Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Húsakynni miðstöðvarEvrópska hugvísin-daháskólans láta lítiðyfir sér. Hvítt hús áþremur hæðum við
hliðargötu í Vilníus lítur út fyrir að
vera allt annað en hjarta háskóla-
starfs. Þetta er líka enginn venjuleg-
ur skóli. Skólastarfið fer ekki fram á
hefðbundinn hátt. Nemendurna
vantar á staðinn. Þeir sitja fyrir
framan tölvur heima hjá sér og er
kennt í gegnum Netið.
Skólanum í höfuðborg Hvíta-
Rússlands var lokað í fyrrasumar.
Yfirstjórnin neitaði hins vegar að
láta sér segjast. Skólastarfið fór neð-
anjarðar og náminu var haldið áfram
í fjarkennslu. Prófessorarnir sendu
kennslugögn úr tölvum heima hjá
sér. Miðstöð skólans var flutt yfir
landamærin til Litháen. Hún er á
annarri hæð í hvíta húsinu í Vilníus.
Þar tekur glaðlegur maður þétt í
höndina á mér. Þetta er Vladimir
Dounaev aðstoðarrektor.
Vestræn áhrif óæskileg
Vladimir talar af festu og er ákveð-
inn. Hann er þægilegur viðmóts,
brosir fallega og fær blik í auga þeg-
ar hann ræðir um mikilvægi háskóla
og hugmyndirnar á bak við námið.
Hann lítur ekki út fyrir að vera mað-
ur sem stjórnvöld hafa horn í síðu á
eða manneskja sem framdi nokkuð
það sem álitið var sérlega óæskilegt
– maður sem er í útlegð með háskóla
sínum. Hann er líka ekki sá sem við
er að sakast í þessu samhengi – það
eru stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi.
Forsetinn Aleksander Lúkasjenkó
sagði að stjórnin þyrfti ekki á Evr-
ópska hugvísindaháskólanum að
halda – hún gæti vel menntað sitt
fólk sjálft í ríkisskólunum.
„Þegar hann reyndi að útskýra af
hverju í ósköpunum hann lokaði skól-
anum, sagði hann ástæðuna vera þá
að af honum stafaði ógn. Skólinn
menntaði verðandi elítu landsins og
gerði það að mati forsetans undir
mjög sterkum vestrænum áhrifum.
Það var óæskilegt og stemmdi ekki
við hans eigin hugmyndafræði,“ seg-
ir Vladimir, hugsar sig um eitt and-
artak og bætir við: „Skólinn var vin-
sæll og mikilsvirtur. Að loka slíkum
skóla er alvarlegt brot á akademísku
frelsi og á mannréttindum. Einræði
Lúkasjenkós er hins vegar vel
þekkt.“
Andstæðingar leitaðir uppi
Síðan Evrópski hugvísindaháskól-
inn hóf störf hefur hann verið nokk-
urs konar vin fyrir frjáls skoðana-
skipti í landi sem stöðugt verður
ófrjálsara.
„Ríkið rekur háskólana í Hvíta-
Rússlandi og í þeim getur forsetinn
ráðið og rekið rektora að vild. Svo
var ekki raunin í okkar skóla. Þetta
var einkaskóli og að mestu rekinn
með fjármagni erlendis frá,“ segir
Vladimir. Hann bendir á að í kosn-
ingum árið 2001 hafi forsetinn mætt
andspyrnu stúdenta. Stjórnvöld hafi
þá í fyrsta skipti fundið sterkar mót-
bárur frá ungu fólki og óttast það. Í
framhaldinu voru skólar honum sér-
lega andstæðir leitaðir uppi. Þar á
meðal var Evrópski hugvísindahá-
skólinn.
Neydd til að yfirgefa aðalbygginguna
Lúkasjenkó fyrirskipaði í janúar í
fyrra að rektor skólans skyldi láta af
störfum. Starfið undir hans stjórn
var of frjálslynt. Rektorinn neitaði
hins vegar að fara, enda hafði Lúk-
asjenkó ekki með ráðningu hans að
gera. Þetta var ekki venjulegur rík-
isskóli. Nemendur og starfsfólk
stóðu þétt að baki rektorsins. „Þegar
stjórnin fann mótspyrnuna og sá að
hún gæti ekki losað sig við rektorinn
ákvað hún hreinlega að loka skólan-
um,“ segir Vladimir með þunga.
Um mitt sumar í fyrra neyddu
stjórnvöld háskólafólkið til að yfir-
gefa aðalbygginguna. Viku seinna
var skólanum síðan veitt náðarhögg-
ið: Leyfi til skólastarfsins var aftur-
kallað – og það á þeim grundvelli að
skólastofur til kennslunnar vantaði.
Engin furða að þær voru ekki til
staðar – þær höfðu verið teknar af
skólanum nokkrum dögum áður.
Hjá háskólanum réð fólk ráðum
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Vladimir Dounaev frá Hvíta-Rússlandi er aðstoðarrektor Evrópska hugvís-
indaháskólans sem er í útlegð í Litháen.
Háskóli í útlegð
Geta háskólar verið í útlegð? Í hvítri byggingu með rauðu þaki í höfuðborg Litháen
fæst svarið. Það er jákvætt. Stjórnvöld í nágrannaríkinu Hvíta-Rússlandi álitu Evr-
ópska hugvísindaháskólann ógna hugmyndum sínum og fyrirskipuðu í fyrra að
honum skyldi lokað. Sigríður Víðis Jónsdóttir hitti aðstoðarrektor sem neitaði að
gefast upp og heyrði af kennslu í heimahúsum.
Miðstöð Evrópska hugvísindaháskólans í Litháen er íbúðarhúsi við hliðargötu í höfuðborginni. Þang-
að flúði stjórnsýsla skólans eftir að honum var lokað.
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Götulíf í Vilníus þar sem hvítrússneski háskólinn kom sér upp nýrri miðstöð eftir að hafa verið lokað
í fyrra af yfirvöldum í heimalandinu.
Íþróttir á morgun
Helgin öll…
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A l l i r g e t a b ó k a ð s i g í Bæ n d a f e r ð i r
Bændaferðir
Þýskaland
Sviss
2. - 9. desember 2005
Fararstjórar: Agnar Guðnason og Finnbogi Eyjólfsson
Flogið verður til Frankfurt. Ekið þaðan til bæjarins Kehl, sem er rétt fyrir utan
Strassborg og gist þar í eina nótt. Frá Kehl verður ekið suður um Elsass
héraðið til Colmar og þaðan yfir Rín til Weil, en þar verður gist næstu 3 nætur.
Eftir dagsferð yfir til Sviss og rólegan dag verður haldið áfram til bæjarins
Bamberg og gist þar í 3 nætur. Farið þaðan í dagsferð til Würzburg og að
sjálfsögðu einnig á jólamarkaðinn í Bamberg. Flogið heim frá Frankfurt.
Frakkland
Verð: 88.100 kr. á mann í tvíbýli
Aðventuferð 2