Morgunblaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 2005 41
FRÉTTIR
DOKTORSVÖRN fer fram við
læknadeild Háskóla Íslands föstu-
daginn 7. október. Þá ver Sædís
Sævarsdóttir
læknir dokt-
orsritgerð sína:
‘Mannan binding
lectin (MBL) in
inflammatory di-
seases’ (‘mannan
bindilektín í
bólgusjúkdóm-
um’). Andmæl-
endur verða dr.
Steffen Thiel, frá
Háskólanum í Ár-
ósum og dr. Björn Guðbjörnsson,
dósent við læknadeild HÍ. Kristján
Erlendsson, varaforseti læknadeild-
ar, stjórnar athöfninni, sem fer fram
í Lögbergi stofu 101 og hefst kl. 14.
Ritgerðin fjallar um próteinið
MBL í bólgusjúkdómum. Nið-
urstöður hennar benda til að ein-
staklingar sem hafa mikið af MBL í
blóði geti síður átt á hættu að fá
kransæðastíflu (MI), rauða úlfa
(SLE) og sjálfsofnæmi í skjaldkirtli
(Graves’, Hashimoto’s). MBL ræsir
komplímentferli ónæmiskerfisins og
hjálpar hvítfrumum við að eyða ör-
verum og frumuleifum úr lík-
amanum. Arfgengur skortur á MBL
er algengur. Þeir sem eru með lágt
MBL reyndust hafa aukna áhættu á
að fá kransæðastíflu, en þessi
áhætta virtist fyrst og fremst vera
til staðar í einstaklingum með syk-
ursýki, hækkað kólesteról eða þrá-
látar bólgur.
Leiðbeinandi verkefnisins var
próf. Helgi Valdimarsson. Auk hans
sátu í doktorsnefnd próf. Kristján
Steinsson, dr. Vilmundur Guðnason
dósent, dr. Bergljót Magnadóttir og
Þóra Víkingsdóttir.
Doktorsvörn
frá lækna-
deild HÍ
ÓLI Jón Jónsson hefur tekið við
starfi skrifstofustjóra stjórnsýslu-
sviðs hjá Ríkisendurskoðun, að því
er fram kemur í
tilkynningu Rík-
isendurskoðunar.
Segir að ráðning-
in sé liður í breyt-
ingum á innra
stjórnskipulagi
stofnunarinnar
sem miði að því
að auka skilvirkni
í störfum hennar.
Eftir breyting-
arnar heyri öll fjárhagsendurskoðun
undir tvö endurskoðunarsvið og
fækkar um eitt frá því sem verið hef-
ur.
„Þá hafa verið skipaðir fimm verk-
efnastjórar í fjárhagsendurskoðun
sem munu starfa við hlið skrifstofu-
stjóra og er það nýtt í stjórnskipan
stofnunarinnar. Hluti verkefna
stjórnsýslusviðs flyst til skrifstofu
ríkisendurskoðanda, þ.e. þau sem
varða stefnumörkun um verkefnaval
og eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
Þá mun einn verkefnastjóri starfa
við hlið hins nýja skrifstofustjóra
stjórnsýslusviðs. Þrátt fyrir þessar
breytingar mun fjöldi starfsmanna
Ríkisendurskoðunar haldast
óbreyttur,“ segir í tilkynningunni.
Óli Jón lauk BA-prófi í sagnfræði
og heimspeki frá HÍ árið 1996,
stundaði nám í stjórnmálafræði við
Stokkhólmsháskóla 1996–1997 og
lauk meistaraprófi í Evrópustjórn-
málum frá Háskólanum í Lundi árið
1998. Hann var blaðamaður á Morg-
unblaðinu 1999–2000, sérfræðingur
á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoð-
unar 2000–2002 og ráðgjafi og að-
stoðarframkvæmdastjóri KOM al-
mannatengsla 2002–2005.
Tekur við
starfi skrif-
stofustjóra
hjá Ríkis-
endurskoðun
Óli Jón Jónsson
Sædís
Sævarsdóttir
Úthagi 7 er 119,8m2 einbýlishús,
3 herb.og stofa og möguleiki að
bæta við einu svefnherbergi í
viðbót. Ofnar eru nýlegir með hitastýrðum krönum. Eldhúsinnréttingin er hvít-
lökkuð, góð borðstofa við eldhúsið. Gólfefni eru plastparket gott á gangi eldhúsi
borðstofu og hjónaherbergi, teppi á stofu og anddyri, dúkar á barnaherbergjunum og
baðherbergi. Garðurinn er mjög gróinn og skjólsæll.
Fasteignasalan
Bakki
Sigtún 2 Selfossi
Sími 482-4000
www.bakki.com
Árni Valdimarsson lögg.fasteignasali
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
BERJAVELLIR - HF. - LYFTUHÚS
Höfum tekið í sölu glæsilega lúxsusíbúð, 112,5 fermetra, á fjórðu hæð með sérinn-
gangi í nýju klæddu fjölbýli ásamt einu stæði í bílageymslu. Íbúðin er arkitekta-
hönnuð og sérlega smekklega innréttuð með glæsilegum innréttingum og gólfefn-
um. Góðar suðursvalir. Gott útsýni. Verð 29,5 millj. Laus strax.
Myndir á Hraunhamar.is eða á mbl.is.
Miðleiti Gimli - 103 Rvík
Draumahús ehf.
Hjalti Pálmason hdl. og Sigurður J. Sigurðsson, löggiltir fasteignasalar.
Eldri borgarar ( 55 ára og eldri) Miðleiti - efsta hæð - mikið út-
sýni Um 90 fm (m. geymslu) íbúð á 6. hæð með bílskýli. 2 íbúðir
á stigagangi. Allar innréttingar, tæki, bað og parket nýtt. Lýsing:
Stofa, borðstofa, hol, eitt svefnherbergi, eldhús/lokað, bað m.
þvottaaðstöðu, 20 fm flísalagðar svalir með miklu útsýni. Góð
geymsla með skápum og hillum. Mikil sameign. Veislusalur,
leikfimisalur, gufa, hárgreiðslustofa, nuddstofa og húsvörður er í
húsinu. Hægt er að fá mat í hádegi. Verð 33.000.000.
Fallegt og vel skipulagt 151 fm einbýlishús á þremur hæðum í miðborginni.
Húsið var endurbyggt árið 1989 og var m.a. skipt um allan við utan á húsinu,
þak, gler og glugga og lagnir. Á aðalhæð eru forstofa, eldhús, borðstofa með
útgangi á lóð, setustofa og eitt herbergi. Í risi eru rúmgott sjónvarpshol, tvö
herbergi og baðherbergi og í kjallara eru forstofa, eldhús með nýrri innrétt.,
stórt opið rými (hægt að nýta sem stofu/herb.) auk geymslu og þvottaherb.
Falleg gróin lóð. Sérbílastæði á baklóð. Verð 34,9 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Vesturgata
Nýlega endurbyggt einbýlishús
Fjárfestar - Byggingaraðilar
Nýtt á skrá
Til leigu - Stangarhylur - Rvík
Nýtt á skrá
350 fm jarðhæð, mótt., opið rými, skrifst. og lager ásamt innkeyrslud. á lager.
Staðsett á mjög góðum stað á höfðanum. Mjög gott auglýsingag., mjög sýnilegt
frá Vesturlandsvegi. Góð aðkoma. Lóð fullbúin og bílastæði malbikuð. Hentar
td. félagastarfsemi, atvinnustarfsemi, skrifstofurekstri og/eða heildsölu.
Allar nánari uppl. á skrifst. Magnús.
Til leigu - Fossaleynir - Nýtt á skrá
734,9 fm verslunarhúsnæði, allt á einni hæð. Mjög góð lofthæð. Innkeyrsludyr.
Mögulegt er að opna húsið með stórum gluggum. Mjög gott útipláss. Malbikað
bílastæði. Mjög góð staðsetning - gott auglýsingagildi. Húsnæðið er laust nú
þegar. Hagstæð leiga.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
Til sölu 5-6 hektarar byggingarlands á höfuðborgarsvæðinu.
Mikil uppbygging á svæðinu. Mjög góð staðsetning.
Verð tilboð.
Vegna mikillar sölu og aukinnar eftir-
spurnar vantar okkur flestar stærðir
verslunar-, iðnaðar- og skrifstofuhús-
næðis á öllu höfuðborgarsvæðinu
- traustur kaupendahópur
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
-Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
Vantar strax
Skrifstofur 200-600 fm skrifstofur á efri hæðum í vand-
aðri skrifstofubyggingu, staðsett á svæði 101 Rvk. eða
á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu. Mjög traustur
kaupandi eða leigutaki.
Sjúkraþjálfun 500-700 fm að mestu opið rými á jarðhæð eða á
efri hæðum í góðu lyftuhúsi, staðsetning 101 Reykjavík.
Mjög traustur kaupandi eða leigutaki.
Veislusalur 500-700 fm að mestu opið rými á jarðhæð eða á
efri hæðum í góðu lyftuhúsi, staðsett á góðum stað í Reykjavík
eða Kópavogi. Mjög traustur kaupandi eða leigutaki.
Iðnaðarbil 100-150 fm með góðum innkeyrsludyrum og góðu
útiplássi, staðsett á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu.