTU
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
EINBÝLISHÚS
AUSTURGERÐI 5
BÚSTAÐAHVERFI
108 REYKJAVÍK
Fallegt 250 fm einbýli, ein og hálf hæð,
í enda á lokaðri götu.
Húsið má nota sem tvær íbúðir eða 9
herbergja einbýli. Einnig með vinnuaðstöðu
á neðri hæðinni t.d. smá framleiðslu, studío
eða skrifstofur. Innbyggður bílskúr, og nokkur
bílastæði. Vandað hús með vel ræktaðri lóð
og fallegu útsýni. Glæsileg eign á góðum
stað í austurborginni.
Arkitekt Skarphéðinn Jóhannsson.
Ásett verð kr. 56 millj. eða tilboð.
Allar upplýsingar og teikningar af húsinu
eru hjá fasteignasölunum Höfða 533 6050.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og
jóga kl. 9. Boccía kl. 10. Myndlist kl. 13,
Sheena. Videóstund kl. 13.15, matur kl.
11.30–12.30, kaffi. Allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið öllum
opið kl. 9–16. Skráning stendur yfir í
postulíns- og framsagnarnámskeið.
Kynntu þér haustdagskrána. Sími
588 9533.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Haustlitaferð 29. sept.: Brott-
för frá Gullsmára kl. 13.15 og frá Gjá-
bakka kl. 13.30. Ekin verður gamla
leiðin fyrir Hvalfjörð. Áð að Ferstiklu.
Síðan ekinn Dragháls, inn með Skorra-
dalsvatni að Braathenslundi. Kaffi-
hlaðborð að Skessubrunni í Svínadal.
Gamanmál, söngur og dans. Skráning-
arlistar í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
í dag kl. 13. Fyrirhugað er að námskeið
í stafgöngu hefjist 29. sept. ef næg
þátttaka, skráning og uppl. í síma
588 2111. Skemmtikvöld verður föst.
30. sept. í Stangarhyl 4, skemmtiatriði
og dans, skráning í síma 588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gull-
smárabids. Bridsdeild FEBK í Gull-
smára spilar alla mánu- og fimmtu-
daga. Þátttökugjöld kr. 200. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst stundvíslega kl. 13.
Kaffi og heimabakað meðlæti fáanlegt
í spilahléi. Allir e. borgarar velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.45, innigolf kl. 11.30
og karlaleikfimi kl. 13.15 í Mýri. Málun
kl. 13 og ullarþæfing og perlur kl. 13.30
í Kirkjuhvoli. Lokað í Garðabergi vegna
ferðar á vegum Kvenfélagsins.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Almenn
handmennt kl. 13–17. Bingó kl. 15.
Furugerði 1 | og Norðurbrún 1. Haust-
litaferðinni er frestað til föstudags 23.
sept. á sama tíma. Uppl í Norðurbrún í
síma 568 6960. Messa í Furugerði 1 á
föstudag kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, Furugerðiskórinn syngur
undir stjórn Ingunnar Guðmundsd. All-
ir velkomnir.
Gerðuberg | Kl. 10.30 helgistund, um-
sjón sr. Svavar Stefánsson. Kl. 12.30
myndlist, geisladiskasaumur, krílaðir
skartgripir o.fl. Fimmtud. 29. sept. kl.
13.15 „Kynslóðir saman í Breiðholti“,
félagsvist í samstarfi við Seljaskóla,
allir velkomnir.„Hjáverk í amstri daga“
listmunasýning Einars Árnasonar
stendur yfir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin, hár-
greiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl.
12 hádegismatur. Kl. 14 félagsvist. Kl.
15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.20. Gler-
bræðsla kl. 13. Opið hús, kynning á
vetrarstarfinu, fræðsla um heilsuefl-
andi heimsóknir kl. 14.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir kl. 9–
16 hjá Halldóru. Boccia kl. 10–11. Fé-
lagsvist kl. 13.30, kaffi og nýbakað.
Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaað-
gerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er op-
ið öllum 9–16. Fastir liðir eins og venju-
lega. Skráning á tölvu-, listþæfingar-
og framsagnarnámskeið stendur yfir.
Skoðaðu haustdagskána. Síminn er
568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug á morgun kl. 9.30.
Laugardalshópurinn í Þróttarheim-
ilinu | Leikfimi kl. 12.10 í Þrótti.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 leir, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga, kl.
13–16.30 leir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9–10 boccia. Kl. 9.15–
14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl.
10.15–11.45 spænska. Kl. 11.45–12.45
hádegisverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 13–
16 kóræfing. Kl. 13–16 glerbræðsla. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vesturgata 7 | Haustlitaferð í dag kl.
