Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 9
FRÉTTIR
VILTU VERÐA JÓGAKENNARI
EÐA DÝPKA JÓGAÁSTUNDUN ÞÍNA?
Jógaskólinn hefst að nýju í október en frá árinu 1997 hefur
Ásmundur Gunnlaugsson útskrifað nemendur, sem ýmist starfa
sem jógakennarar í dag eða hafa tekið þátt til þess að dýpka
þekkingu sína. Námskeiðið er yfirgripsmikið og öflugt
sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið, tækifæri til að nema af
kennara með mikla reynslu og þekkingu. Tilhögun þess fer saman
með starfi og öðru námi, en kennt er eftirfarandi helgar: 21.-23.
október, 25.-27. nóvember, 20.-22. janúar, 24.-26. febrúar, 24.-26. mars og 28.-30. apríl (fös.
kl. 20-22, lau. og sun. kl. 9-15). Námið er viðurkennt af International Yoga Federation.
Allar nánari upplýsingar á www.jogaskolinn.is
S K Ó L I N N
Skeifan 3B,
Reykjavík
Skráning í símum 862 5563 og 862 5560
eða á www.jogaskolinn.is
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Hausttilboð okkar á 2006 árger›
Dethleffs er óvenjugott. Öllum sta›festum pöntunum fylgir sem sagt
ókeypis fortjald. Me› flví a› panta núna er einnig hægt a› velja
aukabúna› og áklæ›i og fá hjólh‡si› afhent algjörlega eftir sínu höf›i.
Haf›u samband,- fletta takmarka›a tilbo› gildir a›eins í október.
Dethleffs
2006 hjólhýsum
fylgir ókeypis fortjald!
Auglýst eftir styrkjum
úr Menningar- og
viðurkenningarsjóði KEA
KEA auglýsir eftir styrkumsóknum til Menningar- og
viðurkenningarsjóðs félagsins.
Styrkúthlutun fer fram í byrjun desember.
Styrkúthlutun að þessu sinni tekur til tveggja þátta:
a) Málefna einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að
mikilvægum menningarmálum á félagssvæði KEA.
Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála,
minjavörslu, lista og íþrótta og hverra þeirra málefna
sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu.
b) Ungra afreksmanna á sviði mennta, lista og íþrótta eða til
viðurkenninga fyrir sérstök afrek t.d. á sviði
björgunarmála. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera
yngri er 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.
Styrkir eru veittir tvisvar á ári úr Menningar- og
viðurkenningarsjóði KEA.
Umsóknir um styrki og framlög úr sjóðnum skulu berast
skrifstofu KEA í Hafnarstræti 91, Akureyri, á sérstökum
eyðublöðum sem þar eru til afhendingar. Einnig er unnt að
nálgast umsóknareyðublað og fá allar upplýsingar um Menningar-
og viðurkenningarsjóð KEA á heimasíðu KEA- www.kea.is .
Umsóknarfrestur er til
1. nóvember 2005
GUÐNI Þór Jónsson hefur ákveðið
að bjóða sig fram í 5.–7. sæti á lista
sjálfstæðismanna til borgarstjórnar
í Reykjavík.
Guðni Þór hef-
ur sett fram
stefnumál í sjö
liðum, sem lúta að
velferðarmálum,
skipulagsmálum
og umferðarmál-
um. Hann vill
m.a. að foreldrar
með börn á leik-
skóla fái þá þjón-
ustu sem þeir greiða fyrir. Hann vill
að tekið verði upp ávísanakerfi til að
örva virka þátttöku barna og ung-
linga í heilbrigðu og skipulögðu
íþrótta- og tómstundarstarfi og tón-
listarnámi. Hann leggur til að byggð
verði ný hjúkrunarheimili til að
mæta brýnni þörf fyrir eldri borg-
ara. Þá vill hann að byggð verði mis-
læg gatnamót á Miklubraut og
Kringlumýrarbraut.
Guðni Þór mun á næstu dögum
opna vefsíðuna www.gudnithor.is,
Guðni Þór er fæddur í Reykjavík
1959 og er sölustjóri. Hann var
stjórnarmaður í sjálfstæðisfélaginu í
Hóla- og Fellahverfi og síðar for-
maður félagsins í nokkur ár. Guðni
Þór hefur starfað lengi að félagsmál-
um og var árið 1992–1993 landsfor-
seti Junior Chamber á Íslandi auk
þess að vera framkvæmdastjóri fyrir
Evrópuþing Junior Chamber Int-
ernational sem haldið var hér á landi
árið 1997. Hann var varaformaður
Foreldra- og kennarafélags Hóla-
brekkuskóla 1988–1991.
Guðni Þór
býður sig fram
í 5.–7. sæti
Guðni Þór Jónsson
FJÓRÐA vélasamstæða Nesjavalla-
virkjunar var vígð við hátíðlega at-
höfn í gær og telst virkjunin nú full-
byggð. Öll afköst þessarar síðustu
vélasamstæðu virkjunarinnar, 30
MW, fara til að knýja álver Norður-
áls á Grundartanga, en nú er af-
kastageta virkjunarinnar alls 120
MW í rafmagni og 300 MW í fram-
leiðslu á heitu vatni.
Nesjavallavirkjun, sem er í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur (OR), er nú
fimmtán ára, en fyrstu átta árin var
þar eingöngu framleitt heitt vatn
fyrir höfuðborgarsvæðið.
Vélasamstæðan er af sömu gerð
og hinar þrjár, en fyrstu tvær vél-
arnar voru teknar í notkun 1998 og
sú þriðja 2001. Þær eru frá Mitsub-
ishi og er afskriftartími þeirra um
fjörutíu ár. Vélin sjálf kostar um 2,2
milljarða og er tekin í notkun tveim-
ur vikum á undan áætlun. Þá var
kostnaður vegna vélarinnar vel und-
ir kostnaðaráætlun. Alls er fjárfest-
ingarkostnaður vegna fullbúinnar
Nesjavallavirkjunarinnar nú um 26
milljarðar með pípunni sem liggur til
höfuðborgarinnar.
Guðjón Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur, segir mikilvægt að líta
til umhverfissjónarmiða virkjunar-
innar. „Þetta er algerlega afturkræf
virkjun og hægt að fá öll þau nátt-
úrugæði sem fóru undir mannvirkja-
gerð aftur,“ segir Guðjón.
Við vígsluathöfnina fluttu erindi
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri, Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra, Eiichi Ishii, forstjóri
Mitsubishi Heavy Industries Eur-
ope, Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitur Reykjavíkur, og
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar.
Nesjavallavirkjun
í fullan rekstur
Morgunblaðið/Árni Torfason
Síðasti áfangi Nesjavallavirkjunar var formlega tekinn í notkun í gær en um er að ræða 30 MW gufuhverfil og er
virkjunin þar með komin með 120 MW rafmagnsframleiðslu. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, voru meðal annarra viðstaddar opnunina.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn