Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN RÆKILEG kynning á nýju tón- listar- og ráðstefnuhúsi hefur nú farið fram í fjölmiðlum. Greinilegt er að hér hefur verið vandað til verksins og ekkert til sparað við útlitshönnun og útfærslu. Ljóst er að tilkoma hússins verður lyftistöng fyrir Reykja- víkurborg og landið allt og mun bera hróður okkar Íslendinga langt út fyrir landsteinana. Sinfóníuhljómsveit Ís- lands mun loksins eign- ast heimili og stórkost- legan 1.800 sæta sal sem hæfir hljómsveit af þeim gæðum sem hún er, en auk aðalsalarins fær hún til af- nota æfingasal af bestu sort með 450 sætum. Þriðji aðalsalurinn er svo myndarlegur 750 sæta ráðstefnu- og tónleikasalur með hljómburði sem sérhannaður er fyrir hið talaða orð, rokktónlist og aðra upp- magnaða tónlist. Í kynningarátakinu um daginn fór hins veg- ar lítið fyrir tveimur fundarherbergjum í ráð- stefnuhluta mannvirk- isins sem fram- kvæmdastjóri Austurhafnar, Stefán Hermannsson, lýsti í Morgunblaðinu 18. sept- ember á eftirfarandi hátt: „ … (þeim verður hægt að) slá sam- an … með því að hafa færanlegan millivegg, þannig að unnt verði að mynda einleikara-kammermúsíksal fyrir um 180 áheyrendur, með fyr- irtaks hljómburði. Sá salur væri ým- ist notaður til fundahalds eða til tón- leikahalds í þeim tilvikum sem tekjur stæðu ekki undir leigu á stærri sal.“ Það er athyglisvert að hönnunarstjóri Portus-hópsins, Sigurður Einarsson, minnist ekki einu sinni á þennan möguleika nokkrum dögum síðar í viðtali við Mbl. 22. september þar sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið er kynnt almenningi í fyrsta sinn. En það er kannski ekki furða. Hér er nefnilega á ferðinni neyðarúrræði, sem ætlað er að leysa – á elleftu stundu – úr brýnni þörf fyrir alvöru tónleikasal sem nýst gæti stærstum hluta af tónlistarlífi landsins. Staðreyndin er sú að skipuleggj- endur langflestra tónleika þar sem flutt er sígild tónlist (klassísk-, nú- tíma-, kammer-, söng-, kórtónlist) munu ekki geta nýtt sér nema í und- antekningartilfellum neinn af söl- unum þremur sem lýst er hér að ofan. Það þarf ekki að leggja saman tvo og tvo til þess að fá þetta út: 1.800 manna tónleikasalur nýtist ekki nema fyrir sinfóníutónleika og allra stærstu viðburði. Æfingasalurinn, sem rúmar 450 manns, nýtist heldur ekki nema í fáum undantekningartilfellum – til þess er hann of stór og hlýtur auk þess að verða of dýr í útleigu (sbr. til- vitnun í frkvstj. Austurhafnar hér að ofan). Og að sjálfsögðu dugar enn síð- ur þriðja rýmið, 750 sæta salur sem hannaður er fyrir ráðstefnur og raf- magnaða tónlist (popp, rokk, djass). Á þetta hefur ítrekað verið bent og hefur Kjartan Ólafsson tónskáld farið þar fremstur í flokki, en ólíkt því sem sumir hafa viljað vera láta í um- ræðunni undanfarna daga talar hann fyrir hönd breiðfylkingar íslenskra tónlistarmanna. Strax í maí 2004 lýsti hann í ræðu á fundi í Gamla bíói Tónleikahald í fundarherbergjum Pétur Jónasson fjallar um tónlistarhúsið Pétur Jónasson ’Það virðist þess vegnastefna í, þrátt fyrir til- komu stórglæsilegs tón- listarhúss, að allt að 90% af öllum tónleikum höf- uðborgarsvæðisins muni áfram verða haldin í kirkjum.‘ Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma sögunnar. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyr- irmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líffræðileg hönnun þeirra gaf fyrirheit um. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Nýtt einbýlishús í suður- hlíðum Kópavogs í grónu hverfi. Frábært útsýni og staðsett mið- svæðis. Örstutt í skóla og verslanir innan seil- ingar. Fullfrágengið að utan, tilbúið til innréttinga að innan, 218 fm auk 18 fm svala á efri hæð. 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, tvöfaldur bílskúr o.fl. Sérstaklega vandaður frágangur. Verð 65 milljónir. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16 GNÍPUHEIÐI 9 - KÓPAVOGI Byggingarverktaki Birgir R. Gunnarsson ehf., sími 553 2233, 893 1090. FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS - FÍFULIND 3 - 201 KÓPAVOGI ÍBÚÐ 304 Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is FÍFULIND 3, 201 KÓPAVOGI, 3. HÆÐ, ÍBÚÐ 304 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18 4ra herbergja íbúð, 104,4 fm í Lindunum í Kópavogi. Úr stofu er útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Eldhús með fallegum viðar- innréttingum. Við eldhúsið er sérþvottahús með flísum á gólfi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt, gólf og veggir. Stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, verslanir og t.d. Smáralind. Verð 23,9 milljónir. Úlfar, s. 897 9030, tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 16-18. Sími 575 8500 Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík Jón Ellert Lárusson, lögg. fasteignasali Leitum fyrir ákveðinn kaupanda að 4ra-5 herbergja íbúð í Vesturbæ. Gjarnan hæð við Tómasarhaga. Upplýsingar gefur Sverrir Kristjánsson í síma 896 4489. VANTAR Í VESTURBÆ OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18 Fasteigna- firmasala. Guðmundur Þórðarson hdl. & lögg. fasteignasali. Veffang: firmus.is. Sími : 517 2600 & 777 777 BOE ING Fir aC asa Brattahlíð 4, Hveragerði EIGNIR ÓSKAST Einbýli og garðhús alls 195 m2. Gríðarstór lóð sem gefur óhemju marga s.s. byggingu fleiri húsa. Garðurinn er marg verðlaunaður og með merkum trjám. * Hæð/einbýli á höfuðborgarsvæðinu með garði,með eða án bílskúrs. * 2.-5. herbergja íbúðir í nágrenni H.Í,Smáralind,Vatnsenda og víðar. Allar tegundir eigna óskast vegna mikillar sölu.Hafið samband í sala@firmus.is eða Þorstein í 694 3401 möguleika Mikil eftirspurn er um þessar mundir eftir öllum stærðum og gerðum atvinnuhúsnæðis til kaups á höfuðborgarsvæðinu. Höfum á skrá trausta kaupendur með sterkar greiðslur í boði. Einnig höfum við á skrá fyrirtæki sem leita að framtíðarhúsnæði til leigu. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali. EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ Traustur kaupandi óskar eftir 1800-3000 fm skrifstofu- (og þjónusturými). Heil bygging kæmi til greina. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali. SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI ÓSKAST EÐA HEIL BYGGING Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Mjög fallegt endaraðhús, vesturendi, á tveimur hæðum og innbyggður bílskúr, byggt 1984. Í húsinu eru 4 góð svefnherbergi, tvö baðherbergi og góðar stofur. Fallegur garður með skjólveggjum og stórri verönd. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Húsið er í mjög góðu ásigkomulagi. Verð 37,9 m. kr. BIRTINGAKVÍSL 24 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI 16 OG 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.