13. Ekið til Þingvalla, komið við í þjón-
ustumiðstöðinni. Ekið meðfram Þing-
vallavatni niður með Sogni. Veitingar í
Þrastarlundi að eigin vali. Skráning í
síma 535 2740. Allir eru velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9– 12.30, bókband kl. 9– 13, penna-
saumur kl. 9–13, boccia kl. 10–11. Hand-
mennt alm. kl. 13–16.30, glerskurður kl.
13–17. Hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arstofa opnar kl. 9–16.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | STN – 7–9 ára starf í
Ártúnsskóla kl. 15. Söngur, sögur, leikir
og ferðalög fyrir hressa krakka. TTT –
10–12 ára starf í Ártúnsskóla kl. 16.
Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir
hressa krakka.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 14 og 17 í
dag. Samsöngur undir stjórn org-
anista. Kaffi og meðlæti. Allir vel-
komnir. Foreldrum er boðið til samveru
með börn sín í safnaðarheimili II í dag
milli kl. 10 og 12. Samverustund milli kl.
17 og 18 í dag í safnaðarheimili II. Lát-
bragðsleikur. Allir 8 og 9 ára krakkar
velkomnir.
Bústaðakirkja | Foreldramorgnar alla
fimmtudaga kl. 10–12. Þar koma for-
eldrar saman með börn sín og ræða
lífið og tilveruna. Allar nánari uppl eru
á www.kirkja.is.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10 á neðri hæð. Kl. 11.10 Leikfimi.
Bænastund kl. 12.10. Barnastarf 6–9
ára kl 17–18 á neðri hæð. Unglingastarf
kl. 20–22 á neðri hæð kirkjunnar.
www.digraneskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf,
3.–5. bekkur, kl. 16.30–17.30. For-
eldramorgnar kl. 10–12. Foreldrar, afar
og ömmur sem eru heima með barn /
börn (ekki bara ungbörn) velkomin.
Fella- og Hólakirkja | Helgistund í
Gerðubergi, í umsjá presta kl. 10.30.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í
Vídalínskirkju kl. 22. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Kaffi.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn
10–12 ára í Húsaskóla kl. 17.30–18.30.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður
í safnaðarheimili eftir stundina.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9 ára
börn, í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eld-
urinn – fyrir alla. Samvera kl. 21. Lof-
gjörð, vitnisburðir og kröftug bæn. All-
ir velkomnir. www.gospel.is.
Langholtskirkja | Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10–12. Spjall,
kaffisopi, söngstund. Verið velkomin.
Laugarneskirkja | Vakin er athylgi á
tónleikunum „Sorgin og lífið“ í Laug-
arneskirkju kl. 20. Þar mun Erna Blön-
dal, ásamt hljómsveit, flytja sálma
sem orðið hafa henni til styrktar í
sorg. Að tónleikum loknum býður
sóknarprestur til samtals í safn-
aðarheimilinu. Kl. 12 Kyrrðarstund. Kl.
14 Samvera eldri borgara. Gunnar
Gunnarsson rifjar upp íslensk sönglög
frá liðnum árum. Kaffiveitingar.
Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld
aldraðra og öryrkja kl. 20 í umsjá fé-
laga úr Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Ástríðar Helgu Sigurðardóttur, Natalíu
Chow Hewlett, organista, og sókn-
arprests. Fyrsta skipti á þessum vetri.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
FYRSTA plata djasstríósins Flís var
efnilegt byrjendaverk og bestu lögin
hreint út sagt frábær, ekki síst þegar
Davíð Þór Jónsson píanisti hugleiddi
ballöður sínar. Nú er komin út önnur
geislaplata með tríóinu og er hún ansi
ólík þeirri fyrri þarsem öll lögin voru
frumsamin. Að þessu sinni túlka þeir
lög af efnisskrá Hauk Morthens og
hafa tekið fram að tónlistin sé marg-
ætta, ekki djass frekar en annað.
Davíð Þór hefur áður varað við að
hann sé flokkaður sem djassleikari,
þótt hann fáist mikið við þá tónlist.
Ellington og Mingus voru ósparir á
að sverja af sér djassnafnið þó tónlist
þeirra væri nær eingöngu þeirrar
ættar; en það var nú frekar vegna
hins neikvæða orðs er fór af þeirri
tónlist í Bandaríkjunum. Ég held það
sé að mestu liðin tíð að Íslendingar
hræðist að hlusta á tónlist fái hún
djassstimpilinn, enda hvað er djass? –
sú skilgreining getur vafist fyrir
mönnum einsog skilgreining á flestu í
lífinu. Merkimiðar hafa vissa kosti en
eru þó oft varasamir.
Vottur er fyrst og fremst melódísk
plata og ljúf og gæti vel tekið sæti
plötu Þóris Baldurssonar og Rúnars
Georgssonar: Til eru fræ, sem djass-
skotnasta dinnerplata landsins. Sem
betur fer eru engir hljóðgervlar á
ferð á Vottum sem lýta hina fyrr-
nefndu og þótt spuni sé í lágmarki er
margt vel fraserað og á stundum er
Davíð Þór á sömu slóðum og Poul
Godske, er hann spann stutta sólóa
með Hauki. Hinn ljúfi tónn er sleginn
í Bláu augunum eftir Ástu Sveins-
dóttur og spil þeirra félaga er einnig
feikifallegt í erlendu lögunum: Til eru
fræ og Í kvöld og þar kristallast vel
það sem plata þeirra hefur framyfir
plötu Þóris og Rúnars; lifandi ryþmi í
stað hins vélræna. Oft eru lögin lat-
ínættar og bregður þá fyrir karab-
íuspuna hjá píanistanum. Ó borg mín
borg og Simbi sjómaður eftir Hauk
svo og Stína ó Stína eftir Árna Ísleifs
eru djassí og í því síðastnefnda er
Davíð Þór með blokkhljóma og heila
galleríið einsog Guðmundur Ingólfs-
son. Valdi Kolli er frábær, sér í lagi á
seinni hluta skífunnar fyrir utan
bogasólóinn og Helgi uppá-
tækjasamur, en stundum í þyngra
lagi.
Þetta er fín plata til að hlusta á yfir
borðum eða í samkvæmum, vekur
ljúfa gleði og ætti að vera til á sem
flestum íslenskum heimilum. Afturá
móti finnst mér nafnið smekklaust
einsog útlit allt og ekki sæma Hauki
og svo skil ég ekkert í því að höfunda
laganna skuli ekki getið og hefði mátt
gera það með læsilegri útfærslu en
þakkarávörpin fá. Sögukaflinn hæfði
vel í skólablaði en tónlistin er full-
þroska.
Morgunblaðið/Kristinn
Tríóið Flís: Helgi, Valdimar og Davíð.
Með góðum mat
DJASS
Íslenskur geisladiskur
Davíð Þór Jónsson píanó, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson bassa og Helgi Svavar
Helgason trommur. Tekið upp í desember
2004. Gefið út 2005 af 12 tónum. TT001.
Flís: Vottur
Vernharður Linnet
Byggingalist.
Norður
♠D10
♥D65
♦ÁG1054
♣ÁD6
Suður
♠Á3
♥Á1043
♦73
♣KG1085
Eftir vafasama sagnröð (sem er
bönnuð börnum) verður niðurstaðan
sex lauf í suður! Útspilið er tromp,
sem tekið er heima og tígli strax
spilað á gosann. Austur fær slaginn
á tíguldrottningu og skiptir yfir í
spaðaáttu.
Nú dregur lesandinn djúpt and-
ann og tekur við. Verkefnið er að
teikna upp hagstæða mynd af spilum
AV. Tígullinn þarf augljóslega að
gefa fjóra slagi, svo vestur verður að
eiga Kx eftir. En það dugir aðeins í
ellefu slagi og sá tólfti getur aðeins
skilað sér með kastþröng á vestur í
hálitunum. (Gleymum því að hleypa
á spaðadrottningu, því austur hefði
aldrei spilað frá kóngnum.)
Norður
♠D10
♥D65
♦ÁG1054
♣ÁD6
Vestur Austur
♠KG72 ♠98654
♥KG82 ♥97
♦K96 ♦D82
♣74 ♣932
Suður
♠Á3
♥Á1043
♦73
♣KG1085
Vestur þarf líka að vera með KG í
hjarta til að þvingunin gangi upp.
Leiðin er þá þessi: Sagnhafi tekur
á spaðaás, spilar síðan öllum tromp-
unum og hendir tveimur hjörtum úr
borði. Því næst er tígli svínað og litn-
um spilað til enda. Í lokastöðunni á
blindur út með drottningarnar tvær
í hálitunum, en heima er sagnhafi
með Á10 í hjarta. Vestur hefur orðið
að henda hjartagosa og á nú kónginn
eftir blankan, sem þýðir að hjartatía
suðurs verður tólfti slagurinn. Vörn-
in fékk tvö tækifæri til að hnekkja
slemmunni. Vestur gat stungið upp
tígulkóng þegar sagnhafi spilaði litn-
um fyrst, og austur hefði eyðilagt
þvingunina með því að spila tígli um
hæl en ekki spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is