Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 44
minnst fyrir góðmennsku, glaðværð
og glæsileika.
Við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur til Þóru móður
hennar, sem á stuttum tíma hefur
þurft að sjá að baki eiginmanni, syst-
ur og nú dóttur, Robert eiginmanns
hennar, dætranna Elísabetar og
Þóru, til Þórðar, Gyðu og Ívars, Sig-
urðar, Hrafnhildar, Hildar, Sigurðar
Þórs og Rósu.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson.)
Blessuð sé minning þín.
Ágústa, Anna Magnea, Guðný
og fjölskyldur.
Hæ, Ágústa.
„Stelpur, dress up party.“ Og við
örkum upp tröppurnar hjá ömmu
Dótlu og förum í allt búningasafnið
hennar. Föt, hárkollur, skó og sjöl.
Og trilluðum niður tröppurnar.
Tískusýning! Og allir klöppuðu og
flautuðu. Svo fengum við leiða á því.
Þá náði Ágústa í raksápu og matarlit
og við sulluðum allt út um allt og
malt og appelsín. Rennandi sullu-
blautt. Þá sagði Ágústa: „Ógeðslega
flott“, og þá var bara allt „ógeðslega“
gaman. Þú varst góða frænkan sem
öll börn eiga að njóta. Ég mun alltaf
muna hvað þú varst góð við mig. Ég
vona að ég verði einhvern tíma
„ógeðslega“ skemmtilega frænkan
eins og þú. Vegna þess að þegar við
lékum leikina þína, og þú varst ekki
með af því að þú bjóst í Ameríku, þá
var bara ekkert gaman!
Það vantar Ágústu. Ég „bara“
sakna þín.
Þín
Hildur.
Ágústa best af öllum!
Þegar ég hitti þig fyrst fyrir 30 ár-
um varðst þú strax vinkona mín.
Traustur vinur er vandfundinn, svo
ég var heppin að eignast þig. Þú
varst alltaf boðin og búin til að gera
allt sem þú gast fyrir mig og mína,
hvort sem það var hér heima eða í
Ameríku. Krökkunum mínum fannst
þú alltaf „ógeðslega“ skemmtileg.
Það er svo undarlegt að heyra aldrei
aftur röddina þína eða sjá þig koma
arkandi á móti sér. Þú ert yndisleg,
Ágústa. Ég horfði á snjóhvítu skýin
þegar þú varst jörðuð, aldrei jafn-
hvít. Þá datt mér í hug að nú værir
þú örugglega komin í himnaríki með
klórbrúsann að þrífa skýin. Þá líður
okkur hinum svo vel. Þannig varst
þú. Alltaf langbest.
Ágústa – rosalega vantar þig!
Sakna þín, sakna þín, sakna þín!
Bob, Elísabet, Þóra, amma Dótla,
Bóbó, Siggi og allir sem þótti vænt
um Ágústu, minnumst góðu stund-
anna, þannig verður hún alltaf með
okkur.
Hrafnhildur.
Elsku Ágústa mín. Takk fyrir
hvað þú varst alltaf góð við mig. Ég
veit að þú ert núna engill í gullkjóln-
um þínum og ert búin að hitta afa
Sigga Matt.
Takk fyrir öll Disney-dýrin, dúkk-
urnar, límmiðana og allar gjafirnar
sem þú gafst mér. Mér fannst alltaf
svo gaman að hitta þig, af því að við
vorum alltaf „ógeðslega“ góðar vin-
konur. Ég vil alltaf hafa þig og eiga
þig.
Sakna þín.
Þín
Rósa.
✝ Ágústa Sigurð-ardóttir Pow-
ers fæddist í
Reykjavík 1. apríl
1947. Hún lést á
heimili sínu í
Oviedo í Flórída 5.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar eru Sigurð-
ar Matthíasson, f.
31.10. 1922, d.
27.7. 2002, og Þóra
Þórðardóttir, f.
1.6. 1924. Bræður
Ágústu eru Þórð-
ur, f. 20.4. 1948, og Sigurður, f.
24.2. 1958.
Ágústa giftist Robert Lee
Powers 3.7. 1971.
Þau eignuðust
tvær dætur, Elísa-
bet Ann, f. 29.4.
1977, gift Jose Iz-
quierdo, og Þóru
Ágústu, f. 8.9.
1980.
Ágústa fékkst
við ýmis störf hér
heima og erlendis,
m.a. hjá O. John-
son & Kaaber, við
kennslu þroska-
heftra í Hawaii og
síðustu árin hjá
Disney World í Flórída.
Útför Ágústu fór fram í kyrr-
þey.
Yndisleg og falleg frænka okkar,
Ágústa Sigurðar, er nú látin, langt
fyrir aldur fram. Ágústa var dóttir
Þóru Þórðardóttur og Sigurðar
Matthíassonar. Hún var elst þriggja
systkina, en bræður hennar eru
Þórður og Sigurður. Þau ólust upp í
Barmahlíðinni.
Ágústa var einstaklega falleg ung
stúlka með stríðnisglampa í augum
enda tók hún ung þátt í fegurðar-
samkeppni Íslands og stóð sig með
sóma. Hún var viljasterk og ákveðin
og oft óhagganleg þegar hún hafði
ákveðið eitthvað. Hún var snyrtileg
og lagði áherslu á að hafa snyrtilegt í
kring um sig.
Ágústa giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Robert Lee Powers,
1971 og fluttist með honum til
Bandaríkjanna. Þau eignuðust tvær
dætur, Elísabet og Þóru Ágústu,
sem þau sáu ekki sólina fyrir. Robert
gegndi herþjónustu sem hafði í för
með sér tíðan flutning á fjölskyld-
unni. Þau bjuggu meðal annars um
tíma á Hawaii þar sem Ágústa naut
sín í starfi með fötluðum börnum.
Hún var drífandi og duglegur starfs-
kraftur, hvar sem hún starfaði.
Síðastliðin ár bjuggu Ágústa og
Bob í Oviedo í Flórída og starfaði
Ágústa í ævintýralandi Disneys.
Dætur hennar hafa báðar valið
menntaveginn, Elísabet er lögfræð-
ingur og Þóra að klára dýralækninn
og var Ágústa afar stolt af stelpun-
um sínum.
Hún naut þess að fá heimsóknir
ættingja frá Íslandi og hafði gaman
af því að bjóða frænku börnunum í
Disney, þar sem þau fengu að heilsa
upp á allar fígúrurnar sem Ágústa
passaði svo vel uppá. Hún naut þess
að umgangast börn, gat sjálf verið
barn í sér og fannst alltaf jafn gaman
að sjá sýninguna um Lion King í Ani-
mal Kingdom garðinum og renn-
blotna í rússíbanaferðum.
Ágústa var dugleg að koma með
fjölskyldu sína heim til Íslands og
dvaldi þá í góðu yfirlæti hjá foreldr-
um sínum í Espigerðinu. Íslensku
ræturnar skiptu hana miklu máli,
hún kenndi dætrum sínum íslensku
og bar heimili hennar vitni um upp-
runa hennar. Ágústa fylgdist vel
með ættingjum sínum og vinum á Ís-
landi þó að fjarvera frá landinu hafi
verið löng. Ágústu verður helst
ÁGÚSTA SIGURÐAR-
DÓTTIR POWERS
44 SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Góður vinur minn er látinn. Einar
var vinur minn til margra ára. Hann
var mjög góður maður og mátti ekk-
ert aumt sjá. Hin síðari ár þegar
Einar varð orðinn veikur fylgdist
hann með börnum og barnabörnum
eins og hann gat. Hann var hreykinn
af börnum sínum.
Einar skildi við konu sína og síðar
EINAR
SIGURÐSSON
✝ Einar Sigurðs-son fæddist í
Reykjavík 9. júlí
1943. Hann lést á
heimili sínu í Hátúni
10b í Reykjavík að-
faranótt fimmtu-
dagsins 22. septem-
ber síðastliðinn og
var útför Einars
gerð frá Fossvogs-
kapellu 29. septem-
ber.
Vegna mistaka í
vinnslu birtust
greinarnar hér fyr-
ir neðan með minningargreinum
um nafna Einars í föstudags-
blaðinu 30. september og eru því
endurbirtar hér. Hlutaðeigendur
eru beðnir afsökunar á mistökun-
um.
hóf hann búskap með
Ingunni Ólöfu Ólafs-
dóttir. Ingunn átti
börn frá fyrra hjóna-
bandi sem Einar
reyndist vel í alla staði.
Ég votta börnum og
barnabörnum Einars
mína dýpstu samúð.
Ég vil þakka Auði
dóttir Ingunnar heit-
innar fyrir hvað hún
reyndist Einari vel alla
tíð. Megi góður guð
vaka yfir ættingjum og
vinum Einars Sigurðs-
sonar. Þar er farinn góður maður.
Guðjón Sigurðsson.
Elsku afi minn, nú ertu farinn upp
til himna. Þar sem stjörnurnar skína
svo skært. Ein stjarnan er amma
sem vísar þér leiðina til sín. Því sam-
an ætlið þið að lýsa upp himininn. Og
þegar við horfum upp þá skína tvær
stjörnur hlið við hlið og þá vitum við
að þar eruð þið amma sem vísið okk-
ur veginn um ókomna tíð.
Nú kveðjum við þig, elsku afi, og
vonum að þér líði vel. Ástar- og sakn-
aðarkveðjur.
María Katrín og Hekla Rán.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR
frá Grenjaðarstað,
sem lést þriðjudaginn 27. september, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 3. októ-
ber kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknar-
stofnanir.
Sigurður Guðmundsson,
Steinunn S. Sigurðardóttir, Ingólfur S. Ingólfsson,
Halldór Sigurðsson, Ester Hjartardóttir,
Guðmundur Sigurðsson, Sigrún Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir, Bragi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega öllum þeim, sem heiðruðu
minningu sonar míns, bróður okkar og mágs,
STEINGRÍMS KRISTJÓNSSONAR,
Laugavegi 143,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar þeim trúfélögum,
sem hann stundaði samkomur hjá, svo og vinum
hans í Sjálfsbjörgu, Rauða krossi Íslands,
Geðhjálp og Félagsstarfi Vitatorgi. Einnig öllum sem veittu honum athvarf
og umhyggju á lífsgöngu hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Guðrún Kristjónsdóttir, Gylfi Knudsen,
Laufey Kristjónsdóttir, Sverrir Þórólfsson,
Linda Rós Kristjónsdóttir, Sigurður Gunnarsson,
Jóhann Kristjónsson, Kristín Egilsdóttir,
Arnrún Kristinsdóttir, Einar Þorvarðarson,
Finnbogi E. Kristinsson, Sólveig Birgisdóttir,
Hjörtur Kristinsson, Dagný Emma Magnúsdóttir,
Anna Kristinsdóttir, Gunnar Örn Harðarson,
Árni Kristinsson, Ingibjörg Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Ættingjar, nemendur, vinir og samstarfsfólk.
Innilegar þakkir fyrir nærveru ykkar, hlýju og
samúð vegna veikinda og andláts
GEIRLAUGS MAGNÚSSONAR
skálds.
Sérstakar kveðjur og þakkir til starfsfólks Karitas-
ar, krabbameinsdeildar LSH 11 E og líknardeildar
LSH.
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, Arnar Eggert Thoroddsen,
Ísold Thoroddsen,
Aðalheiður Stefánsdóttir,
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
Ólöf Margrét Magnúsdóttir,
Petrina Rós Karlsdóttir.
Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts
bróður okkar, mágs og frænda,
BJARKA A. UNNSTEINSSONAR
frá Reykjum í Ölfusi,
Bárugötu 19.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Grétar J. Unnsteinsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Hanna Unnsteinsdóttir, Eyjólfur Valdimarsson
og systkinabörn.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát
og útför
STEINÞÓRS GESTSSONAR,
fyrrv. alþingismanns og bónda
á Hæli.
Sérstakar þakkir eru færðar Guðrúnu Gísladóttur
og starfsfólkinu á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund fyrir umhyggju og alúð.
Jóhanna Steinþórsdóttir,
Gestur Steinþórsson, Drífa Pálsdóttir,
Aðalsteinn Steinþórsson,
Margrét Steinþórsdóttir,
Sigurður Steinþórsson, Bolette Höeg Koch,
barnabörn og barnabarnabörn.