Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 45 MENNING SÝNINGIN er þrískipt. Í einu rým- inu sitja sex litlar verur úr plastleir á stórum lágum stöpli og ein uppi á rauðmáluðum vegg. Verurnar eru gerðar úr plastleir, naktar og hár- lausar með blá augu eins og þær sem við höfum séð áður en þær eru ekki lengur kynlausar þar sem karlver- urnar hafa viðeigandi kynfæri og kvenverurnar brjóst. Í öðru rými má sjá á stórum og hærri stalli litla og umkomulausa veru í fósturstellingum. Ekki er hægt að sjá kyn verunnar en hún liggur í skjannabjörtu flúorljósi í skjannahvítu rými. Ekki einungis eru veggirnir hvítir heldur er gólfið lakkað hvítt og úr loftinu hanga hvít- máluð tré sem gefa tilfinningu fyrir einhverjum lífrænum en sótthreins- uðum ferlum. Einkennileg köld feg- urð er í verkinu, heilög upphafning og hreinleiki sem minnir á nútíma- væðingu, tæknilíf eða tæknidauða. Allt aðra tilfinningu má síðan finna í þriðja rýminu þar sem rauð ljósa- pera varpar daufu ljósi á rauðmálaða trjágrein sem hangir úr loftinu. Nú er tengingin við æðar og blóðrás áberandi sem er undirstrikað með óræðu hljóðverki í rökkvuðu þröngu rými. Áhorfandinn er kominn aftur í móðurkvið og upplifir hina mállausu kóru og er þannig innlimaður inn í verkið sem ein af verum þessarar innsetningar. Fyrir utan þessar tvær áhugaverðu andstæður lífsumhverfis og þær hugrenningar sem skapast við skoðun þeirra þá leitar hugurinn aftur í „margmennið“, í salnum sem var fyrst nefndur, að samfélaginu milli þessara vera eða manna sem hefur myndast. Hvað hefur breyst við að verurnar eru ekki lengur kyn- lausar, skiptir kynið máli og hver horfir á hvern? Guðrún Vera hefur tekið skrefið frá hinu frumspekilega til frumstigs félagslegrar mótunar, samskipta sem byrja á áhuga veranna á hvert öðru og kristallast í því hver horfir á hvern. Með þessu gefur listakonan áhorfandanum miklu meira svigrúm til allavega túlkunar og hugleiðinga þar sem hið félagslega stendur reynsluheimi samtímans nær en hið háleita óræða og goðsögulega. Það má segja að hún gefi færi á sér, til- efni til að skoða þetta litla samfélag sem speglun við okkar eigið hvort heldur sem við staðsetjum það í for- sögulegum tíma, okkar tíma framtíð eða ímynduðum tíma. Áhorfandinn setur sig í mannfræði eða fé- lagfræðistellingar og reynir að átta sig á hvaða sögu megi lesa út úr þessum byrjunarsamskiptum hóps- ins, draga ályktanir af augnaráðinu einu um hverjir komi auga á „sann- leikann“, hvar áhuginn liggur og mögulega þróun valdatengsla tengda þekkingu. Sannleikurinn virðist í þessu tilfelli vera veran sem hefur yfirsýnina sem situr hátt uppi og horfir hugsandi á hópinn. Það gæti verið guð, skapari, leiðtogi eða líf- fræðilegur forveri hópsins. Í þessu ljósi er áhugavert að af þremur karl- kynsverum horfa tvær upp til ver- unnar, hafa tekið eftir henni og ann- ar sýnir undrun í svipnum. Þriðji karlinn horfir dáleiddur á eina kven- veru sem er sú í hópnum sem mest svipar til kvenímyndar samtímans. Hún fínleg, situr í kvenlegri stöðu og er bein í baki. Hún afturámóti sér bara þann karlinn sem mænir á hina háleitu veru. Þarna er kominn ein- hver þrí- eða ferhyrningur sem teiknar ákveðna línu í rýmið ekki ósvipað og endurreisnarmálverkin virka sum. Tvær konur eru eftir í myndinni, önnur er þunglyndisleg, krýpur og klemmir saman fætur, virðist ekki ná neinum tengslum við hópinn og horfir inn í sig. Hin sem er staðsett í miðju rýminu virðist hafa tekið eftir henni og er eina veran sem virðist ætla að standa upp og gera eitthvað. Hún er líka eina kven- veran í hópnum sem er í líkamsstöðu þar sem sköp hennar gætu sést. Hins vegar hefur listakonan ákveðið að hafa engin sköp á þessari veru, hún er slétt að neðan eins og barbídúkka. Þetta er svolítið áhugavert í ljósi þess að karlverurnar hafa raunsæis- lega sköpuð kynfæri og eru í stell- ingum sem gefa til kynna algera af- slöppun gagnvart þeim. Því má segja að líkamstjáningin sem listakonan gefur verunum sé merkingarbær hvað varðar þennan hóp og einnig okkar eigið samfélag. Ef veran há- leita væri karlkyns þá gæti maður freistast til að lesa út úr þessari mynd endurspeglun vestrænnar samfélagsgerðar en við athugun kemur í ljós að upphafna veran er kvenkyns. Hún gæti verið gyðja, for- móðir, leiðtogi eða spásýn. Það furðulega er að það breytir allri myndinni sem segir okkur að goð- sögulegur bakgrunnur skiptir miklu máli í veruleikasýn okkar og tekur þátt í hinni flóknu mynd samskipta okkar þar sem kyngervi og kyn spila stóra rullu í hugmyndafræði okkar og þekkingu. Ég gæti trúað að það mætti raða þessari senu upp á marga ólíka vegu og sjá samt alltaf nýja sýn á samhengið eða möguleika þess. Það áhugaverða er að Guðrún Vera fjallar um málefni sem hljóta að vekja áhuga, um hina ósýnilegu þræði sem liggja til grundvallar sam- félagsmótun. Sýningin er ákaflega metnaðarfull og vel sett upp og að mínu mati tímamótasýning hvað varðar fagurfræði samskipta og fé- lagsmótunar. Kerfi og reynsluheimur MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús Sýningin stendur til 30. des. Opið alla daga frá kl. 11–17. Guðrún Vera Hjartardóttir „Velkomin í mannheima“ Morgunblaðið/Ásdís „Sýningin er ákaflega metnaðarfull og vel sett upp og að mínu mati tímamótasýning hvað varðar fagurfræði sam- skipta og félagsmótunar,“ segir Þóra Þórisdóttir m.a. um sýningu Guðrúnar Veru Hjartardóttur í Hafnarhúsinu. Þóra Þórisdóttir TÍU ár verða á morgun liðin frá stofnun Snorrastofu í Reykholti og verður dagskrá af því tilefni flutt í hús- næði stofnunarinnar, sem hefst kl. 20. Bergur Þor- geirsson, forstöðumaður Snorrastofu, segir að á þessu tímabili hafi starfsemin stöðugt verið að eflast og von- ast sé til að hún nái að treysta sig enn betur í sessi á komandi árum. Snorrastofa er sjálfseignarstofnun, sem bæði er rekin fyrir framlög hins opinbera og einkaaðila. Skipulagsskrá sú sem liggur til grundvallar starfseminni var samþykkt af ríkisstjórn Íslands 1995 og undirrituð 23. september það ár. Samkvæmt henni er Snorrastofu ætlað að kynna nor- ræna sögu og bókmenntir sem tengjast Snorra Sturlu- syni. Henni er einnig ætlað að kynna sögu Reykholts og Borgarfjarðar sérstaklega. Dagskrá verður sem hér segir: „Snorrastofa í fortíð, nútíð og framtíð“. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu. Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson: „Illt og gott hjá ásum – og Snorra“. Vésteinn Ólason, for- stöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi. Eygló Dóra Davíðsdóttir leikur á fiðlu. Í upphafi munu Bjarni Guðmundsson, formaður stjórnar Snorrastofu, og Guðlaugur Óskarsson, for- maður sóknarnefndar, flytja stutt ávörp. Að dagskrá lokinni er gestum boðið upp á veitingar í tilefni dagsins í Safnaðarsal Reykholtskirkju. Snorrastofa fagnar 10 ára afmæli Morgunblaðið/Golli Snorrastofa er til húsa í Reykholti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.